Morgunblaðið - 05.09.1997, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997
MIIMIMIIMGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Ekkert einvígi
K-anna
SKAK
Heimsmcistara-
kcppnin í skák
KARPOV MEÐ
Á FIDE HM?
Fréttín um að Kasparov og Karpov
~ { tefli var röng, en þátttaka Karpovs
á heimsmeistaramóti FIDE í des-
ember er sennileg.
BLAÐAFULLTRÚI Kasparovs,
Owen Williams, hefur harðneitað
því að líkur séu á að Kasparov
og Karpov tefli heimsmeistaraein-
vígi í Frakklandi í október. Frakk-
inn Carol Stroe frá Compiegne í
Frakklandi tilkynnti þetta á blaða-
mannafundi í París fyrr í vik-
unni. Svo virðist sem tilkynning
Stroe hafi verið einhverskonar til-
raun til að fá þá Kasparov og
Karpov að samningaborðinu.
Hann hefur engan bakhjarl, en
ætlaði að afla verðlaunafjárins
! með því að selja sjónvarpsrétt.
Viðræður hafa verið í gangi um
sameiningareinvígi Kasparovs og
Karpovs, en eins og kunnugt er
líta þeir báðir á sig sem heims-
meistara. Að sögn Williams kom
tilboð í sumar til þeirra um að
tefla í haust frá öðrum en Stroe,
en Karpov hafði þegar bundið sig
annars staðar.
Eins og spáð var hér í skák-
þættinum nýlega þá mun Karpov
hafa staðfest þátt-
"Y töku sína í heims-
meistarakeppni FIDE
í desember. Kasparov
verður aftur á móti
ekki með.
Tilkynningu Stroe
var slegið upp í sum-
um fjölmiðlum, en
kom öllum skákheim-
inum í opna skjöldu.
Hjá RÚV hér á ís-
landi var þessari rugl-
frétt slegið upp í há-
degisfréttatíma
stöðvarinnar, en hins
vegar algerlega látið
hjá líða að minnast á
sigur Hannes Hlífars
* á _ Víkingaleikunum.
RÚV virðist á ein-
kennilegum villigötum þegar skák
er annars vegar. Yfirmenn stofn-
unarinnar ættu að rifja það upp
að við skákáhugamenn erum eins
og aðrir skyldaðir með lögum til
að borga afnotagjöld af þessum
einokunarfjölmiðli.
Hannes skýrir skák
Hannes Hlífar Stefánsson náði
sínum besta árangri í langan tíma
er hann sigraði á Víkingaleikun-
um, sem fram fóru Álandseyjum
og í Svíþjóð. Hannes skýrir hér
mikilvægustu vinningsskák sína á
q 5 mótinu, gegn stigaháa rússneska
byijanasérfræðingnum Mikhail
Gurevich, sem m.a. hefur sagt
sjálfum Kasparov til í byrjunum.
Hvítt: Mikhail Gurevich
Svart: Hannes Hlífar
Nimzo-indversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3
- Bb4 4. Dc2 - 0-0 5. a3 -
Bxc3+ 6. Dxc3 - b6 7. Bg5 -
c5 8. dxc5 - bxc5 9. e3 - h6
10. Bh4 - d6 11. Bd3 - Rbd7
12. Rf3 - Db6 13. 0-0 - Bb7
14. Rd2 - a5 15. f3 - d5 16. Bf2
Hvítur hefur aðeins betra tafl
' eftir byijunina.
16. - Bc6?!
Vitlaus áætlun, betra var 16. -
a4
17. b3 - Hfc8 18. Habl -
Dd8 19. Hfcl - De7?
19. - Df8 hefði verið betra.
20. Bh4! - Bb7 21. cxd5 - exd5
_ 22. Bf5 - Ha6!
Eini leikurinn, ef 22. - Hc6 þá
23. Bxd7 - Dxd7 24. Bxf6 -
gxf6 25. Rfl og svarta peðastað-
an er mjög slæm.
23. Hel Ekki 23. Bxd7 - Dxd7
24. Bxf6 - Hxf6 25. Dxa5 - Ha6
sem er í góðu lagi á svart.
23. - De8 24. e4 - d4 25. Dc2
- g6 26. Bh3 - Rh5 27. Rc4 -
Hca8 28. e5 - Rf8 29. Rd6 -
Dc6 30. Dd2
Eftir 30. Rxb7?! - Dxb7 31.
Dxc5 næði svartur sterku mót-
spili með 31. - Rf4.
30. - g5
31.Bxg5?
Gurevich fórnaði manninum
samstundis og hefur greinilega
yfirsést sterkasti varnarmöguleik-
inn. Betra hefði hins vegar verið
að hörfa með 31. Bf2.
31. - hxg5 32. Dxg5+ - Rg7
33. De7 - Dd5!
Það var þessi ieikur sem
Gurevich sá ekki.
34. Rxb7
í fýrstu ætlaði ég
hér að leika 34. -
H6a7, en í því tilviki
fengi hvítur 4 peð
fyrir manninn og
unnið tafl með 34.
Dxc5 - Dxb7 og 35.
Dxd4. En það er til
betri leikur:
34. - d3!! 35. Rd6
Ekki 35. Rxc5 -
Rg6! 36. Dc7 - Hc6
með vinningstöðu á
svart.
35. - Rg6 36.
Dxf7+
Það er leiðinlegt
að þurfa að gefa
manninn strax, en
aðrar leiðir eru ekki betri: 36. Dg5
- Hxd6; 36. Df6 - d2 37. Hedl
- Rxe5 eða 36. Dc7 - Hc6 og
svartur vinnur.
36. - Dxf7 37. Rxf7 - Kxf7 38.
g3 - Hb6 39. Bfl - Hd8 40.
Hedl - c4 41. f4 - Hxb3 42.
Hxb3 - cxb3 43. Hxd3?
Sterkara var 43. Kf2, þó
svartur hafi góða sigurmögu-
leika eftir 43. - b2. Framhaldið
þarfnast ekki frekari skýringa,
þó alltaf sé gaman að vinna
með 2 riddurum og hrók á
móti hrók!
43. - b2 44. Hb3 - Hd2 45.
Bc4+ - Ke7
Svartur hótaði einfaldlega Rg7-
f5-e3.
46. Bd3 - Hxd3 47. Hxb2 -
Hxa3 48. Hb7+ - Kf8 49. Kg2
- a4 50. Ha7 - Rf5 51. Kh3 -
Re3 52. e6 - Ke8 53. e7 - Rxe7
54. Kh4 - Ha2 55. Kg5 - Hxh2
56. Hxa4 - Hg2 57. Kf6 - Hxg3
58. f5 - R3d5+ 59. Ke5 - Kf7
60. f6 - Rxf6 61. Hal - He3+
62. Kd4 - Rf5+ 63. Kc4 - Ke6
64. Ha6+ - Rd6+ 65. Kd4 -
He4+ 66. Kd3 - Ke5 67. Ha8 -
Rd5 68. Hh8 - He3+ 69. Kc2 -
Kd4 70. Hh4+ - Re4 71. Hh8
- Kc4 72. Hc8+ - Rc5 73. Kd2
- He6 74. Kcl - He2 75. Kdl
- Hh2 76. Kel - Kd4 77. Kfl
- Re4 78. Kgl - Ha2 79. Hd8
- Ke5 80. He8+ - Kf4 81. Hf8+
- Kg3 82. Hg8+ - Kf3 83. Hb8
- Hg2+ og hvítur gafst upp.
íslandsmót í blindskák
Blindrafélagið og Skáksam-
band Islands standa saman að
íslandsmótinu í blindskák með
stuðningi Nýheija, Búnaðarbanka
íslands og íslenska útvarpsfélags-
ins. Meðal þátttakenda eru flestir
af sterkustu skákmönnum ís-
lands, þ. á m. stórmeistararnir
Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar
Stefánsson, Helgi Ólafsson,
Þröstur Þórhallsson og Helgi Áss
Grétarsson, en aðrir þátttakendur
eru Dan Hansson, Jón Viktor
Gunnarsson, Áskell Örn Kárason,
Bergsteinn Einarsson og Sigurður
Daði Sigfússon.
Undanrásir mótsins fara fram
dagana 5. og 6. september, en
úrslitaskákirnar verða sýndar
beint á sjónvarpsstöðinni Sýn
sunnudaginn 7. september og
hefst útsending kl. 13 og stendur
til kl. 17. Allar skákir sem tefldar
verða á mótinu verða sýndar beint
á alnetinu á slóðinni Titaninum.is-
landia.is, port 5000. Nánari upp-
lýsingar um mótið er líka að finna
á heimasíðu Skákar á íslandi á
slóðinni: http://www.vks.is/skak
og forrit til móttöku upplýsinga á
http://www.dfong.eom/c-
hessbd/index.html. Undanrásir
hefjast kl. 16 hinn 5. september.
Mótið fer annars þannig fram
að umhugsunartími er 10 mínútur
og 20 sekúndur fyrir hvern leik.
Skákmennirnir sitja hvor gegnt
öðrum en hafa autt taflborð fyrir
framan sig. Þeir færa leikina inn
með tölvu, en á tölvuskjánum
kemur aðeins fram tími keppanda
og síðasti leikur.
Þröstur sigraði á
Borgarfirði eystra.
Þröstur Þórhallsson sigraði á
49. helgarskákmóti tímaritsins
Skákar, sem fram fór á Borgar-
firði eystra dagana 22.-23. ág-
úst. Þröstur hlaut 6 'A vinning í 7
umferðum. Eina jafntefli hans
kom í sjöundu og síðustu umferð
gegn Gunnari Björnssyni. Róbert
Harðarson varð í öðru sæti með
5‘/z vinning. Róbert hefur ekki
teflt mikið að undanförnu, en fékk
ágæta æfingu á helgarmótunum
fyrir austan og tryggði sér nú
annað sætið með sigri á Sævari
Bjarnasyni í síðustu umferð. Rób-
ert er á leið til Bandaríkjanna, en
þar hyggur hann á frekari þátt-
töku í skákmótum. Röð efstu
manna á Borgarfjarðarmótinu
varð annars þessi:
1. Þröstur Þórhallsson 6'A v.
2. Róbert Harðarson 5'/2 v.
3. -5 Sævar Bjarnason, Gunnar
Björnsson og Erlingur Þorsteinsson 5
v.
6.-7. Ólafur Kristjánsson og Kristján
Guðmundsson 4'A v.
8.-11. Guðmundur G. Þórarinsson,
Sverrir Unnarsson, Guðmundur Ingvi
Jóhannsson og Torfi Ásgeirsson 4 v.
12.-13. Gunnar Finnsson, Sturla Pét-
ursson, Finnur Gunnarsson, Olgeir
Pétursson og Jakob Hafþór Bjömsson
3'A v.
o.s.frv.
Erlingur Þorsteinsson fékk
verðlaun fyrir bestan árangur
dreifbýlismanna. Gunnar Finns-
son fékk verðlaun fyrir bestan
árangur heimamanna. Sturla Pét-
ursson náði bestum árangri öld-
unga. Unglingaverðlaun fengu
þeir Frímann Gunnarsson, Olgeir
Pétursson og Jakob Hafþór
Björnsson. Kvennaverðlaun fékk
Harpa Rún Björnsdóttir.
Þetta var hið síðasta í röð
þriggja móta, sem tímaritið Skák
og Jóhann Þórir Jónsson stóðu
fyrir í samvinnu við heimamenn
á Austurlandi nú í sumar.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar
Stefánsson
GUÐLAUG
G UÐJÓNSDÓTTIR
+ Guðlaug Guð-
jónsdóttir var
fædd í Reykjavík
2. mars 1930. Hún
lést á heimili sínu
28. ágúst síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Guð-
jón Guðjónsson,
trésmíðameistari í
Reykjavík, og
Guðlaug Brynj-
ólfsdóttir. Álsystk-
ini Guðlaugar
voru sex, Ingi-
björg Kristjana,
Olafur Þórir, Nína
Sigurbjörg, Fjóla, Matthías
Geir og Steingrímur Gunnar.
Hálfsystkini samfeðra eru tvö,
Guðjón Steingrímur og Jó-
hanna.
Sumarið er að kveðja og hin
löngu haustkvöld taka völdin. Það
var á slíku friðsælu og fallegu
kvöldi að Guðlaug Guðjónsdóttir
kvaddi þessa jarðvist. Hugur og
hjarta fyllist af sorg yfir að hún
skuli vera farin frá okkur, langt
um aldur fram en það er huggun
að nú hefur hún fengið lausn frá
erfiðum veikindum og er gengin
á vit ljóss og friðar.
Minningar um liðna daga leita
á hugann. Ég var um 12 ára þeg-
ar ég kynntist Laulu, þá giftist
hún pabba mínum. Ég man að
ég var ósköp feimin. Ég man líka
þegar pabbi og Laula fóru til út-
landa og ég fékk föt og gjafir sem
ég veit að hún valdi handa mér
af alúð og kostgæfni. Ég man
þegar ég flutti til pabba og Laulu
um tíma og hún lét mig finna að
ég var sjálfsagður hluti af fjöl-
skyldunni. Þegar ég stofnaði fjöl-
skyldu og eignaðist börnin mín
þá kölluðu þau hana ömmu og
hún var þeim sannarlega góð
amma. Laula var róleg og ákaf-
lega hlý kona. Hún bjó fjölskyldu
sinni fallegt heimili og þangað var
gott að koma. Laula hafði góða
kímnigáfu og var oft hnyttin í
tilsvörum. Það var gaman að
spjalla við hana um menn og
málefni. Aldrei bar skugga á sam-
skipti okkar. Hjartans þakkir fyr-
ir það sem þú varst mér og fjöl-
skyldu minni.
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson.)
Guð blessi minningu Guðlaugar
Guðjónsdóttur.
Anna Þóra og fjölskylda.
Hún amma er frábær í marki.
Lítill snáði er ánægður eftir enn
einn ævintýradaginn með ömmu
sem alltaf hafði tíma. Hver dagur
með ömmu var uppspretta nýrra
ævintýra, uppgötvana og vanga-
veltna um lífið og tilveruna. Á
milli þess sem amma stóð í marki
og varði af snilld var farið að
athuga hvort jarðarberin væru
farin að þroskast eða fuglunum
gefin brauðmylsna. Að loknum
annasömum degi í vinnunni hjá
ömmu var síðan gott að kúra sig
og hlusta á hana lesa Andrés
önd. Það var erfitt fyrir snáða og
ömmu þegar hann flutti með
pabba og mömmu til útlanda þó
svo að amma kæmi oft í heim-
sókn. Þegar hann flutti aftur heim
var amma orðin lasin.
Ég kynntist Laulu fyrir u.þ.b.
15 árum þegar ég og dóttir henn-
ar, Elsa, vorum byrjuð að líta
hvort annað hýru auga. Eins og
oft vill verða þá gengur ýmislegt
á þegar ungt fólk er að hefja
Guðlaug giftist
Einari Guðbirni
Gunnarssyni frá
Akurseli í Oxarfirði
4. nóvember 1960.
Þau bjuggu í
Reykjavík, lengst af
í Brautarholti 2.
Dætur þeirra eru:
Guðríður Elsa, f.
1961. Maki Vilmar
Pétursson og synir
þeirra Einar, f.
1987, og Bjarki, f.
1992. Inga Birna, f.
1966. Maki Stefán
Þorvaldsson og
dóttir þeirra Ásthildur Lilja,
f. 1997.
Útför Guðlaugar fer fram
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 10.30.
búskap og koma undir sig fótun-
um. Laula og Einar hafa veitt
okkur ómetanlegan stuðning. Það
var sama hvort'bónin var sú að
fá að búa inni á þeim í hálft ár
eða passa dóttursynina, öllu var
vel tekið. Laula setti skilyrði fyrir
vináttu sinni og góðmennsku en
var ávallt tilbúin að létta undir
með þeim sem til hennar leituðu.
Hún fann ekki að, en var til stað-
ar.
Laula hafði gaman af að um-
gangast fólk og gera sér glaðan
dag. Hún tók virkan þátt í ýmsu
félagsstarfi og sat m.a. oft í stjórn
félags eiginkvenna málarameist-
ara. Þau hjónin ferðuðust töluvert
í tengslum við samstarf norrænna
málarameistara og eignuðust vini
vítt og breitt um Skandinavíu.
Laula hafði starfað eitt ár í Nor-
egi áður en hún giftist Einari og
komu norskukunnátta hennar og
glaðværð sér vel í þessum ferða-
löguin. Það var skemmtileg
reynsla þegar við hjónin síðan
fluttum til Noregs, að margir sem
Laula hafði kynnst bæði þegar
hún bjó þar og einnig í tengslum
við félagsstörfin, tóku okkur upp
á arma sina og vildu allt fyrir
okkur gera. Enn einu sinni feng-
um við að njóta uppskerunnar af
því sem hún og Einar höfðu sáð.
Laula fékk vitneskju um að hún
hefði krabbamein í janúar í fyrra.
Síðan þá hefur hallað undan fæti
þar til dauðinn veitti henni hvíld.
Amma Laula ver ekki markið með
barnabörnum sínum oftar, en liði
englanna hefur borist liðstyrkur.
Það sem hún kenndi með orðum
sínum og verkum mun hér eftir
sem hingað til hjálpa ástvinum
hennar að takast á við lífið.
Hafðu þökk fyrir allt.
Vilmar.
Skilafrest-
ur minn-
ingar-
greina
Eigi minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dögum
fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunn-
inn eða eftir að útför hefur
farið fram, er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.