Morgunblaðið - 05.09.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 41*-
GUÐRUN PALMFRIÐ-
UR G UÐNADÓTTIR
+ Guðrún Pálm-
fríður Guðna-
dóttir fæddist á
Kvianesi við Súg-
andafjörð hinn 9.
september 1916, en
ólst upp frá ungum
aldri á Botni í sömu
sveit. Hún lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á ísafirði
hinn 28. ágúst síð-
astliðinn.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Guðni Jón Þorleifs-
son, f. 25.10. 1887,
d. 1.4. 1970, og Albertína Jó-
hannesdóttir, f. 19.9. 1893, d.
2.1. 1989. Þau bjuggu lengst af
í Botni en síðustu árin á Suður-
eyri við Súgandafjörð.
Systkini Guðrúnar eru Sig-
urður, f. 11.6. 1914, kvæntur
Sveinbjörgu Eyvindsdóttur á
Akranesi. Hann fórst með tog-
aranum Júlí á Nýfundnalands-
miðum árið 1950. Þorleifur
Guðfinnur, f. 11.7. 1918, sam-
býliskona hans er Marianne
Jensen. Sveinn, f. 23.11. 1919,
kona hans Sigríður Finnboga-
dóttir, d. 1997. Jóhannes, f.
29.9. 1921, d. 1990, kona hans
Aldís Jóna Ásmundsdóttir. Guð-
mundur Arnaldur, f. 1.12.1923.
Einar, f. 6.11. 1926, kona hans
Guðný Guðnadóttir. Guðni Al-
bert, f. 3.4. 1928, kona hans
Júlíana Jónsdóttir. Gróa Sigur-
mja, f. 24.11. 1930, eiginmaður
Páll Guðmundsson. Maria Auð-
ur, f. 6.6. 1932, eig-
inmaður Leifur Sig-
urðsson. Sólveig
Dalrós, f. 11.6.
1934, d. 1939.
Guðrún giftist
12.1. 1941 Kjartani
Ó. Sigurðssyni, f.
21.9. 1905, d. 25.6.
1956, verkamanni
og sjómanni frá
Gilsbrekku og síðar
Suðureyri við Súg-
andafjörð. Heimili
þeirra var á Rán-
argötu 8 á Flateyri.
Foreldrar hans
voru Sigurður Jóhannsson og
Guðbjörg Einarsdóttir.
Vinur Guðrúnar og félagi til
margra ára var Sörli Ágústsson
frá Kjós í Árneshreppi, f. 6.5.
1910, d. 24.11. 1988.
Börn Guðrúnar og Kjartans
eru: 1) Guðvarður, f. 5.5. 1941,
kvæntur Homhuan Kjartans-
son. 2) Sigurlaug Svanfríður,
f. 28.4. 1943, hennar maður
Gunnlaugur Ragnarsson. 3)
Berta Guðný, f. 23.7. 1945, gift
Guðmundi Þorleifssyni. 4)
Hlöðver, f. 16.8. 1948, kvæntur
Sveinbjörgu Hermannsdóttur.
5) Sólveig Dalrós, f. 14.6. 1951,
gift Krisljáni J. Jóhannessyni.
6) Elín Oddný, f. 16.10. 1954,
gift Jóhanni Guðmundssyni.
Barnabörn Guðrúnar eru 18
og barnabarnabörn 13.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
í dag verður í Fossvogskirkju
gerð útför föðursystur minnar Guð-
rúnar Guðnadóttur frá Flateyri.
Guðrún þekkti kröpp kjör. Mér
er minnisstætt frá ættarmóti fyrir
nokkrum árum þegar Guðrún stóð
keik við veginn fyrir ofan Kvíanes
í Súgandafirði og átti í harðri en
gamansamri deilu við bræður sína
um það hvar hún hefði fæðst, í fjár-
húsi í Kvíanesi eða í Botnsbænum.
Sem elsta systirin í stórum systk-
inahópi í Botni í Súgandafirði var
hún snemma kölluð til ábyrgðar og
starfa á heimilinu þar sem oft var
þröngt í búi. Seinna á lífsleiðinni
stóð hún uppi tæplega fertug ekkja
með sex börn þegar Kjartan Sig-
urðsson maður hennar féll frá
vegna veikinda langt um aldur
fram.
Á efri árum naut Guðrún þess
að eiga að vin og lífsförunaut Sörla
Ágústsson sjómann frá Flateyri,
sem nú er látinn. Sörli var henni
stoð og stytta á erfiðum tímum
eftir fráfall Kjartans og þegar fram
liðu tímar var Sörli oftast með þeg-
ar fjölskyldan kom saman og var
sannkallaður hrókur alls fagnaðar.
Hann kunni kynstrin öll af sögum,
gamanmálum og rímnakveðskap og
hefði sjálfsagt þurft nokkra geisla-
diska til þess að rúma það allt.
Guðrún sýndi gamla bænum í
Botni mikla ræktarsemi. Systkinin
gerðu upp húsið, ræktuðu lax í
ánni og þessi sumardvalarstaður
varð eins konar samnefnari fyrir
þá sterku samheldni sem alla tíð
hefur ríkt í þessari gríðarstóru fjöl-
skyldu. Viku fyrir andlátið stóð
Guðrún og málaði grindverk og dró
ekki af sé fyrr en að loknu verki.
Við sem sóttum Guðrúnu heim á
Ránargötunni á Flateyri eða fund-
um hana fyrir heima á æskustöðv-
unum í Botni þar sem systkinin fjöl-
menntu með mökum og afkomend-
um sínum sumar hvert, fundum
sannarlega aldrei neinn vott af lífs-
þreytu hjá henni. Hún geislaði ávallt
af góðu skapi og atorku, tók rausn-
arlega á mót gestum og gangandi
og lá ekki á skoðunum sínum á
mönnum og málefnum. Hún var
einn af þessum sterku persónuleik-
um vestur þar, sem manni fannst
bæði að landslagið hefði mótað og
að þau sjálf mótuðu landslagið. Ég
er viss um að næst þegar komið
verður í Önundarfjörðinn verður
hann ekki í laginu eins og áður
þegar Guðrúnar naut við.
Guðrún hélt tryggð við Flateyri
og þótt börnin væru öll flutt suður
og snjóflóð og miklar hremmingar
væru nýlega afstaðnar, vildi hún
ekkert ljá máls á því að flytja sig
í einhveija þægilegri vist. Þegar
kallið kom var hún á áttugasta og
fyrsta aldursári, enn í húsinu sem
Kjartan maður hennar hafði flutt
innan úr Djúpi og aukið við og
endurbætt meðan honum entist
heilsa til og þar sem hún hafði
komið börnunum sínum sex til
manns.
Það er með þakklæti og virðingu
sem við minnumst Guðrúnar
Guðnadóttur og hugur okkar er hjá
börnum hennar, tengdabömum og
afkomendum.
Guðni Albert Jóhannesson.
Nú er hún amma Gunna farin
til himna og við viljum þakka henni
fyrir allar þær stundir sem við átt-
um saman. Amma fékk að reyna
sitthvað í lífinu. Hún missti Kjartan
afa snemma frá mömmu okkar og
fimm systkinum hennar, en hún ól
bömin sín upp af miklum dugnaði
og elju sem í þá daga var ekki
auðvelt. Hún amma var ekki bara
fyrirmyndar amma sem hafði yndi
af að prjóna og átti alltaf bismark-
bijóstsykur upp í skáp, hún gekk á
skíðum á áttræðisaldri, stundaði
sund af kappi, málaði húsið, hélt
garðinum alltaf fallegum og setti
alltaf á hveiju vori niður í marga
kartöflugarða. Atið í henni var svo
mikið að fullfrískur maður átti fullt
í fangi með að fylgja henni eftir.
Orðasambandið „ekki hægt“ var
ekki til í hennar huga; hún gerði
bara hlutina.
Amma kenndi okkur að elska og
virða blómin og náttúruna. Okkar
fyrstu skref áttum við með henni
úti í garði að tala við blómin og
klappa þeim, en það reyndist ekki
svo gott að klappa kaktusinum í
blómabúðinni.
í huga Bjarka var amma alltaf
ein af fjölskyldunni; amma var allt-
af með á öllum ijölskyldumyndum
sem hann teiknaði. En nú er amma
verndarengillinn hans Bjarka eins
og hann tekur til orða.
Amma kenndi okkur bænirnar
og fór alltaf með þær með okkur
þegar við vorum hjá henni eða hún
hjá okkur. Elsku amma, það var
svo gott að hafa þig hjá okkur og
við munum alltaf minnast þín í
þessari bæn.
Nú legg ég augun aftur,
6, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson.)
Guð geymi þig og hvíl þú í friði.
Valdís og Bjarki.
Það ríkti alltaf mikil tilhlökkun
hjá okkur systkinunum þegar hald-
ið var af stað vestur á firði að heim-
sækja_ ömmu og Sörla afa á Flat-
eyri. Ávallt voru móttökurnar hlýj-
ar, annaðhvort komum við í heitan
kvöldmatinn eða seint um kvöld og
biðu okkar þá umbúin rúmin,
heimabakaðar kleinur og mjólk. Við
minnumst góðra stunda með ömmu
og fjölskyldunni er við fórum saman
til beija út á Klofning og útbjó hún
amma þá heilmikið nesti og heitt
kakó. Þetta voru góðar stundir sem
gleymast ei.
Rabarbarinn í fallega garðinum
hennar ömmu var mjög vinsæll hjá
okkur. Amma gaf okkur sykur í
skál sem við dýfðum honum í og
tókum stóran bita. Þetta þótti okk-
ur mikið lostæti þó oft fylgdi súr-
sætur svipur í kjölfarið. Aður en
haldið var aftur heim eftir notalegt
frí var tekin fjölskyldumynd í garð-
inum í fullum blóma og uppstopp-
aða lambinu í stofunni var klappað
og strokið í kveðjuskyni en okkur
krökkunum þótti mikið til þess
koma.
Við kveðjum ömmu okkar með
söknuði.
Blessuð sé minning hennar og
hafi hún þökk fyrir allt og allt.
íris Björk, Hulda Kristín,
Kjartan Arnald og Pálmar
Þór Hlöðversbörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR,
Álftamýri 52,
Reykjavík,
andaðist á Vífilsstaðaspítala 22. ágúst s.l.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Foreldra- og vinafélag
Kópavogshælis.
Þökkum öllum þeim, sem vottuðu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför hennar.
Þorsteinn P. Kristjánsson,
Gunnar Á. Kristjánsson,
Jóhann A. Kristjánsson,
Kristján Kristjánsson,
Kristbjörg L. Kristjánsdóttir, Páll Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Fjóla Jónsdóttir,
Sigrún Guðlaugsdóttir,
Lilja Oddsdóttir,
Systir okkar,
UNNUR BJARNADÓTTIR,
Kleppsvegi 34,
Reykjavfk,
andaðist fimmtudaginn 4. september.
Guðrún, Marfa og Guðfinna Bjarnadætur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, teng-
dafaðir og afi,
BJÖRN HELGI VÍGLUNDSSON,
Kolbeinsgötu 11,
Vopnafirði,
verður jarðsunginn frá Vopnafjarðakirkju
laugardaginn 6. september ki. 14.00.
Jarðsett verður að Hofi.
Geirlaug Valgerður Jakobsdóttir,
Jakob Björnsson, Linda Barbara Björnsson,
Björn Björnsson, Ragnheiður Guðrún Þórðardóttir,
Svanborg Björnsdóttir, Helgi Jóhann Þórðarsson,
Jónína Björnsdóttir, Sardar Davúdý,
og barnabörn.
Bróðir okkar og mágur,
FINNUR SIGURJÓNSSON,
fyrrv. bókasafnsvörður,
var jarðsettur í kyrrþey 21. ágúst s.l.
Þökkum fyrir samúð og hlýhug,
Henný D. Sigurjónsdóttir,
Pálfna Þ. Sigurjónsdóttir,
Jóhanna S. Ellerup,
og systrabörn.
Helgi Eiriksson,
Sigmundur R. Helgason,
Fróði Ellerup,
t
Ástkær frænka okkar og vinkona,
AÐALHEIÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR,
Hreimsstöðum
sem andaðist föstudaginn 29. ágúst, verður
jarðsungin frá Hvammi, Norðurárdal, laugar-
daginn 6. september kl. 14.00.
Sætaferöir frá BS( með Sæmundi kl. 11.00.
Ættingjar og vinir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN P. GUÐNADÓTTIR,
Ránargötu 8,
Flateyri,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 5. september kl. 13.30.
uuovarour Kjartansson,
Svanfrfður Kjartansdóttir,
Berta G. Kjartansdóttir,
Hlöðver Kjartansson,
Sólveig D. Kjartansdóttir,
Elfn O. Kjartansdóttir,
nomnuan fvjarianssony
Gunnlaugur Ragnarsson,
Guðmundur Þorleifsson,
Sveinbjörg Hermannsdóttir,
Kristján Jóhannesson,
Jóhann Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐLAUG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Brautarlandi 2,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju ( dag,
föstudaginn 5. september, kl. 10.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlega láti
hjúkrunarþjónustuna Karitas, I síma 551 5606, njóta þess.
Einar Guðbjörn Gunnarsson,
Guðrfður Elsa Einarsdóttir,
Inga Birna Einarsdóttir.