Morgunblaðið - 27.03.1997, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997
Nægnr
skíðasnjór
um allt land
HORFUR fyrir skíðaiðkendur um
land allt, eru allgóðar fyrir bæna-
dagana og páskana. Skíðasnjór er
allsstaðar nægur, en veðurútlit er
nokkuð misjafn, eins og fram kem-
ur hér á eftir.
BLÁFJÖLL, SKÁLAFELL
OG HENGILSSVÆÐIÐ
Veðurhorfur í dag: Fremur hæg
vestlæg átt, skýjað með köflum og
líklega smáél öðru hveiju. Frost 4
til 5 stig. Horfur á föstudag: Vax-
andi sunnanátt, allhvasst er líður á
daginn. Fer að snjóa, slydda með
kvöldinu. Frost 3 til 4 stig framan
af degi en hlýnandi síðdegis. Horfur
á laugardag: Suðvestan stinnings-
kaldi og snjókoma eða slydda með
köflum. Hiti um frostmark. Horfur
á sunnudag: Vaxandi sunnanátt og
hlýnandi, hvasst og rigning síðdeg-
is. Horfur á mánudag: Óljósar horf-
ur, en gæti snúist í vestanátt með
éljum og kólnandi veðri.
Opið frá fímmtudegi til mánu-
dags að báðum dögum meðtöldum,
frá kl. 10 til 18.
Kennsla verður á öllum svæðum
alla dagana.
Upplýsingar fást í síma
580-1111.
Séra Pálmi Matthíasson sóknar-
prestur verður með útiguðsþjónustu
fyrir framan Borgarskálann í Blá-
fjöllum á páskadag.
ÍSAFJÖRÐUR
Veðurhorfur í dag: Hægviðri.
Skýjað og ef til vill smáél framan
af degi en léttir síðan til. Frost 5
til 8 stig. Horfur á föstudag: Hæg
suðlæg átt og bjart veður í fyrstu
en þykknar upp síðdegis, suðaust-
ankaldi og snjókoma með kvöldinu.
Frost 2 til 5 stig. Horfur á laugar-
dag: Suðlæg eða breytileg átt og
líklega él. Frost 1 til 4 stig. Horfur
á sunnudag: Vaxandi suðaustanátt
og snjókoma með köflum, líklega
slydda með kvöldinu. Heldur hlýn-
andi. Horfur á mánudag: Óljósar
horfur en gæti gengið í norðanátt
með snjókomu.
Opið frá fimmtudegi til mánu-
dags að báðum dögum meðtöldum,
frá kl. 10 til 17. Aukinn opnunar-
tími verður auglýstur sérstaklega.
Barnapössun verður alla dagana
frá kl. 11 til 14.
Upplýsingar fást í símum
456-3581 og 456-3793.
Útiguðsþjónusta verður inni í
Tungudal kl. 11 á skírdag ef veður
leyfir.
SIGLUFJÖRÐUR
Veðurhorfur í dag: Norðvestan
stinningskaldi eða allhvass og snjó-
koma eða éljagangur, minnkandi
þegar líður á daginn. Frost 2 til 5
stig. Horfur á föstudag: Hæg suð-
læg átt og bjart veður. Frost 1 til
4 stig. Horfur á laugardag: Suð-
vestlæg eða breytileg átt og líklega
dálítil él. Hiti um frostmark. Horfur
á sunnudag: Hæg suðaustlæg átt
og líklega bjart veður framan af
morgni en þykknar síðan upp með
vaxandi suðaustanátt og fer að
snjóa. Hlýnandi veður. Horfur á
mánudag: Óljósar horfur, ef til vill
vestan- eða norðvestanátt og élja-
gangur.
Opið frá fimmtudegi til mánu-
dags að báðum dögum meðtöldum,
frá kl. 10 til 17.
Upplýsingar fást í síma
467-1806
Á skírdag verður Rafbæjarmót í
stórsvigi og um helgina verður
Siglufjarðarmót í svigi.
ÓLAFSFJÖRÐUR
Veðurhorfur í dag: Norðvestan
stinningskaldi og éljagangur,
FRÉTTIR
minnkandi þegar líður á daginn.
Frost 2 til 4 stig. Horfur á föstu-
dag: Hæg suðlæg átt og bjart veð-
ur. Frost 1 til 4 stig. Horfur á laug-
ardag: Suðvestlæg eða breytileg átt
og ef til vill dálítil él. Hiti um eða
rétt undir frostmarki. Horfur á
sunnudag: Hæg suðaustlæg átt og
líklega bjart veður framan af
morgni en þykknar síðan upp með
vaxandi suðaustanátt og fer að
snjóa. Hlýnandi veður. Horfur á
mánudag: Óljósar horfur, ef til vill
vestan- eða norðvestanátt og élja-
gangur.
Opið á fímmtudag, föstudag,
sunnudag og mánudag frá kl. 11
til 17. Á laugardag verður opið frá
kl. 9.30 til 17.
Upplýsingar fást í síma
466-2527.
Skíðamót íslands verður einnig
alla dagana.
DALVÍK
Veðurhorfur í dag: Norðvestan
stinningskaldi og éljagangur,
minnkandi þegar líður á daginn.
Frost 2 til 5 stig. Horfur á föstu-
dag: Hæg suðlæg átt og bjart veð-
ur. Frost 1 til 4 stig. Horfur á laug-
ardag: Suðvestlæg eða breytileg átt
og skýjað með köflun en úrkomulít-
ið. Hiti um frostmark. Horfur á
sunnudag: Hæg suðaustlæg átt og
líklega bjart veður framan af
morgni en þykknar síðan upp með
vaxandi suðaustanátt og fer að
snjóa. Hlýnandi veður. Horfur á
mánudag: Óljósar horfur, ef til vill
vestan- eða norðvestanátt og élja-
gangur.
Opið frá fimmtudegi til mánu-
dags að báðum dögum meðtöldum,
frá kl. 10 til 17.
Kennsla verður í boði fyrir þá
sem vilja alla dagana.
Upplýsingar fást í síma
466-1010.
Skíðamót íslands verður um
páskana.
AKUREYRI
Veðurhorfur í dag: Norðvestan
kaldi eða stinningskaldi og dálítil
él, minnkandi þegar líður á daginn.
Frost 3 tii 6 stig. Horfur á föstu-
dag: Hæg suðlæg átt og bjart veð-
ur. Frost 2 til 5 stig. Horfur á laug-
ardag: Suðvestlæg eða breytileg átt
og skýjað með köflum. Hiti um frost-
mark. Horfur á sunnudag: Hæg
suðaustlæg átt og líklega bjart veð-
ur framan af morgni en þykknar
síðan upp með vaxandi suðaustanátt
og fer að snjóa. Hlýnandi veður.
Horfur á mánudag: Óljósar horfur,
ef til vill vestan- eða norðvestanátt
og él.
Opið frá fimmtudegi til mánu-
L
MORGUNBLAÐIÐ
dags að báðum dögum meðtöldum,
frá kl. 10 til 17. >
Upplýsingar fást í síma
878-1515
HÚSAVÍK
Veðurhorfur í dag. Norðvestan
stinningskaldi og él, minnkandi með
kvöldinu. Frost 2 til 5 stig. Horfur-
á föstudag: Hæg suðlæg átt og
bjart veður. Frost 3 til 6 stig. Horf-
ur á laugardag: Suðvestlæg eða
breytileg átt og skýjað með köflum.
Hiti um frostmark. Horfur á sunnu-
dag: Hæg suðaustlæg átt og líklega
bjart veður framan af morgni en
þykknar síðan upp með vaxandi
suðaustanátt og fer að snjóa. Hlýn-
andi veður. Horfur á mánudag:
Óljósar horfur, ef til vill vestan- eða
norðvestanátt og él.
Opið frá fimmtudegi til mánu-
dags frá kl. 13 til 17.
Upplýsingar fást í síma
464-1912.
SEYÐISFJÖRÐUR
k
í
>
Veðurhorfur í dag: Hvasst norð-
vestan og éljagangur eða skafrenn-
ingur. Frost 3 til 5 stig. Horfur á
föstudag: Minnkandi vestanátt,
gola og bjartviðri þegar líður á
daginn. Frost 3 til 5 stig. Horfur á
laugardag: Suðvestankaldi og skýj-
að en úrkomulítið. Frost 1 til 3 stig.
Horfur á sunnudag: Vaxandi sunn-
anátt, allhvasst með kvöldinu og
líklega snjókoma eða slydda. Hlýn-
andi veður. Horfur á mánudag:
Óljósar horfur en gæti létt til með
allhvassri suðvestanátt.
Opið frá fimmtudegi til mánu-
dags að báðum dögum meðtöldum,
frá kl. 11 til 17.
Upplýsingar fást í síma
472-1160.
ODDSSKARÐ
Veðurhorfur í dag: Allhvass eða
hvass norðvestan og éljagangur eða
skafrenningur. Frost 2 til 5 stig.
Horfur á föstudag: Minnkandi vest-
anátt, gola og bjartviðri þegar líður
á daginn. Frost 2 til 5 stig. Horfur
á laugardag: Suðvestankaldi og
skýjað en úrkomulítið, ef til vill bjart
með köflum. Frost 1 til 3 stig.
Opið frá fimmtudegi tíl mánu-
dags að báðum dögum meðtöldum,
frá kl. 10 til 17. Auk þess verður
opið frá kl. 22 til 1 á sunnudag.
Kennsla verður fyrir börn frá
kl. 11 til 13 alla dagana.
Upplýsingar fást í síma
878-1474
I
íslenzk stoðtæki og tækniaðstoð til Bosníu
600 manns koma
undir sig fótunum
ÍSLENZK stoðtæki og gervilimir
munu bæta til muna alla möguleika
600 Bosníumanna, sem hafa misst
fót fyrir neðan hné í borgarastríð-
inu, sem geisað hefur í landinu.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra undirritaði í fyrradag fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar samning við
stoðtækjafyrirtækið Össur hf. um
kaup á stoðtækjum og tækniaðstoð
á því sviði fyrir um 33 milljónir
króna.
„í framhaldi af samþykkt ríkis-
stjómarinnar um 100 milljóna króna
aðstoð við Bosníu höfum við verið
að vinna að því að koma þessu verk-
efni í framkvæmd í samstarfí við
Alþjóðabankann. Það hefur gengið
mjög vel að mínu mati og Alþjóða-
bankinn er mjög ánægður með sam-
vinnuna við íslendinga í þessu máli,“
segir Halldór Ásgrímsson. „Okkur
mun takast að gera mjög mikið fyr-
ir það fé, sem var til ráðstöfunar.
Það er ekki lítið að geta aðstoðað
600 einstaklinga, sem misst hafa fót
fyrir neðan hné í styijöldinni í Bos-
níu-Herzegóvínu. Ég tel að þetta sé
gott dæmi um hvemig íslenzk þekk-
ing og reynsla getur stuðlað að fram-
förum og betra lífi fólks í öðmm
löndum."
Hilmar Þ. Hilmarsson, aðstoðar-
maður utanríkisráðherra og formað-
ur nefndar sem skipuð var vegna
framlags ísiands til uppbyggingar-
starfsins í Bosníu, segir að í landinu
séu enn um sex milljónir jarð-
sprengna og talið sé að um 7.000
manns hafi misst fót fyrir neðan
hné. Er ísland hafi farið að leita
leiða, ásamt Alþjóðabankanum og
bosnískum heilbrigðisyfirvöldum, til
að endurhæfa fólk sem hafí orðið
illa úti í stríðinu, hafí komið í ljós
að brýn þörf var á stoðtækjum.
„Við leituðum eftir því, sem til væri
hér á landi og síðan kom beiðni frá
Alþjóðabankanum um að okkar
Happdrætti
Slysavarnafélags íslands
Dregið hefur verið í fjórða útdrætti happdrættisins.
Aðeins dregið úr greiddum miðum.
Eftirtaldir aðilar hlutu vinning:
1. Ferð fyrir tvo i tvær vikur til Mallorka eða Benidorm
nafn: Ragnheiður Klara Jónsdóttir miði nr: 100904
2. Ferð fyrir tvo til Dublin,
nafn: Guðbjörg Sveinsdóttir miði nr: 032756
3. Ferð fyrir tvo til Dublin,
Lausasölumiði nr: 143070
Biöraunarskip í alla
landshluta
Morgunblaðið/
STOÐTÆKJAFRÆÐINGUR hjá Össuri tekur mót fyrir nýrri
Icex-hulsu handa ungum pilti í Bosníu. Sexhundruð Bosníumenn
munu nú fá stoðtæki af þessu tagi.
framlag yrði fólgið í aðstoð frá Öss-
uri, en stoðtæki þeirra byggjast á
tækni, sem ekki er til annars staðar
í heiminum," segir Hilmar.
Aðstoð veitt
í þremur borgum
Hann segir að þar sé annars veg-
ar um að ræða Iceross silíkon-huls-
una og hins vegar Icex trefjahulsu.
„Fólk, sem hefur misst fótinn, hefur
oft ekki fengið fullnægjandi skurð-
aðgerð. Silíkonhulsurnar eru því
mjög heppilegar fyrir það. Með hefð-
bundnum stoðtækjum myndast nún-
ingur og oft blæðir úr stúfnum,“
segir Hilmar.
Samið hefur verið um að aðstoðin
verði veitt til þriggja borga í Bosníu,
Sarajevo, Tuzla og Zenica. Þjálfaðir
verða tveir heimamenn á hveijum 5
stað til að sjá um stoðtækjaþjón-
ustuna og kenna fólki að nota stoð-
tækin. „Talið er að áfram verði mik-
il þörf fyrir þessa þjónustu í framtíð-
inni og Össur er reyndar farinn að
vinna sem ráðgjafi Alþjóðabankans
á sviði stoðtækja almennt, ekki að-
eins hvað varðar þetta verkefni,"
segir Hilmar.
Hilmar segir að lögð verði áherzla
á að aðstoða ungt fólk, á aldrinum
18-35 ára. Verkefnið sé hluti af |
uppbyggingarstarfi, sem eigi að
stuðla að hagvexti, og því hafí þótt
rétt að reyna að hjálpa fólki á bezta |
vinnualdri til að koma undir sig fót-
unum á nýjan leik. .