Morgunblaðið - 16.03.1997, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 43
I DAG
Árnað heilla
7r|ÁRA afmæli. Sjötug
• vfverður á morgun,
mánudaginn 17. mars,
Ólína Þorleifsdóttir,
Hlíðarvegi 2, Kópavogi.
Eiginmaður hennar er
Björgvin Jónsson, útgerð-
armaður. Þau hjónin eru
að heiman.
pT rkARA afmæli. Fimm-
*J Vtug er í dag, Sigríð-
ur Brynjúlfsdóttir leik-
skólakennari, Akurgerði
46, Rvík. Eiginmaður Sig-
riðar er Sveinn Viðar Stef-
ánsson húsasmíðameist-
ari. Þau eru að heiman í
dag.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót o.fl.
lesendum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-1329
eða sent á netfangið:
gusta@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Dagbók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
BRIDS
Umsjnn Guðmundur Fáll
Arnarson
MESTA eiturslangan á ís-
landsmótinu var lokaspilið
í þriðju umferð:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður ♦ ÁKD6 V 965 ♦ 2 ♦ ÁKD98
Vestur Austur
♦ G10543 ♦ 9872
V 4 llllll VÁ873
♦ K3 111111 ♦ 1084
♦ 107654 ♦ G3 Suður ♦ - V KDG102 ♦ ÁDG9765 + 2
Þrátt fyrir allan styrkinn
vinnst aðeins ein slemma í
NS - sex hjörtu. Flest pör-
in enduðu í sex tíglum, sem
tapast þó svo að vestur hitti
ekki á hjarta út. Með svörtu
útspili reynir sagnhafi að
henda niður öllum hjörtun-
um fimm í mannspilin í
spaða og laufi, en austur
nær að hindra þá ráðagerð
með því að trompa þriðja
laufið.
En hvernig á komast í
sex hjörtu? Það er alltaf
erfitt að gera flórða litinn
að trompi þegar búið er að
melda hina þtjá, en það er
þó ekki útilokað ef suður
tekur afgerandi af skarið.
Hér er einn möguleiki:
Vestur
Norður Austur Suður
1 lauf Pass 1 tígull
2 spaðar Pass 3 hjörtu
3 grönd Pass 5 hjörtu
6 hjörtu Pass Pass
COSPER
ÞÚ ættir ekki að voga þér að gagnrýna vinkonur mín-
ar. Aldrei tala ég illa um vinkonur þínar.
HOGNIHREKKVISI
, be/r eru ervo noqu- ungír iíL ai> trucu oi
r rusLazurLnu-a.lfinrL."
ORÐABÓKIN
Taxti -
Á ÞESSUM dögum eru
kaupgjaldsmál mjög til
umræðu. Þá er að sjálf-
sögðu fjallað um það,
hversu há laun geti eða
megi vera, svo að
stöðugleiki raskist ekki.
Orðið taxti ber oft á
góma í þessu sambandi.
Því orði hefur á stundum
verið ruglað saman við
no. texti, og eru dæmi
um þann rugling allt frá
17. öld og jafnvel í sömu
heimild um verðlag
einokunarverzlunarinn-
ar. Er talað um taxtann
frá 1619, en svo í sömu
andránni að semja um
texti
nýjan texta við kompaní-
ið. Hið rétta er að tala
um taxta, þegar um
verðlag er að ræða. í
orðabókum er no. taxti
skýrt á þessa leið: fastá-
kveðið verð eða kostnað-
ur, fastákveðin greiðsla
(laun) fyrir e-ð: taxtinn
er 10 krónur á klukku-
stund; taxtakaup eru svo
laun samkvæmt taxta.
Aftur á móti er no. texti
skýrt m.a. svo: 1 sam-
fellt mál: söngtexti,
slæmur texti; samið mál:
ræðutexti. 2. tilvitnun
sem ræðumaður leggur
út af. 3. skýring við
mynd eða teikningu. -
Þannig eru þessi orð ger-
ólíkrar merkingar. Því
má ljóst vera, að ekki
dugir að tala um texta,
þegar verið er að ræða
um launamál. Þar á no.
taxti og samsetningar af
því aðeins heima. Þá
breyta menn töxtum,
ekki textum. Hins vegar
þarf stundum að breyta
söngíexta eða ræðu-
texta. Svo þarf stundum
að lesa e-m textann, þ.e.
segja e-m til syndanna,
veita e-m ofanígjöf.
J.A.J.
STJÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drakc
Æ&Jr
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú lætur þér annt um
aðra. Þú ferð ekki fram
með hávaða og látum en
nærðþínum áhrifum
engu aðsíður. Þérlætur
vel að vinna undir álagi.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl)
Þú ættir að gefa þig meira
að andlegum málum. Var-
astu gylliboð alls konar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér hættir til of mikillar tor-
tryggni. Láttu ekki ógrund-
aðar ásakanir á þig fá.
Tvíburar
(21. maí- 20.júní)
Það er ástæðulaust að missa
alla stjórn á sér , þótt vörur
bjóðist á hagstæðu verði.
Góð tíðindi eru á leiðinni.
Krabbi
(21. júní — 22. júlf)
Þér veitist erfitt að gera upp
hug þinn í ákveðnu máli.
Treystu eigin dómgreind og
gakktu frá málunum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú virðist vera tíminn til að
drífa í ýmsum breytingum
heima fyrir. Örlátur vinur
kemur þér á óvart.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) 32
Fólk laðast að þér og þú átt
að notfæra þér hæfileika
þína til að virkja sköpunar-
gáfuna.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þér er óhætt að gera þér
dagamun, en gættu samt
alls hófs. Foreldri ættu að
gefa börnum sínum gaum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) 9ljj0
Notaðu einbeitni þína og
kláraðu þau verkefni, sem
bíða á skrifborðinu. Treystu
þinni eigin dómgreind í per-
sónulegum málum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Varastu að blanda um of
atvinnu og einkalífí. Engu
að síður er kvöldið hentugt
til heimsókna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú átt auðvelt með að laða
fram það bezta í öðrum.
Mundu bara að sá fer bezt
með valdið, sem þarf ekki
að beita því.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú virðist hafa gott vald á
fjármálunum og ættir að láta
aðra njóta þess.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú ert að ná takmarkinu og
ættir ekki að láta aðra draga
úr þér kjarkinn. Skipulagn-
ing er góð.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Benz til sölu
Mercedes Benz C220 svartur, árgerð 1995, ekinn 63 þús. km.
Sjálfskiptur, fjarstýrð samlæsing, sóllúga, 2 líknarbelgir, rafdrif-
nar rúður, ABS-bremsur, litað gler, höfuðpúðar o.fl. Sprækur
bíll, 150 hö. Verð tilboð. Upplýsingar í síma
511 1600 eða 896 0747.
Ekki menga meb
spilliefnum...
" Ekki henda meö ööru sorpi
og ekki hella í niöurfalliö
# Lökk, þynnir, olíur og gamlir kvikasilfurs-hitamælar eru dæmi um
spilliefni sem falla til á heimilum.
# Gætum þess að láta ekki spilliefni berast út í náttúruna.
# Blöndum ekki spillliefnum saman við annan úrgang og hellum
þeim ekki í niðurföll.
# Skilum spilliefnum til móttöku sveitarfélagsins, á gámastöð eða í
áhaldahús.
# Hitamælum má einnig skila til apóteka.
HOLLUSTUVERND RÍKISINS
Ármúla 1a, Reykjavlk. Þjónustu- og upplýsingasími 568-8848.
Yogi Shanti Desai
í fyrsta skipti á íslandi
Shanti er jógameistari með 45
ára reynslu af ástundun Hatha-
Yoga og hefur kennt þúsundum
nemenda og þjálfað marga
kennara í Bandaríkjunum.
Hann er höfundur bóka um
Hatha-Yoga, hugleiðslu og skyld
efni. Shanti er einn af örfáum sem
hefur fullkomið vald á öllum
æfingum Hatha-Yoga. Einnig er
hann með masters gráðu í
efnafræði og mjög fróður um
fæðubótarefni og mataræði.
Shanti Desai mun persónulega aðstoða og leiðbeina á
öllum námskeiðum. Ásmundur Gunnlaugsson jógakennari
mun aðstoða og túlka ef nausyn krefur. Námskeiðin sem
henta bæði byrjendum og lengra komnum, fara fram á ensku.
Fyrirlestur og kynning. (ath. miðasaia í voga studio)
Shanti mun sýna m.a. erfiðari stöður Hatha-Yoga.
Fim. 20. mars kl. 20:00
Helgarnámskeið. Jógastöður, hugleiðsla, heimspeki,
spurningar og svör.
Fös. 21. mars kl. 20-22:00 og Lau. 22. mars kl. 9-15:00.
Hugleiðslunámskeið.
Mán. 24. mars kl 20-22:00.
Heilsa og naering. Fjallað um hreinsun líkamans, mataræði,
fæðubótarefni o.fl. Spurningar og svör.
Þri. 25. mars kl20-22:00.
Einkatímar. Shanti býður einnig upp á einkatíma þar sem
hann verður m.a. með ráðgjöf um mataræði, næringafræði, jóga
ástundun og samskipti.
Þessir tímar verða á morgnana.
„Leiðsögn Shanti hefur valdiö straumhvörfum í
mínu lífi, bæði hvað varðar jógakennslu
og einnig í einkalífinu“.
Ásmundur Gunnlaugsson
YOGA#
STUDIO