Morgunblaðið - 05.09.1997, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 53
FÓLK í FRÉTTUM
Furðufréttir
Rekinn fyrir Hitlersgrín
TÓNLISTARMAÐUR var rekinn frá þýsku óperuhúsi fyrir
skömmu eftir að hann kvittaði undir hótelreikning sinn
með nafninu Adolf Hitler. Atvikið gerðist á ferðalagi óper-
unnar um ísrael og olli athæfi mannsins almennri reiði
fólks. Ósvífni maðurinn heitir Gerd Reinke og segist hann
ekki muna eftir atvikinu enda hafi hann verið úrvinda eft-
ir þriggja og hálfs tíma undirleik við Töfraflautuna. Hann
hafi fengið sér áfengi með matnum á eftir og haldið drykkj-
unni áfram á hótelbarnum fram eftir nóttu. Hann hefur
þó beðist afsökunar á meintu athæfi og fullvissað alla um að hafi hann í
raun kvittað undir sem Hitler þá hafi það verið meinlaust grín.
Tii greina kemur að Reinke verði endurráðinn hjá óperunni og skipta
heimilisaðstæður hans þar mestu máli. Samúð fólks vaknaði nefnilega þeg-
ar í ljós kom að Reinke er einstæður tveggja barna faðir eftir að eigin-
kona hans lést úr krabbameini.
Krókódílatími í Flórída
HIÐ árlega tímabil krókódílaveiða hófst
nú í vikunni í Fiórída. Einn metri af krókó-
dílaleðri er seldur á um 4200 krónur og
kílóið af kjötinu selst á um 700 krónur
en að þessu sinni voru 728 veiðimenn til-
búnir með veiðileyfin sín.
„Við getum varla beðið eftir því að
byija,“ sagði Michael Higginbottom, sem
fékk veiðileyfi ásamt eiginkonu sinni. „Það
er áskorunin og spennan sem gerir þetta
skemmtilegt. Það eru líka alltof margir
krókódílar hér um slóðir.“ Veiðimennirnir mega ekki nota byssur og þurfa
því að notast við snörur, lásboga og skutla. Snör handtök þurfa því að
vera viðhöfð því um 225 árásir krókódíla á fólk og átta dauðsföll hafa
verið skráð síðustu 50 árin á þessum slóðum. Áætlað er að um ein milljón
krókódíla séu í votlendum Flórída en hver veiðimaður má drepa allt að fimm
krókódíla á ákveðnum svæðum í septembermánuði.
Hundalíf
FLÆKINGSHUNDUR í borginni St. Louis í Bandaríkjunum
hljóp um göturnar með tóma sælgætiskrús á hausnum í
fimm daga. ítrekaðar tilraunir höfðu verið gerðar til að
fanga og hjálpa hundinum en án árangurs.
Hundurinn hafði fest hausinn í krúsinni þegar hann hugð-
ist drekka riginingarvatn sem sest hafði á botn hennar.
Dýraverndunarsinnum tókst að lokum að ná hundinum, sem
var mjög skelkaður, og klippa krúsina af hausnum. Hundur-
inn, kallaður Cookie núna, er um þessar mundir að jafna sig í hundaathvarfi
og bíður þess að verða tekinn í fóstur af góðriljölskyldu.
Japönsk „Bonnie o g Clyde“
TVEIR japanskir unglingar voru nýlega handteknir eftir
tilraun til að fremja bankarán vopnuð hnífum. Það voru
17 ára gamall byggingaverkamaður og 16 ára skólastúlka
sem gengu inn í bankaútibú í Ishioka og hugðust ræna það.
Drengurinn gekk upp að viðskiptavini bankans og heimt-
aði algera þögn. Viðskiptavinurinn gekk hins vegar snar-
lega út úr bankanum og hið sama gerðu aðrir viðskiptavin-
ir. Því næst vippaði drengurinn sér yfir afgreiðsluborðið
og heimtaði peninga af gjaldkeranum sem var þegar búinn
að ýta á viðvörunarhnappinn. Þegar lögreglan mætti á
staðinn var drengurinn enn að veifa hnífnum í allar áttir
og stúlkan hvetjandi hann til að flýta sér. „Ég var í vondu skapi og vildi
skapa usla í bankanum,“ á drengurinn að hafa sagt við handtökuna.
Sólarvörn á mörgæsir
DÝRAGARÐUR neyddist
til að nota sólarvörn til
að vernda safn sitt af
mörgæsum í hitabylgu í
sumar. Hitinn varð til
þess að mörgæsirnar fóru
úr hárum að bera þurfti
sólarvarnarkrem á skalla-
blettina. Safn dýragarðsins í Edin-
borg varð til þegar sjómenn færðu
safninu mörgæsir. Dagleg „göngu-
ferð“ mörgæsanna eru nú eitt helsta
aðdráttarafl dýragarðsins.
Seagate ST 2,5 6B
Tilboð
kr. 19.900,-
net.co
Ármúli 7 ' www.netco.is
mmrmummnmTíMm
Helga Sigurbjörnsdóttir
kynnir nýju haustlitina
í Guerlain föstudag og
laugardag í snyrti-
vöruverslunni Clöru,
Kringlunni
Kringlan 8-12
FRAMTÍÐARBÖRN
G E F Ð U B A R N I N U Þ I N U
forskot
A FRAMTÍÐINA
Framtíðarbörn er tölvuskóli fyrir börn og
unglinga á aldrinum 4-14 ára. í hverjum hóp eru
aðeins 4-8 nemendur sem gerir mögulegt að nýta
vióurkenndar og þróaðar kennsluaóferðir.
Nemendur ganga í gegnum að minnsta kosti 800
námsmarkmið yfir veturinn. Þessum námsmark-
miðum er skipt eftir tíu meginsviðum tölvutækn-
innar. Námið er byggt upp eftir aldri og þroska
nemenda og þeim skipt niður í fjóra hópa; 4-5
ára, 5-8 ára, 8-11 ára og 11-14 ára. Öll börn og ung-
lingar geta skráó sig í skólann. Það er ekki skilyrði
aó eiga tölvu.
Námsefnið er þróað af fjölda sérfræðinga á sviði
kennslu og uppeldis- og tölvufræði og nýtt náms-
efni kemur frá Futurekids International á sjö
vikna fresti. Því hefur skólinn ávallt námsefni sem
enginn annar tölvuskóli getur boðið.
Kennslan fer þannig fram að nemendurnir upplifa
námið sem leik. í vetur er unnið eftir þema sem
er kallað „Fjölmiðlun Framtíðarbarnanna". Fjöl-
miðlun framtíðarbarnanna er ímyndað fyrirtæki
sem hefur sex fjölmiðla á sínum snærum og er
unnið við hvern miðil í sjö vikur. Mikil áhersla er
lögð á gæði kennslunnar og að nemendur læri í
gegnum uppgötvunarnám og eigin reynslu. Hver
einstaklingur fær að njóta sin en einnig er lögð
áhersla á samstarfshæfni í hópvinnu.
553 3322 er símanúmer Framtíðarbarna. Hringdu ef
þú vilt skrá barniö þitt í skólann eða til að fá nán-
ari upplýsingar. Símirm er líka opinn á kvöldin.
Þú getur einnig komið við á skrifstofu
Framtíðarbarna að Grensásvegi 13.
Gefðu barninu þínu tækifæri tn að
læra á heim tölvutækninnar. Gefðu
barninu þínu forskot á framtíðina.
Tíu meginsvið
töivutækninnar
• Töflureiknir
• Ritvinnsla
* Myndvinnsla
* Gagnagrunnar
• Forritun
» Umbrot og útgáfa
»Jaðartæki tölvunnar
* Hagnýting tölvunnar
• Margmiðlun
* Tölvusamskipti
Fjölmiðlun
Framtíðarbarnanna
• Tímarit
* Dagblað
• Útvarpsstöð
• Sjónvarpsstöð
* Margmiðlun
♦ Internetið