Morgunblaðið - 27.03.1997, Síða 46

Morgunblaðið - 27.03.1997, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ 46 FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 Dýraglens BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavik • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Eru heimilin vörugeymslur? Frá Jóni Kjartanssyni: ÞÓTT kjarasamningar hafi staðið í hálft ár, hef ég ekki heyrt orð það- an um þau ókjör að skuldir heimil- anna eru nú um 350 milljarðar og vaxa stöðugt. Slíkt hefði þó verið eðlilegt því stjómvöld komu að málinu samkvæmt venju og má næstum segja að heimilisskuldir séu lögboðnar vegna húsnæðisstefn- unnar. Enginn á húsnæði skilið eða rétt til heimilis nema hann geti borgað og til þess þarf að taka lán. Forstjóri Húsnæðisstofnunar svar- aði nýlega SUS-mönnum sem höfðu gagnrýnt stofnunina. Hann sagði: Viljið þið heldur alm. bankavexti en hagstæðu vextina hjá okkur? Byggingameistari sagði við mig í fyrrasumar: „Það verður að gera fólkið að húseigendum þótt það sé aðeins að nafninu til, svo hægt sé að ganga að því.“ Það er opinbert markmið að lána efnuðu fólki niður- greitt fé til húsakaupa, hinir verða líka að taka þessi lán og mega kallast húseigendur þar til gengið er að þeim. Eftir það geta þeir étið upp úr sorptunnum og gist í tjaldi, því gjaldþrota fólk fær ekki lán og getur ekkert keypt. Gjaldþrotin era nú orðin álíka tíð og var fyrir ára- tug er Samtök fólks í greiðsluerfið- leikum vora stofnuð, þrátt fyrir reddingar og ráðgjafir. Öll hús kosta peninga. Þó er misjafnt hvernig að málum er stað- ið. Veðsetji fyrirtæki vörugeymslur sínar og lagera er gengið að þeim ef ekki er greitt. Þannig era alm. markaðsreglur. En hafið þið heyrt að kirkjur séu boðnar upp og söfn- uðir bomir út ef illa gengur að borga? Eða skólar, söfn, spítalar eða leikhús? Ekki minnist ég þess. Jafnvel útburðarstjórnin í Reykja- vík hefur mér vitanlega ekki krafist uppboðs á Borgarleikhúsinu þrátt fyrir allt baslið. Ástæðan er ljós, þetta eru menningarstofnanir, upp- eldis- og umönnunarstofnanir og þá er leitað annarra leiða. Heimilin eru hinsvegar flokkuð sem vöru- geymslur og lagerar og þykir sjálf- sagt að brjóta þau niður og jafnvel gert útá það, enda hafa íjármagns- eigendur upp úr þessu a.m.k. 40 milljarða kr. á ári. Þannig er þessi dýrasti lífsstíll í heimi mjólkurkýr fyrir sældarlýð og braskara og embættismenn sem hanga utaná þessu. En hversu lengi þolir banka- kerfið þessa skuldasöfnun, sem hlýtur að enda með hrani líkt og gerðist á Norðurlöndum fyrir um áratug? Ekki hafa allir stofnað sjálfir til skuldanna, heldur skrifað uppá fyrir aðra og það er tekið gilt í bönkunum. Og hversu lengi þolir þjóðfélagið upplausn heimilanna þúsundum saman? Er ekki löngu tímabært að taka mark á 71. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir: „Állir skulu njóta einkalífs, heimilis og fjölskyldu." Era heimilin ekki verðmætari en vöruskemmur? JÓN KJARTANSSON frá Pálmholti, formaður Leigjendasamtakanna. Ranghugmyndir nær ingarfræðingsins Frá Steingrími Wernerssyni: SUNNUDAGINN 23. mars birtist flennistór grein eftir næringarfræð- ing sem vinnur sem verktaki fýrir Mátt, þar kom hann með fullyrðing- ar um efni sem selt er hér á landi. Því miður virðist næringarfræðing- urinn ijalla um hluti sem hann hef- ur ekki þekkingu á, ekki kynnt sér eða hreinlega er illa læs. Hann seg- ir í grein sinni_„töflur sem Gaui litli auglýsir ... I þessum töflum er sorbitol sem er hvítt kristallað efni.“ Hér mun ég svara þessari vit- leysu: 1. Efnið sem hann á við er í hylkjum, ekki á töfluformi (vonandi þekkir næringarfræðingurinn mun- in á hylkjum og töflum). 2. Innihaldsefnið er ekki sorbitol heldur ABSORBITOL sem á ekkert skylt við sorbitol (vonandi skilur næringarfræðingurinn muninn á orðunum ósjálfbjarga og sjálfbjarga þó það muni einum staf). í þessum hylkjum eru trefjaefni unnin úr skel skelfisks og eru þau sett í hylki til að ekki þurfi að setja hjálparefni með sem notuð eru við framleiðslu taflna. ABSOR- BITOL bindur allt að 12 sinnum þyngd sína af fitu. Læknar og „al- vöru næringarfræðingar" nota ABSORBITOL til hjálpar sínum skjólstæðingum með góðum ár- angri. Einnig hefur það sýnt sig að fólk með fituóþol getur borðað fitu m_eð því að nota ABSORBI- TOL. Á breskum heilsumarkaði er ABSORBTOL með u.þ.b. 90% markaðshlutdeild. Ég efast stór- lega um að henni hefði verið náð ef þetta virkaði ekki. ABSORB- ITOL er eitt af fáum ef ekki eina efnið á markaði hérlendis sem hef- ur tvíblindar læknisfræðilegar rannsóknir á bak við sig sem stað- festa virkni þess. Þessar rannsókn- ir eru gerðar af virtum læknastofn- unum og hafa læknar hér á landi farið yfir heimildir og lýst ánægju sinni með þær svo og árangur ABSORBITOLS. Það hryggir mig að virt stofnun eins og Máttur geri ekki meiri kröf- ur til fagmanns sem leiðbeinir við- skiptavinum þeirra. Með von um að Morgunblaðið sjái sóma sinn í því að leiðrétta rangfærslur sem birtast í blaðinu. STEINGRÍMUR WERNERSSON, lyfjafræðingur. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, iþróttir 569 1156, sérbiöð 569 1222, augiýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjaid 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasöiu 125 kr. eintakið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.