Morgunblaðið - 16.03.1997, Page 32
32 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997
MIIMIMIIMGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, teng-
dafaðir og afi,
ÓSKAR SVAVAR GUÐJÓNSSON,
Smyrlahrauni 62,
Hafnarfirði,
sem lést af slysförum 9. mars sl., verður
jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði,
miðvikudaginn 19. mars kl. 13.30.
Bióm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er
bent á Slysavarnafélag íslands.
Anna Þorsteinsdóttir,
Gunnar Óskarsson, Linda Sveinsdóttir,
Kristrún Gróa Óskarsdóttir, Níels Atli Hjálmarsson,
Óskar Halldór Guðmundsson, Arndís Sara Gunnarsdóttir.
+
Hjartkær maðurinn minn, faðir okkar, sonur og
tengdasonur,
PÁLL GARÐAR ANDRÉSSON,
stýrimaður,
Vesturbergi 94,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju-
daginn 18. mars kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem
vilja minnast hans, láti Slysavarnafélag íslands
njóta þess.
Kristjana Friðbjömsdóttir,
Friðbjöm Pálsson,
Elísa Pálsdóttir,
Valgerður Hrefna Gísladóttir, Andrés Gilsson,
Kristín Ósk Óskarsdóttir, Friðbjöm Kristjánsson.
4*
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og út-
för elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Gnoðarvogi 72,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við heimahlynningu .......
Krabbameinsfélagsins, fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Haukur Pálsson,
Páll Ingi Hauksson, Guðlaug Lyngberg Sig.,
Sigurður Hauksson Þómnn Lína Bjarnadóttir,
Bryndís Elín Hauksdóttir, Bjarni Þór Guðjónsson,
Þórir Hauksson, Valgerður Hanna Hreinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BERGUR BJARNASON,
dvalarheimilinu Fellaskjóli,
Grundarfirði,
áður til heimilis
Hjarðarholti, Grindavík,
verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 18. mars
kl. 14.00.
Bjarni Bergsson, Hanna Sigurðardóttir,
Guðbergur Bergsson,
Vilhjálmur Bergsson, Marita Bergsson,
Hinrik Bergsson, Guðný Guðbjartsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN JÓNA SIGURJÓNSDÓTTIR
fangavörður,
Álfhólsvegi 92,
Kópavogi,
verður jarðsungin þriðjudaginn 18. mars 1997
kl. 13.30.
Guðmundur Ásbjömsson,
Jón Ásbjömsson,
Sigurjón Guðmundsson,
Daníel Guðmundsson,
tengdadætur og barnabörn.
-4- Anna Berg-
’ þórsdóttir
fæddist á Akureyri
14. júní 1925. Hún
lést á heimili sínu,
Lindasíðu 4, Akur-
eyri, 4. mars síð-
astliðinn. Foreldr-
ar hennar voru
Olga Olgeirsdóttir
og Bergþór Bald-
vinsson. Systkini
Önnu voru Hörður
og Valgerður sem
bæði eru látin.
Anna giftist
Guðna Friðrikssyni, f. 31.
mars 1920, árið 1948. Þau
Kær vinkona, Anna Bergþórs-
dóttir, er dáin aðeins tuttugu og
sex dögum eftir að hún greindist
með krabbamein. Það getur verið
erfitt á stundu sem þessari, að koma
orðum að því sem mann langar
helst til að segja. Minningamar sem
koma upp í huga mér em margar.
Kynni okkar Önnu hófust fyrir um
flömtíu áram, þar sem við Olga
dóttir hennar vomm skólasystur.
En síðustu tíu til tólf árin hefur
Anna verið ein af mínum bestu vin-
konum, alltaf svo traust og góð.
Anná vildi allt fyrir alla gera og
nutum við mæðginin góðsemi henn-
ar og Guðna. Við Anna störfuðum
saman í kvenfélagi Alþýðuflokksins
í mörg ár. En ung að ámm gekk
hún í það félag. Það vom ófáar
ferðirnar sem við kratakonur fórum
saman til Reykjavíkur á fundi, þing
eða menningarferðir til Húsavíkur.
Þegar við Helga vinkona okkar
fengum þá hugdettu að koma á
skemmtun hér á Akureyri sem
væri bara fyrir konur, fannst okkur
Anna sjálfsögð í þann félagsskap,
sem seinna fékk nafnið Krúttmag-
ar. Guðni tók þátt í öllu sem Anna
gerði á sinn hátt. Sjálfsagður bíl-
stjóri okkar allra s.b. skeyti sem
við sendum honum þegar hann varð
sjötugur: „Guðni okkar allra, þú
sem ert á bílnum.“
Af öllu því sem við gerðum
skemmtilegt saman er eitt sem ber
hæst. Ferðin sem við fórum til
London ásamt Helgu og Freyju.
Oft hafa verið sagðar sögur og hleg-
ið að því sem gerðist í þeirri för.
Þótt við Anna höfum átt margar
skemmtilegar stundir saman höfum
við líka stutt hvor aðra þegar sorg-
in hefur borið að garði. Eg er þakk-
lát þeirri stund sem við tvær áttum
saman föstudagskvöldið 14. febr-
áttu fjórar dætur,
Olgu, f. 1948, Ag-
nesi, f. 1952, Þor-
björgu, f. 1955, og
Steinunni, f. 1968.
Aður átti Anna
soninn Baldvin, f.
1945, en hann lést
af slysförum árið
1991. Barnabörnin
eru ellefu og
barnabarnabörnin
eru fjögur.
Útför Önnu fer
fram frá Akur-
eyrarkirkju mánu-
daginn 17. mars og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
úar. Þá stund mun ég alltaf eiga
með sjálfri mér. Við Jónas Þór
kveðjum góða vinkonu með söknuði
og biðjum góðan Guð að varðveita
hana.
Elsku Guðni, ég veit að söknuður
þinn er mikill, þú hefur misst mest,
en ég veit að þú stendur ekki einn
á þessum erfiðu tímamótum, þar
sem þú hefur dætur þínar. Anna
trúði á líf fyrir handan, svo vonandi
er hún komin í faðm sonar, foreldra
og systkina. Minning um góða konu,
móður, tengdadóttur, ömmu og
langömmu mun ylja hjörtum okkar.
Guðni minn, Olga, Agnes, Dolla og
Steina. Guð veri með ykkur og gefí
ykkur styrk í sorgum ykkar.
Herdís (Dísa).
Þau vom þrjú systkinin frá Akur-
eyri sem öll em nú látin fyrir aldur
fram og harmdauði þeim sem til
þekktu.
Elstur var Hörður, stýrimaður á
þekktum aflaskipum, síðast á nóta-
veiðiskipunum ísafold og Geysi sem
stunduðu veiðar í Norðursjónum.
Hann lést árið 1986, tæpra 64 ára.
Vel látinn maður, hæglátur og yfír-
lætislaus. Anna var næstelst, 71
árs er hún lést. Valgerður, hjúkmn-
arfræðingur, var þeirra yngst. Hún
fæddist árið 1936 en lést árið 1991,
54 ára gömul. Töluverður aldurs-
munur var á tveimur elstu systkin-
unum og því yngsta sem olli því
að kynni þeirra urðu hvað mest
fyrst eftir að þau fullorðnuðust.
Foreldrar þeirra systkina vom bæði
af þingeyskum ættum.
Þegar ég kynntist þeim systkin-
um fyrst bjó Hörður i Reykjavík
ásamt Sigrúnu sinni og Olgu dóttur
þeirra en Anna bjó á Akureyri með
Guðna og dætrunum fjómm á „ætt-
arsetrinu" í Lundargötunni. Einn
son, Baldvin, hafði Anna átt fyrir
hjónaband. Hann lést í bílslysi á
Englandi í maí 1991. Guðni var að
mála er ég fyrst kom þangað heim
en Anna og Olga, elsta dóttirin,
vom á Raufarhöfn í síldarvinnu.
Yngri telpurnar tvær vom á hlaup-
um um bæinn, Agnes með Ðollu
sér við hlið. Steinunn kom ekki til
fyrr en löngu síðar, öllum á óvart.
Þetta var fyörlegt fólk. Guðni með
sinn sérstæða humor og harmon-
ikku og dætumar spjallsamar.
Einkanlega var þeim lagið að segja
frá fólki og túlka látbragð þess.
Eftir nokkurra ára dvöl erlendis
var þráðurinn tekinn upp að nýju
og þá kynntist maður Önnu heitinni
betur. Hún var afar gestrisin kona.
Þau voru aldrei mikið fyrir að heim-
sækja Reykjavík, hjónin, en þegar
komið var í heimsókn norður yfir
heiðar var tekið á móti gestum með
kostum og kynjum. Húsnæði var
til reiðu og margréttaður málsverð-
ur oft á dag svo hafa mátti sig all-
an við. Síðan var gjaman sest á
rökstóla, oft fram eftir nóttu, og
bar þá ýmislegt á góma því Anna
var áhugasöm um margt. M.a. hafði
hún alltaf sérstakan áhuga á ís-
lensku máli og málfari. Hún hafði
góða frásagnarhæfileika og var
alltaf glöð í bragði.
Anna og Guðni fóru alloft til
útlanda og em mér sérstaklega
minnisstæðar frásagnir þeirra af
hópferðum um alla Evrópu, sex
landa sýn sem kallað var. Lifðu þau
sig mjög inn í þær ferðir, lásu sér
til fyrirfram svo stundum gátu þau
leiðbeint fararstjóranum sjálfum.
Anna var afar félagslynd kona. Hún
starfaði ámm saman innan sam-
taka alþýðuflokkskvenna og var þar
vel látin. Var og hugsjón jafnaðar-
stefnunnar henni jafnan mjög hug-
leikin. Hún tók virkan þátt í öðru
félagslífi og má þar m.a. minnast
á svokölluð krúttmagakvöld sem
urðu landsfræg á sínum tíma. Þar
held ég að leikhæfileikar hennar
og kátína hafi fengið að njóta sín
en slíkt hafði hún í ríkum mæli.
Stundum komu fyrir hana dulrænir
hlutir sem hún var ekki að flíka.
Hún var líka nærgætin og hennar
faðmur var stór. Oftsinnis hefur
hún á undanförnum áram hringt í
háaldraða móður mína, henni til
mikillar gleði, og þakka ég fyrir
það.
Veikindi Önnu bar brátt að og
varð engum vörnum við komið öðr-
um en að hlúa að henni eins og
unnt var. Tók hún þeim samt af
miklu æðruleysi. í þeim efnum naut
hún einnig frábærrar umhyggju
eiginmanns og dætra. Og nú skilj-
ast leiðir og við hljótum að kveðja
góða konu sem öllum vildi gera
gott og alla gleðja.
Kristinn R. G. Guðmundsson.
ANNA
BERGÞÓRSDÓTTIR
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
r
Islensk framleiðsla
Sendum
myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - Reykjavík
simi: 587 1960 -Jax: 587 1986
STEFANSBLQM
Skipholti 50 b - Sími 561 0771
- kjarni málsim!
CrfiscJrykkjur
WGnw-mn
Sími 555-4477
Suöuriandsbraut 10
108 Reykjavík • Sími 5531099
Opið öll kvöld
til kl. 22 - cinnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tílcfni.