Morgunblaðið - 05.09.1997, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.09.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ I > } . y > P 1 J I .i I J J 3 i 4 4 4 4 4 4 4 4 BRÉF TiL BLAÐSINS Hljóð úr horni Frá Halldóri Kristjánssyni: ÞAÐ er töluvert rætt um neyslu áfengis um þessar mundir, einkum þó drykkjuskap unglinga. Umræð- an tekur á sig ýmiskonar svip. Henni fylgja líka margskonar kann- anir, t.d. á viðhorfum foreldra, feðra og mæðra, og hvað þeim þyki við hæfi. Meðal þess sem rannsóknir leiða í ljós er að 96% foreldra vilja að börn innan 16 ára drekki ekki áfengi og 29% foreldra vilja helst að börn sín byrji aldrei á neyslu áfengra drykkja. Að öðru leyti er það talsvert á reiki hvað fólki finnst um réttan eða heppilegan byijunar- aldur. Mörgum finnist það næsta fá- fengilegt að standa í athugun og umræðu um það hvort barnið byijar að drekka áfengi árinu fyrr eða seinna. Bindindishreyfíngin heldur því ákveðið fram, svo sem jafnan hefur verið, að spurningin sé ekki um hvenær eigi að byija, heldur hvort byija skuli nokkum tíma. Og þar eru enn í góðu gildi rökin um öryggið sem bindindinu fylgir. Sam- hliða því er svo áhættan sem fylgir neyslunni. Þetta hvort tveggja þekkja allir ef þeir aðeins vilja leiða hugann að því. Svo er almenningsálitið og áhrif þess. Því almennari sem áfengis- neysla er, því víðtækari eru slæmar afleiðingar hennar. Þess vegna ætti hver ærlegur maður að meta það hvort hann vill stuðla að meiri eða minni meðferð og notkun áfengis. Við erum öll þátttakendur í þjóðlíf- inu og verðum þar að taka afstöðu með eða á móti. Séum við hlutláus munu áhrif okkar leggjast með meiri hlutanum. Þeir skoðanalausu fara í meiri hlutann. Ofdrykkjan hófst með einu glasi Það er almenna reglan. Það ætl- ar enginn að verða ofdrykkjumað- ur. En þegar menn sjá hvernig mál þróast, drykkjuhneigð vex og nær valdi yfir mönnum sjá margir rök- rétt sannindi hlutanna. Vitur er sá er víninu hafnar Okkur er stundum sagt að hver og einn geti orðið alkóhólisti eins og við getum öll fengið sykursýki. Það er ekki satt. Það verður enginn háður áfengi nema hann venji sig við það. Hér gildir enn að úrræðin eru að veija fólk sýkingu. Þannig var útrýmt holdsveiki, sullaveiki og berklum. Sömu ráð duga við áfeng- issýkinni. Hver er sú vörn að vernda megi íslensk æskulýð? Þannig spyr margur og margt er þá sagt um forvarnir. En hér fellur allt að sama ósi. Forvarnir allar verða að byggjast á bindindi. Því verður svarið: Bindindið eitt verður oss að gapi, öruggt, óbrigðult. Heill skyldi hugur, hiklaus stefna þegar vegur er valinn. Óruggt ráð gegn eiturvímu býður bindindi þér. Válegur reynist vímuheimur. Hversu skal manntjóni mætt? Því vilja menn svara á ýmsa vegu en eitt er það svar sem alltaf á við: Eitt veit ég ráð sem aldrei bregst. Bindindi bjargað getur. Kjarni málsins er einfaldur og aðgengilegur. Bakkusar slóð er blóði drifin, háska og harmi merkt. Forvarnir engar fólki duga nema sé á bindindi byggt. Svo einfalt er það og ætti að vera auðskilið. Hugsaðu um heilafrumurnar, gálaust væri að granda þeim. Okk- ur er sagt að þær þoli illa áfengi og mætti um það langt mál letra. Stórdrykkja og steypiregn, oft var byijunin aðeins dropar. HALLDÓR KRISTJÁNSSON frá Kirkjubóli. BEST FRIEND’ T(2)&c/oG't2<? Tríumflh Ivmpli ÓLYMPÍA Laugavegi og ÓLYMPÍA Kringlunni i samvinnu vid STJÖRNUBÍÓ ætla að bjóða viðskiptavinum sem kaupa TRIUMPH undirfatnað dagna 5.-10. september á sérstaka forsýningu gaman- myndarinnar „MY BEST FRIENDS WEDDING" með Julia Roberts sem verður í Stjörnubiói þann 10. september kl. 21.00. GeriSykkur dagatnun, verið töjrandi i TRIUMPH og skellið ykkur d „MYBEST FRIENDS WEDDING “ /SljÖRNUBÍÓI. Ath. Boðsmiðamir gilda jýrir tvo og eru til staðar meðan birgðir endost. FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 47 ' ÞJOÐLEIKHUSIÐ Glæsilegt leikár að hefjast AFMÆLISTILBOÐ i Allir tínir uppákalasréttir á ótrúlegu verái þegarpú koráar á staónum. \ ... *. ?SaWs6sU Nýr stórgflæsilegfur karnamatseáill Fntt gos fyrir bömin þegar borðað er á staðnum. Grensásvegi 7 Sími 588 5400 -kjarni málsins! J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.