Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Þáttur kennara
í skólaþróun
MEL West flytur opinn fyrir-
lestur við Háskólann á Akur-
eyri næstkomandi miðvikudag,
2. apríl, í stofu 16 í húsnæði
háskólans við Þingvallastræti.
Fyrirlesturinn nefnist; Þátt-
ur kennara í skólaþróun. Á síð-
ustu tveimur árum hafa fjórir
skólar á Norðurlandi eystra
unnið að sérstökum skólaþró-
unarverkefnum, en þau eru
byggð á aðferðum sem þróaðar
hafa verið við Cambridge-
háskóla. Mel West mun í fyrir-
lestrinum fjalla um þróun þess-
ara aðferða. Leggur hann sér-
staka áherslu á þátt kennara
við að þróa gæði skóla.
Mel West lauk BA gráðu í
hagfræði og hagsögu frá Uni-
versity of London árið 1971 og
MBA gráðu frá University of
Keele 1984. Hann hefur frá
þeim tíma starfað sem kennari
við háskólann i Cambridge þar
sem aðalsvið hans er skólaþró-
un og gæði menntunar. Mel
West hefur verið ráðgjafi
Skólaþjónustu Eyþings vegna
þessa verkefnis.
Fyrirlesturinn verður fluttur
á ensku og hefst hann ki. 16.15.
Aðalfundur
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga verður haldinn í
Alþýðuhúsinu á Akureyri laugardaginn 5. apríl nk. og hefst
kl. 10.00.
Dagskrá
1. Fundarsetning.
2. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna fundarins.
3. Skýrsla stjórnar.
4. Skýrsla kaupfélagsstjóra.
Reikningar félagsins.
Umsögn endurskoðenda.
Tillögur félagsstjórnar um ráðstöfun eftirstöðva o.fl.
5. Afgreiðsla reikninga og tillaga félagsstjórnar.
6. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs KEA.
7. Erindi deilda.
8. Þóknun stjórnar og endurskoðenda.
9. Samþykktabreytingar;
Lögð verður fram tillagna um hækkun heimildar til
útgáfu B-deildar hlutabréfa. Einnig verða lagðar fram
tillögur um breytingar er varða inngangseyri, fjölda
aðalfundarfulltrúa, fjölda stjórnarmanna og um kosningu
fulltrúa úr hópi eigenda hluta í B-deild til setu á
stjórnarfundum.
10. Kosningar.
11. Önnur mál, sem heyra undir aðalfund skv.
félagssamþykktum.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga.
-VUNM-'NN'
AsvcafR'®
mki
mmsái
fmlíliKJ]:
ji j
-»SjuKrsjnussoyu
^ örlagasöcjii
Áejé ocj afbroc
-- Ásc-jrsögu
- Söcju rnánaöarins Glerárgötu 28 - Simi 462 4966
ásútgáfan
-i
Krossanes fjórfaldaði hagnaðinn milli ára
Fjárfest fyrir rúmar
200 milljónir í fyrra
LOÐNUVERKSMIÐJAN Krossanes
hf. á Akureyri skilaði tæplega 208
milljóna króna hagnaði á síðasta ári,
sem er um fjórfalt meiri hagnaður
en árið 1995. Aðalfundur Krossaness
var haldinn í gær og þar kom fram
bjartsýni forsvarsmanna fyrirtækis-
ins á rekstur þess á næstunni.
Þórarinn Kristjánsson, stjórnar-
formaður, flutti skýrslu stjórnar og
sagði hann margar ástæður fyrir
hinni góðu afkomu á árinu 1996 og
benti m.a. á hagstæð ytri skilyrði og
mikinn heildarafla. Veiði í júlí og
ágúst hafi einnig verið góð en þá er
loðnan einna afurðamest. Eftirspum
eftir framleiðslu fiskimjölsverksmiðja
hafi verið með meira móti og verð-
lag, sér í lagi á mjöli, því hagstætt.
Þá hefur hráefniskostnaður á hráefn-
istonn minnkað með auknum afköst-
um í verksmiðjunni.
Rekstur á Akureyri og
í Ólafsfirði
Á síðasta ári var fjárfest fyrir rúm-
lega 200 milljónir króna. Stærstu
fjárfestingarnar voru kaup á fiski-
mjölsverksmiðjunni í Ólafsfirði fyrir
110 milljónir króna og uppsetning á
nýjum soðeimingartækjum í Krossa- í
nesi fyrir 85 milljónir króna. Um 60
starfsmenn störfuðu hjá fyrirtækinu
á síðasta ári og námu heildarlauna-
greiðslur rúmum 41,7 milljónum
króna og jukust um 23% milli ára.
Varðandi framtíðina ríkir bjartsýni
meðal forsvarsmanna fyrirtækisins.
Þórarinn sagði, í skýrslu stjómar,
fiskifræðinga spá því að veiðar á
uppsjávarfiskum muni verða miklar I
næstu 2-3 árin og þeir sem best þekki j
til sölumála telji sig ekki í dag sjá i
nein tákn um miklar breytingar á '
mörkuðum fyrir afurðir íyrirtækisins.
Eining frestaði
boðuðu verkfalli
SAMNINGANEFND Verkalýðsfé-
lagsins Einingar í Eyjafirði sam-
þykkti á fundi sínum í fyrrakvöld
að fresta fyrirhuguðu verkfalli til
miðnættis 23. apríl nk. Framundan
er allsherjaratkvæðagreiðsla um ný-
gerða kjarasamninga og þarf Eining
að skila niðurstöðu hennar til ríkis-
sáttasemjara fyrir 15. apríl.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Einingar, segir að upplýsingar um
samninginn og atkvæðaseðlar verði
póstlögð til um 4.000 félagsmanna
fimmtudaginn 3. apríl og þurfa þeir
að skila seðlinum aftur fyrir 10.
apríl. Talning fer svo fram hinn 14.
apríl.
Mikill meirihluti samþykkti
verkfallsboðun
Eining efndi til atkvæðagreiðsiu
í síðustu viku meðal um helmings
félagsmanna um að boða verkfall
2. apríl ef samningar hafa ekki náðst
fyrir þann tíma. Á kjörskrá voru
1920 manns og tóku 878 félagsmenn
þátt í atkvæðagreiðslunni. Já við
boðun verkfalls sögðu 700, eða
79,73%, nei sögðu 161, eða 18,34%
en auðir og ógildir seðlar voru 17.
Samið við
Krossanesverksmiðjuna
í gær var lokið við gerð kjara-
samnings milli Einingar og Krossa-
ness hf. vegna starfsmanna í loðnu-
verksmiðjum fyrirtækisins á Akur-
eyri og Ólafsfirði. Að sögn Björns
er samningurinn á sömu nótum og
gerðir hafa verið í öðrum loðnuverk-
smiðjum. Hann segir að eftir sé að
ganga frá fjölmörgum sérsamning-
um, við sveitarfélög, ríki og fleiri
og verði farið í þá vinnu þegar fyrir
liggur hvort aðalkjarasamningurinn
verður samþykktur eða ekki.
Myndlistar-
sýning ,
Hallgríms (
HALLGRÍMUR Ingólfsson opnaði
málverkasýningu á Kaffi Karólínu
sl. laugardag og er þetta jafnframt
hans fyrsta einkasýning.
Hallgrímur sýnir akrýlmyndir á
prentplötum. Sýningin er opin á
afgreiðslutíma kaffihússins og
stendur fram í byrjun apríl. .
Messur
HVÍTASUNNUKIRKJAN; Skír-
dagur kl. 20.30, brautbrotning,
ræðumaður Jóhann Pálsson. Föstu-
dagurinn langi, samkoma kl. 14.00,
ræðumaður G. Rúnar Guðnason.
Páskadagur, samkoma/barnabless-
un kl. 14.00, ræðumaður Vörður
L. Traustason.
í nýföllnum
snjónum
KRAKKARNIR á leikskólanum
Holtakoti virtust himinlifandi
yfir nýföllnum snjónum og þustu
í útigöllunum í leiktækin á lóð
leikskólans. Og alltaf er jafn
spennandi að eiga við klifur-
grindina. Þegar upp er komið
er útsýnið yfir völlinn gott og
hægt að huga að því hvað hinir
eru að gera.
\1IÓTKL KEA
\ 1 S> 4 4
GEIRMUMDUR
^ALTÝSSON ,/
ÁSAMT HLJÓMSVEIT
Á STÓRDANSLEÍIK '/
HELGARINNAR. AÐ KVÖLDI
föstUdagsins langa
FRÁ 24.00 TIL 04.00
JÓN RAFNSSON OG
ÓMAR EINARSSON LEIKA
LÉTTAN DINNER JASS
FYRIR MATARGESTI
SKÍRDAGSKVÖLD OG
•J LAUGARDAGSKVÖLD
Morgunblaðið/Kristján