Morgunblaðið - 06.04.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 25
ins, Oddur er framleiðslustjóri og
Aðalsteinn er sölumaður. Við eigum
einnig dóttur, Önnu Margréti, sem
er að læra grafíska hönnun erlend-
is.“
Sigurður segist ekki síður hafa
verið heppinn með starfsfólk og
hann er ekki í vafa um að það er
dýrmætasta eign fyrirtækisins.
„Sex starfsmenn hafa verið með
okkur svo til frá byijun og stöðugt
hefur einvalalið bæst við þann
kjarna. Ég fann það best nú í flutn-
ingunum er vélamar fóru í gang
hver af annarri. Húsið var rétt svo
fokhelt og var hreint ótrúlegt hvað
fólkið mitt lét bjóða sér án þess að
kvarta. Með slíkt lið er allt hægt.“
Framtíðin er spennandi
Sigurður segir að ýmislegt hafí
háð rekstri Plastos á undanförnum
misserum en segist líta björtum
augum til framtíðarinnar enda ríki
uppsveifla í efnahagslífinu og fyrir-
tækið sé að flytja í nýtt og rúmgott
hús með nýja prentvél sem það hafí
lengi þurft á að halda. „Velta fyrir-
tækisins jókst töluvert á síðastliðnu
ári og komst yfir hálfs milljarðs
múrinn eftir nokkurt bakslag árið
1995 en þá misstum við stærsta
viðskiptavin okkar. Það hefur lengi
háð mér að vilja helst gera allt sjálf-
ur og ég ætlaði t.d. að bæta á mig
starfí framleiðsiustjóra þegar hann
hætti á síðasta ári. Ég veit ekki
hvernig það hefði endað ef aðstoð-
arframleiðslustjórinn, Kjartan Örn
Jónsson, hefði ekki tekið málin í
sínar hendur. Við höfum af ýmsum
ástæðum verið hálf lamaðir og tap-
Plastos
velta árin 1993-1996
1993 1994 1995 1996
að markaðshlutdeild í plastpokum á
síðastliðnum árum en nú eru allar
forsendur til að koma aftur inn af
fullum þunga og vinna það upp og
gott betur. Nú hafa verið ráðnir
framleiðslustjóri og markaðsstjóri
til að taka faglega á þessum málum.
Nýja vélin er mun breiðari og full-
komnari en gömlu vélarnar og stefnt
er að því að hún muni tvöfalda af-
köstin í prentun. Við þurfum því
ekki lengur að vísa frá okkur við-
skiptavinum. Nýja húsið er hannað
með ýtrustu framtíðarþarfír fyr-
irtækisins í huga, t.d. er hægt að
stækka það ef þörf krefur. Nú er
næstum allt okkar plast framleitt
hjá Reykjalundi en auðvelt er að
flytja framleiðslu þess í nýja húsið
ef harðnandi sam-
keppni skyldi
knýja okkur til
þess í framtíðinni."
Plastið er
umhverfisvænt
-Nú hefur plast-
umbúðanotkun ís-
lendinga aukist
gífurlega á undan-
förnum áratugum
eins og öflug fyrir-
tæki í greininni
vitna um. Óttastu
ekki að það eigi
eftir að draga úr
spurn eftir slíkum
umbúðum, t.d. í
kjölfar aukinna
umræðna um um-
hverfismál?
„Ég tel síður en
svo ástæðu til að
óttast það,“ segir
Sigurður og brosir.
„Plastumbúðir hafa fyrir löngu
sannað gildi sitt sem hentugustu
umbúðimar fyrir heimili og fyrir-
tæki. Staðreyndin er sú að það er
ekkert umbúðaefni eins umhverf-
isvænt og plastið sem plastpokar
eru úr en það er plastframleiðendum
til skammar hvað þeir hafa lítið
gert til að koma því á framfæri.
Við framleiðum plastpoka úr polyet-
hylen-plastefni en það er úr frum-
efnunum vetni og kolefni. Það
brennur án þess að mynda eitraðar
lofttegundir og í náttúmnni brotnar
það smám saman niður án nokkurr-
ar efnamengunar eða skaða fyrir
grunnvatn svo eitthvað sé nefnt.
Framtíðin er því í plastinu að þessu
leyti sem öðrum.“
-Á örfáum árum hefur virkur
hlutabréfamarkaður orðið til hér-
Iendis þar sem hlutabréf fjölmargra
fyrirtækja eru skráð. Hefur Plastos
áhuga á að bætast í þennan fríða
flokk?
„Það gæti vel komið til greina
að gera það síðar. í hinum mikla
hraða og samkeppni sem nú ríkir
gengur ekki endalaust að gaufa við
að byggja upp fyrirtæki og getur
kostað mann glötuð tækifæri að
eiga þetta einn. Þá er betra að fá
inn meðeigendur með nýtt fjármagn
til að styrkja reksturinn og fá fyrr
vélar sem vantar. Með aðskilnaði
límmiða- og tækjadeildar frá um-
búðaframleiðslunni er lagður grunn-
ur að því að liðka fyrir slíkum breyt-
ingum, hvort sem þær verða með
þeim hætti að við fáum nýja aðila
til liðs við okkur eða förum á mark-
aðinn,“ segir Sigurður að lokum.
Morgunverðarfiindur
þriðjudaginn 8. apríl 1997, kl. 8.00 - 9.30 í Sunnusal, Hótel Sögu
DREIFINGU OG
Verslunarráð íslands gengst íyrir morgunverðarfundi með dr. John Dawson, prófessor
við Háskólann í Edinborg, sem hefur getið sér góðs orðs íyrir hagnýtar rannsóknir og
ráðgjöf á sviði dreifingar og smásölu matvæla.
- Hvaö einkennir hina öru þróun í dreifingu og smásölu matvæla?
- Hverjir verða undir og hverjir ofan á í hinni óvægnu samkeppni?
- Eru íslenskir inn- og útflutningsaðilar eða matvælaframleiðendur
í stakk búnir til að takast á við þessa þróun?
FRAMSÖGUMENN:
Dr. John Dawson, prófessor við Háskólann í Edinborg
Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs IS
V^Siguröur Jónsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka Islands
Umræður og fyrirspuniir
Fundargjald er kr. 1.500,- (morgunverður innifalinn).
Fundurinn er opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku
fyrirfram í síma Verslunarráðsins 588 6666 (kl. 8.00 - 16.00).
^KiiU
vmfi
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS
v w
Nú er rétti tíminn til:
Vetrarúðunar
Með því stuðlar þú að
eðlilegra lífríki plantna
og skordýra I sumar.
RÁÐGJÖF
SÉRFRÆÐINGA
UM GARÐ-
OG GRÓÐURRÆKT
wk groðurvörur
Jfr VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Smiðjuvegi 5, Kópavogi, slmi: 554 321 1
20% afsláttur af öllum
^seahiwiiuO
veikfæmm í apríl '97 vegna
70 ára afmælis okkar!
is
Skúlagötu 63, sími 561 8560
Þjónusta við íslenskan málmiðnað í 70 ár