Morgunblaðið - 05.09.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.09.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 11 Dráttur á meðferð kæru Samtaka iðnaðarins og Samiðnar Tafðist vegna öflunar upplýs- inga frá Póllandi MAGNUS Péturssson, ráðuneytis- stjóri fjármálaráðuneytisins, segir að tafir sem urðu við afgreiðslu sam- ráðsnefndar á kæru Samtaka iðnað- arins og Samiðnar vegna ríkis- styrkja og undirboðs í skipasmíðum og viðgerðum hafi fyrst og fremst stafað af því að reynt var eins og frekast var unnt að afla ítarlegra upplýsinga varðandi málið frá pólsk- um stjórnvöldum. Eins og gi'eint hefur verið frá í Morgunblaðinu kvörtuðu Samtök iðn- aðarins og Samiðn til umboðsmanns Alþingis í júní 1995 vegna dráttar sem varð á málsmeðferð fjármála- ráðuneytisins, en kæra barst ráðu- neytinu í júlí 1994. Komst umboðs- maður Alþingis að þeirri niðurstöðu að stjómsýslulög hefðu verið brotin þar sem mjög dróst að ákvörðun yrði tekin í málinu án þess að á því hafi fengist viðhlítandi skýringar. Að sögn Magnúsar hafa alls þijú mál borist samráðsnefnd sem starfar á grundvelli reglugerðar um undir- búning og framkvæmd álagningar og innheimtu undirboðs- og jöfnun- artoila. Hin tvö vörðuðu annars veg- ar undirboð á ís frá Danmörku og hins vegar innflutning á fóðurkorni, og hefðu þau bæði verið leyst farsæl- lega. „I þessu tiltekna máli gerði nefnd- in það sem hún gat til að greiða fyrir og það varð ekki dráttur á hennar störfum sem slíkum, heldur urðu tafir einfaldlega vegna þess að svör náðust ekki í málinu, þrátt fyr- ir að nefndin hefði lagt sig fram við að afla upplýsinga. Málið var ein- faldlega flókið að því leyti að það þurfti að leita til útlenskra stjórn- valda,“ sagði Magnús. Málið ekki sérlega vel reifað Hann sagði að þess mætti geta að umrætt mál hefði ekki verið sér- staklega vel reifað í upphafi af hálfu Samtaka iðnaðarins og Samiðnar, og kannski hefði nefndin betur vísað málinu frá og óskað eftir betri gögn- um. „Það hiýtur að vera til umhugs- unar hvernig mál eigi að vera úr garði gerð þegar þau eru tekin til meðferðar. Ráðuneytið mun fram- vegis skoða það enn betur en gert hefur verið hver málatilbúnaðurinn þarf að vera og skal vera þegar mál er tekið fyrir,“ sagði Magnús. Formaður orku- og stóriðjunefndar á Austurlandi 2-400 þúsund tonna álbræðsla allt of stór ÞORVALDUR Jóhannsson, formað- ur orku- og stóriðjunefndar Sam- bands sveitarfélaga á Austurlandi, kveðst telja 200-400 þúsund tonna álbræðslu Hydro Aluminium sem rætt hefur verið um að reisa í Reyð- arfirði alltof stóra og segir kísil- málmverksmiðju eða slípiverksmiðju með 100 störfum eða þar um bil henta svæðinu mun betur. Hann segir að svo virðist sem kominn sé upp nýr flötur á málinu með um- ræðu um það að stóriðjufram- kvæmdir muni geta haft áhrif á hvernig og hvar verði gerð jarðgöng, en sú hugmynd var rædd á þingi Sambands sveitarfélaga á Austur- landi um síðustu helgi. „Við höfum hingað til litið á jarð- gangaframkvæmdir alveg ótengdar stóriðju en nú kann vel að vera að það verði farið að ræða um allt aðra forgangsröðun í jarðgangafram- Teknir á 100 km hraða í Vest- mannaejjum TVEIR ökumenn í Vestmannaeyjum voru sviptir ökuleyfi til bráðabirgða fyrir hraðakstur á miðvikudags- kvöld. Var annar tekinn á Dalvegi og hinn í miðbænum. Báðir voru á yfir 100 km hraða þar sem leyfilegt er að aka á 50. Ókumaðurinn á Dalvegi var á 106 km hraða og hinn á 101 í miðbænum þegar margt fólk var á ferli og dimmt orðið. Lögreglan í Vest- mannaeyjum sagði báða ökumenn- ina eiga langan hraðakstursferil. Mál þeirra fara fyrir sýslumann. kvæmdum en menn hafa talað um fram að þessu. Það hefur verið ósk- að sérstaklega eftir því að þingmenn Austurlands forgangsraði jarð- gangaframkvæmdum og þeir eru með þann kaleik núna,“ segir Þor- valdur. Eitt atviunusvæði Hugmyndir eru uppi um göng milli Norðfjarðar og Eskifjarðar og milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs- fjarðar. Aðspurður um hvort Seyð- firðingar myndu þá ekki verða út- undan segist hann ekki gera ráð fyrir því, þó að vissulega komi það þannig út miðað við þessa uppsetn- ingu. Hann segist hafa trú á því að á endanum verði þetta allt eitt at- vinnusvæði. Auk tengingar Mið- fjarðanna með fyrrnefndum göngum hefur raunar verið rætt um göng frá Seyðisfirði yfir í Loðmundarfjörð, sem tengja myndu Seyðisíjörð og Norðfjörð við Hérað. Verið að koma svæðinu á framfæri við erlenda fjárfesta Þorvaldur segir mál Hydro Aium- inium ekki komið inn á borð hjá orku- og stóriðjunefndinni. „Það er enn hjá iðnaðarráðuneytinu. Hins vegar höfum við verið að vinna í því að skipuleggja svæðið og koma því á framfæri við erlenda fjárfesta. Núna er t.d. verið að skoða hversu fýsilegur kostur það væri að setja upp kísilmálmverksmiðju á Reyðar- firði. Ég hefði viljað sjá valkost sem félli betur inn í þetta svæði en 200-400 þúsund tonna álver. En ég er þó ekki á nokkurn hátt að lýsa mig andvígan því. Það er sjálfsagt að skoða þessa kosti alla og maður skyldi auðvitað aldrei segja aldrei." Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson HITINN hefur verið óbærilegur síðustu vikurnar og það er gott að taka einn danskan til að skola kverkarnar. * Islendingar og Færeyingar með sameiginlegt félagsheimili Odense. Danmörku. íSLENDINGAFÉLAGIÐ og Færeyingafélagið í Odense í Danmörku hafa sameinast um leigu á húsnæði fyrir félags- starfsemi sína. Félögin, sem sitt í hvoru lagi eru það lítil að ekki var talið mögulegt að vera með eigið húsnæði, ræddu í vetur mögu- leika þessarar samvinnu og núna í sumar var farið á stúf- ana og húsnæðið fundið. Um er að ræða stórt skrifstofuhús- næði í miðborg Odense á þriðju hæð í húsi sem stendur við hornið á Kongensgade 70-72 og Dronningsgade. Félögin fá hvort um sig eigin skrifstofu, síðan er sameigin- legt eldhús, snyrting og stór samkomusalur. Senda sameiginlegt fótboltalið ÞAÐ fer vel á með færeysku og íslensku börnunum sem voru með foreldrum sínum en samskiptin fara fram á dönsku hjá þeim eins og flestum fullorðnum. Margir voru mættir þegar framkvæmdir hófust í húsinu og margir hjálpuðu til, milli- veggir voru rifnir niður og hreinsað af gólfinu í samkomu- salnum. Aðrir fóru í að þrífa og gera klárt fyrir málningu en reynt verður að hafa hús- næðið tilbúið að mestu fyrir kynningarfund íslendinga- félagsins 13. sept. nk. Guðrún Þórðardóttir, for- maður íslendingafélagsins, segir að bæði félögin vænti mikils af þessu samstarfi og reynt verði að leggja áherslu á barna- og unglingastarf af ýmsu tagi, en það er forsenda þess að borgin styrki starf- semina. Til gamans má geta þess að íslendingar og Græn- lendingar hafa fyllt upp í fót- boltalið Færeyinganna hér í Odense, sem spilar í seríu 4 á Fjóni, þannig að góð samvinna er nú þegar fyrir hendi á fleiri sviðum. FÆREYSKU stúlkurnar slógu á létta strengi og gengu rösklega til verka eins og allir hinir,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.