Morgunblaðið - 27.03.1997, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 33
LISTIR
ERLEND HLUTABREF
Dow Jones, 26. mars.
VERÐ HREY-
NEW YORK F.
DowJones Ind 6856,5 i 1.1%
S&P Composite 788,0 i 0,9%
Allied Signal Inc 75,6 i 0.7%
AluminCoof Amer... 70,3 i 2.3%
Amer Express Co 65,0 i 2,1%
AT&T Corp 35,9 t 0,3%
Bethlehem Steel 8,4 i 1,5%
Boeing Co 104,8 i 2,2%
Caterpillar Inc 81,4 i 2,0%
Chevron Corp 71,4 - 0,0%
Coca Cola Co 58,3 i 3,1%
Walt Disney Co 75,0 i 0,2%
Du Pont 109,8 i 4,1%
Eastman KodakCo... 78,8 t 1,9%
Exxon Corp 108,4 t 1,6%
Gen Electric Co 104,0 i 1,7%
Gen Motors Corp 55,8 i 3,0%
Goodyear 54,3 i 1.6%
Intl Bus Machine 136,6 i 0,3%
Intl Paper 41,3 i 1,5%
McDonalds Corp 47,5 0,0%
Merck & Co Inc 90,8 l 0,1%
Minnesota Mining.... 86,9 i 2,5%
MorganJ P&Co 105,6 i 1,1%
Philip Morris 119,6 t 1,1%
Procter & Gamble 120,8 i 1,7%
Sears Roebuck 52,6 í 0,5%
Texaco Inc 109,5 t 1,6%
Union Carbide Cp 46,9 i 0,8%
UnitedTech 78,4 i 0,6%
Westinghouse Elec.. 18,8 i 0,7%
Woolworth Corp 23,1 i 0.5%
AppleComputer 2000,0 t 0,5%
Compaq Computer.. 77,9 t 2,3%
Chase Manhattan .... 100,0 i 3,5%
Chrysler Corp 30,4 i 1,2%
Citicorp 113,5 i 4,1%
Digital Equipment 28,4 t 2,3%
Ford MotorCo 31,4 i 2,3%
Hewlett Packard 55,4 i 2.4%
LONDON
FTSE 100 Index 4297,6 t 0.7%
Barclays Bank 1030,0 t' 1,3%
British Airways 644,0 t 0,9%
British Petroleum 63,6 - 0,0%
BritishTelecom 865,0 i 2,7%
Glaxo Wellcome 1097,0 ; 2.4%
Grand Metrop 489,0 t 2,3%
Marks&Spencer 481,5 t 3.7%
Pearson 732,0 t 0.3%
Royal & Sun All 448,0 t 2,3%
ShellTran&Trad 1073,0 t 0,5%
EMI Group 1095,0 i 1,8%
Unilever 1605,0 j 0,1%
FRANKFURT
DT Aktien Index 3439,3 t 1,9%
Adidas AG 189,5 t 3,0%
Allianz AG hldg 3380,0 t 3,0%
BASFAG 64,3 t 2,1%
Bay Mot Werke 1305,0 t 6,6%
Commerzbank AG.... 47,8 t 3.5%
Daimler-Benz 131,7 t 2,3% !
Deutsche BankAG... 93,7 t 2,7%
Dresdner Bank 59,3 t 2,5%
FPB Holdings AG 317,0 t 1,6%
Hoechst AG 67,4 t 2,2%
Karstadt AG 581,0 i 2,0%
Lufthansa 24.0 t 0,6%
MAN AG 478,5 t 1,1%
Mannesmann 640,5 i 1,8%
IG Farben Liquid 2,0 t 2,1%
Preussag LW 476,0 t 4,9%
Schering 171,0 i 0,2%
Siemens AG 88,5 t 1,9%
Thyssen AG 375,0 i 0,1%
Veba AG 97,8 i 0,8%
Viag AG 799,0 t 3,8%
Volkswagen AG 902,7 t 1,0%
TOKYO
Nikkei 225 Index 18472,5 t 0,2%
AsahiGlass 1090,0 t 0,9%
Tky-Mitsub. bank 2090,0 t 0,5%
Canon 2630,0 t 3,5%
Dai-lchi Kangyo 1430,0 j 0,7%
Hitachi 1060,0 j 0,9%
Japan Airlines 490,0 í 4,5%
Matsushita EIND 1910,0 t 2,1%
Mitsubishi HVY 841,0 t 2,9%
Mitsui 894,0 t 3,2%
Nec 1400,0 t 2,9%
Nikon 1690.0 0,0%
PioneerElect 2190,0 t 5,3%
Sanyo Elec 471,0 t 0,2%
Sharp 1480,0 i 0,7%
Sony 8650,0 t 2,9%
SumitomoBank 1660,0 0,0%
Toyota Motor 3090,0 i 0,3%
KAUPMANNAHÖFN
Bourse Index 154,6 t 0,8%
Novo Nordisk 665,0 j 0,7%
FinansGefion 140,0 0,0%
Den Danske Bank 573,0 t 1.4%
Sophus Berend B 834,0 t 1,2%
ISS Int.Serv.Syst 185,0 t 1.1%
Danisco 390,0 t 0,8%
Unidanmark 341,0 t 1,8%
DSSvendborg 280000,0 0,0%
Carlsberg A 396,0 t 2,6%
DS1912 B 195500,0 t 0,8%
Jyske Bank 508,0 j 0.4%
OSLÓ
OsloTotal Index 1076,6 t 0,4%
Norsk Hydro 330,0 t 0,2%
Bergesen B 145,0 t 0,7%
Hafslund B 40,3 í 1,0%
KvaernerA 358,0 t 1,1%
Saga Petroleum B 103,0 i 1,4%
Orkla B 496,0 t 0,2%
Elkem 124,0 0,0%
STOKKHÓLMUR
Stokkholm Index 2730,9 t 0,9%
Astra AB 360,0 t 1.3%
Electrolux 80,0 0,0%
EricsonTelefon 80,0 t 3,9%
ABBABA 847,0 t 0,2%
Sandvik A 32,0 t 16,4%
VolvoA25SEK 52,0 t 15,6%
Svensk Handelsb 55,5 i 3,5%
Stora Kopparberg 104,5 t 2,5%
Verð allra markaða er í dollurum. VERÐ: Verð
hluts klukkan 16.00 í gær. HREYFING: Verð-
breyting frá deginum áður.
Heimild: DowJones
Að eilífu
í Hafnar-
fírði
HAFNARFJARÐARLEIKHÚS-
IÐ Hermóður og Háðvör hefur
hafið æfingar á nýju gamanleik-
riti með söngvum eftir Árna
Ibsen. Nefnist það Að eilífu en
undirtitillinn er Svipmyndir úr
brúðkaupi Guðrúnar Birnu
Klörudóttur og Jóns Péturs
Guðmundssonar, aðdraganda
þess, undirbúningi og eftirköst-
um. Um er að ræða samstarfs-
verkefni við Nemendaleikhús
Leiklistarskóla íslands. Frum-
sýning er áætluð á sumardaginn
fyrsta.
„Hér er á ferð gamansöm lýs-
ing á brúðkaupi á íslandi í dag,
en eins og allir vita hafa brúð-
kaup og brúðkaupssiðir tekið
hreinum stakkaskiptum sein-
ustu tvo áratugi eða svo. Þarna
er fylgst með þegar Jón Pétur
og Guðrún Birna verða yfir sig
ástfangin og ákveða að gifta sig
hið skjótasta, en ljónin (mæður,
gamlir elskhugar o.s.frv.) í veg-
inum eru fjölmörg, undirbún-
ingur veislunnar krefst gífur-
legrar vinnu, skipulags og út-
gjalda. Er því tvísýnt hvort elsk-
endunum ungu tekst að komst
klakklaust framhjá Ijónunum og
ganga í það heilaga," segir í
kynningu.
11 leikarar fara með á þriðja
tug hlutverka í Að eilífu. Þeir
eru: Gunnar Helgason, Björk
Jakobsdóttir, Erling Jóhannes-
son, Baldur Hreinsson, Atli Rafn
Sigurðarson, Gunnar Hansson,
Halldór Gylfason, Inga María
Valdimarsdóttir, Þrúður Vil-
hjálmsdóttir, Katla Margrét
Þorgeirsdóttir og Hildigunnur
Þráinsdóttir. Leikstjóri er Hilm-
ar Jónsson. Aðrir listrænir
stjórnendur eru: Leikmynd
hannar Finnur Arnar Arnarson,
búningagerð er í höndum Þór-
unnar Jónsdóttur, förðun sér
Asta Hafþórsdóttir um, tónlist
velur, semur og stýrir Margrét
Örnólfsdóttir, hljóðmynd gerir
Kjartan Kjartansson, dansatriði
semur Sehna Björnsdóttir og
lýsingu hannar Egill Ingibergs-
son.
AÐSTANDENDUR Að eilífu. Morgunblaðið/Kristinn
Undraverur
vonar og
kærleika
jyiYNDLIST
Ilafnarborg
HÖGGMYNDIR
Sæmundur Valdimarsson. Opið kl.
12-18 alla daga nema þriðjud. til 7.
apríl; aðgangur kr. 200 (gildir að
öllum sýningum).
ÞAÐ er ekki ofsagt að halda fram
að því fylgi jafnan mikil hugarró að
koma innan um þær meyjar sem
Sæmundur Valdimarsson hefur leyst
úr viðjum rekaviðar frá fjarlægum
ströndum. Allt frá því að Sæmundur
tók fyrst að sýna þessar undraverur
sínar hafa gestir hans gengið að því
vísu að þar megi fínna tengsl við
hið jákvæða i tilverunni, og svo er
enn á sýningu hans að þessu sinni.
Sýningargestir ganga inn í mikinn
kvennafans í aðalsal Hafnarborgar
þessa dagana. Hér eru saman komin
yfir fimmtíu verk frá hendi þessa
ötula listamanns, og þó meðal þeirra
megi finna nokkrar myndir manna
eða drengja eru konumar líkt og
áður í yfirgnæfandi meirihluta.
Þrátt fyrir fjöldann og sama upp-
runa - en allar þessar styttur em
skornar úr rekaviðardmmbum - er
að fínna mikla fjölbreytni meðal
þessara kvenna, sem ýmist eru
kenndar við álfur, blóm, hugar-
ástand, ævintýri eða drauma. Sem
sameiginleg einkenni má nefna búst-
ið holdafar nakinna líkamanna, fjar-
ræn en þó fjölskrúðug augu og dul-
úðugan munnsvip. Fjölbreytnin kem-
ur ekki síst fram í margslungnu
hárinu (sem verður sífellt veglegra)
og notkun á blómum, fiskroði og
jafnvel fleiri efnum til að skapa
hverri af þessum undravemm eigið
andrúm, heildarsvip og persónu. Auk
þessa bregður hér fyrir nokkmm
dæmum um þreifmgar listamannsins
í fleiri áttir, t.d. þar sem hann ber
dökkan lit á viðinn og veitir þannig
fleiri kynþáttum aðgang í þá sér-
stöku veröld, sem hann hefur skap-
að.
Sem fyrr segir hefur ákveðinn
jákvæður straumur ætíð fylgt verk-
um Sæmundar, og svo er enn. Sýn-
ingin nú er helguð trú, von og kær-
leika, en allt em þetta hugtök sem
auðvelt er að tengja þeim vemm sem
listamaðurinn hefur laðað fram úr
hlutlausum rekaviðnum. Slíka helg-
un er ekki síður hægt að tengja
árstíðinni, sem nú fer í hönd með
trúarlegri sem og náttúrulegri upp-
risu jarðlífsins.
Það verður ekki annað sagt en
að listunnendur hafi frá fyrstu tíð
Verk eftir Sæmund.
fundið fyrir þeim jákvæðu straumum
sem tengjast verkum Sæmundar og
tekið þeim fagnandi, enda er auð-
velt að tengjast þessum persónum
sem nýjum vinum. Verk hans á sýn-
ingum hafa nær alltaf eignast ný
heimili að þeim loknum, og að þessu
sinni voru öll verkin seld á fyrstu
klukkustund. Þessar geysilegu vin-
sældir þurfa ekki að koma á óvart,
þar sem hið jákvæða og bjarta í líf-
inu höfðar ætíð sterkt til manna,
þrátt fyrir að samfélagið bjóði ekki
alltaf upp á það.
Sú trú, von og kærleiki sem geisl-
ar af verkum þessa tæplega áttræð
listamanns smitar auðveldlega út frá
sér, og því ekki að furða að þau
hafi eignast marga aðdáendur í
gegnum tíðina. Til þess að skilja
hvers vegna, þarf aðeins að dvelja
meðal þeirra um stund í sýningar-
salnum í Hafnarborg.
Eiríkur Þorláksson
ítalskar fornperlur
TÓNLIST_______________
Þ jóðlcikh ús-
kj a11 ari n n
KAMMERTÓNLEIKAR
Verk eftir ítalska snemm- og miðbarokkhöfunda.
Icarus-hópurinn frá Hollandi (Hilde de Wolf,
blokkflautur; David Rabinovich, barokkfiðla; Ar-
iane James, barokkselló; Regina Albanez, bar-
okkgítar, chittarone og slagverk; Katherine Heat-
er, semball.) Þjóðleikhúskjallaramun, mánudaginn
24. marz kl. 21.
LISTAKLÚBBUR Þjóðleikhúskjallarans fékk
aldeilis frábæra gesti í heimsókn sunnan úr álfu
á mánudagskvöldið var, og stóðu tónleikarnir að
mestu undir formerkjum ítalskra tónskálda frá
upphafi barokkskeiðsins. Flestir höfunda voru lítt
kunnir hér um slóðir, og ekki grunlaust um að
fleiri en eitt verk hafi verið frumflutt á íslandi
við þetta tækifæri. Engu að síður var tónlistin
undantekningalítið í hæsta gæðaflokki, enda ítal-
ía helzta forvígisland Evrópu í tónlist á mótum
endurreisnar og barokks, þó að Þjóðveijar hafí
tekið að skyggja á, þegar fram leið á síðbarokk-
tíma eða upp úr 1700.
Það var einkar fróðlegt að heyra hvernig fagur-
fræði endurreisnar þokaði smám saman fyrir
„fægilist" barokksins þegar kom að yngri höfund-
um, þar sem litríkur lotuskiptur fantasíustíll fyrri
tíma vék fyrir markvissari áframspuna, sekvenz-
um og komplementerrytma þess er flestir þekkja
svo vel frá Hándel og Bach (t.a.m. hefði hljóm-
brotna chittarone-sólóið eftir Kapsberger í seinni
hálfleik sem hægast getað verið samið af Bach
á æskuárum), enda þótt sígilt músíkalskt inni-
hald hafi ekki síður notið sín en sögulegir verðleik-
ar í flutningi af þeim gæðaflokki sem hér var
boðið upp á.
Með hliðsjón af nýlegri heimsókn stokkhólmska
Villancico-hópsins í Norræna húsinu mætti halda,
að forntónlist sé í sérstöku uppáhaldi hjá yngri
flytjendum (a.m.k. þeim sem hingað koma), því
meðalaldur flytjenda sýndist nú sem þá innan við
þrítugt. En þessi hópur, sem kennir sig væntan-
lega við forngríska flugkappann ólánsama, íkarus
Dedalusarson, var andstætt Svíunum úr öllum
heimshornum. Fiðlarinn var Rússi, sembalistinn
að líkindum bandarísk, slagverkskonan frá Brasil-
íu og aðeins blokkflautuleikarinn og sellistinn
hollenzkar ef að líkum lætur, þótt þess væri ekki
getið. Það þarf hins vegar ekki að koma á óvart
að Holland er miðlægt í alþjóðasamskiptum, og
stendur auk þess á fornum hágæðamerg, hvort
sem er í almennri tónlistarmenntun eða í rann-
sóknum á forntónlist.
I samanburði við líflega framkomu Svíanna í
endurreisnarbúningum var Icarus hlutfallslega
látlausari og settlegri. Grunnt var þó á kyrrlátu
brosi, og hinar sparlegu kynningar de Wolf voru
ljúfmannlega fram reiddar og óþvingaðar. Sama
mátti segja um flutninginn, sem var vakur en
agaður. Hópurinn mun nærri íjórum árum eldri
en sá sænski (stofnaður 1991) og hefði eftir spila-
mennsku að dæma fyrir löngu átt erindi við hljóð-
ver, en ekki kom þó fram af plötudómum Gramop-
hones að Icarus ætti neitt enn á samvizkunni i
þeim efnum, ef leitað var fram að miðju sumri
1996. Þætti manni þó ólíklegt annað en að eitt-
hvað hljóti að vera í vændum, sé það ekki þegar
út komið. Alltjent virðast höfundar eins og Mar-
ini, Castello og kventónskáldið Isabella Leonarda,
er var rektor (tónlistar?)háskóla í Bologna á 17.
öld, enn sem komið er óplægðir akrar, þrátt fyr-
ir nærri sprengingarkennda plötuútgáfu síðustu
ára á fornmúsík.
Efnisskráin var ekki ýkja Iöng, 13 verk og flest
stutt, auk tveggja aukalaga, en afar fjölbreytt
og vönduð, þó að einkum elzta tónlistin bæri
óhjákvæmiiega þess merki að vera frá mótunar-
skeiði fyrstu hljóðfæratóngreina evrópskrar tón-
listarsögu, þar sem höfundar fikruðu sig áfram
úr heimi sönggreina eins og madrígals og mót-
ettu og yfir í sérhæfða tjáningartækni hljóðfæra-
músíkur. Þetta tilraunatímabil - mestöll 17. öldin
- er að því leyti sízt óáhugaverðari en hið bull-
andi tilraunaskeið milli barokks og klassíkur,
1740-80.
Flytjendur léku af mikilli innlifun og natni,
og stóð fátt upp úr öðru, enda valinn maður í
hveiju rúmi. Þó er manni í fljótu bragði e.t.v.
einna erfiðast að slíta úr minni silkimjúkan
strengjaklið erkilútunnar ofvöxnu, chittarone, í
fagurlega mótuðum einleik Reginu Albanez í
Arpeggiatta eftir Johann Hieronymus Kapsberger
(1580-1651), þar sem „uxi“ varð sannarlega að
lævirkja.
Ríkarður Ö. Pálsson
i
í
í
*
i
)
' ý
i