Morgunblaðið - 05.09.1997, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Anjouan
hertekin
RÍKISSTJÓRN Comoro-eyja
skýrði frá því í gær, að her
hennar hefði hertekið alla
mikilvægustu staði á eyjunni
Anjouan, en íbúar hennar
höfðu lýst yfir aðskilnaði frá
stærstu eyju eyjaklasans,
Grande Comore. Eyjarskeggj-
ar veittu stjómarhemum mót-
spymu. Samkvæmt frásögn-
um vitna var barizt skammt
frá Mutsamudu, höfuðstað
eyjarinnar, í gærmorgun.
Ekki fékkst staðfest hve mik-
ið mannfall hefði orðið, en
starfsmaður hjálparstofnunar
sem Reuters talaði við sagði
„nokkra“ hafa fallið og marg-
ir særzt.
33 bíða bana
í Tyrklandi
ÞRJÁTÍU og þrír biðu bana
í gær er tvær fólksflutninga-
bifreiðar rákust á í norðvest-
urhluta Tyrklands, að því er
fréttastofan Anatolian greindi
frá. Fjörutíu slösuðust, en
áreksturinn varð á aðalþjóð-
veginum milli Ankara og Ist-
anbúl. Haft er eftir embættis-
manni að slysið megi rekja til
þess að annar bllstjóranna
hafi sofnað við stýrið.
Spillingarmál
hafið á Spáni
HAFNAR eru vitnaleiðslur
fyrir hæstarétti Spánar í spill-
ingarréttarhöldum sem talið
er að vekja muni mikla at-
hygli í landinu. Þar verða 12
háttsettir leiðtogar spænska
jafnaðarmannaflokksins látn-
ir svara til saka fyrir ólöglega
fjármögnun flokksins. Málið
er kennt við Filesa-fýrirtækið,
pappírsfyrirtæki sem sett var
upp til að taka við og koma
áfram fjármunum í flokks-
sjóði. Málið var hið vandræða-
legasta fyrir jafnaðarmanna-
flokkinn og átti sinn þátt í
að hann beið ósigur í þing-
kosningum í fýrra, þegar endi
var bundinn á 13 ára valda-
tíma flokksins.
Lestarslys
í Kanada
SEXTÍU og fimm manns slös-
uðust er farþegalest á leið frá
Vancouver til Toronto fór út
af sporinu við bæinn Biggar
í Saskatchewan í Kanada að-
faranótt þriðjudags að staðar-
tíma. Að sögn lögreglu var
vitað um eitt dauðsfall er eim-
reið og 13 af 19 farþegavögn-
um fóru út af. Voru 193 far-
þegar í lestinni.
Mír lagt
að ári
BORÍS Ostroumov aðstoðar-
forstjóri rússnesku geim-
ferðastofnunarinnar segir að
undir lok næsta árs verði
starfsemi Mír-geimstöðvar-
innar hætt og hún látin falla
niður í Kyrrahaf snemma árs-
ins 1999, en þá verður starf-
semi hafin í alþjóðlegu geim-
stöðinni Alpha.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, á Islandi
Umbætur í starfi SÞ
að komast á skrið
ANNAN ásamt rektor Háskólans, Sveinbirni Björnssyni.
Morgunblaðið/Kristinn
KOFI Annan ávarpar gesti í hátíðarsal Háskóla íslands í gær.
FÆKKAÐ hefur verið I starfsliði
Sameinuðu þjóðanna og kröfur um
vinnuframlag hafa verið auknar og
er þar um að ræða þætti í róttækum
umbótum sem nú er verið að gera
á starfi samtakanna að sögn Kofi
Annans framkvæmdastjóra. í fyrir-
lestri sínum í Háskóla Islands sagði
framkvæmdastjórinn að ísland væri
sönnun þess að ríki þyrfti hvorki að
vera stórt né öflugt her- og efna-
hagsveldi til að leggja fram mikil-
vægan skerf hjá SÞ.
Annan minnti I upphafi máls síns
á að ísland hefði vegna landfræði-
legrar legu sinnar gegnt viðkvæmu
hlutverki I alþjóðamálum og sam-
skiptum stórveldanna á öldinni. „ís-
lendingar skilja af þessum sökum
röksemdirnar fyrir nauðsyn alþjóð-
legrar samvinnu. Eins og allar aðrar
friðelskandi smáþjóðir vona fslend-
ingar að Sameinuðu þjóðirnar og
önnur alþjóðasamtök setji fastar
reglur um samskipti þjóða og stuðli
að sameiginlegum framförum. ís-
lendingar hafa fullan rétt á því að
vænta þess að Sameinuðu þjóðirnar
starfi vel og með markvissum
hætti.“
Markmið enn í gildi
Framkvæmdastjórinn sagði að
þótt heimurinn breyttist hratt héldu
markmiðin sem SÞ hefðu sett sér
við stofnunina 1945 gildi sínu. Enn
sem fyrr yrði að bregðast við ógnun-
um við frið og öryggi, enn sem fyrr
væri nauðsynlegt að vinna að fram-
förum í efnahags- og félagsmálum.
„Hugsjónirnar um mannréttindi,
gott stjórnarfar og lýðræði þurfa að
verða samgrónari daglegu lífí fólks
og gefa því merkingu. Og réttarrík-
ið þarf að skjóta traustari rótum.
Fyrir tveim árum sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra á fundi
Allsheijarþingsins er haldið var upp
á 50 ára afmæli samtakanna að
sömu vandamál og viðfangsefni
blöstu nú við þjóðum heims í æ rík-
ari mæli. Sumar ógnirnar eru aug-
ljósar: Hryðjuverk, farsóttir, út-
breiðsla gereyðingarvopna. Aðrar
dyljast betur: veðurfarsbreytingar,
fíkniefnasala, peningaþvætti og
spilling. Allar hunsa þær landa-
mæri. Engin þjóð getur sigrast á
þeim hjálparlaust."
Annan minnti á að I kalda stríðinu
hefði aðildarríki SÞ greint á um
grundvallaratriði í mörgum efnum.
Það hefði því ekki átt að koma á
óvart að þær skyldu þá aldrei leyfa
samtökunum að beita sér til fulls
og verða öflug stofnun sem þjónaði
sameiginlegu markmiði.
Nú væru breyttir tímar og komið
væri að því að stofnunin yrði sjálf
að breyta háttum sínum. Þess vegna
hefði hann ákveðið að gera umbætur
að einu mikilvægasta markmiði sínu
I starfi.
„Þess vegna hef ég staðið fyrir
hæglátri umbyltingu hjá Sameinuðu
þjóðunum," sagði hann. „Við verðum
að sýna meiri árvekni og huga betur
að kostnaði. Stjórnendur og starfslið
verða að leggja sig fram og gera
verður þau ábyrg fyrir árangri af
starfínu." Hann sagði að umbótaá-
ætlun sem hann hefði lagt fram í
júlí hefði haft þessi markmið að leið-
arijósi og þar væri stefnt að grund-
vallarbreytingu á starfsháttum.
Starfí samtakanna yrði skipt I
fjóra meginþætti, frið og öryggi,
efnahags- og félagsmál, samstarf í
þróunarmálum og mannúðarmál.
Komið yrði á fót litlum hópi æðstu
embættismanna er myndi gegna
svipuðu hlutverki og ríkisstjórnir,
ekkert sambærilegt hefði áður verið
í stjórnkerfí samtakanna.
Hópurinn myndi samhæfa aðgerð-
ir og áætlanir, umbætumar yrðu
gagngerar og myndu ná inn í hvern
krók og kima samtakanna, útgjalda-
aukning yrði stöðvuð. Meðal annars
yrði stefnt að því að auka viðbragðs-
flýti I tengslum við friðargæslu og
aðrar aðgerðir sem hefðu aukist
geysihratt að umfangi síðustu árin.
„Við stefnum ótrauð að því að
binda enda á skortinn á trúnaðar-
trausti sem valdið hefur stofnuninni
vanda síðustu árin. Ég get nú séð
fyrir mér að Sameinuðu þjóðirnar
muni verða samtök sem njóti fulls
stuðnings meðal þjóða heims,“ sagði
Annan. Á blaðamannafundi á Hótel
Sögu var Annan m.a. spurður um
samskipti samtakanna og Banda-
ríkjanna sem skulda SÞ meira en
70 milljarða króna. Hann sagði sam-
skiptin taka framförum, þau væru
nú mun betri en fyrir ári. Banda-
ríkjaþing væri enn að ræða greiðsl-
urnar til samtakanna og hvert væri
eðlilegt framlag landsins til samtak-
anna. Sagðist Annan gera sér vonir
um að Bandaríkin myndu senn
greiða rúmar 800 milljónir dollara,
um 58 milljarða króna, af skuldunum
sem eru á annan milljarð dollara.
Blaðamaður Morgunblaðsins
minnti á að Annan hefði gagnrýnt
að stríðsglæpamenn gengju enn
lausir í Bosníu og spurði hvort það
gæti stofnað í hættu friðargæslu liðs
Atlantshafsbandalagsins (NATO) ef
hermennirnir gerðu gangskör að því
að handsama umrædda menn.
„Ég er ekki viss um að það sé
fyllilega rétt að ég hafi gagnrýnt
að stríðsglæpamennirnir hafi ekki
verið handteknir. En ég var spurður
hvort hermenn NATO ættu að hand-
taka [Radovan] Karadzic og [Ratko]
Mladic og ég svaraði að ég stjórnaði
ekki NATO og gæti því ekki sagt
neitt um það hvað bandalagið ætti
að gera eða ekki.
Eg hef sagt að við verðum að
fínna leiðir til að draga þessa glæpa-
menn fyrir rétt. Ríkisstjómirnar sem
stóðu að Dayton-samkomulaginu,
einnig stjórnir Serba, Króata og
múslima, samþykktu að þetta yrði
gert.
Ég tel að það myndi stuðla að
sáttum ef okkur tækist að fínna
mennina og láta rétta í málum þeirra
fyrir stríðsglæpadómstóli SÞI Haag.
Eitt af því sem hindrar að lausn finn-
ist á ýmsum innbyrðis deilum þjóð-
anna er að þessi mál eru óútkljáð."
Nokkuð um „farþega“
Annan var spurður hvort SÞ væru
skrifræðisófreskja eins og hörðustu
gagnrýnendur hafa kallað samtökin.
Hann var minntur á að eitt sinn var
haft eftir fyrirrennara hans í emb-
ætti, Boutros Boutros-Ghali, að að-
eins 50% af starfsliði SÞ í Genf gerðu
eitthvert gagn.
„Fyrst vil ég segja að ég vil ekki
tjá mig um þessi ummæli forvera
míns af því að ég veit ekki hvort
þau voru sögð sem brandari.
Fjölmargt hæfileikafólk starfar
hjá samtökunum en eins og hjá öðr-
um slíkum stofnunum, opinberum
eða einkareknum, er auðvitað nokk-
uð um „farþega". Við erum að taka
á þessum málum, höfum fækkað í
starfsliðinu um 1.000 manns, krafíst
er aukins vinnuframlags af öllum.
Allir hafa orðið að taka sig á.
Ég vil líka minna á að allt starfs-
lið SÞ er fámennara en það sem
vinnur hjá lögreglunni í New York,“
sagði Kofi Annan.