Morgunblaðið - 27.03.1997, Side 27

Morgunblaðið - 27.03.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 27 Rannveig Sif Sigurðardóttir á Páskabarokki í Gerðarsafni Syng fyrir sjálfa mig ARLEGIR Páskabarokktón- leikar verða haldnir í Lista- safni Kópavogs-Gerðarsafni næstkomandi laugardag kl. 16.00. Verður tónlistin, sem fyrr, flutt á upprunaleg hljóðfæri og sungin af söngvara sem sérstaklega hefur til- einkað sér söngstíl barokktónlistar. Er söngvarinn að þessu sinni Rann- veig Sif Sigurðardóttir, mezzosópran, sem starfað hefur um nokkurra ára skeið í Hollandi og víðar samhliða námi við Konunglega tónlistarháskól- ann í Haag. „Ég hef haft mikinn áhuga á bar- okktónlist frá blautu bamsbeini," segir söngkonan, „og þegar ég var lítil stelpa að læra á píanó vildi ég helst ekki spila neitt annað en Bach sem var og er í mestu uppáhaldi." Eftir söngnám við söngdeild Tón- listarskólans í Reykjavík hélt Rann- veig Sif utan til Þýskalands árið 1986 og síðar Austurríkis til frekara náms. Það var síðan fyrir sjö árum að hún ákvað að láta drauminn rætast og hóf barokk-söngnám við barokkdeild Konunglega tónlistarháskólans í Haag í Hollandi. Árið 1992 braut- skráðist hún frá þeirri deild en hefur síðan lagt stund á söngkennaranám sem hún lauk í fyrra og söngnám við klassísku deild sama skóla, þaðan sem hún mun ljúka prófi á þessu vori. Rannveig Sif kveðst þegar í stað hafa fundið sig vel í barokk-náminu. „Ég er ekki með þessa stóru óperu- rödd og barokkið hentar mér því miklu betur. Það er hins vegar ekki þar með sagt að ég eigi aldrei eftir að stíga á óperusvið. Það yrði þó að vera í óperu frá barokktímanum eða eftir Mozart, sem ég held mikið uppá, eða jafnvel Rossini — Verdi kemur ekki til greina.“ Ennfremur kveðst Rannveig Sif hafa mikið dálæti á rómantískum ljóðum og nefnir Schubert, Schu- mann og Fauré sérstaklega í því sam- hengi, auk þess sem nútímatónlist og óratóríur höfði til sín. Öllu þessu vonast hún til að geta sinnt að ein- hveiju leyti í framtíðinni, þótt bar- okktónlist sé og verði hennar sérsvið. Hefur látið að sér kveða Þótt Rannveig Sif hafi ekki enn lokið námi hefur hún þegar látið að sér kveða, bæði hér heima og erlend- is. Ytra hefur hún einkum og sér í lagi komið fram með barokk-kvart- ettinum Quadro Corydon sem hún hefur sungið með íjölda tónleika í Hollandi, Þýskalandi og Englandi og barokk-hljómsveitinni Neue Kapelle Miinster í Þýskalandi, sem telur á bilinu tvo til þrettán félaga eftir verk- efnum. Quadro Corydon er fjölþjóðlegur flokkur listamanna en hljóðfæraleik- ararnir eru frá Þýskalandi, Banda- ríkjunum og Ítalíu. Segir Rannveig Sif að sitthvað sé á döfínni hjá sveit- inni, meðal annars tónleikar á Sumar- tónleikum á Norðurlandi í sumar, en það verður í fyrsta skipti sem hún kemur fram hér á landi, og á Nordic Baroque Music Festival í Svíþjóð í ágúst næstkomandi. Verður tónleik- um þeirra þar útvarpað og sjónvarpað beint um gjörvalla Svíþjóð. Þá eru tónleikar á Italíu og í Bandaríkjunum á dagskrá fjórmenninganna næsta vetur. Á liðnu ári varð Quadro Cory- don í flórða sæti í alþjóðlegri keppni barokk-hljómsveita í Hollandi. Að auki hefur Rannveig Sif verið félagi í Rheinische Kantorei í Þýska- landi, hljómsveitinni Hex í Hollandi, sem sérhæfír sig í flutningi nútíma- LISTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg „ÞAÐ ER alltaf jafn gaman að syngja á Islandi, þótt það sé að vissu leyti erfiðara en að syngja erlendis. Hér þekkir maður alltaf einhvern í salnum — pressan er því meiri,“ segir Rannveig Sif Sigurðardóttir. tónlistar, söngsveitinni La Capella og Clemencis Consort í Vín. Þá söng hún í danssýningunni Odysseus sem frumsýnd var í Hollandi 1995 en tón- listin í sýningunni er eftir eitt þekkt- asta tónskáld Hollands, Louis Andri- essen. Hér á heimaslóð er Rannveig Sif sennilega kunnust fyrir framlag sitt til Sumartónleika í Skálholti, þar sem hún hefur komið fram í ein sex skipti en auk þess hefur hún efnt til ein- söngstónleika víða um land ásamt systur sinni, Hólmfríði Sigurðardótt- ur píanóleikara. Þá söng Rannveig Sif á sínum tíma í Orfeo og Marienve- sper eftir Monteverdi undir stjóm Gunnsteins Ólafssonar. „Það er alltaf jafn gaman að syngja á íslandi, þótt það sé að vissu leyti erfiðara en að syngja erlendis. Hér þekkir maður alltaf einhvern í salnum — pressan er því meiri. Ég hlakka því mikið til tónleikanna á laugardag, auk þess sem það verður gaman að eyða páskunum á íslandi — það hef ég ekki gert í ellefu ár.“ Þótt söngkonan hafi komið reglu- lega heim meðan á „útlegðinni" hefur- staðið kveðst hún oftar en ekki hafa fengið skömm í hattinn hjá vinum og vandamönnum fyrir að hafa sig ekki meira í frammi hér á landi. Bæði þyki þeim hún þurfa að efna oftar til tónleika og gera betur grein fyrir störfum sínum ytra. „Ég hef látið mér þessar athugasemdir í léttu rúmi liggja enda syng ég fyrst og fremst fyrir sjálfa mig. Það er vissu- lega mikil gróska í tónlistinni hér heima en landið er hins vegar lítið og möguleikamir mun minni en á meginlandi Evrópu. Þess vegna hef ég lagt meiri áherslu á að koma mér á framfæri þar.“ Auk Rannveigar Sifjar koma fram í Gerðarsafni Anna Magnúsdóttir semballeikari, Martial Nardeau blokkfautuleikari og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir sem leikur á viola da gamba. Verkin sem þau flytja eru Sónata í D-dúr fyrir flautu og semb- al eftir C .Ph. E. Bach, einsöngsverk með fylgirödd eftir Francois Couper- in, aría úr kantötu BWV 119, Preise, Jerusalem, den Herrn og aría úr kantötu BWV 100, Was Gott tut das ist wohlgetaen og Sónata í e-moll fyrir flautu og fylgirödd eftir J.S. Bach. SÍÐASTA sýningin á söngleikn- um „Sunset Boulevard“ eftir Andrew Lloyd-Webber á Broad- way var á laugardag. Sýningar á verkinu höfðu þá staðið í tvö og hálft ár í Minskoff leikhúsinu í New York, sem allajafna væri talið bera velgengni vitni, en þeg- ar tjaldið féll í síðasta skipti á laugardag var talað um að þessar- ar sýningar yrði minnst fyrir aðr- ar sakir. Þar ber helst að nefna að í raun féll þessi sýning, þótt fjöldi manns hefði séð hana og Glenn Close fengi góðar umsagnir fyrir leik sinn í hlutverki Normu Desmond. Það kostaði 13 milljónir dollara að setja söngleikinn upp, en af- raksturinn var sýnu minni. Þeir, sem lögðu fé í uppsetninguna, eru nú æfir af bræði vegna þess hvað mikið var í hana lagt og telja að hagsmunir sínir hafi verið látnir lönd og leið. En einnig hefur verið til þess tekið að fyrirtækið „Really Useful Theater Company“, sem er hið bandaríska útibú fyrirtækjasam- steypu Lloyds-Webbers lávarðs, „Really Useful Group“, verður nú verklaust. Og síðast en ekki síst velta menn fyrir sér hvaða afleiðingar þetta muni hafa á veldi sjálfs fyr- irtækisins. Lloyd-Webber stefndi á að skáka fyrirtækjum á borð við Disney, en sér nú fram á niður- skurð og samdrátt. Lloyd-Webber, sem var aðlaður 1993 og tók sæti í lávarðadeild breska þingsins í síðasta mánuði, hefur samið einhverja vinsælustu söngleiki allra tíma og nægir að nefna „Cats“, „Jesus Christ Sup- erstar" og „Evitu“, sem kvikmynd Stendur veldi Lloyds-Webbers á brauðfótum? hefur verið gerð eftir og var nú tilnefnd til fimm Óskarsverð- launa, en hreppti að- eins ein. Sýningar á verkum hans eru þekktar fyrir mikinn íburð og eru taldar marka upphafið á hinum ofhlöðnu söng- leikjum á Broadway fyrir um 15 árum. Tónskáldið hefur hins vegar ekki slegið í gegn í um áratug. Endalok hinna ofhlöðnu söngleikja? Undanfarið hafa hins vegar skotið upp kollinum söngleikir, sem settir hafa verið upp án mik- ils tilkostnaðar, og má þar nefna „Rent“ og „Bring in ’da Noise, Bring in ’da Funk“. Leiða menn nú getum að því að síðasta sýning- in á „Sólsetrinu" marki endalok þess hugsunarháttar að fjár- austur og íburður sé lykillinn að himinháum gróða. Tapið á „Sunset Boulevard" er ekki eina áfall Lloyds-Webbers. Fyrir skömmu var ákveðið að hætta við að sýna nýjasta söng- leik hans, „Whistle Down the Wind“, á Broadway. Var látið nægja að sýna það í örfá skipti í Washing- ton. Lloyd-Webber á 70% hlut í „Really Useful Group“, en hann kveðst aðeins sitja í stjórn þess, ekki taka viðskiptalegar ákvarðanir. Fyrir- tækinu er ætlað að hagnast á verkum hans, en sjálfur á hann a.m.k. einkarétt á hluta af tónlist sinni og fær því höfund- arlaun beint í vasann. Stórbrotnum áætlunum frestað í júní í fyrra sagði Patrick McKenna, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, að mikil þensla væri í aðsigi. Gera ætti leiknar myndir og teiknimyndir eftir nokkrum söngleikja Lloyds- Webbers, opna sýningarsali í Las Andrew Lloyd- Webber. Vegas og skemmtimiðstöð í London, þar sem rísa átti leik- hús, íþróttahöll, veitingastaðir, næturklúbbar og 20 kvikmynda- salir. Flestu hefur þessu nú verið slegið á frest. Fyrirtækið greiddi meira í arð en nam hagnaði þess og skuldir eru alls 103,8 milljónir dollara. Á móti þessu kemur að verið er að sýna átta verk í 29 upp- færslum um þessar mundir. Þau verk, sem skila mestum hagnaði, eru „Cats“ og „Phantom of the Opera“, sem verið er að sýna á 15 stöðum. Hið síðarnefnda er reyndar það verk Lloyds- Webbers, sem síðast sló í gegn, og það er frá árinu 1988. „Sunset Boulevard" átti að vera næsti smellur, en nú er ljóst að tapið á Broadway verður minnst 20% af þeim 13 milljónum, sem kostaði að setja verkið upp. Eftir sitja reiðir fjárfestar, sem halda því fram að ekkert hafi verið hugsað um peninga þegar verið var að setja verkið upp. Einn þeirra, Hal Luftig, sem lagði eina milljón dollara í verk- ið, kvaðst í viðtali við dagblaðið The New York Times vera reiður yfir þeirri meðferð, sem hann og peningarnir hans fengu, og nefndi til dæmis að allt fram í síðustu viku hefði söngleikurinn verið auglýstur í sjónvarpi. „Sýningum er lokið," sagði Luftig. „Hvað erum við að gera í sjónvarpi? Hvers vegna var þetta ekki útskýrt fyrir fjárfest- unum? Andrew Lloyd-Webber hefur grætt rúmlega átta millj- ónir dollara á þessari sýningu og hér sit ég og næ ekki að vinna aftur mina milljón." Ljóðasafn austfirskra höfunda FÉLAG ljóðaunnenda á Austurlandi, sem stofnað var á síðasta sumri, hef- ur ákveðið að gangast fyrir útgáfu ljóðasafns austfírskra höfunda. Stefnt er að því að bókin komi út síðari hluta ársins 1999. Þá verða liðin 50 ár frá útkomu bókarinnar Aldrei gleymist Austurland sem geymir ljóð 73 höf- unda. Þessi nýja bók verður í svipuðu broti og hin fyrri og stærð hennar áætluð um 300 síður. í ljóðasafninu verður birtur fjöl- breyttur kveðskapur, bæði lausavísur, hefðbundin ljóð og nútímaljóð. Er ætlunin að allir ljóða- og vísnasmiðir geti biit verk eftir sig í bókinni, hvort sem þeir telja sig til hagyrðinga eða skálda. Slíkri flokkun verður heldur ekki beitt í efnisskipun bókarinnar. Allir höfundar, búsettir á svæðinu frá Bakkafirði til Álftafjarðar, eiga rétt á því að kveðskapur þeirra birtist í ljóðasafninu. Hið sama gildir um brottflutta Austfírðinga og þá sem tengdir eru Austurlandi sterkum böndum og telja sig austfírska höf- unda án þess að hafa átt þar fasta búsetu. Ljóðasafnið mun aðeins geyma ljóð og lausavísur eftir núlif- andi höfunda. Svipaðar reglur giltu um útgáfu eldra safnsins. Stjórn Félags Ijóðunnenda á Aust- urlandi hvetur höfunda sem óska eft- ir að kveðskapur þeirra birtist í safn- inu að hafa samband við einhvern stjómarmanna sem fyrst. Söfnun efn- is fer fram á þessu ári og fyrstu mánuðum næsta árs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.