Morgunblaðið - 16.03.1997, Side 26
26 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/STJÖRNUBÍÓ, Sambíóin og Laugarásbíó hafa tekið til sýninga kvikmyndina Jerry
Maguire, sem er tilnefnd til fímm óskarsverðlauna, m.a. fyrir leik Tom Cruise í aðalhlutverki og
Cuba Gooding í aukahlutverki. Leikstjóri og handritshöfundur er Cameron Crowe.
Hjartahreini
umboðsmaðurinn
JERRY Maguire (Tom Cruise)
er með hlutina á hreinu og virð-
ist með öll tromp á hendi sem
einn aðalumboðsmaðurinn hjá fyrir-
tækinu SMI, þar sem hann hefur
margar af þekktustu íþróttastjöm-
um heimsins að skjólstæðingum.
Jerry er myndarlegur, heillandi
og tryggur og trúr, hvort sem um
er að ræða hagsmuni skjólstæðing-
anna eða konuna sem hann ætlar
að giftast. Hún heitir Avery Bishop
(Kelly Preston), vinnur í upplýs-
ingadeild NFL-deildarinnar (at-
vinnumannadeildarinnar í amerísk-
um fótbolta) og lifir svo skipulögðu
lífi að allt þarf að eiga sinn tíma í
minnisbókinni hennar, hvort sem
um er að.ræða kynlíf, samskipti
við vini og sína nánustu eða eitt-
hvað annað.
En vandinn hjá Jerry er sá að
hann er ekki í rryög góðum tengsl-
um við sjálfan sig, hann hefur látið
starfíð yfírtaka sig og hefur gefíð
sig á vald leik þar allt lýtur ákveðn-
um lögmálum, bæði það hvað hann
hugsar, talar og hvað honum fínnst.
En sem betur fer þá er ekkert að
Jerry sem skyndilegur og niður-
lægjandi ósigur getur ekki lagað.
Og sá ósigur bankar upp á hjá
Jerry Maguire viku eftir að hann
setur sínar innstu hugsanir og há-
leitustu hugsjónir um starfíð á blað.
Hann leggur fram fyrir vinnuveit-
endur sína ítarlega og innblásna
skýrslu um það hvemig hann sjái
fyrir sér starf fyrirtækisins þar sem
allt kapp sé lagt á að þjónusta hvern
kúnna sem best, þar sem gæði séu
tekin fram yfír magn og fólk og
samskipti fram yfir peninga og
gróða. Hvað sem líður öllum þeim
milljónum dala sem umboðsmenn-
imir leggja undir í sínu starfí hljóti
það að skipta meira máli að vera
heil og vönduð manneskja en að
stefna að því einu að gera góðan
samning hvað sem það kostar.
Launin sem Jerry fær fyrir að hafa
hugsjónir í starfi og að voga sér
að búa til þessa stefnuyfíriýsingu
eru einfaldlega brottrekstur.
CUBA Gooding jr. leikur Rod Tidwell, fótboltamann sem legg-
ur allt undir og treystir á umboðsmanninn sinn, Jerry Maguire.
Sjálfsmynd Jerrys
bíður mikinn hnekki
þegar hann er sviptur
starfinu og sjálfsvirð-
ingin fer veg allrar
veraldar. Hann neitar
samt að gefast upp og
ákveður að byija upp
á nýtt og beijast fyrir
því sem hann trúir á.
Hann eignast tvo
óvænta og dýrmæta
bandamenn í barátt-
unni fyrir því að það
sé hægt að sameina í
einum og sama
manninum góðan um-
boðsmann sem nær
árangri fyrir kúnnann
sinn og heiðarlegan
mann sem kemur fram
af heilindum við sjálf-
an sig og aðra.
Þessir bandamenn
eru annars vegar Rod
Tidwell (Cuba Good-
ing) en Rod er útheiji
í varaliði Arizona Cardinals í NFL-
deildinni. Hann tekur þá áhættu
að fylgja umboðsmanninum sínum
og treysta því að hann geti hjálpað
sér að láta rætast drauminn um
að komast í aðalliðið hjá einhveijum
hinum bestu í deildinni. Rod verður
eini viðskiptavinur
nýja fyrirtækisins sem
Jerry stofnar. Hinn
bandamaðurinn er
Dorothy Boyd (Renee
Zellweger) 26 ára ein-
stæð móðir sem starf-
ar hjá SMI en hrífst
svo af boðskapnum
sem Jerry hafði fram
af færa í skýrslunni
að hún segir upp þeg-
ar hann er rekinn og
ákveður að slást í för
með honum og gera
að veruleika hugsjón-
ina um umboðsmann-
inn sem stefnir að því
að ná árangri í lifínu
en ekki bara í starfinu.
Myndin um Jerry
Maguire er þriðja
myndin sem Cameron
Crowe leikstýrir, hinar
voru Say Anything
árið 1989 og Singles
árið 1992. Hann skrif-
ar jafnframt handrit mynda sinna
og er vandlátur á þau verkefni sem
hann kýs að taka sér fyrir hendur.
Fyrsta handritið sem hann skrifaði
var að hinni vinsælu mynd Fast
Times at Ridgemont High fyrir 16
árum og síðan þá hefur hann að-
JERRY Maguire
(Tom Cruise) er
rekinn úr starfi
þegar hann segir
hug sinn um það
hverju hann telji
að fyrirtækið sem
hann starfar þjá
eigi að stefna að.
JERRY Maguire (Tom Cruise) og Dorothy Boyd (Renee Zellwe-
ger) vinna saman að því að koma fótunum undir Jerry eftir
brottreksturinn.
eins gert fjögur handrit, að þessu
meðtöldu. Hann tók sér fjögur ár
í að skrifa um Jerry Maguire og
stórum hluta þess tíma var varið í
að rannsaka og kynna sér efnið og
atvinnugreinamar sem eru sögu-
sviðið; amerískan fótbolta og um-
boðsmannabransann. Það var við
hæfí að Crowe vandaði svo til verka
þegar haft er í huga að áður en
hann sneri sér að kvikmyndagerð
var hann talinn einn efnilegasti
blaðamaður Bandaríkjanna af yngri
kynslóðinni.
Það vill svo til að það var ein-
mitt meðan Crowe starfaði sem
blaðamaður og skrifaði í mörg af
útbreiddustu tímaritum Bandaríkj-
anna að fundum hans og Tom Cru-
ise bar fyrst saman. í fyrsta skipt-
ið sem mynd af Tom Cruise prýddi
forsíðu á tímariti var tilefnið grein
sem Cameron Crowe hafði skrifað
um stjörnuna ungu fyrir tímaritið
Interview. Cruise var fús til að
vinna með Cameron Crowe því hann
taldi efnið og sýn höfundarins á
viðfangsefnið eiga erindi í samtím-
anum og skipta ekki bara máli fyr-
ir íþróttaheiminn heldur almennt
fyrir lífið og atvinnulífíð. Auk þess
hafði hann hrifíst af fyrri myndum
leikstjórans.
Eftir að Cameron Crowe og
framleiðandi myndarinnar, James
L. Brooks, sem hefur framleitt og
leikstýrt óskarsverðlaunamyndun-
um Terms of Endearment og Bro-
adcast News, höfðu fengið vinsæl-
ustu kvikmyndastjömu Bandaríkj-
anna, Tom Cruise, til að taka að
sér titilhlutverkið ákváðu þeir að
leggja áherslu á að fá lítt þekkta
en trausta leikara í önnur hlutverk.
Fyrir valinu urðu þessir: Cuba
Gooding jr, tók að sér hlutverk Rod
Tidwell en Cuba er t.d. þekktur úr
Boyz’n’the Hood og Outbreak.
Kelly Preston leikur Avery, kær-
ustu Jerrys, en hún er þekktust
fyrir að vera eiginkona John Tra-
voltas og fyrir sterkan leik í t.d.
White Lies, Only You og Twins.
Renee Zellweger, sem leikur Dorot-
hy, lék t.d. í Dazed and Confused
og Reality Bites.
Bak við myndavélarnar eru held-
ur engir aukvisar. Þar eru m.a.
óskarsverðlaunahafínn Janusz
Kaminski, sem var kvikmyndatöku-
maður Schindler’s List og klippar-
inn Joe Hutshing en langt og far-
sælt samstarf hans og Olivers Ston-
es hefur tvívegis gefið af sér ósk-
arsverðlaun.
Jerry Maguire var tekið fagnandi
í Bandaríkjunum og nú hefur mynd-
in verið tilnefnd til fimm óskars-
verðlauna. Tom Cruise, sem fékk
nýlega Golden Globe styttu fyrir
leik sinn í myndinni, er tilnefndur
sem besti leikari í aðalhlutverki og
margir spá Cuba Gooding verðlaun-
um í flokki aukaleikara.
Þ AÐ eru ekki ýkjur að telja Tom Cruise
meðal þeirra kvikmyndastjarna sem skær-
ast hafa skinið í Hollywood. í Hollywood
er stjörnuskin mælt í dollurum og á hálf-
um öðrum áratug hafa myndir Tom Cru-
ise tekið inn meira en 3 mil(jónir dollara.
Fáir í bransanum geta státað af slikum
árangri og enginn annar 35 ára gamall
leikari.
Fyrsta stóra hlutverk sitt fékk Tom
Cruise í myndinni Taps árið 1981. Þá var
hann rétt um tvítugt. Þann stökkpall upp
á stjörnuhimininn nýtti leikarinn ungi sér
til þess að fá hlutverk í myndinni Risky
Business árið 1983 en fyrir þá mynd hlaut
hann sína fyrstu tilnefningu til Golden
Globe verðlauna. Tom Cruise var nú á
hröðu skriði og næst segir af honum árið
1986 þegar hann lék flughetjuna Maverick
í einni vinsælustu mynd niunda áratugar-
ins, Top Gun.
A þessum grunni hefur Tom Cruise
byggt sinn glæsta feril og hann nýtti sér
upphafið og þær vinsældir sem hann hlaut
til þess að starfa með virtum leikurum
og kvikmyndagerðarmönnum; t.d. Paul
Newman og Martin Scorsese í The Color
of Money, árið 1986; Dustin Hoffman og
Barry Levinson í Rain Man, árið 1988;
Oliver Stone í Born of the Fourth of July
árið 1989; árið 1992 lék hann á móti Jack
Nicholson (Demi Moore, Kevin Bacon og
fleirum) í mynd Rob Reiners, A Few Good
Men. Með frammistöðu sinni í þessum
eðla félagsskap hefur Tom Cruise tekist
að öðlast virðingu kollega sinna í leikara-
stétt, auk vinsælda þeirra sem hann nýtur
meðal almennings sem leikari og stjarna.
Tom Cruise lék í einni vinsælustu kvik-
mynd síðasta árs þegar hann og leiksljór-
inn Brian DePalma lögðu saman krafta
sína og gerðu stórmyndina Mission: Im-
possible. Aðrar nýlegar stórmyndir þessa
kyntákns eru m.a. The Firm árið 1993,
Far and Away árið 1992 og Interview
with a Vampire árið 1994. Af öðrum
myndum hans má nefna The Outsiders,
Losin’ It, Endless Love, AU The Right
Moves, Legend, Cocktail og Days of
Thunder.
Tom Cruise hefur tvívegis verið til-
nefndur til óskarsverðlauna, nú fyrir
Jerry Maguire og áður fyrir leik sinn í
Born on the Fourth of July. Fyrir leik
sinn í báðum þessum myndum hlaut hann
Golden Globe verðlaun. Hann hefur einn-
ig hlotið ýmiss konar önnur verðlaun frá
gagnrýnendum, kvikmyndahúseigendum
og almenningi.
1993 þreytti Cruise frumraun sína sem
leikstjóri í hálftíma stuttmynd fyrir sjón-
varp. Hann hefur einnig stofnað fram-
leiðslufyrirtæki, sem m.a. framleiddi
Mission: Impossible og er ekki að efa að
þessi áhrifaríki leikari hyggst á komandi
árum færa sér frekar i nytþað vald sem
velgengnin færir honum í kvikmynda-
borginni og þau tækifæri sem hún gefur
honum til þess að ráða hvaða sögur verða
að kvikmyndum.
Næsta verkefni sem Tom Cruise tók til
við að loknum tökum á Jerry Maguire er
hin langþráða næsta mynd snillingsins
Stanley Kubrick. Sú á að heita Eyes wide
Shut og þar leikur eiginkona Cruise, Nic-
ole Kidman, á móti honum en saman hafa
þau ekki leikið í mynd síðan í Far and
Away árið 1992.
Þau hjónin eru annars lítt áberandi í
félagslífinu í Hollywood, eru annáluð (júf-
menni og lifa kyrrlátu lifi ásamt börnum
sinum. Bæði tilheyra söfnuðinum Church
of Scientology, ásamt John Travolta,
Kelly Preston og fleiri leikurum en sá
söfnuður hefur undanfarið komist upp á
kant við yfirvöld í Þýskalandi.