Morgunblaðið - 06.04.1997, Side 16

Morgunblaðið - 06.04.1997, Side 16
16 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Nýju orgeli fagnað ORGANISTARNIR Haukur Guðlaugsson, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar, og Órn Falkn- er, organisti Kópavogskirkju, leika orgelverk eftir J.S. Bach og stjórna margháttuðum tón- listarflutningi öðrum á tónleik- um í Kópavogskirkju í kvöld. Þetta eru sjöttu tónleikarnir af átta, sem haldnir eru í til- efni af uppsetningu nýs pípu- orgels Kópavogskirkju. Nýja orgelið var vígt í ársbyijun. Það er 31 raddar, smíðað af Bruhn & Son í Danmörku. Dagskrá tónleikanna að þessu sinni er blönduð. Auk Hauks og Arnar koma fram Sigríður Gröndal, sópran, Kirkjukór Kópavogskirkju og Halldór Björnsson, bassi. Sig- ríður syngur aríur úr Sköpun- inni eftir Haydn, Pie Jesu eftir G. Fauré og Laudate Domin- um eftir W.A. Mozart ásamt kirkjukórnum. Kórinn flytur svo Jubilate Deo eftir Mozart, lofgjörðarvers eftir G.F. Hánd- el, Ave Maria eftir Hans Ny- berg, svo og Libera me Fauré. Þar syngur Halldór Björnsson baritónsóló. Kórstjórn og und- irleik annast þeir Örn Falkner og Haukur Guðlaugsson. Á næstu tónleikum, 20. apríl, mun Marteinn H. Frið- riksson, dómorganisti, flytja orgelverk. Fegurðin er alls staðar - ef við höfum tíma VEIÐIVÖTN í Rangárvalla- sýslu eru yrkisefni Guðrúnar Svövu Svavarsdóttur myndlist- arkonu á einkasýningu hennar í Stöðlakoti - hinni fyrstu sem hún heldur í áratug. Verkin, nítján að tölu, eru öll ný af nál- inni og unnin með vatnslitum. „Veiðivatnasvæðið hafði sterk áhrif á mig þegar ég kom þar fyrst fyrir fáeinum árumog svæðið hefur eiginlega ferið með mér síðan,“ segir Guðrún Svava sem sótti Veiðivötyi fyrst heim að undirlagi frænda síns, Didda fiðlu. „Hann kom víð hjá mér á Hellu, þar sem ég bjó á þeim tíma, eftir veiðiferð í Veiði- vötnum og sagði mér frá þessu unaðslega svæði. Ég hafði ekki veitt því athygli fyrr en ákvað að skella mér - og hvílík dýrð! Ég var gjörsamlega heilluð." Upp frá þessu fór listakonan að leitast við að færa upplifun sína í mynd. „Mér þætti vænt um ef ég gæti komið einhveiju af þvi sem ég hef fundið fyrir þarna til skila - kyrrðinni, auðn- inni, litunum. Maður verður lík- ast til aldrei uppiskroppa með yrkisefni frá Veiðivötnum." Guðrún Svava hefur marg- sinnis sótt Veiðivötn heim á liðn- um misserum en aldrei dvalist þar. Ur því hyggst hún bæta í sumar. „Mig dreymir um að tjalda þarna, hafa vatnslitina mína og pappírinn með og drekka í mig andrúmsloftið í rólegheitunum - njóta lífsins!" Veiðivötn eru bersýnilega óskastaður Guðrúnar Svövu en samt hikar hún ekki við að full- yrða að það sé fullt af svona stöðum á Islandi! „Landið okkar er stórbrotið og það er alls stað- ar hægt að sjá fegurðina - svo framarlega sem við gefum okk- ur tíma til þess.“ Aðrir siðir Einhverjum þykir ef til vill kyndugt að heyra konu sem er borin og barnfædd á mölinni fjalla af þvílíkri næmni og ein- lægni um tíma og náttúru. Guð- rún Svava hefur það hins vegar umfram margt borgarbarnið að hafa búið um skeið úti á landi. Sjálf tekur hún upp þráðinn: „Þar lærir maður aðra siði. Líf- ið gengur hægar fyrir sig og maður tengist landinu á mun öruggari hátt en í borginni." Guðrún Svava hefur víða drepið niður fæti í myndlistinni en vatnsliturinn hefur aldrei Morgunblaðið/Kristinn GUÐRÚN Svava lifir í núinu - lætur framtíðina ráðast. verið langt undan. „Ég hef feng- ist við hann með ýmsum hætti í tuttugu ár og nú orðið mála ég nær eingöngu vatnslita- myndir. Engu að síður er þetta fyrsta einkasýningin mín með slíkum verkum.“ Segir listakonan að sér hafi aldrei þótt vatnsliturinn sérlega erfiður viðfangs, þótt það taki langan tíma að „kynnast hon- um“. „Tæknin er í sjálfu sér ekki flókin og persónulega finnst mér vatnsliturinn alltaf skemmtilegri og skemmtilegri - ef til vill vegna þess að ég er alltaf að ná betri tökum á honum.“ Sýningunni í Stöðlakoti lýkur 13. apríl næstkomandi en verð- ur fólk að bíða í önnur tíu ár eftir næstu einkasýningu Guð- rúnar Svövu? „Það er ómögu- legt að segja,“ svarar hún. „Ég er löngu hætt að gera áform fyrir framtíðina. Að mínu viti er best að lifa í núinu og reyna að gera sitt besta. Það þýðir ekki að vera sífellt að horfa fram veginn eða líta um öxl. Það verður bara að ráðast hvað framtíðin ber í skauti sér!“ Vortónleikar Fóstbræðra FÓSTBRÆÐUR búa sig undir vortónleikana. isskránni lög frá Finnlandi, Spáni, Rússlandi, Svíþjóð og Eistlandi. Einsöngvarar með kórnum að þessu sinni verða þau Þorgeir J. Andrésson, sem söng hlutverk Galdra Lofts á framangreindri sýningu Islensku óperunnar, og bandaríska söngkonan Judith Ganz. Jónas Ingimundarson mun annast píanóieik á tónleik- unum en stjórnandi Fóstbræðra er sem fyrr Árni Harðarson. Á hausti komanda kemur út saga Karlakórsins Fóstbræðra í áttatíu ár og mun það verða mjög veglegt og vandað rit með fjölda mynda og upplýsingum um alla söngmenn kórsins fyrr og síðar, svo sem segir í kynn- ingu. Ljósmynd: Jóhann F. Guðmundsson Styrkir úr sjóði dr. Björns Þorsteinssonar ÚTHLUTUN úr Sagnfræðisjóði dr. Björns Þorsteinssonar fór fram ný- verið. Styrki hlutu Haki Þór Ant- onsson til að vinna að doktorsrit- gerð við háskólann í St. Andrews í Skotlandi um samskipti Bretlands, sérstaklega Skotlands, og íslands á miðöldum og Sigríður Matthíasdótt- ir til að vinna að doktorsritgerð við Háskóla íslands um þjóðernisstefnu og mótun íslenskrar sjálfsvitundar á 20. öld, 150 þús. kr. hvor. ÁRLEGIR vortónleikar Karla- kórsins Fóstbræðra verða haldnir í Langlioltskirkju eftir- talda daga: Þriðjudaginn 8. apríl kl. 20.30, miðvikudaginn 9. apríl kl. 20.30, fimmtudaginn 10. apríl kl. 20.30 og laugardaginn 12. apríl kl. 15. Efnisskrá vortónleikanna er fjölbreytt að vanda. Þar á meðal má nefna kóra og aríur úr Galdra Lofti eftir Jón Ásgeirs- son, en sú ópera var frumflutt á Listahátið á síðasta ári í ís- lensku óperunni. Einnig verður flutt upphafið að nýju tónverki eftir Hróðmar I. Sigurbjörns- son, sem hann samdi sérstaklega fyrir kórinn auk íslenskra þjóð- laga og laga eftir eldri og yngri íslensk tónskáld. Þá verða á efn- Syngj- um saman ÞRIÐJUDAGINN 8. apríl kl. 20.30 verður söngkvöld í Frið- rikskapellu undir yfirskrift- inni Syngjum saman. Til- gangur þessa söngkvölds, eins og annarra slikra, sem efnt hefur verið til í kapell- unni á liðnum vetri, er að fá gesti til að sameinast óþving- að í almennum söng, ánægj- unnar vegna, svo sem segir í kynningu. Félög og samtök, sem standa að Friðrikskapellu skiptast á um að sjá um þessi kvöld. Nú er það hlutverk Skátasambands Reykjavíkur, sem hefur fengið nýstofnaðan skátakór í lið með sér. Kórinn mun bæði syngja einraddað með öðrum þátt- takendum á söngkvöldinu en líka einn sér undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Guárún Ingi- bjartsdóttir sýnir í Fjarð- arnesti NÚ STENDUR yfir sýning á vatnslitamyndum eftir Guð- rúnu Ingibjartsdóttur í Fjarð- arnesti, Bæjarhrauni 4 í Hafnarfirði. Guðrún er frá Hesti í Hest- firði við Djúp og hefur verið á námskeiðum í Myndlistar- skóla Kópavogs. Opið er virka daga kl. 7—10, laugardaga kl. 8-10 og sunnud. kl. 11-10. Sýningin er sölusýning og stendur til 30. apríl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.