Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ
4^' FIMMTUDAGUR 27? MARZ 1997
Ekki menga meo
spilliefnum...
1 Ekki henda meö ööru sorpi
og ekki hella í niöurfalliö
# Lökk, þynnir, olíur og gamlir kvikasilfurs-hitamælar eru dæmi um
spilliefni sem falla til á heimilum.
# Gætum þess að láta ekki spilliefni berast út í náttúruna.
# Blöndum ekki spillliefnum saman við annan úrgang og hellum
þeim ekki í niðurföll.
# Skilum spilliefnum til móttöku sveitarfélagsins, á gámastöð eða í
áhaldahús
# Hitamælum má einnig skila til apóteka.
HOLLUSTUVERND RIKISINS
Ármúla 1a, Reykjavik. Þjónustu- og upplýsingasími 568-8848.
Áp^HWSID
Mörkinni 6, sími 588 5518
Bílastæði v/búðarvegginn
Stuttar og síðar kápur
fyrir langömmuna,
ömmuna, mömmuna
og ungu stúlkuna.
Páskatilboð
Úlpur, kápur,
ullarjakkar, blazerjakkar
allt á kr. 5.000,-
Opið laugardaga kl. 10-16
POSTVERSLUN
Sparar fé, tíma og fyrirhöfn.
pöntunarlistinn kr. 400,-
Fatnaður á alla fjölskylduna.
Litlar og stórar stærðir. Gott
verð á hátísku og klassískum
fatnaði.
PANDURO
föndurlistinn kr. 600,-
Þar fæst allt til föndurgerðar,
bæði hugmyndirnar og efnið.
B.MAGNUSSON
Pöntunarsími 555 2866
Verslun Hólshrauni 2, Hafnarfírði.
vörulistinn kr. 200,-
Ótrulegt verð á vönduðum
vörumerkjum.
Skartgripir, búsáhöld, leikföng,
qjafavara, húsgögn, garðáhöld,
ferðatöskur o.fl. o.fl
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 18-13 frá mánudegi til föstudags
Netfang: elly@mbl.is
ÞaMdrtil
blaðburðar-
manns
MARGRÉT S. Pálsdóttir á
Brúnavegi í Reykjavík
hringdi til að þakka þeim
sem ber Morgunblaðið til
hennnar fyrir gott starf.
Hún hefur ekki haft tæki-
færi til að þakka sendlinum
sjálfum, en nú er hún að
flytja og bað Morgunblaðið
fyrir þessi skilaboð. Hún
segir að blaðið sé aldrei
rifið, aldrei blautt, og alltaf
komið eldsnemma á
morgnana og vildi hún
þakka þessa góðu þjón-
ustu.
Góð þjónusta
og aðbúnaður
á Hótel Örk
„HEILL og sæll Velvak-
andi góður!
Mig langar að biðja þig
að birta fyrir mig fáeinar
línur.
Fyrir nokkru birtist í
Morgunblaðinu bréf frá
konu, sem hafði dvalið á
Hótel Örk í Hveragerði og
var það vægast sagt mjög
neikvæð umfjöllun, bæði
um starfsfólk, stjómendur
og allan aðbúnað á hótel-
inu. í trausti þess að ekki
sé aðeins birt það sem nei-
kvætt er, langar mig að
segja frá því að ég er ný-
komin úr dvöl á Órkinni,
reyndar í fjórða sinn, og
ég hef aldrei orðið vör við
annað en hlýleik og lipurð
hjá starfsfólkinu og allur
aðbúnaður hefur verið eins
og best verður á kosið. Ég
veit að undir þetta tekur
Qöldi eldri borgara, sem
hefur dvalið þar um leið og
ég. Þessi kona sem var að
kvarta hlýtur að vera sér-
lega fullkomin sjálf og aldr-
ei gera nein mistök. Hafi
einhver smámistök átt sér
stað, hafa þau áreiðanlega
verið leiðrétt og hvað
starfsfólk varðar, sýndist
mér að það mundi hafa nóg
annað að gera en knékijúpa
og biðjast afsökunar eins
og blessuð konan virðist
hafa ætlast til.
Mér finnst að fólk ætti
að hugsa sig vel um, áður
en það rýkur í fjölmiðla
með hvað smávægilegt sem
er, og athuga vel hvaða
afleiðingar það getur haft
fyrir þá sem fyrir því verða.
Gerum ekki öðrum það sem
við viljum ekki að okkur
sjálfum sé gert.
Að lokum, kærar kveðjur
og þakkir til starfsfólksins
á Örkinni fyrir dásamlega
dvöl.
Ragna S. Gunnarsdóttir,
Fífuhvammi 11, Kópav.
Fermingarböm ’67
á Hellissandi
ÞIÐ sem fermdust fyrir 30
árum, 15. maí 1967, í Ingj-
aldshólskirkju, Hellissandi,
hvemig væri að við hitt-
umst í maí? Vinsamlega
hafið samband í síma
456 7119 eða 456 7547.
Ingibjörg Sigurðardótt-
ir, Traðarlandi 2, 415
Bolungarvík.
Tapað/fundið
Skermur af
kerru tapaðist
BLÁR, stór skermur, af
kerru sem er fyrir fatlað
bam tapaðist í
janúar-febrúar.
Upplýsingar í síma
565 5181.
Gleraugu
töpuðust
GYLLT kvenmannsgler-
augu, í svörtu og brúnu
hulstri, töpuðust mánu-
daginn 17. mars við stræt-
isvagnastoppistöðina fyrir
framan Landspítalann.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hringi í síma
588 9462.
SKAK
Umsjön Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á stór-
mótinu í Linares á Spáni í
febrúar. Búlgarinn Veselin
Topalov (2.725) var með
hvítt, en Rússinn Vladímír
Kramnik (2.740) hafði
svart og átti leik.
23. - Bg4!! 24. Rxg4 -
Rxg4+ 25. Dxg4 (Eða
25. Kgl - Rdxf2! 26.
Hxb3 - Rxh3+ 27. Khl
- Rf4+ 28. Bh3 -
Hxh3+ og mátar.) 25. -
Dxc2 26. Dg5 (Hafnar
skásta kostinum sem var
að fara út í mjög dapurt
endatafl og leika 26.
Ddl.) 26. - Rxf2! 27.
Hxf2 (Ekki gekk 27.
Hxb7 - Hxh3+ 28. Bxh3
- Rg4++ 29. Khl - Dh2
mát.) 27. - Dxf2 Svarta
staðan er nú auðunnin.
Hvítur gaf eftir 28. Hfl
- Dd4 29. Be5 - Dd7
30. Dcl - De6 31. Bxg7 -
Kxg7 32. Dg5+ - Hg6 33.
Dxc5 - Dd6 og hvítur gafst
upp.
SVARTUR leikur
og vinnur.
HÖGNIHREKKVÍSI
✓/ Ttlter er nxsóur-?*
Pennavinir
ÁTJÁN ára austurrískur
menntaskólanemi með
mikinn áhuga á íslandi.
Marc Diensthuber,
Siebenhauser-
strasse 3,
A-2544
Leobersdorf,
Austurríki.
SPÆNSK hjón, 25 og 32
ára, langar að eignast ís-
lenska pennavini. Áhuga-
málin sund, bókmenntir,
tónlist, ferðalög o.fl.:
Hana and Felix,
Apartado de
Correos 1454,
Palma 07080,
Mallorca.
TUTTUGU og eins árs
argentínskur piltur með
áhuga á ferðalögum, frí-
merkjum, póstkortum,
bréfskriftum, tónlist og
íþróttum:
Sebastian C.
Salvatierra,
Av.Saenz 717, 3A,
1437 Buenos Aires,
Argentina.
TÓLF ára bandarísk
stúlka með margvísleg
áhugamál vill skrifast á
við jafnaldra og jafnöldr-
ur:
Deanna Loyd,
816 Airdustrial
Way SE,
Tumwater,
WA 98501,
USA.
Víkverji skrifar...
YÍKVERJI gerði á þriðjudag að
umtalsefni misvísandi yfir-
lýsingar forstjóra Visa og for-
manns Sambands bankamanna um
það, hvort debet- og kreditkort
yrðu nothæfur greiðslumiðill ef
kæmi til verkfalls bankamanna.
Víkverji kallaði eftir skýrum svör-
um frá bönkunum og hefur nú
fengið bréf frá Finni Sveinbjörns-
syni, framkvæmdastjóra Sam-
bands íslenzkra viðskiptabanka,
sem segir sér ljúft að svara kalli
Víkverja.
XXX
FINNUR segir misvísandi yfir-
lýsingar um greiðslukort end-
urspegla þá staðreynd að ekki hafi
komið til verkfalls bankamanna
eftir að rafræn greiðslumiðlun varð
allsráðandi hér á landi. „Það þýðir
að nú er í fyrsta skipti tekizt á um
starfrækslu rafræna greiðslumiðl-
unarkerfisins meðan á verkfalli
stendur og því er þess að vænta
að mismunandi sjónarmið og nokk-
ur óvissa komi fram í aðdraganda
verkfalls. Það er ljóst að röskun
verður á greiðslukortaviðskiptum
innanlands meðan á verkfalli
bankamanna stendur en þau munu
ekki lamast. Það er ekki að fullu
ljóst hversu mikil röskunin verður
og fer það m.a. eftir lengd verk-
falls,“ segir Finnur.
xxx
HANN bendir á að fyrirtækjum
sé heimilt að taka við kort-
greiðslum undir ákveðnum viðmið-
unar- og ábyrgðarmörkum.
„Búðarkassakerfi, t.d. í stórum
verzlunum, geta nánast tekið enda-
laust við debet- og kreditkorta-
færslum. Posar taka hins vegar
eingöngu við 250-2.000 færslum
og stöðvast þegar hámarkinu er
náð. Þá verður að hafa þann fyrir-
vara á að ekki verður unnt að nota
síhringi-debetkort meðan á verk-
falli stendur. Loks skal nefnt að
það verður að sjálfsögðu unnt að
„strauja" kreditkort upp á gamla
móðinn," skrifar Finnur.
AÐ HANS sögn verður lítil röskun
á greiðslukortaviðskiptum er-
lendis. „Starfsmenn Kreditkorta hf.
(Eurocard á íslandi) fara ekki í verk-
fall og því verður unnt að nota Euroc-
ard-kreditkort erlendis með venjuleg-
um hætti,“ segir í bréfí Finns. „Einn-
ig verður unnt að nota Visa-kredit-
kort erlendis en úttektarmöguleikar
byggjast ekki á heimildargjöf frá
Greiðslumiðlun hf. (Visa íslandi) eins
og undir venjulegum kringumstæð-
um heldur viðmiðunarmörkum sem
sett eru af Visa Intemational. Þau
ráðast af samspili ýmissa þátta, s.s.
tegund korts (t.d. gullkort eða al-
mennt kort) og tegund viðskipta (t.d.
hótel, flugfélag eða verzlun). Þeir
sem vilja hafa vaðið örugglega fyrir
neðan sig á ferðalögum erlendis geta,
auk þess að hafa með sér tvö kredit-
kort, keypt ferðatékka."
xxx
ÍKVERJI þakkar Finni kær-
lega fyrir greið svör. Hann
óskar lesendum Morgunblaðsins
jafnframt gleðilegra páska.