Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Opið
á páskahelginni
PRIMAVERA
RISTORANTE
AUSTURSTRÆTI 9
Fagradalsbleikja vex stöðugt
Lítið vantar upp á
lífrænt bleikjueldi
„ÉG hlýt að vera bjartsýnn, ég er
ekki búinn að vinna nema lítinn
hluta þess markaðar sem er fyrir
reyktan silung og lax,“ segir Jónas
Erlendsson, framleiðandi Fagra-
dalsbleikju.
Jónas og Ragnhildur Jónsdóttir,
bændur í Fagradal í Mýrdal, byij-
uðu með fískeldi fyrir sex árum.
Sérhæfa þau sig í bleikjueldi. I
framhaldi af því settu þau upp
reykhús á bænum og hófu fram-
leiðslu á reyktri bleikju árið 1992
undir vörumerkinu Fagradals-
bleikja. Framleiðslan var í mjög
smáum stíl í upphafí, kannski 20
kíló í einu, og afurðimar fóru ein-
göngu til sölu í kaupfélaginu í Vík.
Sala og framleiðsla hefur aukist
smám saman, hafin var reyking á
laxi með og núna er tekið að
minnsta kosti hálft tonn til vinnslu
í einu. Fiskur frá Fagradalsbleikju
er kominn í búðir víða um land.
Salan fór fljótlega fram úr afkasta-
getu fískeldisstöðvarinnar og
kaupa þau nú meira en helming
hráefnisins frá öðrum fískeldis-
stöðvum. Á síðasta ári keyptu þau
fískeldisstöðina Dyrhólalax hf. í
Vík og juku með því framleiðslu-
möguleika fyrirtækisins.
Fagradalsbleikja framleiðir nú
þijár tegundir af reyktum físki,
reykta bleikju, reyktan lax og
kryddreykta bleilqu. Búið er að
hanna nýjar umbúðir og þessa
dagana eru vömmar á tilboðsverði
í nokkmm verslunum og stórmörk-
uðum.
Alveg nóg að gera
Jónas og Ragnhildur hafa alla
tíð dreift fiskinum sjálf í búðir og
segir Jónas að þau hafi haft alveg
nóg að gera en þau eru einnig
með lítið sauðfjárbú. „Þetta er
orðið svo mikið að maður þarf að
Morgunblaðið/Helgi Bjamason
JÓNAS Erlendsson, eigandi Fagradalsbleikju, við pökkun.
fá sér sölumann eða semja við
dreifingarfyrirtæki,“ segir Jónas.
Jónas telur að hann hafi góða
möguleika á að fá framleiðsluna
vottaða sem lífræna. Öll aðstaða
standist þær kröfur sem gerðar
eru og fiskinum hafí aldrei verið
gefin lyf en hins vegar sé ekki
hægt að fá lífrænt vottað fóður.
Segir hann að fóðurframleiðendur
séu að huga að því máli, enda
gæti það skapað mikla möguleika
fyrir alla bleikjuframleiðsluna í
landinu.
Fagradalsbleikja hefur hlotið
viðurkenningu í norrænni fag-
keppni fyrir gæði framleiðslunnar
og nú er Jónas Erlendsson farinn
að huga að útflutningi. Segir hann
að hægt sé að framleiða mun
meira í reykhúsinu í Fagradal og
hagkvæmt gæti verið að nýta
hana betur. „Það virðist vera auð-
velt að koma vörunni á erlendan
markað en ég er ekki sannfærður
um að nógu hátt verð fáist til
þess að það borgi sig,“ segir hann.
Vonast hann til að það gæti breyst
þegar hægt verður að kynna
bleikjuna sem lífrænt ræktaða.
IMYTT
Nýr ilmur
ILMUR sem hentar bæði konum
og körlum er kominn á markað.
Hann hefur hlotið heitið CK be og
er hann framleiddur af Calvin
Klein Cosmetics. Hann er hugsað-
ur fyrir sama aldurshóp og CK
One ilmurinn eða fólk á aldrinum
18-29 ára. Ilmurinn kemur í svartri
flösku með flauelsáferð en umbúð-
imar hannaði franski glerframleið-
andinn Pochet. Ilminn hannaði Giv-
audan-Roure í samvinnu við Ann
Gottlieb.
Bursti til
tannhirðu
KOMINN er á markað nýr bursti
sem á að auðvelda tannhirðu.
Notkun miðast aðallega við að
hreinsa tannsýkla sem safnast
milli tanna en einnig til að þrífa í
kringum gervihluti, s.s. brýr, tann-
réttingatæki og fl. Burstinn er ein-
nota, búinn til úr endurvinnanlegu
plastefni. Stöngullinn er þríhyrnd-
ur, grennstur fremst 0,5 mm en
endar í 3,0 mm. Grisjan er búin
til úr ofnum nælonþræði og í henni
eru 0,25 mg af flúor sem losnar
þegar það kemst í snertingu við
munnvatn.
Varan fæst í mörgum apótekum.
Lýsisflöskur
merktar
Lions-
hreyfingunni
LÝSI hf. hefur látið hanna sérstak-
ar flöskur merktar Lionshreyfíng-
unni. Munu Lionsmenn selja flösk-
urnar á næstu misserum. Um er
að ræða 100 ml flöskur af bragð-
minna lýsi en fram til þessa hefur
lýsið verið selt í 220 gramma og
460 gramma flöskum.
Ágóði af sölu lýsisins rennur til
Lionsklúbbanna á íslandi en fénu
er síðan varið til líknarmála.
;—»» . ,—;
• • • • / *i
sœtir sofar*
HUSGAGN ALAGERINN
Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475