Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Fegurstu stúlkur
Austurlands
Egilsstöðum - Þær stúlkur sem
taka þátt í fegurðarsamkeppni
Austurlands eru nú á fullu að
undirbúa sig fyrir keppnina sem
haldin verður í Hótel Valaskjálf
á Egilsstöðum, 5. apríl nk. Fram-
kvæmdastjóri keppninnar er íris
Másdóttir og þjálfari stúlknanna
er Katrín Einarsdóttir. Þessi
mynd var tekin þegar stúlkurnar
voru að fara út að borða í boði
Pizza 67. Þær eru Elín Skúladótt-
ir frá Neskaupstað, Bryndís Jóns-
dóttir frá Hornafirði, Ingibjörg
Dögg Kjartansdóttir frá Egils-
stöðum, Þorgerður Þórðardóttir
frá Vopnafirði, Sandra Ösp Valdi-
marsdóttir frá Egilsstöðum og
Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir
frá Eskifirði.
Bruni í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki
Vatnsúðakerfi kom
í veg fyrir stórtjón
Sauðárkróki - Um klukkan hálf ell-
efu á sunnudagskvöld varð vegfar-
andi sem leið átti um Sauðárhlíð
þess var að aðvörunarbjöllur á Bókn-
ámshúsi Fjölbrautaskólans voru í
gangi. Kallaði hann út slökkviiið og
lögreglu og voru þessir aðilar komn-
ir á staðinn innan fárra mínútna.
í ljós kom að eldur hafði kviknað
á kennarastofu skólans út frá elda-
vél en vatnsúðakerfí sem í skólahús-
inu er hafði sannað giidi sitt og
slökkt eldinn þegar að var komið.
Mikill reykur var í húsinu og tók
það slökkviliðsmenn nokkurn tíma
að reykræsta húsið og dæla út vatni
sem flæddi um gólf.
Að sögn Óskars Óskarssonar,
slökkviliðsstjóra, er ljóst að hér hefði
geta orðið stjórtjón hefði ekki verið
vatnsúðakerfí í húsinu þar sem nem-
endum eru nú komnir í páskaleyfi
og lágmarksumgangur um húsið.
Aðeins einn stútur fór í gang og
Morgunblaðið/Bjöm Björnsson
INNRETTING eyðilagðist í
eldinum i Fjölbrautaskólanum
á Sauðárkróki.
urði því litlar skemmdir á húsgögn-
um og innanstokksmunum á kenn-
arastofunni, aðeins brann innrétting
í eldhúskrók og umhverfí eldavélar.
Vatnstjón varð einnig óverulegt þar
sem svo fljótt varð vart við aðvörun-
arbjölluna.
-HÓLL-
af Iffi og sál!
5510090
Dofraborgir — Grafarvogur
Erum með í sölu glæsilegt 157 fm raðhús átveimur hæðum
á þessum mikla útsýnisstað. 3 svefnherb., innb. bílskúro.fl.
Eignin er tilbúin undir tréverk og er til afh. strax. Ahv. 4,0
millj. Verð 10,4 millj. Hreinn veitir allar nánari uppl. um eign-
ina í síma 562 6901 eða 897 7209.
Ky nningar fundur um
samgöngu- og ferðamál
Grund - Kynningarfundur um
samgöngu og ferðamál á vegum
Samvinnunefndar um svæðis-
skipulag í Borgarfjarðarsýslu
norðan Skarðsheiðar var haldinn í
Brautartungu fyrr í mánuðinum.
Gestur fundarins var samgöngu-
ráðherra, Halldór Blöndal, sem
mætti ásamt vegagerðarmönnun-
um Jóni Rögnvaldssyni, Hjörleifí
Ólafssyni, Birgi Guðmundssyni og
Bjarna Johansen.
Á fundinum kom fram hjá ráð-
herra að líklega yrði hægt að fram-
kvæma á Borgarfjarðarbraut á
þessu ári fyrir u.þ.b. 80 milljónir
króna og það væru alþingismenn
kjördæmisins en ekki samgöngu-
ráðherra sem réðu því hvar og
hvenær framkvæmdir hæfust.
í upphafi fundarins gerði hönn-
uður skipulagstillagnanna, Guðrún
Jónsdóttir, arkitekt grein fyrir til-
lögunum, kynnti fundarmönnum
tillögur starfshópa, og skýrði kort
sem hengd voru upp á veggi. Að
lokinni umfjöllun Guðrúnar um
skipulagsvinnu samvinnunefndar-
innar tók Halldór Blöndal til máls.
Hann sagði að höfuðáhersla yrði
lögð á að fækka einbreiðum brúm
en þær eru ein helsta slysagildra
í þjóðvegakerfmu. Að hans mati
eru mikilvægustu framkvæmdir í
Vesturlandskjördæmi að leggja
nýjan veg um Vatnaheiði og teng-
ing byggðanna á norðanverðu
Snæfellsnesi, byggja upp veginn
um Bröttubrekku til að styrkja
búskap í Dölum og Mjólkurbúið í
Búðardal og byggja og styrkja
veginn um Geldingadraga og koma
bundnu slitlagi á til að bændur
losni við vegrykið af túnum sínum.
Ráðherra sagðist lengi hafa ver-
ið áhugasamur um að vegurinn um
Dragann, Hestháls og síðan Grjót-
háls yrði gerður að valkosti vegna
norðurleiðarinnar en fengið mikil
mótmæli frá Akranesi og Borgar-
nesi. Göngin í Hvalfirði hefðu því
fengið forgang og vinnan við þau
gengi vel.
Að lokum kom hann að deilunni
um veglínu Borgarfjarðarbrautar
í Reykholtsdal. Sagði nokkuð frá
afskiptum sínum af málinu sem
leiddi til þess að Hönnun var falið
að finna hugsanlega sáttaleið sem
lægi á milli hinna tveggja umdeildu
veglína. Þessu verki Hönnunar er
nú lokið og búið að leggja „sátta-
leiðina" fram til kynningar og jafn-
framt setja hana í umhverfismat.
Þórir Jónsson, hreppnefndar-
maður úr Reykholtsdalshreppi,
lýsti fullri andstöðu við hina svo-
kölluðu sáttaleið og sagðist frá-
biðja sér hana.
Ríkharð Brynjólfsson, oddviti
Andakílshrepps, minnti á sam-
þykkt allra sveitarstjórna .innan
S.S.B.N.S. sem segir: „Sameigin-
legur fundur sveitastjórna í
Borgarfjarðarsýslu norðan Skarðs-
heiðar haldinn í Brú 6. febrúar
1997 skorar á samgönguyfirvöld
að hefjast handa við lagningu
Borgarfjarðarbrautar á vori kom-
andi fyrir það fjármagn sem fyrir
hendi er. Liggi ekki fyrir ákvörðun
um vegstæði frá Flókadalsá að
Kleppjárnsreykjum verði byijað
þar sem fyrir liggur ákvörðun um
vegstæði sunnan Flókadalsár.“
Halldór Blöndal sagðist ekki
hafa afskipti af hvar byijað væri
á Borgarfjarðarbrautinni því það
væri í verkahring þingmanna Vest-
urlands enda skiptu þeir vegafé
kjördæmisins en ekki samgöngu-
ráðherra.
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
SNJÓTROÐARINN nýi á Sauðárkróki.
Furugerði — Reykjavík
Vorum að fá í einkasölu fallega 4ra herb. íbúð á J. hæð í litlu
fjölbýli. Nýleg innrétting í eldhúsi. Sérþvottaherb. Parket. Suður-
svalir. Hús í góðu ástandi. Ekkert áhvílandi. Verð 9 millj. 8505.
Kjöreign fasteignasala,
Ármúla 21, sími 533 4040.
Opið í dag frá kl. 14-17
Fjöldi góðra eigna
á skrá
Sýnum og skoðum
eignir í dag
llk
VAGNJÓNSSON
FASTEIGNASALA
sími 561 4433
NÁNAR Á NETNU: http://www.itn.is/vagn/
Bætt aðstaða
á skíðasvæði
Sauðkræk-
inga
Sauðárkróki - Ungmennafélagið
Tindastóll hefur á undanförnum
árum verið að vinna við nýtt
skíðasvæði í vesturhlíðum sam-
nefnds fjalls. Hefur þar verið
komið upp góðri toglyftu sem
nær upp í um 400 metra hæð
og hefur sívaxandi áhugi verið
á Sauðárkróki fyrir þessari
grein íþrótta sem ekki hefur
verið mjög mikið stunduð hér
fram til þessa.
Nú í febrúar sl. festu Tinda-
stólsmenn kaup á nýjum snjó-
troðara af gerðinni Leitner LH
500 frá Ítalíu sem kostaði um
16 milljónir króna og hefur hann
nú verið tekinn í notkun. Að
sögpi Gunnars Björns Rögnvalds-
sonar, formanns skíðadeildar-
innar, er hér um mjög gott og
mikilsvert tæki að ræða og hefði
það komið í ljós að eftir að farið
var að troða bæði göngu- og
svigbrautir hefði aðsókn að
svæðinu margfaldast. Þá væri
einnig um mun minni slysahættu
að ræða þegar unnt væri að
troða brautirnar.
Gunnar Björn sagði skíða-
svæði Tindastóls n\jög gott, að-
eins 8 km frá bænum og 10 mín-
útna akstur, aðgengi að svæðinu
væri ágætt, þar væri alla vetur
nægur snjór og hlíðin byði upp
á mjög fjölbreyttar brekkur.
Þessi nýja viðbót við aðstöð-
una á svæðinu væri mjög
ánægjuleg og gerði það enn eft-
irsóknarverðara og skemmti-
legra.