Morgunblaðið - 27.03.1997, Síða 60

Morgunblaðið - 27.03.1997, Síða 60
 OPIN KERFIHF byltingarkennd fistölva m <&> AS/400 er... ...þar sem grafísk notendaskil eru í fyrirrúmi (IN> NVHCRJI MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUD AGUR 2 7. MARZ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Raðherra gefur út starfsleyfi Norðuráls GUÐMUNDUR Bjarnason um- hverfisráðherra gaf í gærkvöldi út starfsleyfi fyrir álver Norðuráls hf. á Grundartanga. Starfsleyfið bygg- ist á ákvörðun stjórnar Hollustu- verndar ríkisins, en ráðherra hefur bætt nokkrum ákvæðum við og gert skilyrði fyrir rekstrinum strangari. Starfsleyfíð tekur gildi þegar starfsemi hefst í kerskála álversins og gildir í tíu ár, en þó ekki lengur en til 1. maí 2009. Það er gefið út með fyrirvara um hugs- anlega endurskoðun m.t.t. ákvörð- unar úrskurðarnefndar. Frestur til að kæra til nefndarinnar rennur út 7. júní nk. Umhverfisráðherra setur það skilyrði fyrir starfsleyfinu að Norð- urál hf., sem er í eigu Columbia Ventures, haldi kynningarfundi um umhverfismál álversins á tveggja ára fresti, þar sem kynna skal varn- ir gegn mengun ytra umhverfis, árangur í mengunarvörnum og nið- urstöðu mælinga og umhverfis- vöktunar. Strangari kröfur Hætti Norðurál hf. framkvæmd- um og/eða starfsemi á gildistíma starfsleyfis skal fyrirtækið loka kerbrotagryfju, skila spilliefnum, fjarlægja hættuleg efni og ganga frá lóð og búnaði sem tengist starf- seminni í samræmi við kröfur Holl- ustuverndar ríkisins. Sama gildir við lok starfsleyfis eða verði leyfið fellt úr gildi. Auk þess eru gerðar auknar kröfur til umhverfisvöktun- ar, m.a. sunnan Hvalfjarðar, og frekari kröfur gerðar vegna hugs- anlegrar stækkunar verksmiðjunn- ar úr 60.000 tonna ársframleiðslu. í tilkynningu frá umhverfisráðu- neytinu segir að almennt séu gerð- ar strangari kröfur til mengunar- varna í álveri Norðuráls hf. en gerð- ar séu í starfsleyfi álversins í Straumsvík og í starfsleyfi sem unnið var á sínum tíma fyrir hugs- anlegt álver á Keilisnesi. í almennum ákvæðum starfs- leyfisins segir að það gildi fyrir framleiðslu á allt að 180.000 tonn- um af fijótandi áli í kerskálum Norðuráls og fyrir vinnslu í steypu- skála álvers sem reist verður í þremur áföngum. Óheimilt er að hefja framkvæmdir við stækkun álversins fyrr en að loknu frekara mati á umhverfisáhrifum ef vöktun á rekstrartíma fyrsta áfanga ál- versins sýnir að forsendur og áætl- anir hvað varðar mengun standast ekki. Everest-leiðangTirinn Gangan í grunn- búðir hafin í SLENDIN GARNIR þrír sem ætla að klífa Everest eru lagð- ir af stað í átt að grunnbúðun- um við fjallið. Þeir fóru með flugi frá Katmandu, höfuð- borg Nepal, til smáþorpsins Lukhla, sunnan við Everest, snemma í gærmorgun. Farkosturinn var annar en þeir höfðu haldið, eins og fram kemur í frásögn leiðang- ursmannanna: „Það kom ekki í ljós fyrr en á flugvellinum þegar við stigum í vélina að þyrlan okkar var af gerðinni Twin Otter og alls ekki þyrla. Flugið var því meira spenn- andi en til stóð því Lukhla flugvöllur er 250 metra lang- ur, hallar milli 15 og 20 gráð- ur og endar í snarbrattri fjallshlíð semgnæfir 1.000 metra yfir hann. Aðflugið er yfir jafn há fjöll hinum megin dalsins. Við flugum því á 35 mínútum upp í 4.500 m hæð og svo á 2 mínútum steypti flugvélin sér niður á flugvöll- inn í 2.800 m hæð. Rússíbanar gerast varla betri.“ Leiðangursmenn, sem eru þijátíu talsins, auk burðar- manna, sem Islendingunum hafði ekki tekist að slá tölu á í gær, söfnuðust saman í þorp- inu Phakdingma í Khumbu- dal. í gær rigndi og hitinn var um 10 gráður. Fimmtíu ár frá Heklugosi FYRIR 50 árum, 29. mars 1947, gaus Hekla eftir meira en aldarhlé og voru menn farnir að halda að hún væri hætt 'WMr þótt enn væri ylur í gígnum. Varð það mikið ösku- og hraungos sem stóð í 13 mán- uði. Það var eins og Hekla væri að hleypa af startskoti, því áratugina síðan hefur verið áberandi mikil eldvirkni á Is- landi og Hekla sjálf hefur gos- ið fjórum sinnum. Heklugosið 1947-48 var hið fyrsta sem þaulrannsakað var hér á landi. Enn er ylur í toppgíg Heklu og eldur undir þótt hún sýnist kuldaleg. ■ Hekla vaknaði/30-31 MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út miðvikudaginn 2. apríl. Morgunblaðið/RAX Meint fölsun þriggja málverka kærð til RLR Voru verk þjóðþekktra listamanna fölsuð? MEINTAR falsanir á þremur verkum eftir þjóðþekkta lista- menn hafa verið kærðar til Rann- sóknarlögreglu ríkisins og er grunur um að fleiri verk eftir þessa listamenn og aðra kunni að hafa verið fölsuð og seld einstakl- ingum og stofnunum hérlendis og erlendis. Verkin, sem getið er í kærunni, eru eignuð Jóhannesi S. Kjarval, Þórarni B. Þorlákssyni og Júlíönu Sveinsdóttur. Ólafur I. Jónsson forvörður, sem hefur m.a. unnið fyrir Kjar- valsstaði, kveðst hafa fengið um- rædd verk til hreinsunar og við- gerða seinustu mánuði frá eigend- um þeirra. Tvö verkanna voru keypt nýlega á uppboðum hér- lendis en eitt þeirra á uppboði í Danmörku. Ekki upplýst um eigendur Strax vaknaði grunur um að verkin væru fölsuð og sá grunur styrktist þegar verkin voru rann- sökuð með sérstakri tækni til að aldursgreina málningu á verkum. Eigendum verkanna var tilkynnt um þennan grun. í kjölfarið var Ólafi veitt leyfi eigenda til að kæra meinta fölsun verkanna. Jafnframt var óskað eftir eigendasögu tveggja verk- anna frá þeim uppboðsfyrirtækj- um sem í hlut eiga, en því var synjað í báðum tilvikum á þeim forsendum að fyrirtækjunum bæri að virða trúnað við fyrri eigendur þeirra. Verkið eftir Júlíönu var endurgreitt að kröfu kaupanda. Eigendasaga ásamt ítarlegri rannsókn á þeim verkum sem um ræðir, er talin helsta forsenda fyrir staðfestingu sérfræðinga á fölsun verkanna. Ólafur kvaðst í samtali við Morgunblaðið telja sterkar líkur á að sami aðili stæði að baki fölsun- um, en ómögulegt væri hins vegar á þessu stigi málsins að sanna að svo væri. Falsanirnar væru fremur viðvaningslega gerðar í augum sérfræðings þegar verkin væru skoðuð. Grafa undan trúverðugleika „Listfræðingar eru mjög tregir til að staðfesta höfunda málverka nema þeir þekki vel uppruna og sögu þeirra. Þessi venja mun vera regla fremur en undantekning á þessu sviði. Þær vinnureglur munu einnig vera hafðar í heiðri hjá uppboðsfyrirtækjum að krefj- ast eigendasögu listaverka áður en þau eru tekin til sölu á almenn- um uppboðum. Ég vil hins vegar ekkert segja til um hvers vegna þessi verk sluppu gegnum slíkt nálarauga, hafi þau farið í gegnum það,“ segir Ólafur. Hann kveðst telja málið sér- staklega alvarlegt, þar sem lista- verkamarkaður sé smár og van- þróaður hérlendis og viðkvæmur að sama skapi, og því geti falsan- ir grafið undan sölu og trúverðug- leika verka á þeim markaði. I kærunni er farið fram á að RLR rannsaki hverjir hafí verið réttir eigendur verkanna, auk þess sem fölsun þeirra er einnig kærð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.