Morgunblaðið - 16.03.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 13
Reuter
LANGFLEST píramítafyrirtækjanna voru í S-AIbaníu. í síðustu
viku spurðist út, að stærsta slíka fyrirtækið, sem starfaði i Tir-
ana, væri gjaldþrota og olli sú frétt miklum æsingi.
og síðan var fresturinn framlengdur
um viku. Hefur hann nú verið fram-
lengdur aftur til 20. þ.m. Þeir krefj-
ast þess hins vegar, að Berisha segi
af sér en hann mun líklega ekki
gera það fyrr en allt um þrýtur. Auk
þess er ekki víst, að það breytti
neinu. í Albaníu ríkir algert stjórn-
leysi og við slíkar aðstæður sjá
glæpamenn sér leik á borði.
Uppreisnarmenn hafa rænt allar
verslanir, banka og hótel á þeim
svæðum, sem þeir ráða. „Þeir hirða
allt, þeim finnst það vera hlutverk
foringjanna. Þetta ástand er gróðrar-
stía fyrir glæpasamtökin," sagði Elid-
en Duro, barþjónn á hóteli í Vlore.
Úti á veröndinni sat Albert Shyti,
27 ára gamall formaður svokallaðrar
Vamamefndar Vlore, og sötraði
vermouth. Shyti, sem ekur nú um á
nýjum Mercedes Benz, var að ræða
við félaga sína um ránsfenginn.
Á síðustu árum hefur Vlore
blómgast sem miðstöð fyrir smygl á
eiturlyij'um, vopnum og ólöglegum
innflytjendum til Ítalíu og nú hafá
glæpamennirnir öll völd í borginni.
Allar opinberar byggingar þar hafa
verið brenndar til grunna. „Það er
ekki aðeins, að ríkisstjórnin í þessu
landi sé spillt, heldur allt samfélag-
ið,“ sagði vestrænn hjálparstarfs-
maður.
Mikill munur
á N- og S-Albaníu
Albanía er lítið land, nímlega
27.000 ferkm, og íbúamir eru um
þijár milljónir. Samt er allmikill mun-
ur á norður- og suðurhlutanum. í
norðri ræður Gheg-ættbálkurinn ríkj-
um en í sunnanverðu landinu Tosk-
ættbálkurinn og fólk af grískum upp-
rana. Mállýskumar era líka tvær en
ritmálið bræðingur úr þeim báðum.
Enver Hoxha einræðisherra var
sunnanmaður og í tíð kommúnista
voru sunnanmenn áberandi í valda-
stöðum. Það breyttist hins vegar
með Berisha, sem er norðanmaður
af Gheg-ættbálknum. Hann er um-
kringdur fólki úr sínu héraði og all-
ir lífverðir hans eru frá heimabæ
hans, Tropoja.
Á síðustu árum eða eftir fall kom-
múnismans hafa lífskjörin batnað
miklu meira í suðurhlutanum en
norðurhlutanum. Er það vegna ná-
lægðarinnar við Grikkland, þar sem
margir Albanir hafa stundað vinnu,
og vaxandi viðskipta við Suður-ítal-
íu. Norðurhlutinn leið hins vegar
fyrir refsiaðgerðirnar eða viðskipta-
bannið á Júgóslavíu. í nokkur ár var
mestöll utanríkisverslun þess hluta
landsins fólgin í því að bijóta bann-
ið með því að smygla olíu til júgó-
slavnesku lýðveldanna.
Uppreisnin í suðurhluta Albaníu
stafar einmitt af þessum efnahags-
lega mun á landshlutunum. Þar átti
fólk í fyrsta sinn eitthvert sparifé
og það lagði það í píramítafyrirtæk-
in og gekk jafnvel svo langt að selja
ofan af sér og taka lán til „græða“
sem mest. í Vlore í suðurhlutanum,
þar sem uppreisnin hófst, voru
hvorki meira né minna en fimm pír-
amítasjóðir starfandi. í norðurhlut-
anum var miklu minna um þetta.
Þjóð, sem hefur
glatað sjálfri sér
Sumir píramítasjóðanna lofuðu
allt að 100% ávöxtun mánaðarlega
og raunar vekur það furðu hve lengi
þeir störfuðu. Framan af græddu
lika sumir á þeim, til dæmis hún
Katerina Dhimgjoka, 46 ára kennari
í Vlore. Hún tók þátt í leiknum í
fjögur ár og hagnaðinn notaði hún
til að flísaleggja íbúðina, mublera
upp hjá sér, kaupa sér vestrænan
munaðarvarning eins og kaffivél og
fá sér litsjónvarp í staðinn fyrir það
svart-hvíta. Þegar spilaborgin
hrundi tapaði hún peningunum sín-
um og nú segist hún ekki viður-
kenna neina stjórn, sem ekki borgi
henni til baka.
„Við viljum að stjórnin fari frá
en við munum krefjast þess sama
af nýrri stjórn,“ sagði hún. „Mér er
alveg sama um kosningar og hveijir
stjórna. Ég vil frið, betra líf og
meiri peninga."
Kunnasti rithöfundur Albaníu,
skáldsagnahöfundurinn Ismail Kad-
are, sagði í viðtali í París í síðustu
viku, að í stað þess, að draumar
Albana hefðu ræst með píramítafyr-
irtækjunum, upplifði þjóðin nú
skelfilega martröð. „íjóðin vildi
eignast allt í einu og gleyma fátækt-
inni en nú er hún búin að glata
sjálfsvirðingunni og á góðri leið með
að glata sjálfri sér.“
Að minnsta kosti 10 bæir og borg-
ir eru í höndum uppreisnarmanna.
Nýlega náðu þeir á sitt vald bænum
Polican þar sem Kalashnikov-rifflar
eru framleiddir og sl. mánudag bæn-
um Kucove. Þar náðu þeir herflug-
velli og 19 MiG-flugvélum, eða ein-
um fimmta orrustuflugflota al-
banska hersins.
Rósturnar eru nú að breiðast til
norðurhlutans og í höfuðborginni
Tirana var ástandið orðið tvísýnt í
lok liðinnar viku. Bajram Curri var
fyrsti bærinn í norðurhlutanum, þar
sem kom til átaka, en þau voru lík-
lega ekkert tengd uppreisninni í
suðurhlutanum. Þar var hópur
manna aðeins á höttunum eftir
vopnum.
Yfirvöld í Grikklandi, Ítalíu og
víðar í Evrópu hafa miklar áhyggjur
af ástandinu í Albaníu og vopnunum,
sem nú flæða þar um allt. Ljóst er,
að ekki mun glæpum fækka i land-
inu á næstu árum og mikil hætta
er á, að vopnin og glæpamennirnir
sjálfir skjóti upp kollinum annars
staðar.
Herinn í Albaníu er skipaður
54.000 mönnum en talið er, að í
honum hafi fækkað töluvert eftir
fall kommúnismans. Er vopnabún-
aður hans lélegur á vestræna vísu
en samt nógu mikill nú þegar hluti
hans er kominn í hendurnar á al-
menningi í landinu. Nokkur hluti
hermannanna er þegar genginn til
liðs við uppreisnarmenn og aðrir
flýja eins og fætur toga þegar sótt
er að þeim. Vegna þess er ekki víst,
að Berisha eða samsteypustjórnin
geti yfirleitt treyst á herinn þegar
til kemur og fari svo, gæti tekið við
algert stjórnleysi í landinu og borga-
rastyijöid.
Fremur kyrrt hafði verið í Tirana
þar til í síðustu viku þegar stuðn-
ingsmenn Berisha forseta brutust
inn í vopnabúr í borginni og létu þar
greipar sópa. Ljóst er, að þeir vilja
vera við öllu búnir komi til mikilla
átaka í landinu og bijótist út borga-
rastríð, sem margir erlendir sérfræð-
ingar eru þó vantrúaðir á, gæti víg-
línan legið á milli norður- og suður-
hluta landsins.
• Heimildir: The New York Times, The
Washington Post, Reuter, The Assoc-
iated Press, The Financial Times,
Newsweek, Time.
í ætt við vestrænt
lýðræðisskipulag
Jemen leyfir starfsemi stjórnmála-
flokka og konur geta boðið sig fram
til þings. Það gerir það að verkum
að fræðilega séð telst Jemen vera
það arabaland sem hefur stjórnskip-
an sem svipar hvað mest til vest-
ræns lýðræðis. Þetta hefur ekki
kætt afturhaldssöm nágrannalönd
þess sem halda til streitu að neita
Jemenum um inngöngu í Flóaráðið.
Þar er Sádi-Arabía fremst í flokki
ásamt Kúveit.
Menn líta ótvírætt svo á að kosn-
ingarnar nú séu prófsteinn á styrk
hins unga lýðræðis í landinu og
raddir heyrast um að þegar sé alls
konar svik og prettir í gangi. Skipu-
lega sé unnið að því að margskrá
:suma á kjörskrá sem vitað er að
styðji flokk forsetans, Ali Abdullah
Saleh, og þúsundir sem ekki búi í
fjemen og hafi ekki kosningarétt
þar lengur séu einnig komnir inn á
kjörskrár.
Óvægin gagnrýni
En nefnd hefur verið skipuð sem
á að sjá um að kæra allt slíkt og
það er einmitt kona, Shada Mo-
hammed, sem er formaður hennar.
Hún segir í viðtali við mánaðarritið
The Middle East að nefndin hafi
;"Vart undan að leggja fram kærur
út af kjörskránni og vonast til að
;bróðurpartur þeirra verði tekinn til
;lgreina.
Þessi nefnd er óháð og tengist
ekki starfsemi stjórnmálaflokka.
Hún var sett á laggirnar fyrir for-
göngu Abdulaziz Saqqaf, ritstjóra
Yemen Times. Það er eina dagblað-
ið í Jemen sem er gefið út á ensku.
Það blað hefur haldið uppi hvað
harðskeyttastri gagnrýni á stjórn-
völd og ekki hvað síst á Saleh for-
seta.
Þetta hefur kostað Saqqaf það
að hann hefur hvað eftir annað
verið settur í fangelsi og sleppt
aftur undanfarin ár vegna skrifa
sinna og hann segist einnig hafa
sætt barsmíðum. Þegar hann er
ekki í fangelsi er hann svo upptek-
inn af því að skrifa ritstjórnargrein-
ar gegn Saleh og hafa áhyggjur
af því hvenær hann verði handtek-
inn næst að hann hefur, að sögn
Shada Mohammed, ekki gefið sér
mikinn tíma til að starfa með kosn-
inganefndinni sem hann er varafor-
maður í.
Shada þessi Mohammed er 32ja
ára gömul. Hún er ógift og lögfræð-
ingur að mennt. Þessi lýsing þætti
ekki tíðindum sæta í vestri. En
öðru máli gegnir um Jemen. Um
sjötíu prósent kvenna þar eru giftar
- oftast gegn vilja sínum - fyrir
tvítugt og fæstar eru læsar.
Shada stofnaði lögfræðistofu
ásamt tveimur öðrum kvenlögfræð-
ingum í Sanaa og hún segir að
starfið í kosninganefndinni hafi afl-
að þeim svo margra fjandmanna
að hún nenni ekki einu sinni að
leiða hugann að því hversu margir
þeir séu.
Nefndin hyggst birta skýrslu á
næstunni um ólöglegar skráningar
á kjörskrá og talið er að þær geti
farið allt upp í 180 þúsund. Shada
segir að haldi ríkisstjórnin að fólk
hafi aðeins hugann við efnahagsmál
og hirði lítt um stjórnmálalegu hlið-
ina muni hún heldur ekki fást um
að breyta neinu. Shada bendir á
að þar sem Jemen sé fyrsta ríkið
sem glímir við alvöru lýðræði sé
mikiis um vert að styrkja það, ella
fari það fyrir lítið.
Jemenskar konur binda
vonir við kosningarnar
Aðeins tvær konur náðu kosningu
á jemenska þingið í fyrstu þingkosn-
ingunum en Shada segist vonbetri
núna. I raun hafí það verið eðlilegt
því konur í Jemen séu víðs fjarri því
að gera sér grein fyrir rétti sínum,
hvað þá heldur sækja hann.
Hún er ekki ein um þá skoðun
og jemenskar konur telja að kosn-
ingarnar geti markað þáttaskil.
Amat Alsowa er ein fárra kvenna
sem hefur komist áfram innan kerf -
isins. Hún er nú aðstoðarráðherra
upplýsingamála og kveðst telja að
konur hafi skipulagt sig betur og
þær séu ekki tilbúnar að gefa upp
á bátinn þau réttindi sem þær hafi
fengið og eigi samkvæmt stjórnar-
skránni. Það hefur líka vakið eftir-
tekt að allir stjórnmálaflokkarnir
sem bjóða fram hafa lagt sig í fram-
króka við að biðla til atkvæða
kvenna. Og konur vona þar af leið-
andi að þetta séu ekki kosningaorð-
in ein og tóm.
Víst er að Jemen hefur ekki efni
á stjórnmálaókyrrð. Þar hefur geis-
að um hríð borgarastyijöld milli
afla sem þótti suðurhlutinn ekki fá
nægileg ítök í stjórninni eftir sam-
einingu.
Jemen má ekki við meiri
stjórnmálaólgu
Ættbálkaþjóðfélagið er líklega
hvergi jafnsterkt og í Jemen og
þessir ættbálkar beijast innbyrðis
af fullri hörku og allir virðast eiga
gnægð vopna allt frá Kalashnikov-
rifflum til eldflauga. Um tíma var
ferðamannaþjónusta að verða nokk-
uð arðvænleg enda hefur Jemen
ótrúlega fegurð og fjölbreyttan
menningararf að kynna. Það hefur
hins vegar veikt þessa atvinnugrein
að töluvert hefur verið um rán á
erlendum ferðamönnum og leitt til
að útlendingar forðast Jemen.
Þessum ferðamönnum hefur þó
yfirleitt verið skilað heilum á húfi
og stundum hafa þeir búið í vellyst-
ingum praktuglega í prísundinni.
Þessi mannrán má rekja fremur til
ættbálkadeilna innbyrðis en að ver-
ið sé að setja stjórninni úrslitakosti.
Jemen hefur sára þörf fyrir að
þar komist ró og regla á. Erlendir
fjárfestar hafa haldið að sér hönd-
um þótt það sé sýnilegt að olían
sem hefur fundist í Jemen og byij-
að er að vinna að nokkru, gæti
gerbreytt efnahag þessa fátæka,
frumstæða lands og gert það að
næsta olíuríki arabaheimsins.
5.980.“
6.980.-
HVER FULLORÐINN
PAKl
GISTING í TVEGGJA MANNA
HERBERGl 1 5 NÆTUR,
MORGUNVERÐUR INNIFALINN
7.980,-
HVER FULLORÐINN
MIÐAÐ ER VIÐ AÐ GIST
SÉ í TVEGGJA MANNA
HERBERGJUM OG
BÖRNIN GISTl í HERBERGI
FORELDRA SINNA. HÁMARK
2 BÖRN í HERBERGI MEÐ
FORELDRUM.
ALDUR BARNA 0-15 ÁRA.
PÁSKAEGG
FYLGJA
FYRIR BÖRNIN
HAFNARSTRÆTI 87-89
AKURETí'RI
SÍMI 462 2200
FAX 461 2285
ATH:
TAKMARKAÐUR
HERBERGJAFJÖLDI
GlLDIR FRÁ 26. MARS TIL 31. MARS
HÓTELKEA
HVER FULLORÐINN
HOTEL KEA
1 9 4 4
PÁSKAR
r
A
HÓTEL
KEA
OKEYPIS
FYRIR BÖRNIN
PAKKI
GISTING i TVEGGJA MANNA
HERBERGI i 3 NÆTUR,
MORGUNVERÐUR INNIFALINN