Morgunblaðið - 16.03.1997, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
NÝJAR ÁHERSL UR
HJÁACO
ið. Ef eitthvað, sé hún jafnvel enn
harðari nú en áður. Hann bætir við
að sér finnist þægileg tilhugsun að
losna við ábyrgðina af rekstrinum
og geta átt aukinn tíma fyrir sjálf-
an sig, trilluna sína á Hjalteyri og
sumarbústaðinn við Þingvallavatn.
„Ég tek þó fram að ég er engan
veginn hættur og er ekki kominn
á neina göngudeild,“ segir hann
og brosir.
Áki hafði unnið sem loftskeyta-
maður á sínum yngri árum en árið
1965 fékk hann vinnu hjá Burro-
ughs International í Sviss. Þar
hlaut hann þjálfun sína en starfaði
á íslandi og sá aðallega um við-
haldsþjónustu á tölvukerfi banda-
ríska flughersins á Keflavíkurflug-
velli. Síðar vann hann um tíma hjá
H. Benenediktssyni hf. sem var
með Burroughs-umboðið.
Þjónusta prentiðnaðinn
Árið 1975 stofnaði hann ásamt
Garðari Karlssyni Aco hf. en rak
það einn frá árinu 1981. „Við vor-
um fyrst með þjónustu við Burro-
ughs-tölvurnar en tókum síðan við
umboðinu. Starfsemin vatt tiltölu-
lega fljótt upp á sig því á þessum
tíma var ný tækni að ryðja sér
rúms hjá prentsmiðjunum, þ.e. blý-
ið var að detta út og tölvur að
koma inn,“ segir hann. Síðan bætt-
ust við fleiri verkefni í tengslum
við prentiðnaðinn, s.s. innsláttar-
borð, setningartæki, tölvukerfí,
fílmuplötur, framköllunarvörur o.fl.
Um nokkurn tíma hefur þjónusta
við prentiðnaðinn verið stór hluti
af starfsemi Aco.
Fyrirtækið sér einnig um að
flytja út notaðar filmur og vökva
til endurvinnslu til Kanada. „Við
höfum þannig lokað hringnum, sem
hefur verið bæði til góðs fyrir okk-
ur og viðskiptavini okkar.“
Áki tekur einnig fram að Aco . ,
hafí verið fyrst fyrirtækja til að
flytja inn tölvur frá Tævan í upp-
hafi PC-byltingarinnar í kringum 1
1983. Þessum tölvum hafi ekki
► Áki Jónsson, annar stofnenda Aco hf. og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, fæddist 4.6.1938 á Hjalteyri. Hann
var starfsmaður Burroughs International í Sviss frá 1965 en
sá aðallega um viðhaldsþjónustu fyrir bandaríska flugherinn á
íslandi. Árið 1974 stofnaði hann við annan mann fyrirtækið
Aco hf. sem hann hefur verið framkvæmdastjóri fyrir þar til í
febrúar síðastliðnum að sonur hans, Bjarni, keypti fyrirtækið
ogtók við. Bjarni Ákason fæddist 30.12.1961 í Reykjavík,
lauk námi í rafvirkjun frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og
stúdentsprófi frá sama skóla 1981. Á árunum 1995-96 var hann
í viðskipta- og rekstrarfræðinámi hjá Endurmenntunarstofnun
Háskóla íslands. Hann hefur starfað hjá Aco hf. síðan 1983.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
FEÐGARNIR Áki Jónsson fyrrverandi framkvæmdastjóri (t.v.)
og Bjarni Ákason (t.h.) núverandi framkvæmdastjóri ræða við
einn af starfsmönnum fyrirtækisins.
Eftir Hildi Friðriksdóttur
BJARNI ÁKASON tók við
stöðu framkvæmdastjóra
af föður sínum í febrúar
slðastliðnum eftir að hafa keypt
af Qölskyldunni allt hlutafé fyrir-
tækisins. Breytingar eru þegar
farnar að sjást með nýjum skip-
stjóra því nýtt skipurit hefur tekið
gildi. I stað örfárra deilda áður
hefur fyrirtækinu verið skipt upp
í minni einingar. „Við höfum til
dæmis brotið upp annars vegar
verslunarrekstur, þar sem seldar
eru smærri vélar til heimila og fyr-
irtækja, og hins vegar svokallaðar
lausnir á tölvukerfum fyrir fyrir-
tæki,“ segir Bjarni.
Hjá fyrirtækinu starfa nú 22
starfsmenn og eru flestir í þjón-
ustudeild. Hefur starfsfólki fjölgað
jafnt og þétt gegnum árin eftir því
sem umsvifin hafa aukist. Aco er
einna umsvifamest í þjónustu við
prentiðnaðinn en einnig selur fyrir-
tækið Leo tölvur, Rioch ljósritunar-
vélar og faxtæki ásamt öðrum vör-
um tengdum tölvuiðnaði.
Breyttar áherslur
Bjarni segir að í framtíðinni
muni Aco í auknum mæli leggja
áheslu á heildarlausnir í tölvumál-
um fyrir fyrirtæki bæði hvað varð-
ar hugbúnað og þjónustu. „Við
erum að styrkja net- og þjónustu-
deildirnar og þar sjáum við vaxtar-
broddinn. Við sjáum fram á að
þurfa að fjölga starfsfólki eitthvað
í þessum deildum, sem fært verður
um að leiðbeina viðskiptavinum um
notkun tölvukerfanna og stjórnend-
um um hvemig þeir geti nýtt sér
upplýsingatæknina. “
Hann bætir við að nú, 22 árum
eftir að fyrirtækið var stofnað, sé
það í raun að snúa aftur til upp-
runa síns. Hann útskýrir að fram-
tíðaráform Aco séu meðal annars
að leggja áherslu á aukin viðskipti
við Unisys, sem Aco hf. flutti upp-
haflega inn frá, en þá undir nafni
Burroughs. Fyrirtækið Unisys var
síðan stofnað upp úr Burroughs
International árið 1986.
Undanfarin tvö ár hefur Aco átt
I samvinnu við Unisys og er af-
rakstur þess meðal annars innflutn-
ingur á nýjum tækjum til banka-
kerfisins sem verður síðar á þessu
ári. „Okkar stefna er að koma
Unisys-vélum inn I millifyrirtækin.
í því skyni erum við að skoða hvern-
ig lausnir hægt er að fínna sem
henta. Við höfum til dæmis mikið
velt fyrir okkur hvernig tryggja
megi öryggi netkerfanna, einkum
nú þegar notkun alnetsins er orðin
svo víðtæk sem raun ber vitni,“
segir Bjarni.
Nýir hluthafar
Framtíðaráform Aco eru þó ekki
einungis bundin við Unisys því
stefnt er að því með tímanum að
koma fyrirtækinu á Opna tilboðs-
markaðinn og selja hlutabréf til
nýrra hluthafa. „Til að styrkja
fyrirtækið faglega væri gott að fá
fleiri hluthafa,“ segir Bjarni.
Nú þegar hefur fyrirtækið Opin
kerfí sýnt áhuga á að eignast hlut-
deild I Aco og segir Bjarni sam-
starf við þá góðan valkost. „Við
I
höfum verið I samstarfí við þá og
selt vörur þeirrar I nokkra mánuði
með nokkrum árangri. Áframhald-
andi samvinna eða eignaraðild tel
ég að styrki fyrirtækið I samkeppn-
inni með því að starfsemin verður
enn víðtækari," bætir Áki við.
Spennandi vettvangur
Bjami er ekki ókunnugur fyrir-
tækinu því hann byrjaði stráklingur
sem sendill og hefur síðan unnið I
öllum deildum fyrirtækisins. Nú
síðast vann hann I söludeildinni.
Áhugaverðast fmnst honum að
sjálfsögðu núverandi starf, enda
er hann fullur orku og tilbúinn að
takast á við krefjandi verkefni.
Faðir hans tekur fram að tölvugeir-
inn sé mjög lifandi starfsvettvang-
ur en jafnframt mjög krefjandi.
„Hlutirnir eru að gerast hér og nú
og menn verða stöðugt að fylgjast
með og vera vakandi til að missa
ekki af lestinni. Þetta er því mjög
spennandi umhverfi, sérstaklega
fyrir yngri mann,“ segir Áki.
Þegar þeir feðgar eru spurðir
hvers vegna eigendaskipti hafi orð-
ið segja þeir að tími hafi verið kom-
inn að færa ábyrgðina af höndum
þess eldri yfir á þann yngri. Tíma-
bært hafi verið að gera áherslu-
breytingar I fyrirtækinu, sem sé
auðveldara með nýrri forystu. Áki
bendir á að samkeppni tölvufyrir-
tækja sé mikil og hafi alla tlð ver-
verið spáð góðu gengi en reyndin I
er sú að þær hafa staðið sig mjög
vel. Á þessum árum varð mikil
bylting á íslenska tölvumarkaðin-
um sem varð til þess tölvufyrirtæki
spruttu upp en mörg þeirra höfðu
entust ekki lengi. Bjarni minnist
þess að eitt árið voru fyrirtækin
23 sem seldu PC-tölvur en ekki
leið á löngu þar til þeim hafði fækk- )
að um helming. )
Búast við aukinni veltu )
Að sögn þeirra feðga hefur Aco
staðið á traustum grunni gegnum
árin, litlar áhættur hafa verið tekn-
ar og það að fyrirtækið þjónaði
bæði tölvuiðnaðinum og prent-
iðnaðinum gaf því ákveðna breidd.
Heildarvelta íslenskra tölvufyrir-
tækja var I fyrra um ellefu milljarð-
ar króna og þar af var hlutur Aco
400 milljónir króna og hafði þá
aukist um 20% frá árinu áður.
Búast þeir Bjarni og Áki við
20-25% veltuaukningu á þessu ári
og þá aðallega á þjónustu- og hug-
búnaðarsviðinu en einnig I rekstr-
arvörum og skrifstofutækjum.
„Það er að verða bylting í ljósritun-
arvélum og prenturum. Ljósritun-
arvélar I stafrænu formi eru að sjá
dagsins ljós, sem gefa aukin gæði
og meiri möguleika. Einnig munu
ljósritunarvélar tengjast I mun
meira mæli netvæðingu fyrir-
tækja," segir Áki.
í
I
I
í
i