Morgunblaðið - 05.09.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 21
Frekari
fjölda-
morð
í Alsír
París. Reuter.
GRUNUR leikur á að íslamskir upp-
reisnarmenn hafi staðið að morðum
á 22 íbúum í litlu þorpi í Alsír sl.
þriðjudagskvöld, að því er alsírsk
blöð greindu frá í gær. í blaðinu
Al Khabar sagði að 10 börn og sex
konur hafi verið meðal hinna myrtu.
Þá særðust sjö í sprengjutiiræði í
Algeirsborg í gær.
Versta blóðbað sem orðið hefur í
tæplega sex ára langri óöld í landinu
varð í síðustu viku skammt frá Al-
geirsborg. Stjórnvöld segja að þá
hafi 98 manns verið myrtir og 120
særðir, en vitni og alsírsk blöð segja
að hátt á þriðja hundrað hafi verið
myrtir.
Arásarmenn létu til skarar skríða
undir miðnætti í bænum Ouled E1
Arbi í Omarahéraði í Medafylki, sem
er um 60 km suðvestur af Algeirs-
borg. Samkvæmt fréttum Al Khabar
beittu mennirnir skotvopnum og
hnífum. Blaðið Liberté greindi einnig
stuttlega frá íjöidamorðunum.
Stjórnvöld í Aisír kenna herskáum
múslimum um morðin, en alls hafa
um 60 þúsund manns fallið í óöld
sem ríkt hefur frá því í ársbyijun
1992. Þá hættu yfirvöld við að ljúka
kosningum, en í fyrri umferð þeirra
hafði flokkur bókstafstrúaðra músl-
ima tekið forystu.
Að sögn íbúa í úthverfi Algeirs-
borgar sprakk sprengja fyrir utan
ráðhúsið á fimmtudag og slösuðust
sjö, þar af einn alvarlega.
Rannsókn flugslyss beinist
að veðri og þætti flugmanna
Phnom Penh. Reuter.
FLUGMÁLAYFIRVÖLD í Kambód-
íu greindu frá því í gær að rannsókn
á hrapi Tupolev-þotu flugfélags Ví-
etnams skammt frá Phnom Penh-
flugvelli beindist að mögulegum
áhrifum veðurs og hugsanlegum
mistökum flugmanna. Sextíu og
fjórir fórust með vélinni, en tveir
lifðu af.
Vélin var að koma frá Ho Chi
Minh-borg í Víetnam, síðdegis á
miðvikudag, og var í aðflugi á
Phnom Penh-flugvelli er hún hrapaði
um það bil 300 metra frá flugbraut-
arenda. Vélin var rússnesk af gerð-
inni Tupolev Tu-134B, tveggja
hreyfla.
• •
Oðrum flugritanum stolið
Vitni að slysinu greindu frá því
að svo hefði virst sem flugmenn
vélarinnar hafi reynt að hætta við
lendingu á síðustu stundu, en ekki
tekist. Yfirmaður á flugvellinum í
Phnom Penh sagði að vélin hefði
komið inn til lendingar í of lítilli hæð
og áður en lendingarleyfi hafði verið
veitt. Slæmt veður, er var í Phnom
Penh, kunni að hafa verið orsök
þessa. Þungskýjað var við flugvöll-
inn, og skömmu eftir að slysið varð
byrjaði að rigna.
Háttsettur embættismaður
greindi frá því í gær að öðrum af
tveim flugritum vélarinnar hafi verið
stolið. Fjölda fólks dreif að skömmu
eftir að slysið varð og fóru margir
ránshendi um staðinn. Meðal þess
sem tekið hafi verið sé annar flugrit-
anna. Kvaðst embættismaðurinn
ekki vita hvort það hefði verið tæk-
niupplýsingaritinn eða hljóðritinn,
er nemur samtöl í flugstjórnarklefa.
Verðlaunum hefur verið heitið þeim
sem skilar flugritanum.
Send hafa verið boð til framleið-
anda vélarinnar um að hann sendi
fulltrúa sinn til að aðstoða við rann-
sókn á þeim flugrita sem fundist
hefur, en aðstoðarráðherrann sagði
nauðsynlegt að hafa báða flugritana.
Annars væri hætt við að aldrei feng-
ist endanleg niðurstaða rannsóknar
á orsökum slyssins.
Samkvæmt fregnum víetnamska
blaðsins Tuoi Tre var flugstjóri vél-
arinnar yfirmaður öryggismála-
nefndar flugfélags Víetnams og
reyndasti fiugmaður þess. Tupolev
vélin var meðal nokkurra gamalla,
rússneskra flugvéla félagsins, en
flestar véla þess eru nýjar. Yfirmenn
félagsins hafa sagt, í kjölfar slyss-
ins, að rússnesku vélarnar, sem eru
af gerðunum Tupolev og Yakolev,
verði notaðar áfram.
34. þing SUS í
Reykjanesbæ
SAMBAND UNGRA , .
siálfstæðismanna ember nk.
Samkvæmt 21. grein VI. kafla laga Sambands ungra sjálf-
stæðismanna tilkynnist hér með að lagabreytingar verða
teknar fyrir á 34. þingi SUS í Reykjanesbæ 12.-14. sept-
Framkvæmdastjórn SUS
Ræddi
árangur
Erhards
HÚSFYLLIR var er dr. Gerhard
Stoltenberg, sagnfræðingur og
fyrrum fjármála- og varnar-
málaráðherra Þýskalands, flutti
fyrirlestur um Ludwig Erhard,
sem var efnahagsmálaráðherra
Vestur-Þýskalands 1949-1963,
og sögulegt hlutverk hans í
mótun þess efnahagskerfis sem
lýst er sem félagslegu markaðs-
kerfi. Hefur Erhard oft verið,
vegna hlutverks síns í því,
nefndur „faðir þýska efnahags-
undursins". Fyrirlesturinn fór
fram í Háskóla Islands.
A þessu ári eru liðin 100 ár
frá fæðingu Erhards, og Stolt-
enberg nefndi að í ár væru einn-
ig liðin 50 ár frá því Erhard tók
fyrst sæti í stjórnunarnefnd
þýskra embættismanna undir
yfirumsjón bandariska herná-
msliðsins í Þýskalandi, sem
hafði höfuðstöðvar í Frankfurt.
Síðan þá hefði enn ekki komið
fram neinn stjórnmálamaður
sem hefði haft eins afgerandi
áhrif og Erhard. Hugmyndum
hans, og samstarfsmanna hans,
um að koma á hagkerfi sem
væri gert úr blöndu af félags-
hyggju og markaðshyggju, hefði
í fyrstu verið hrint í framkvæmd
að hernámsyfirvöldum for-
spurðum og stönguðust á við
ríkjandi hugmyndir, sérstaklega
á meðal menntamanna. Árang-
urinn hefði því komið flestum á
óvart.
Stoltenberg situr nú á þingi
fyrir kristilega demókrata
(CDU), flokk Helmuts Kohls
kanslara. Á þingmannsferli sín-
um hefur hann m. a. gegnt emb-
ætti fjármálaráðherra og varn-
armálaráðherraí ríkissljórninni
í Bonn, sem og forsætisráðherra
Slésvíkur-Holtsetalands.
Morgunblaðið/Golli
Ný rannsókn á færeyska bankahneyksiinu?
Joensen krefst svara
EDMUND Joensen, lögmaður Fær-
eyja, hefur beðið Poul Nyrup Ras-
mussen, forsætisráðherra Danmerk-
ur, og Frank Joensen dómsmálaráð-
herra að svara því hvort rannsóknin
á gjaldþroti Færeyjabanka verði tek-
in upp. Að því er fram kemur í Jyl-
lands-Posten hefur komið í ljós, að
einn þeirra manna, sem unnu að
rannsókninni, vann einnig fyrir Den
Danske Bank en hann kom mjög við
sögu í þessu máli.
I kreppunni í Færeyjum fyrr á
þessum áratug ákvað landsstjórnin
að leysa Den Danske Bank undan
ábyrgðum vegna Færeyjabanka,
sem síðan varð gjaldþrota. Færey-
ingar telja hins vegar, að þeir hafi
verið blekktir í þessu máli og féllst
danska stjórnin á rannsókn.
Nú hefur komið í ljós, að lögfræð-
ingurinn Michael Rekling, sem átti
sæti í rannsóknarnefndinni, var á
sama tíma að reka mál fyrir Den
Danske Bank, sem þó var „aðalsak-
borningurinn" í bankamálinu. Hann
hefði því átt að vera vanhæfur sam-
kvæmt dönskum lögum.
Norsk verksmiðjuskip
vantelja aflann
NEMANDI í Sjávarútvegsháskól-
anum í Tromsö færir í lokaritgerð
sinni fyrir því rök að norsk verk-
smiðjuskip hafi skotið afla að verð-
mæti 5 milljarða króna undan eftir-
liti á fjögurra ára tímabili. Það hrikt-
ir því í stoðum samtaka norskra
útgerðarmanna, sem íhuga máls-
sókn vegna þessa.
Thorsten Hansen, nemandi við
sjávarútvegsháskólann í Tromsö,
varði í vikunni kandídatsverkefni
sitt sem fjallaði um vanskráningu í
aflatöium norskra frystitogara og
stóð vörnina með prýðiseinkunn.
Fregnir af lokaverkefni hans voru
uppspretta fjölda blaðagreina fyrr í
sumar þar sem menn voru ósparir á
orð og yfiriýsingar. Margir biðu því
spenntir eftir að sjá akademískan
dóm prófnefndarinnar.
37 frystiskip skoðuð
í verkefninu eru aflabækur og
sölunótur 37 norskra frystitogara
bornar saman með tölfræðilegum
aðferðum. Nióurstöðurnar eru þær
að fyrir tímabiiið 1987-1991 reikn-
ast óskráður afli frystitogaranna að
verðmæti um 5 milljarðar ísl. króna.
■ iii
iiii
;
| Virtual
Z hugbúnaöur sem gerir
1 Macintosh-eigendum kleift
I að nota Windows-forrit, svo
; sem leiki, viöskiptaforrit o.m.fl. án
| þess að þurfa að bæta við vélbúnaði
‘ eða spjöldum. Auðvelt í uppsetningu
! og inniheldur Windows 95.
^MIBMIIMM !■■■■■■ ■■■■■■
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
Netfang: sala@apple.is Mang: http://www.apple.is
■ö
i
!
í
■i
i
i
■i
i
í
m
!
í
m
!
I