Morgunblaðið - 16.03.1997, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 16.03.1997, Blaðsíða 56
560 6060 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I. 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Bankastjóri Búnaðar- bankans um fjárfest- ingar Landsbankans Verið að brjóta lög um eigin- fjárhlutfall SÓLON Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbankans, segist telja að Landsbankinn sé að bijóta lög og reglur um eiginfjárhlutfall banka með kaupum á hlut Eignarhaldsfé- lags Brunabótafélagsins í VÍS. „Við erum undrandi á þessum kaupum því að samkvæmt lögum og reglum á bankinn ekki að geta ^►þetta. Okkar hagfræðingar, endur- skoðendur og lögfræðingar hafa skoðað þetta og þeim ber saman um að ef við gerðum svipuð kaup og Landsbankinn hefur gert værum við að bijóta öll lög og reglugerðir um eiginfj árhlutfall. “ Sólon sagði að eiginijárhlutfall Búnaðarbankans væri rétt innan við 10, en eiginijárhlutfall Landsbank- ans væri 9,33. Þrátt fyrir þetta teldi Búnaðarbankinn sér ekki fært að fjárfesta eins og Landsbankinn. „Talsmenn Landsbankans hafa 'sagt að þeir ætli einungis að taka 12% inn í útreikninginn, sem þeir borga á þessu ári. Þegar er kominn á samningur um kaup verða þeir að færa allt saman til eignar og það sem þeir skulda til skuldar og það ruglar þeirra eiginijárútreikninga," sagði Sólon. Engar athugasemdir Þórður Ólafsson, forstöðumaður Bankaeftirlits Seðlabankans, sagði að stjórnendur Landsbankans hefðu gengið á fund Bankaeftirlitsins og gert því grein fyrir áformum sínum og forsendum sem þau byggðu á. Bankaeftirlitið hefði farið yfir málið og gerði ekki athugasemdir við það. jg^Hann sagði, að með þessum kaupum væri bankinn ekki að bijóta reglur um eiginijárhlutfall, að mati stofn- unarinnar. Kjartan Gunnarsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sagði í Morgunblaðinu í gær, að kaupin myndu ekki hafa nein áhrif á eiginij- árhlutfall bankans. HRATT Á SKÍÐUM Mo'*u“/I' Kísilmálmbræðsla á Grundartanga? VERÐI fjórði ofninn byggður við Járnblendiverksmiðjuna á Grundar- tanga eru miklar líkur á að hann framleiði kísilmálm, en ekki kísiljárn eins og verksmiðjan framleiðir í dag. Samningar um þriðja ofninn náðust eftir að Elkem í Noregi samþykkti að hækka mat á verðmæti verk- smiðjunnar um 200 milljónir. Járnblendiverksmiðjan framleiðir efni sem á erlendum málum kallast ferrosilicon. Framleiðslan fer þannig fram að kvarsi er varpað í bræðslu- ofn og með rafskautum er því breytt í efni sem er 75-76% silisíum og 21-22% járn. Silisíum er notað til að búa til stál. Kísilmálmurinn er hins vegar málmur sem er meira en 99% silisíum og helst má ekkert járn vera í málminum. Verðmæti efnisins fer eftir því hversu lítið er af auka- efnum í því. Mest af kísilmálmi er notað í álframleiðslu, en einnig fer svolítið í magnesíumframleiðslu og í allskyns silicon-efni. Dýrari framleiðsla Vinnsla á kísilmálmi er dýrari en á kísiljárni. Við vinnsluna er notað dýrara hráefni, meira rafmagn, en framleiðslan er líka verðmætari. Eftirspurn eftir kísilmálmi hefur aukist hraðar en eftir kísiljárni. Ástæðurnar eru þær að kísilmálmur er notaður í fjölbreyttari framleiðslu og notkun á áli í heiminum vex hrað- ar en notkun á stáli. Verði kísilmálm- bræðsluofn byggður á Grundartanga er talið að það muni styrkja verulega rekstur Járnblendiverksmiðjunnar. Fyrir 10 árum voru uppi áform um að byggja kísilmálmbræðslu á Reyðarfirði. Verðlækkun á kísil- málmi á heimsmarkaði og hækkun á verði dollarans kipptu hins vegar grundvelli undan framkvæmdum. ■ Elkem hækkaði/4 Órói vegna mjólkur- flutninga VERKFALLSMENN Dags- brúnar hjá Mjólkursamsölunni segja að mikið magn mjólkur hafi verið flutt frá Selfossi á undanförnum dögum í nokkrar verelanir í Reykjavík. Ólafur Ólafsson trúnaðar- maður Dagsbrúnar, segir mikla reiði meðal Dagsbrúnarmanna í garð starfsmanna Mjólkurbús Flóamanna. Segir hann þá íhuga að fjölmenna til Selfoss á mánudag, „til að þakka Flóa- mönnum fyrir stuðninginn". Dagsbrún veitti Mjólkur- samsölunni undanþágu í gær til að prufukeyra nýja pökkun- arvél og unnu Dagsbrúnar- menn sjálfir við pökkun og dreifingu mjólkurinnar á sjúkrahús. Alnetið einna ^ódýrast á Islandi Árekstur á Suðurlandsvegi Fimmtán flutt- ir á slysadeild Þyrla sótti slasaðan mann til Víkur AF EVRÓPULÖNDUM er notkun á alnetinu ódýrust á íslandi og ein- hver hin ódýrasta innan OECD- landanna. Af því leiðir einnig áð notkun alnetsins á íslandi er al- mennari en víðast hvar í heiminum. Aðeins Bandaríkin, Ástralía og Kanada standa íslendingum framar í notkun á alnetinu. Þetta kemur fram í skýrslu Efna- hags- og framfarastofnunarinnar (OECD) sem gefin verður út í næsta mánuði, og greint er frá í Wall ^ Street Journal sl. fimmtudag. Þar kemur fram að notendur alnetsins í löndum þar sem kostnaður við símþjónustu og alnetstengingu er hæstur, svo sem í Mexíkó, á írlandi og í Austurríki, þurfi að greiða allt að 90 dollara (um 6.400 kr.) á mánuði en notendur í N-Ameríku og Ástralíu greiði innan við 30 doll- ara eða 2.130 kr. á mánuði fyrir slíka þjónustu. Kostnaður við al- netstengingu um síma á Islandi er litlu hærri eða rösklega 35 dollarar (um 2.500 kr.) á mánuði. Kostnaður ræður mestu um notkunina í WSJ kemur einnig fram að í Evrópu sé deilt á alnetið fyrir það að þar séu enskumælandi áhrif og bandarísk menning allsráðandi. En skýrslan sýni ótvírætt að það sé ekki tungumálið heldur kostnaður- inn sem ráði mestu um það hversu almenn alnetsnotkunin er. Þessu til sönnunar er nefnt að alnetsnotkun á hvern íbúa sé óvíða almennari heldur en í Finnlandi, Svíþjóð og á Islandi en þar sé kostnaðurinn við alnetstengingu um síma einnig einhver hinn lægsti í heimi, samkvæmt OECD-skýrsl- unni. Kostnaður við alnets- notkun víða um heim Kostnað á mánuði í dollurum bæði fyrir símþjónustu og alnetstengingu. Miðað er við 20 klst. tengingu á mánuði yfir hádaginn þegar hæstu gjöld gilda. 0 20$ 40 60 80 100 Mexíkó írland Austurríki Portúgal Sviss Þýskaland Danmörk Holland Belgía Bretland Tyrkland Lúxemborg Nýja-Sjáland Grikkland Noregur Ítalía Frakkland Spánn Japan Svíþjóð Finnland ÍSLAND Bandaríkin Ástralía Kanada FIMMTÁN manns voru fluttir á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir að tveir bílar rákust saman á Suðurlandsvegi, skammt frá Blá- fjallaafleggjara, um hádegisbilið í gær. Verið var að kanna meiðsl þeirra um miðjan dag í gær og þá var ekki fullljóst hversu alvarleg þau voru. Yngvi Ólafsson, vakthafandi læknir á slysadeild, sagði þó að allir hefðu verið með meðvitund og eng- inn lífshættulega slasaður. Lítil fólksflutningabifreið rneð tíu íþróttamenn innanborðs var á leið í vesturátt og fólksbifreið með fimm mönnum á leið austur þegar þær skullu saman og fóru báðar út af veginum. Enn er ekki vitað um or- sök slyssins, að sögn lögreglu í Kópavogi. Þyrla LHG sótti slasaðan mann eftir bílveltu Þá valt bíll skammt austan við Vík í Mýrdal um hádegið í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti ökumanninn, en talið var að hann hefði hlotið bak- og hálsáverka. Ökumaðurinn, sem var einn í bíln- um, missti stjórn á honum, og fór heila veltu. Að sögn Reynis Ragnars- sonar, lögreglumanns í Vík, var fljúgandi hálka á veginum þar sem slysið varð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.