Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 45
FRÉTTIR
Námskeið um lífsgæði
og fatlanir
HAFIÐ HULINN HEIMUR
E S J A
Sýningarsalur
Nátturufræði-
stofnunar
v. Hverfisgötu
10 km
Vorkoman í sjónum
FÉLAG sálfræðinga er starfa að
málefnum fatlaðra efna til nám-
skeið um lífsgæði og fatlanir dag-
ana 10.-11. apríl nk. að Borgartúni
6, Reykjavík.
„A undanförnum árum og ára-
tugum hafa orðið miklar áherslu-
breytingar í þjónustu við ýmsa hópa
fatlaðra á íslandi. Þessi þróun hefur
eins og í nágrannalöndunum byggst
á hugmyndafræði um blöndun og
jafnan rétt fólks til lífsgæða óháð
líkamlegu eða andlegu atgerfi.
Aukin viðurkenning á rétti fatlaðra
til valfrelsis og virkrar þátttöku í
samfélaginu hefur m.a. leitt til þess
að verið er að leggja niður sólar-
hringsstofnanir og skapa fleirum
möguleika á búsetu við eðlilegri
aðstæður í samfélaginu.
En hvað með lífsgæði? Hafa of-
angreindar og aðrar breytingar í
Veittu
ferðastyrki
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum
þessa árs úr sjóðnum Þjóðhátíðar-
gjöf Norðmanna.
Styrkir voru fyrst veittir úr
sjóðnum 1976 og fór nú fram tutt-
ugusta og fyrsta úthlutun. Ráð-
stöfunarfé sjóðsins var að þessu
sinni 565.203 kr. Styrkumsóknir
voru 19 en samþykkt var að styrkja
eftirtalda aðila: Samstarfshóp
stofnana á sviði ungmennamála í
Hafnarfirði, nemendur í Folda-
skóla, Önfirðingafélagið í Reykja-
vík, Djáknafélag íslands, Svæðis-
skrifstofu málefna fatlaðra á
Reykjanesi og skátafélagið Mos-
veija.
Norska Stórþingið samþykkti
eina milljón norskra króna að gjöf
í ferðasjóð. Samkvæmt skipulags-
skrá sjóðsins skal ráðstöfunarfénu,
vaxtatekjum af höfuðstólnum, sem
varðveittur er í Noregi, varið til
að styrkja hópferðir Islendinga til
Noregs.
Afmælis-
fundur AA
AFMÆLISFUNDUR AA-samtak-
anna verður haldinn að venju á
föstudaginn langa, 28. mars, í
Háskólabíói kl. 21 og eru allir vel-
komnir. Þar tala nokkrir AA-félag-
ar og gestur frá Al-Anon sam-
tökunum, sem eru samtök aðstand-
enda alkóhólista. Kaffiveitingar
verða að fundi loknum. Fundurinn
verður túlkaður fyrir heyrnarlausa.
í dag eru starfandi 242 deildir
um allt land, þar af á Reykjavíkur-
svæðinu 127 deildir, erlendis eru
8 íslenskumælandi deildir. Hver
þessara deilda heldur að minnsta
kosti einn fund í viku og er fundar-
sókn frá 5-10 manns og upp í 150
manns á fundi. Hér í Reykjavík
eru margir fundir á dag og byija
fyrstu fundimir kl. 9.30 og þeir
síðustu um miðnætti. Þá fara fram
þrír fundir á ensku í Reykjavík,
segir í fréttatilkynningu.
Páskavaka
í Hafnarfjarð-
arkirkju
PÁSKAVAKA í Hafnarfjarðar-
kirkju verður haldin á páskanótt.
Hefst hún kl. 23.30 á laugardags-
kvöld og stendur til kl. 00.30 á
páskadagsmorgun.
Tónlistin og upprisugleðin skipa
veglegan sess á páskavökunni.
Söng annast félagar úr Hljómkórn-
um. Einsöngvari eru Signý Sæ-
mundsdóttir. Á páskavökunni
gefst kirkjugestum kostur á að
kveikja á bænakertum við altarið
og endumýja skírnarheiti sitt.
þjónustu leitt til almennari og meiri
lífsgæða fyrir fatlaða einstaklinga?
Lífsgæði er hugtak sem erfitt er
að henda reiður á og skilgreina. í
daglegu tali tengist það öðmm hug-
tökum eins og hamingju, velferð
og vellíðan eða veraldlegri þáttum
sbr. „lífsgæðakapphlaupi". Er hægt
að mæla lífsgæði á hlutlausan hátt
eða em iífsgæði skilyrðum háð sem
ekki verða skilgreind á almennan
hátt? segir í fréttatilkynningu.
Þar segir ennfremur: „Þessar og
fleiri spurningar em viðfangsefni
námskeiðsins þar sem ýmsir sér-
fróðir fyrirlesarar fjalla um efnið
út frá mörgum mismunandi sjónar-
hornum, heimspekilegum, fræðileg-
um og persónulegum.
Námskeiðið á erindi til allra sem
á einhvern hátt tengjast fötluðum
í lífi eða starfi."
Meistaramót
Reykjavíkur
í dorgveiði
Á REYNISVATNI í Reykjavík er
hafið meistaramót Reykjavíkur í
dorgveiði. Mótið er opið öllum.
Verðlaun em veitt fyrir stærstu
fiska sem veiddir verða í vetur í
dorgveiði.
Opið er alla virka daga þegar
veður leyfir frá kl. 13-19 og um
helgar kl. 10-19. Veiðileyfi kostar
2.850 kr. og em fimm fiskar inni-
faldir í veiðileyfinu. Veiðimenn fá
inneignarnótu nái þeir ekki að klára
veiðikvótann þann dag sem veiði
hefst og gildir hann út almanaksár-
ið eða þar til kvótinn, fimm fiskar,
er tæmdur. Tekið skal fram að for-
eldrar og börn á framfæri þeirra
mega nýta kvótann saman.
Mótinu lýkur um leið og ís tekur
af vatninu.
ÚTIVIST fer sína árlegu söguferð
á föstudaginn langa, 28. mars. Að
þessu sinni verður genginn Kára-
staðastigurinn niður á Lögberg og
áfram um Þingvelli og endað á
Spönginni.
Riíjuð verður upp saga hins forna
NÝSÝN, áhugafólk um nýjar
leiðir fyrir einstaklinga og fjöl-
skyldur til að kynna sér upp á
eigin spýtur íslenska náttúru,
sögu og samfélag, hefur undan-
farið leitað til ýmissa aðila um
samstarf og fengið góðar undir-
tektir. Það fyrsta sem Nýsýn
gerir er að minna á möguleika
sem þeir hafa sem vilja auka
þekkingu sína á og njóta þess
sem sjórinn hefur upp á að bjóða,
segir í fréttatilkynningu.
Um páskadagana frá fimmtu-
degi fram á mánudag verður
hægt að heimsækja fjóra staði á
Suðvesturlandi sem kynna sér
sérstaklega lífríki sjávar. Þessi
staðir eru:
í sýningarsal Náttúrufræði-
stofnunar Islands, Hlemmi 3, eru
sýnishorn af þörunga- og dýra-
tegundum sem lifa í sjó eða
tengjast honum á einhvern hátt.
Líkt er eftir umhverfi þeirra í
sýningarskápum. Sýningarsalur-
inn er opinn laugardag kl.
þings og þingstaðar eftir því sem
tækifæri gefst. Ef færð leyfir verð-
ur einnig gengið að Öxarárfossi.
Leiðsögumaður verður Sigurður
Líndal, prófessor.
Farið verður með rútu frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 10.30.
í Sæfiskasafninu í Höfnum eru
sýndir helstu íslensku nytjafisk-
arnir og ýmsar tegundir sædýra.
Safnið er opið alla dagana frá kl.
14-16.
Inni í Ferðasetrinu, Sandgerði,
er sýning á fuglum frá svæðinu,
sýnt er frá botndýrarannsóknar-
stöðinni BIOICE og sjóbúrum
með sjávardýrum. I Sandgerðis-
fjörum er einn aðalviðkomustað-
ur farfugla og fargesta og geta
gestir Fræðasetursins fengið
sjónauka leigða til að skoða þá
nánar. Opið laugardag, sunnudag
ogmánudagkl. 13-17.
Á útivistarsvæði Miðbakkans í
Reykjavíkurhöfn er alla daga
hægt að fylgjast með þörunga-
og botndýralífi hafnarinnar í
stórum kerum með sírennandi sjó
úr höfninni. I grunnum bakka
við kerin er einnig hægt að kynn-
ast þörungum og dýrunum nánar
og snerta þau. Upplýsingar um
umhverfisþættina í sjónum
hveiju sinni verða á standi við
kerin.
Kvöldvaka
á föstudag-
inn langa
í FRÍKIRKJUNNI í Hafnarfirði
verður kvöldvaka á föstudaginn
langa sem hefst kl. 20.30. Athöfnin
fer fram með þeim hætti að safn-
ast verður saman við stóran kross
sem hangir i kórdyrunum. Flutt
verður dagskrá í tali og tónum sem
tengist atburðum föstudagsins
langa.
Þegar líður á athöfnina verður
slökkt á rafmagnsljósum í kirkjunni
en tendruð sjö kertaljós undir kross-
inum. Við bjarmann frá kertaljósun-
um verður sunginn sálmurinn „Ég
kveiki á kertum mínum við krossins
helga tré“. í rökkrinu mun klari-
nettleikarinn Guðni Fransson flytja
tónlist. Athöfninni lýkur svo með
því að unglingar lesa síðustu orð
Krists á krossinum og slökkt verður
á ljósunum undir krossinum.
Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn
Þóru Guðmundsdóttur.
Borgarstjóri
setur málstofu
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
verður gestur á málstofu Sam-
vinnuháskólans á Bifröst miðviku-
daginn 2. aprí! kl. 15.30 í hátíðar-
sal skólans. Mun hún fjalla um end-
urskoðun og uppstokkun á opin-
berri þjónustu.
Á hveiju misseri efnir skólinn til
nokkurra málstofa um málefni sem
ofarlega eru á baugi og tengjast
námsefninu, rekstrarfræði, á ein-
hvem hátt. Þetta er fimmta og síð-
asta málstofa þessa misseris því nú
tekur við vinnsla misserisverkefna
hjá nemendum sem þeir starfa við
í fyrirtækjum víðsvegar um landið.
Málstofan er öllum opin.
Aukin sam-
vinna Rauða
kross félaga
„LANDSFÉLÖG Rauða krossins
og Rauða hálfmánans í Evrópu
hyggjast auka samvinnu sína veru-
lega til þess að verða betur í stakk
búin að takast á við þau vaxandi
vandamál sem blasa við almenn-
ingi víða um álfuna. Sérstök
áhersla verður lögð á baráttuna
gegn vaxandi fátækt og heilbrigð-
isvandamálum sem blasa við stór-
um hluta íbúa Austur-Evrópu.
Þetta var niðurstaða Evrópuráð-
stefnu Rauða krossins og Rauða
hálfmánans í Kaupmannahöfn í
síðustu viku þar sem 53 landsfélög
Rauða kross hreyfingarinnar komu
saman undir merkjum samvinn-
unnar. Rauði kross íslands und-
irbjó og stýrði meðal annars um-
ræðum um starf hreyfingarinnar
með því fólki sem minnst má sín;“
segir í fréttatilkynningu frá RKI.
Þar segir ennfremur: „ Margar
þjóðir Evrópu standa frammi fyrir
velferðar- og heilbrigðisvanda sem
óþekktur hefur verið í álfunni um
áratugaskeið og ríkisvaldið stend-
ur víða vanmáttugt frammi fyrir
þessum vanda. Hlutverk Rauða
krossins og Rauða hálfmánans er
að bæta aðstæður þeirra sem
minnst mega sín og tala máli þeirra
í samfélaginu. Til þess að hreyfing-
in geti gegnt þessu hlutverki vel
og ráðstafað kröftum sínum skyn-
samlega er mikilvægt að vandað
sé til mats á því hveijir megi sín
minnst, segir í _yfirlýsingunni.
Rauði kross Islands gerði samn-
ing við Rauða háifmánann í Úsbe-
kistan um aðstoð við fræðslu til
fatlaðra barna. Jafnframt efndi
félagið til samstarfs við Rauða
hálfmánann í Túrkmenistan um
heilsuvernd, eflingu ungmenna-
starfs og fleira. Ennfremur gerðu
Rauða kross félögin á Norðurlönd-
um samstarfssamning við systur-
félög sín í Eystrasaltslöndunum.
Samningurinn miðar að því að efla
fjárhagslega stöðu hinna síðar-
nefndu."
Fundur um
jafnréttismál
á Egilsstöðum
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hef-
ur boðað til fundar í Valaskjálf
miðvikudaginn 2. apríl kl. 20.30.
Fundarefnið er framkvæmdaáætl-
un ríkisstjórnarinnar í jafnréttis-
málum, gerð verður grein fyrir
núgildandi áætlun og hvað miðar
við gerð nýrrar áætlunar.
Ávarp flytja Páll Pétursson, fé-
lagsmálaráðherra og Elín R. Lín-
dal, formaður Jafnréttisráðs. Form
og gerð framkvæmdaáætlana ræð-
ir Elsa S. Þorkelsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs og
Ruth Magnússon, kennari verður
með innlegg heimamanns.
HÁALEITIS APÓTEK
Háaleitisbraut 68
VESTURBÆJAR
APÓTEK
Melhaga 20-22
eru opin til kl. 22
—á—
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Háaleitis Apótek
13.30-16.
Aðvörunarskilti sett
upp á Skeiðarársandi
ALMANNAVARNIR rík-
isins í samvinnu við
Vegagerð ríkisins hafa
lokið við gerð og upp-
setningu viðvörunar-
skilta á Skeiðarársandi.
Skiltunum er ætlað að
vekja athygli ferða-
manna á þeirri hættu
sem m.a. stafar af sand-
bleytum og kviksyndum
á þeim svæðum sem
Grímsvatnahlaupið fór
yfir í nóvember 1996.
Jafnframt hafa Almanna-
varnir ríkisins í samvinnu við
almannavarnanefndimar í Aust-
ur- og Vestur-Skaftafellssýsl-
um, þjóðgarðsvörður í Skafta-
felli, Ferðamálafélag Austur-
Skaftafellssýslu og björgunar-
sveitimar Kára í Öræfum og
Kyndil á Kirkjubæjarklaustri
tekið saman leiðbeiningarbækl-
ing fyrir almenning. I bæklingn-
um er fjallað nánar um þær
hættur sem á svæðinu geta
leynst og settar fram einfaldar
leiðbeiningar og vamaðarorð til
ferðamanna. Bæklingur þessi er
kominn út á íslensku og er hægt
að nálgast hann í þjónustumið-
Kviksyndl - Sandbleyta
Danger
re-Ouicksand
k> Hoeds AdmWítxaUpn
stöðinni í Skaftafelli, á hótelum
og hjá ferðaþjónustubændum á
svæðinu. Fljótlega eftir páska
mun umræddur bæklingur einn-
ig verða fáanlegur á dönsku,
ensku, frönsku og þýsku.
„Það er eindregin ósk Al-
mannavarna ríkisins og sam-
starfaðila þeirra að ferðafólk
kynni sér umræddar upplýsingar
og fylgi þeim leiðbeiningum og
varnaðarorðum sem þar eru.
Með réttri hegðan og vakandi
aðgæslu minnka líkur á að fólk
verði fyrir líkams- og/eða eigna-
tjóni þegar það ferðast um svæð-
ið,“ segir í frétt frá Almanna-
vörnum ríkisins.
Söguferð um Þingvelli