Morgunblaðið - 16.03.1997, Qupperneq 40
r* TftGr síiam .ar íhjoaoitmwijr
40 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997
í7Tn A Tfl’MÚO'fTO
MORGUNBLAÐIÐ
H
Dýraglens
( þETTA BIZOS \ 01.EtCKIR ENGAN ^ 1 cs EKW PETTA HBLÞUr) ( SVEl )
I cT
i Af l tÍT
!
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
/, \ «-6 / IVE0FTEN \ /""N (WONDEREP.J A (B) IN ALL YOJR LIFE, UJHAT HAVE VOU DONE THAT VOU ARE M05T PROUP OF ? O i IN ALL MY LIFE, l'VE NEVER KI55ED A CAT !
Tl mwL ■n 1 íl f\
i I iÍCÉjC: | j tQ ®
/T (=p==c====5sa==) ms m L—Y . - d'
Ég hef oft velt því fyrir mér... Hveiju af því sem þú hefur gert Ég hef aldrei á ævinni kysst kött!
á ævinni ertu hreyknastur af?
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
• Netfang: lauga@mbl.is
Meðal annars
þess vegna
Frá Áfengisvarnaráði:
AÐ GEFNU tilefni er rétt að gera
grein fyrir nokkrum af þeim stað-
reyndum sem valda því að Áfengis-
vamaráð er ekki ginnkeypt fyrir því
að afnuminn verði einkaréttur ríkis-
ins á að selja áfengi og að verð þess
verði lækkað.
1. Síðla árs 1994 gaf Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin út bók um áfengis-
málastefnu og almannaheill, Alcohol
Policy and the Public Good. Höfund-
ar bókarinnar em 17 af þekktustu
vísindamönnum heims á sviði vímu-
efnarannsókna. Þeir Qalla um flest,
sem máli skiptir á þessu sviði, með-
al annars um áfengiseinkasölur og
telja að sannað sé að slíkt skipulag
á dreifingu áfengis dragi úr neyslu
og tjóni af völdum hennar.
2. Hagfræðistofnun Háskóla ís-
lands rannsakaði hver hefði verið
kostnaður og hveijar hefðu verið
tekjur þjóðfélagsins vegna áfengis-
neyslu 1985-1989. Ljóst er af þeirri
athugun að sterkar líkur benda til
þess að áfengi sé verulega niður-
greitt hérlendis þó að verð sé hærra
en víða annars staðar. Höfundar
skýrslunnar benda á að þar komi
ekki nærri því öll kostnaðarkurl til
grafar. Lækkun áfengisverðs hefur
því í för með sér aukna skattbyrði
þegnanna.
3. Aldamótakynslóðin, sem færði
okkur meðal annars góða hluta sjálf-
stæðis hins íslenska ríkis árið 1918,
færði okkur einnig það skipulag á
áfengisdreifingu sem hefur átt
dijúgan þátt í því að áfengisneysla
íslendinga hefur verið minni en ann-
arra Evrópuþjóða mestalla öldina -
og tjónið af hennar völdum því ekki
eins átakanlegt. í Vestur-Evrópu
deyr meira en hálf milljón manna
fyrir aldur fram á ári hveiju vegna
eigin áfengisneyslu eða annarra.
Þeir ágætu löggjafar sem mótuðu
áfengismálastefnu íslendinga fram
yfir miðja öldina, hafa því mörgu
mannslífinu bjargað og mörgu fólki
forðað frá hörmungum.
4. Meðal annars vegna þessarar
skynsamlegu áfengismálastefnu er
meðalævi Islendinga með því lengsta
sem gerist. Svo er og um þær frænd-
þjóðir okkar sem við áfengiseinka-
sölu búa. Hins vegar hefur það gerst
í Danmörku að þjóðin hefur hrapað
úr sjötta efsta sætinu, hvað meða-
lævilengd varðar, í 21. sæti milli
áranna 1960 og 1990. Félagsmála-
ráðherra Dana kennir það áfengis-
neysluvenjum þeirra - og leggur til
að verð á áfengi - einkum veikum
vínum - verði hækkað. Okkur virð-
ist ekki ástæða til að feta í þá slóð
danskra að leyfa einkagróðasjón-
armiðum að ráða dreifingu á þessu
lögleyfða vímuefni - og raunar vafa-
samt að breyta kerfi sem hefur búið
okkur minna tjón af völdum áfengis-
neyslu en aðrar Evrópuþjóðir verða
að þola.
5. Heilbrigð skynsemi segir okk-
ur að því víðar sem vara er á boðstól-
um og því lengri tíma í viku hverri
þeim mun meira seljist af henni að
öðru jöfnu. Þetta mun eiga við um
flestar vörutegundir, hvað þá efni
sem er ávanabindandi. Því hljóta að
renna tvær grímur á hugsandi og
heiðarlegt fólk þegar helstu tals-
menn þess að breyta dreifingarkerfi
áfengis eru einmitt þeir mangarar
sem hagnast á innflutningi þessa
efnis og sölu þess eða hyggjast
ganga þar til leiks, svo og málpípur
þeirra. Okkur sýnist vafamál að fólk,
sem hefur ágóða af framleiðslu og
sölu þessa vímuefnis, sé í rauninni
viðræðuhæft um þau mál vegna þess
sem nú er kallað hagsmunatengsl.
6. Borið hefur við að þeir sem
vilja afnám áfengiseinkasölu telji sig
sérstaka talsmenn nútímasjónarm-
iða en hina „í fiötrum fortíðar". Slíkt
er gróf sögufölsun. Áfengiseinkasal-
an er 20. aldar fyrirbæri, komið,
einsog fyrr segir, á fót af því fólki
sem leiddi þjóð vora til sjálfstæðis.
Aftur á móti var hin skipanin, áfeng-
issala í venjulegum sölubúðum, höfð
á 19. öld og jafnvel enn fyrr. Það
eru því einkagróðapostularnir sem
eru í fjötrum fortíðar og vilja færa
okkur til þeirra hátta sem tíðkuðust
á öldinni sem leið. Þá réðu sjónar-
mið gróðahyggju en ekki almanna-
heilla.
7. Áfengi er vímuefni. Því hljóta
að gilda allt aðrar reglur um með-
ferð þess en venjulegs söluvarnings.
Bent hefur verið á að lyfsala hafi
verið gefin fijáls. Þar er óliku saman
að jafna. Lyfsalar selja ekki hveijum
sem er hvaða lyf sem er. Og fólk
getur ekki keypt jafnmikið af slíkum
efnum og það kannski vildi. Þar
koma læknar til sögunnar og ákveða
hveijum ber hvað og í hve stórum
skömmtum.
Enn fáránlegra er þó að bera sölu
áfengis saman við sölu á mjólk eða
smjöri. Menn verða ekki háðir mjólk.
Og það er lítil hætta á að smjörætur
þyrpist út af veitingastöðum síðla
nætur, mengi umhverfíð hvers kyns
sóðaskap og fremji margs konar
ofbeldisglæpi jafnvel mannvíg.
Ef á að bera áfengi saman við
einhvern söluvarning þá eru það
auðvitað önnur vímuefni og þau er
óheimilt að selja hérlendis. En slíkt
forðast þeir sem hafa hagnaðarvon-
ina eina að leiðarljós.
8. Höfundar bókarinnar Alcohol
Policy and the Puclic Good, sem
getið var hér að framan, telja að
engar sannanir séu fyrir því að
fræðsla hafi nokkurt forvarnargildi.
Þó er álitið að fræðsla í tengslum
við markvissar aðgerðir stjórnvalda
(til að mynda hækkun lögaldurs til
áfengiskaupa í Bandaríkjunum) geti
skilað árangri. Sammála munu flest-
ir um að fordæmi sé mikilvægara í
þessum efnum en fræðsla.
Áfengisframleiðendur og áfeng-
issalar telja hins vegar að áfengis-
dreifing skuli vera sem fijálsust en
fræðslan aukin. Ef það sjónarmið
er rétt væri heppilegast að gefa inn-
flutning og sölu ólöglegra vímuefna
fijálsan - og auka bara fræðslu um
skaðsemi efnanna.
Brýnt er að menn átti sig á þess-
um tvískinnungi - og varist að trúa
því að dýr fræðsla og enn dýrari
herferðir séu vænlegar til árangurs.
Bestu forvarnir kosta minnst. Þær
eru ( höndum stjórnvalda og raunar
allra sem forystu hafa einhvers stað-
ar í þjóðfélaginu. En þar gildir sem
annars staðar að setja heill fólks í
fyrirrúm - og að vilji er allt sem þarf!
F.h. Áfengisvarnarráðs,
JON K. GUÐBERGSSON,
Máshólum 6, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
1
c
(
í
c
(
(
(
(
(
(
(
I
I
I
I