Morgunblaðið - 06.04.1997, Blaðsíða 56
<o>
AS/400
Mikid úrval
viðskiptahugbúnaðar
03) NÝHERJI
ttrgttflfrlllfeife
w&áma---------------
Þaö tekur aöeitis
eittn
virkan^P
aö koma póstinum
þínum til skila
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl'569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.1S / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTl 1 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Tveggja saknað eftir
flugslys við Álftanes
LÍTIL flugvél steyptist í sjóinn
suður af Alftanesi rétt fyrir kl.
14 í gær. Tveir menn voru um
borð í vélinni og var þeirra enn
saknað þegar Morgunblaðið hafði
síðast fregnir af síðdegis.
Tilkynning um slysið barst til
flugtumsins í Reykjavík kl. 13.58
frá sjónarvotti, sem tilkynnti að
hann hefði séð litla flugvél steyp-
ast í sjóinn. Þegar var kannað
hvaða vélar væru á lofti og kom
í ljós að ein þeirra svaraði ekki
kalli. Það var TF-CCP, tveggja
sæta flugvél af gerðinni YAK52,
framleidd í Rússlandi, samkvæmt
tilkynningu frá Flugmálastjórn.
Vélin hafði farið frá Reykjavík
kl. 13.35 í listæfingarflug suður
af Álftanesi. Áætlaður flugtími
var 50 mínútur.
Lögregla, slökkvilið og björg-
unarsveitir komu fljótlega á vett-
vang. Þá var óskað eftir aðstoð
þyrlu Landhelgisgæslunnar og
sveimaði hún yfir ætluðum slys-
stað allnokkuð frá landi, í beinni
sjónlínu frá álverinu í Straumsvík.
Erfiðlega gekk að finna flak
vélarinnar. Olíubrák sást á sjón-
um, en hún barst hratt undan
straumum og áttu björgunarmenn
erfitt með að átta sig á hvaðan
hún kæmi.
Klukkan 14.55 fóru kafarar í
slökkviliðinu frá landi á gúmbát
til að freista þess að finna flakið.
Þá var varðskipið Ægir á leið á
slysstað.
Morgunblaðið/Golli
KAFARAR frá Slökkviliðinu undirbúa leit að flaki
flugvélarinnar, sem fór í sjóinn út af Straumsvík í gær.
Hale-Bopp
næst sólu
HALASTJARNAN Hale-Bopp er
næst sólu um þessar mundir og
því eins björt og hún getur orðið.
Engu var líkara en hún ætlaði að
tylla sér á Esjuna, þegar Snævarr
Guðmundsson, áhugamaður um
stjörnuskoðun, tók þessa mynd af
henni af Kjalarnesi. Á myndinni
sést greinilega hvítur hali stjörn-
unnar, en það eru efni sem gufa
upp af yfirborði hennar, ís og
ryk. Vinstra megin við hvíta hal-
ann og nánast beint upp af stjörn-
unni má greina bláleitan hala, en
hann er myndaður úr jónuðum
eindum, líkt og norðurljósin.
Hale-Bopp á að sjást skýrt fram
á vorið, en hún verður þó óskýrari
hverjum deginum, eftir því
sem birta eykst. A kvöldin sést hún
á stjörnubjörtum himni í norð-
vestri. Ef fólk sér halastjörnuna
ekki að þessu sinni getur það ekki
vonast til að sjá hana síðar, því
tugir þúsunda ára gætu liðið þar
til hún sést á ný frá jörðu. Þar er
hún frábrugðin annarri frægri
halastjörnu, Halley-halastjömunni,
sem birtist á 75 ára fresti.
Iðja samdi
ánývið
VSÍ í gær
Málþing íslenzkra og norskra hagsmunaaðila 1 sjávarútvegi haldið í haust
Rætt um sameiginlega hags-
muni og lausn deilumála
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda sameiginlegt
málþing norskra og íslenzkra hagsmunaaðila í
sjávarútvegi hér á landi í september næstkom-
andi. Ætlunin er að ræða þar sameiginlega
hagsmuni landanna á sviði sjávarútvegsmála
og hugsanlegar lausnir á deilumálum.
Skipuleggjandi ráðstefnunnar verður Kynn-
ing og markaður hf. (KOM). Jón Hákon Magn-
ússon, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir
að hugmyndin að málþinginu hafi vaknað í
samræðum KOM við norska hagsmunaaðila.
„Þeir fóru að tala um að tímabært væri að
hagsmunaaðilamir sjálfir, þ.e. útgerðarmenn
og sjómannasamtökin, settust nú niður á mál-
þingi og ræddu þessi mál, því að stjórnmála-
mennirnir virtust ekki koma Smugudeilunni
lönd eða strönd. Þeir sögðu að það gæti verið
gaman að koma til Islands og ræða málin,“
segir Jón Hákon.
Samtök norskra útgerð-
armanna halda hér
stjórnarfund
Hann segir að stjórnir Norges Fiskarlag,
heildarsamtaka norska sjávarútvegsins, og
Fiskebátredernes Forbund, samtaka útgerðar-
manna, hafi rætt málið og litizt vel á ráðstefnu-
haldið. „Samtök útgerðarmanna hyggjast meira
að segja halda hér stjórnarfund deginum áður,“
segjr Jón Hákon.
Einnig hefur verið rætt við forystumenn
samtaka útgerðarmanna og sjómanna hér á
landi og við sjávarútvegsráðherra. „Allir eru
á því að þetta sé mjög mikilvægt,“ segir Jón
Hákon. „Það er ótrúlega mikill spenningur
fyrir þessu.“
Gert er ráð fyrir hálfs dags málþingi, þar
sem ræðumenn yrðu jafnmargir frá Islandi og
Noregi og túlkað yrði af íslenzku á norsku og
öfugt. Norðmenn hafa boðað komu 30-50 þátt-
takenda og Jón Hákon segist telja að heildar-
fjöldi fundarmanna gæti orðið um 200. Norð-
mennirnir hafa sýnt áhuga á að skoða íslenzk
sjávarútvegsfyrirtæki og ferðast um landið að
málþinginu loknu.
Vísir að reglulegum samráðsvettvangi?
Jón Hákon segir að Norðmenn hafi rætt um
að málþingið á Islandi gæti orðið vísir að reglu-
legum samráðsvettvangi hagsmunaaðila í
sjávarútvegi í löndunum tveimur. „Þeir tala um
að nauðsynlegt sé að leysa deilurnar, þannig
að Islendingar og Norðmenn geti barizt sam-
eiginlega fyrir hagsmunum beggja á hafsvæð-
um utan 200 mílnanna."
IÐJA, landssamband iðnverka-
fólks, og vinnuveitendur gengu frá
nýjum kjarasamningi um hádegis-
bilið í gær í stað samningsins frá
9. mars sem hafði verið felldur
með 72% atkvæða hjá Iðju í
Reykjavík. í samningnum felst í
raun að Iðjufélagar fá þær hækk-
anir sem um hefur verið samið síð-
an en samningstíminn er lengdur
til 15. febrúar árið 2000 í stað 15.
október 1999.
0,48% til viðbótar
Morgunblaðið/Snævarr Guðmundsson
Að sögn Þórarins V. Þórarins-
sonar, framkvæmdastjóra VSÍ, er
samningurinn afgreiddur án milli-
göngu ríkissáttasemjara sem við-
auki eða breytingar við samning-
inn frá 9. mars, þannig að 0,48%
viðbótarhækkun kemur á laun
Iðjufélaga frá 1. apríl. Auk þess
eru í samningnum sambærileg
uppsagnarákvæði tengd markmið-
um samningsins við nýrri samn-
inga og skýrara ákvæði um að
sveigjanlegur vinnutími sé háður
samþykki starfsmanna.