Morgunblaðið - 05.09.1997, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.09.1997, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 27 Námskeiðs- tónleikar LOKATÓNLEIKAR á Söng- námskeiði Svanhvítar Egils- dóttur verða í Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, á morgun, laug- ardag, kl. 20.3.0. Á tónleikunum koma fram nemendur sem tekið hafa þátt í Söngnámskeiði Svanhvítar sem staðið hefur yfir undan- farnar tvær vikur. Undirleik- arinn er Vilhelmína Ólafsdótt- ir. Drengjakór Laugarnes- kirkju undirbýr Englandsferð DRENGJAKÓR Laugarnes- kirkju er nú að hefja sitt átt- unda starfsár. Auk söngs við guðsþjónustur mun kórinn halda tónleika um jólin og að vori og einnig er áætlað að fara í söngferð til Englands í vor. Stjórnandi kórsins er Frið- rik S. Kristinsson og á síðasta vetri voru kórmeðlimir 35 á aldrinum 8-15 ára og einnig starfaði deild eldri kórfélaga. Kórskóli Langholts- kirkju stofn- ar yngri deild KÓRSKÓLI Langholtskirkju er að hefja sitt sjöunda starfs- ár og verður starfrækt yngri deild fyrir 4-7 ára nemendur, sem er nýmæli. Kennari er Ágústa Jónsdóttir tón- menntakennari. Litli kórinn mun starfa í tengslum við sunnudagaskólann og koma þar fram reglulega. Kennarar við skólann eru Signý Sæmundsdóttir óperu- söngkona, Laufey Ólafsdóttir tónmenntakennari, Ágústa Jónsdóttir tónmenntakennari og Jón Stefánsson kantor við Langholtskirkju. Samsöngur eldri deilda fer fram með Gradualekór Langholtskirkju sem starfar í tengslum við Kórskólann en er rekinn af foreldrafélagi. Kórinn mun halda sjálf- stæða tónleika á komandi vetri, fara í æfingabúðir og taka þátt í Jólasöngvum Kórs Langholtskirkju. Kórinn fer i tónleikaferð til útlanda á næsta ári. LISTIR Islenskar bækur lesnar í Suðurmannalandi RITHÖFUNDURINN Hákan Boström og listmálarinn Knut H. Larsen sem báðir eru frá Suður- mannalandi (Sörmland) í Svíþjóð eru staddir hér á landi í því skyni að hitta íslenska rithöfunda. Boström hefur áður komið til ís- lands svo að í nokkrum tilvikum er hann að rifja upp fyrri kynni af rithöfundum. Tilgangurinn með ferðinni er að undirbúa dagskrár þar sem verk íslenskra rithöfunda verða kynnt. Boström velur höfund- ana, en skilyrði er að verk þeirra séu til í sænskum þýðingum. Larsen mun síðan sjá um myndrænu hlið- ina, því dagskrárnar eru um leið eins konar sýningar. Hann hefur í hyggju að teikna eða mála myndir af rithöfundum og umhverfí þeirra. í Suðurmannalandi búa álíka margir og á íslandi, en meðal helstu íslenskir rithöfundar verða kynntir og lesnir af endurnýjuðum krafti í Suðurmannalandi í Svíþjóð á næstunni. Jó- hann Hjálmarsson spjallaði við þá Hákan Boström og Knut H. Larsen sem staddir eru hér á landi til að hitta íslenska rithöfunda og fræðast um verk þeirra. LANDSLAG í Suðurmannalandi eftir Knut H. Larsen. Morgunblaðið/Ásdís HÁKAN Boström og Knut H. Larsen eru á íslandi til að hitta íslenska rithöfunda. borga eru Eskilstuna, þar sem Boström býr, Nyköbing, Strangnás og Mariefred. Þar um slóðir hafa menn áhuga á að fólk lesi bækur. Menntunarsamband lénsins hefur í samvinnu við bókasöfn gengist fyr- ir bómenntakynningum undir kjör- orðunum: í Suðurmannalandi lesum við Strindberg; Rithöfundar frá Suðurmannalandi og; í Suður- mannalandi lesum við norska höf- unda. Nú er röðin komin að íslend- ingum, því í Suðurmannalandi á að lesa íslenska höfunda á næstunni. Þeir Hákan Boström og Knut H. Larsen hafa reynslu af kynning- um og sýningum af þessu tagi og einnig hafa þeir unnið að bókum saman, Boström skrifað eða valið texta og Larsen myndskreytt. Með- al slíkra verka þeirra er viðamikið safn með því sem rithöfundar hafa skrifað um Suðurmannaland fyrr og nú. Meðal hinna elstu er Snorri Sturluson. Bókin nefnist Röster i Sörmland (útg. En bok för alla, 1996). Þeir hafa einnig unnið að auðlesnum bókum fyrir þá sem eiga við lestrarörðugleika að stríða. í flokki þeirra bóka eru verk eftir Boström, sem er kunnur skáld- sagnahöfundur og menningarblaða- maður í Svíþjóð og nú eru þeir að vinna að því að endurskoða Órminn rauða eftir Frans G. Bengtsson með þetta í huga. Verða að þekkja höfundana Boström átti frumkvæðið að því að beina athygli manna í Suður- mannalandi að Islandi og veitti lén- ið honum styrk til verkefnisins. Boström segist hafa viljað end- urnýja kynni sín af íslenskum rit- höfundum og kynnast nýjum. „Við förum og hittum rithöfunda," segir hann, „við verðum að þekkja höf- undana sjálfa. Við ætlum jafnvel að skrifa dagbók um ferðina og við teljum nauðsynlegt að kynningun- um fylgi skrá með upplýsingum og myndum. Knut hefur aldrei komið til íslands og hann hefur ekki að- eins áhuga á að gera myndir af íslenskum höfundum, helst vill hann halda íslenska sýningu í Svíþjóð. Af nógu verður að taka hjá honum, því að við munum ferðast eitthvað um landið.“ Boström telur að slík kynning, sem einkum fer fram á vegum bóka- safna, geti farið víða í Svíþjóð og jafnvel til fleiri landa. Hann hefur reynslu af líkri kynningu í Þýska- landi. Verkefnið nýtur góðs af sam- vinnu við Norræna félagið í Svíþjóð þar sem Maj-Britt Imnander starf- ar, einnig hefur verið leitað til menningarsetursins Biskops Arnö. Knut H. Larsen, sem er frá Mosjo- en í Noregi, segir athyglisvert að sýna texta og myndir saman, en þeir munu bæði vera á íslensku og sænsku. Hann reiknar með að mynd- irnar verði um 25, það sé við hæfi í bókasöfnum og segist ætla að leggja áherslu á að myndirnar séu ekki allar í sama stílnum, ólíkar myndir birtist af hveijum höfundi. „Eg ætla að draga fram mikilvægi rithöfundarins en ekki stefna að því að myndlist mín verði í forgrunni, rithöfundurinn á fyrst og fremst að njóta sín,“ segir hann. „Höfundurinn og íslensk náttúra eiga að fylgjast að.“ Larsen segist hafa fundist hann vera heima hér, það geri veðrið, ekki síst rigningin og líka Qöllin. ísland og Noregur eigi margt sam- eiginlegt, en Suðurmannaland sé öðru vísi. Málverk Larsens eru oft „óhlutbundnar náttúrumyndir", en þegar hann myndskreytir bók- menntir tekur hann mið af efninu og þá standa myndirnar yfirleitt nær fyrirmyndinni. Kínversk list og ís- lenzk í Gallerí Fold KÍNVERSKA listakonan Lu Hong, opnar sýningu í baksal Gallerís Foldar við Rauðarárstíg. Sýninguna nefnir hún Fjöll - þoka - hestar. í kynningarhorni gall- erísins eru kynntar vatnslita- myndir eftir Ólöfu Kjaran. Lu Hong er fædd árið 1957 í Peking, Kína. Hún nam við kín- verska listaháskólann í Peking með hefðbundna kínverska lands- lagsmálun sem sérsvið. Var hún fyrsta konan sem útskrifaðist frá þessum skóla í þeirri grein. Eftir listnámið í Kína starfaði Lu Hong um hríð við Listasafn Pekingborgar, en árið 1986 hélt hún til Tókýó í Japan og lagði stund á japönsku og japanska myndlist. Hingað kom hún árið 1990 og hefur verið búsett hér síðan. Lu Hong notar eingöngu hefð- bundin kínversk verkfæri og efni við listsköpun sína. Penslarnir eru handgerðir, úrgeitarhári. Liturinn er kínverskt blek sem hún blandar sjálf eftir aldagömlum hefðum. Pappírinn er handgerður og unnin úr bambus eftir 2.000 ára hefð. Lu Hong hefur haldið og tekið þátt í fjölda sýninga í Kína, Japan og á Islandi. Ólöf Kjaran Ólöf Kjaran stundaði myndlist- arnám við Myndlistaskólann í Reykjavík 1990-93, Myndlista- og handíðaskóla íslands 1993-96 og Hochschule fur bildende Kunste í Hamborg, Þýskalandi, árið 1995. LU Hong við eitt verka sinna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.