Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
8,7% þátttaka í atkvæðagreiðslu um kjarasamning VR
Naumur
meirihluti
samþykkur
KJARASAMNINGUR Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur við
Vinnuveitendasambandið og Vinnu-
málasambandið var samþykktur
með 533 atkvæðum gegn 524. Á
kjörskrá voru 12.227, 1.063
greiddu atkvæði, eða 8,7%. Til að
hægt hefði verið að fella samning-
inn hefði þurfti að minnsta kosti
20% kjörsókn.
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélagsins, segir
það ekki hafa komið sér á óvart
hversu margir greiddu atkvæði
gegn samningnum. „Ég fann að það
var nokkur andstaða og gerði alveg
eins ráð fyrir að samningurinn yrði
felldur. Það sem kannski hafði hvað
mest að segja var að sú saga hafði
flogið út, sérstaklega í stórmarkað-
ina, að við hefðum samið um leng-
ingu dagvinnutímans til klukkan
átta á kvöldin. Þetta er alrangt, það
er engin breyting á vinnutímanum
í aðalsamningnum. Hins vegar er
heimild til að ræða þessi mál ef
menn gera fyrirtækjasamninga. En
það er háð samþykki meirihluta
starfsmanna í hvetju fyrirtæki fyrir
sig.“
Magnús bendir einnig á að þeir
sem eru í andstöðu við samninga
séu líklegri til að fara á kjörstað.
„Það eru ekki nema rúmlega 4%
þeirra sem eru á kjörskrá sem
greiddu atkvæði gegn samningun-
um. Vinnulöggjöfin er með þeim
hætti að vægi atkvæða þeirra sem
eru með samningunum verður mest
ef þeir sitja heima. Þetta verður
ekki beinlínis til að hvetja menn sem
eru samþykkir samningnum til að
fara á kjörstað. Það er auðvitað
vont.“
Verðhækkanir á brauði
voru ögrun
Magnús segir samt að ekki sé
hægt að skýra alla andstöðuna gegn
samningnum með ofangreindum
ástæðum. „Hluti af okkar fólki,
sérstaklega í stórmörkuðunum, er
á lágum launum og þar er óánægja,
það verður að segjast eins og er.“
Hann segir einnig að það hafi haft
mikil áhrif þegar fréttist af verð-
hækkunum á brauði á grundvelli
þess að laun væru að hækka. „Þetta
fór óskaplega illa í fólk. Þessar
ákvarðanir eru teknar áður en búið
er að samþykkja samningana. Þetta
er auðvitað mikil ögrun við stöðug-
leikann í þjóðfélaginu."
Magnús leggur áherslu á að
kjarabóta verði leitað í fyrirtækja-
samningum.
Hús rýmd
á ísafirði
ALMANNAVARNANEFND ísa-
fjarðar ákvað í gærkvöld í samráði
við Veðurstofuna að rýma þijú hús
á ísafirði, 16 í Hnífsdal og nokkur
á Flateyri vegna snjóflóðahættu. Að
sögn lögreglu á ísafirði var veður
þar slæmt í gærdag, mikil snjókoma
og hvöss norðanátt. Spá var slæm
fyrir nóttina.
Húsin sem rýmd voru eru við
Grænuhlíð og Seljaland. Tólf íbúar
þurftu að yfirgefa hús sín, en við
Grænagarð er einnig margvísleg at-
vinnustarfsemi. í Hnífsdal var lýst
yfir hættuástandi á svæði þar sem
sextán hús standa, en það eru allt
hús sem keypt hafa verið upp vegna
snjóflóðahættu og því býr enginn
þar. Ekki var ljóst í gærkvöld hversu
mörg hús hefðu verið rýmd á Flateyri.
----------» ♦ ♦----
Samherji
Eftirspurn
níföld á
við framboð
6.300 einstaklingar og fyrirtæki ósk-
uðu eftir hlutabréfum, samtals að
andvirði rúmlega 400 milljóna króna
að nafnverði, eða 3,6 milljarða króna
að söluverði, í hlutafjárútboði Sam-
heija sem lauk í gær. Samtals voru
í boði hlutabréf fyrir 45 milljónir
króna að nafnvirði, eða 405 milljóna
króna að söluverði, þannig að eftir-
spurnin var nífalt meiri en framboð.
Sigurður Sigurgeirsson, forstöðu-
maður Landsbréfa á Norðurlandi,
segir að kaupendur hafi verið af öllu
landinu, flestir þeirra éinstaklingar.
Þegar hlutabréfunum verður útdeilt
má gera ráð fyrir að bréf að nafn-
verði rúmar sjö þúsund krónur og
söluverði rúmar 64 þúsund krónur,
komi í hlut hvers. Hlutabréfin voru
öll á genginu níu.
MORGUNBLAÐINU í dag fylgir
sérblað um dagskrá útvarps og
sjónvarps um páskana.
Ljósmynd/Hjálmar Jónsson
Lítið eftir af Þorsteini
LÍTIÐ er nú eftir af bátnum Þorsteini GK 16, sem
strandaði undir Krísuvíkurbergi fyrir rúmum hálf-
um mánuði. Brimið hefur farið um hann heldur
óbliðum höndum og brátt verður ekki annað en
minningin eftir. Á myndinni, sem tekin var úr þyrlu
Landhelgisgæslunnar í gær, má sjá leifarnar af
Þorsteini. Ofar sést það sem eftir er af skrokknum
og að neðan má sjá hluta af stýrishúsinu.
Köfun að flaki
Æsu undirbúin
Framsals-
beiðni kynnt
Hanes-
hjónunum
HANES-HJÓNIN bandarísku voru
kölluð til RLR í gær þar sem þeim
var kynnt framsalskrafa sem borist
hefur frá Bandaríkjunum vegna
ákæru á hendur þeim fyrir brottnám
á dótturdóttur konunnar.
Að sögn Stefáns Eiríkssonar, lög-
fræðings í dómsmáiaráðuneytinu,
kom krafan frá Bandaríkjunum í
byijun mars. „Við þurftum að kanna
hvort krafan kæmi frá réttum aðilum
og hvort þar væri að finna öll þau
gögn og skjöl sem fylgja eiga slíkri
kröfu samkvæmt lögum. Eftir það
var hún send til ríkissaksóknara."
Stefán segir að hjónin hafi tvo
kosti, annaðhvort að fallast á kröf-
una eða fara fram á að héraðsdómur
skeri úr um hvort lagaskilyrði fyrir
framsali séu uppfyllt. Nokkrar vikur
tekur að fá þann úrskurð og einnig
getur málið komið til kasta Hæsta-
réttar. Loks er málið sent á ný til
dómsmálaráðuneytisins og það tekur
endanlega ákvörðun um framsalið.
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
falið Siglingastofnun íslands að
kanna hvert yrði umfang og kostn-
aður við köfun og skoðun á flaki
Æsu ÍS 87 þar sem það liggur á
70 m dýpi í Amarfirði. Haft hefur
verið samband við enskt köfunar-
fyrirtæki og standa nú yfir viðræð-
ur um að það taki verkið að sér.
„Ég hitti í morgun ásamt Davíð
Oddssyni forsætisráðherra ættingja
þeirra sem fórust með Æsunni, þá
Hörð Albert Harðarson og Arnar
Grétar Pálsson en Kolbrún Sverris-
dóttir komst ekki til fundarins þar
sem ekki gaf til flugs,“ sagði Hall-
dór Blöndal samgönguráðherra í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Enskir kafarar
kafa niður að flakinu
„Þar gerði forsætisráðherra
grein fyrir málinu. Niðurstaðan er
sú að við stefnum að því að samið
verði við enskt kafarafyrirtæki um
að fara niður að flakinu nú í apríl
til þess að grafast fyrir um orsakir
slyssins og freista þess að ná upp
líkum þeirra sem létust ef þau eru
í flakinu."
Samgönguráðherra kvaðst vera
að láta taka saman skýrslu um
málið sem verður lögð fyrir ríkis-
stjórnarfund á miðvikudaginn kem-
ur og gera sér vonir um að þá geti
legið fyrir hvert umfang málsins
verður og hvernig að því verður
staðið. „Síðan verður unnið áfram
að málinu og munum við láta það
ganga eins hratt og við getum.
Jafnframt kemur til greina að at-
huga fleiri flök ef kostnaður við það
verður ekki of mikill,“ sagði ráð-
herra ennfremur.
Reynt verður að gera ítarlega
athugun á flakinu og könnuð þau
atriði sem rannsóknanefnd sjóslysa
óskar eftir að láta skoða. Farið
verður um vistarverur áhafnar, lest,
vélarrúm og víðar eftir því sem
nauðsynlegt er talið. Tveir menn
fórust með Æsu.
Þjófur
misstí skó
áfiótta
MAÐUR vatt sér inn í verslun
við Fellsmúla laust eftir klukk-
an 17 í fyrrdag, greip þar
geislaspilara og hijóp út. Versl-
unareigandinn var snar í snún-
ingum, hljóp á eftir þjófinum,
og tókst eftir nokkra eftirför
að ná tækinu.
Þjófurinn náði hins vegar að
komast inn í bíl sem lagt var
þar skammt frá og aka af vett-
vangi. Hann hafði á hlaupunum
misst annan skóinn og lagði
lögreglan í Reykjavík hald á
hann.
Verslunareigandi náði
skráningarnúmeri bifreiðarinn-
ar og er vitað hver er eigandi
hennar, og má hann búast við
að lögreglan heimsæki hann
von bráðar og máti á hann
skóinn.
Olía úr
spennuvirki
lakút
EINANGRARI í spennuvirki
hjá Reykjahlíð í Mosfellsdal
splundraðist á mánudagskvöld
og þeyttust brot úr honum
marga metra, meðal annars í
kælikerfi annars spennuvirkis
um 20-30 metra í burtu.
Leki kom að kælikerfinu og
ýrðust úr því 1.500 til 2.000
lítrar af spennuolíu. í kjölfarið
þurfti að fjarlægja mengaðan
snjó af svæðinu og dæla í burtu
þeirri oiíu sem hægt var að ná
upp.
Þá fór lögreglan í Reykjavík
eftir ábendingu frá Eldvarna-
eftirliti að sorpgeymslu húss
við Möðrufeil og fann þar 300
lítra af gasolíu í fyrradag. Lagt
var hald á eldsneytið.
Spilafélagar
rændu mann
og börðu
MAÐUR kærði líkamsárás og
rán snemma á þriðjudagsmorg-
un, sem átti sér stað á heimili
hans á Ásvallagötu. Hann var
fluttur á slysadeild með áverka
í andliti. Maðurinn hafði farið
á knæpu í Hafnarstræti kvöldið
áður og hitt þar par, karl og
konu, sem hann bauð heim til
að spila brids, að eigin sögn.
Treg til farar
Eftir næturlanga spila-
mennsku þótti húsráðanda
tímabært að kveðja gesti sína,
en þeir reyndust á öðru máli
og kom til stimpinga þeirra á
milli. Slógu þau hann í andlitið
og hirtu af honum veski með
um 6.000 krónum í peningum.
Sást til fólksins hlaupa austur
Ásvallagötu að því loknu.
Lögreglan handtók skömmu
síðar mann þar skammt frá,
sem kom heim og saman við
lýsingu árásarþolandans.
Hræ af hrossi
fjarlægt
FÉLAGI í samtökunum Dýra-
vernd tilkynnti lögreglu í fyrra-
dag að í girðingarhólfi í Kolla-
firði við Vesturlandsveg væri
stóð hrossa og virtust þau illa
á sig komin. Einnig væri grun-
ur um að dautt hross lægi und-
ir snjóskafii við hólfíð.
Lögreglan hafði samband við
dýrarverndarfulltrúa Kjal-
arness og gerði hann ráðstaf-
anir í þá veru að hrossunum
væri gefið og hræið fjarlægt.
Sveitarstjórn Kjalarness hefur
málið til meðferðar.