Morgunblaðið - 05.09.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 19
ERLENT
Reuter
SYRGJENDUR Díönu prinsessu virða fyrir sér blómateppið, sem myndast hefur fyrir utan síðasta heimili hennar, Kensington-höll,
fÆ
1,
•• *»t
iliSlj
r ■VtíÍ'á* LhJ (':■ *JIb
Drottiiingn sárnar ásak-
anir um tilfinningakulda
Leituðu
liðsinnis
vara-
lesara
London. Reuter.
SAMTÖK sem sinna málefn-
um heyrnleysingja í Bretlandi
(RNID) höfnuðu í gær beiðni
breskra blaðamanna um að
þau leggi þeim til sérfræðinga
í varalestri til að þýða fyrir
þá samtöl meðlima bresku
konungsfjölskyldunnar meðan
á útför Díönu prinsessu stend-
ur á morgun.
Beiðnin fordæmd
Af hálfu stofnunarinnar var
synjunin rökstudd með þeim
hætti að óviðeigandi væri að
varalesarar hnýstust í einka-
mál annarra. „Siðareglur
varalesara eru mjög strangar
og óskir af þessu tagi brjóta
gróflega í bága við þær. Und-
ir engum kringumstæðum
myndum við verða við þeim,“
sagði talsmaður samtakanna
og fordæmdi beiðnina.
London. Rcuter.
OGÆFA Díönu prinsessu
hefur vakið spurningar
um framtíð bresku kon-
ungsfjölskyldunnar sem
útskúfaði prinsessunni í lifenda lífi
og hefur látið hjá líða að deila með
þjóðinni hinni miklu sorg sem brotist
hefur út í kjölfar andláts hennar.
Sætti konungsfjölskyldan harðri
gagnrýni fyrir tilfinningakulda í fjöl-
miðlum í gær og fyrradag. Talsmað-
ur drottningarinnar sagði í gær að
gagnrýni þessi hefði sært konungs-
fjölskylduna.
Elísabet drottning var sögð fá-
skiptin og harðbijósta fyrir að hafa
hvorki sýnt minningu Díönu þann
sóma að gefa út yfirlýsingu þar sem
verk hennar t þágu góðgerðar- og
mannúðarmála er getið né viður-
kennt uppeldishlutverk hennar
gagnvart prinsunum ungu.
Þá hefur það mælst illa fyrir að
fáni skyldi ekki hafa verið lækkaður
í hálfa stöng á Buckinghamhöllinni,
einni þriggja halla Lundúna þar sem
tugþúsundir manna hafa komið sam-
an á hveijum degi til að syrgja Dí-
önu. Hafa þeir skilið eftir blóm og
sorgarmerki vegna andláts „prins-
essu fólksins". Féll sú skýring í mjög
grýttan jarðveg að samkvæmt siða-
reglum væri gunnfána konungdæm-'
isins einungis flaggað þegar drottn-
ingin væri í höllinni og aldrei í háifa
stöng þar sem um konunglega stofn-
un væri að ræða. Síðdegis í gær var
svo frá því skýrt, að flaggað yrði í
hálfa stöng á Buckinghamhöll á
morgun í virðingarskyni við Díönu
prinsessu. Mun það vera í fyrsta sinn
sem það hefur gerst og er gert að
ósk drottningar.
Ekkert hjarta í húsi
Windsoranna?
Elísabet drottning hefur alla vik-
una haldið sig í kastala sínum í
Balmoral í Skotlandi og ekki snúið
enn til höfuðborgarinnar þar sem
mergð þegna hennar hefur staðið
jafnvel næturlangt í biðröðum og
rigningu til að fá tækifæri til að
leggja blómvönd að St. James-höll
eða rita nafn sitt í samúðarbók. Bið-
röðin var margra kílómetra löng í
gær og allt að 12 stunda bið eftir
að komast til að skrifa í bækurnar,
sem eru 15 talsins. „Kastali hennar
í Balmoral er um það bil eins langt
og hægt er að komast frá blómahaf-
inu sem hefur verið að myndast við
hallir hennar," sagði í forsíðufrétt í
Sun, einu útbreiddasta blaði Bret-
lands.
Ymsir sérfræðingar voru öllu af-
dráttarlausari um afdrif hins þúsund
ára konungdæmis í kjölfar harm-
dauða Díönu og vinar hennar Dodi
Fayed í París aðfaranótt sunnudags.
„Er ekkert hjarta í húsi Windsor-
anna?“ stóð í stórri fyrirsögn á grein
i Daily Mail eftir dálkahöfund blaðs-
ins. „I vaxandi mæli virðist fjölskyld-
an ófær um að fást við þrár almenn-
ings. Burtséð frá því hvers konar
þjóðríki konungsfjölskyldan telur sig
ráða má ljóst vera að við búum ekki
í því sama ríki,“ sagði í greininni.
Annar fréttaskýrandi, Polly
Toynbee, sá heldur ekki mjög bjarta
framtíð fyrir konungsfjölskylduna.
„Goðsögnin um Díönu er sú að kon-
ungsríkið hafi drepið hana. Og nú
óttast menn að það muni einnig
ganga af sonum hennar dauðum.
Konungdæmið er á góðri leið með
að snúast upp í þjóðaróvin," skrifaði
Toynbee í Independent. „Utaf fyrir
sig kann það að vera tóm ijarstæða
en engu að síður er sú tilfmning
sterk meðal fólksins," bætir hún við.
Ætti að afsala sér rétti
til ríkiserfða
Sumir gagnrýnendur gengu jafn-
vel það langt að segja að Karl prins,
fyrrverandi eiginmaður Díönu, ætti
að afsala sér rétti til krúnunnar.
„Hann ætti að leggja það til að kon-
ungdæminu lyki við andlát móður
sinnar," skrifaði Toynbee. Rees
Mogg lávarður, fyrrverandi ritstjóri
The Times og virtur áhrifamaður,
er því sammála að konungdæmið sé
að sigla inn í óvissu. „Viðbrögð al-
mennings eru með allt öðrum hætti
en menn hafa nokkru sinni átt að
venjast," sagði hann í samtali við
BBC-útvarpið og gagnrýndi af-
skiptaleysi drottningar. Roy Strong,
fyrrverandi forstjóri ríkislistasafns-
ins og höfundur bókar um breska
sögu, sagði að brytist konungsfjöl-
skyldan ekki út úr formfestunni og
varpaði af sér siðaregluklafanum
lifði hún ekki af inn í 21. öldina.
Geoffrey Crawford, talsmaður
Elísabetar drottningar, sagði kon-
ungsfjölskyidunni hafa sárnað gagn-
rýni þess efnis að hún léti sig sorg
þjóðarinnar vegna andláts Díönu
litlu varða. „Prinsessan var dáð kona
en hún var einnig móðir tveggja
sona sem sakna hennar sárt. Vil-
hjálmur og Harry kjósa að vera hjá
föður sínum, ömmu og afa í kyrrð-
inni í Balmoral. Amma þeirra,
drottningin, aðstoðar þá við að tak-
ast á við hinn mikla söknuð og búa
þá undir að deila sorgum sínum
meðal fólksins á laugardag," sagði
í yfirlýsingu blaðafulltrúans, sem
þótti nokkuð óvenjuleg.
Á sér enga hliðstæðu
Sorgin í Bretlandi vegna fráfalls
Díönu prinsessu á sér enga hliðstæðu
og þykir jaðra við sefasýki, ekki síst
þar sem Bretar þykja fremur hafa
orð á sér fyrir tepruskap og tilfinn-
ingaskort. Búist er við meiri fjölda á
laugardag í miðborg London en dæmi
eru til í seinni tíma sögu. Sálfræðing-
ar segja ástandið einstakt, og það
endurspegli samband það sem Díana
hafði við þjóðina um fjölmiðla. Hún
hefði gert sér far um að vera úti á
meðal fólks, sinnt mannúðarmálum
með þeim hætti að það hafí snortið
fólk i gegnum fjölmiðlana. „Þetta er
alveg nýtt fyrirbæri,“ sagði Tony
Carr, sérfræðingur í sálfræði við
Plymouth-háskóla. Hann sagði að
ekki væri einungis um sorg að ræða,
heldur einnig hryggð. Margir hefðu
og álitið að kerfið hefði verið henni
óvilhallt, enskur almenningur taki
ætið afstöðu með þeim sem ber
skarðan hiut frá borði. Loks sagði
Carr, að hina miklu og sýnilegu sorg
í landinu mætti skýra með þeirri
þörf fólks að reyna að breyta óréttlát-
um og fáránlegum dauðdaga í eitt-
hvað annað.
Gas-
sprenging
í París
53 SLÖSUÐUST, þar af tveir
alvarlega, er sprengja sprakk í
París í gær. Eldur kom upp
eftir sprenginguna en slökkvi-
liðsmenn réðu fljótlega niður-
lögum hans. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglu eru mestar
líkur taldar á að gasleki hafi
orsakað sprenginguna.
Sierra Leone
lýsir yfir
stríði
JOHNNY Paul Koroma, sjálf-
skipaður leiðtogi Sierra Leone,
og stuðningsmenn hans hafa
lýst yfir stríði á hendur Níger-
íumönnum og samheijum þeirra
í Vestur-Afríku. Yfirlýsingin
kom í kjölfar sprengjuárása
Nígeríuhers á Freetown, höfuð-
borg Sierra Leone undanfarna
tvo daga. Samtök Vestur-Afr-
íkuríkja samþykktu á fundi í
Nígeríu í síðustu viku að auka
þrýsting á valdhafa í Sierra
Leone, í þeim tilgangi að koma
hinum útlæga forseta, Ahmad
Tejan Kabbah, aftur til valda.
Hermenn
vinna við
uppskeru
DREGIÐ hefur verið úr þjálf-
unartíma hersveita í Norður-
Kóreu til þess að hermenn geti
veitt aðstoð við uppskerustörf
og fá hermennirnir hrísgijón
og korn að launum fyrir vinnu
sína. Talsmaður hersins segir
þetta draga úr snerpu hermann-
anna en segir þó enga aga-
bresti hafa komið upp. Mikill
matvælaskortur er í landinu
eftir að flóð og þurrkar hafa
orsakað uppskerubrest þijú
undanfarin ár.
Suu Kyi
bjartsýn
MYNDBANDI með viðtali við
Aung San Suu Kyi, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar í Burma,
var nýlega
smyglað út úr
landinu. í við-
talinu segist
hún ekki vera
í stofufang-
elsi en þó búa
við miklar
hömlur. Hún
telji hins veg-
ar að þær
hömlur sem henni séu settar
og síendurteknar handtökur
stuðningsmanna sinna sýni að
herstjórnin óttist stjórnarand-
stöðuna. Þá segist hún sann-
færð um að Burma eigi eftir
að snúa í lýðræðisátt.
Vilja frelsi
hryðjuverka-
manna
ÆTTINGJAR fólks úr þýsku
hryðjuverkasamtökunum
Rauðu herdeildarinnar kröfðust
þess í gær að þeim verði sleppt
úr fangelsi. Ættingjarnir kvört-
uðu yfir aðbúnaði fanganna
sem þeir segja að séu einangr-
aðir og jafnvel án nauðsynlegr-
ar læknisþjónustu. Tuttugu ár
eru nú liðin frá því að hryðju-
verkaárásir samtakanna náðu
hámarki.