Morgunblaðið - 05.09.1997, Qupperneq 60
JieWiiM
-setur brag á sérhvern dag!
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Utanríkisráðherra segir bagalegt að
hafa ekki fastafulltrúa hjá ÖSE
4tætt um aðstöðu
í sendiráði Dana
Vísindaþing Norrænu mænuskaðasamtakanna
22% mænuskaðaðra
eru með mikla verki
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir afar bagalegt að Is-
land hafi ekki fastanefnd við Örygg-
is- og samvinnustofnun Evrópu
(ÖSE) í Vín. Rætt hafi verið við
dönsk stjórnvöld um að íslenzkur
fulltrúi fengi til bráðabirgða inni í
sendiráði Danmerkur í Vín. Fram-
búðarlausnin hljóti þó að vera ís-
lenzkt sendiráð í Vín.
ísland hafði fastanefnd hjá ÖSE
Íáður RÖSE) í Vín 1991-1994, en
íún var lögð niður í sparnaðar-
skyni og hefur fyrirsvar ÖSE-mála
verið í utanríkisráðuneytinu. „Það
er mjög bagalegt að hafa ekki
fastanefnd," segir Halldór. „Stofn-
unin hefur vaxandi hlutverki að
gegna og því friðarferli, sem fram
fer á óróasvæðum víða í álfunni, er
stjórnað af henni að hluta til. Rúss-
ar eiga aðild að ÖSE og samvinna
við þá á sviði öryggismála er því
mikil.“
Halldór segir að ísland sé nú eina
Evrópuríkið, sem ekki hefur fasta-
nefnd hjá ÖSE. „Við höfum minnzt
á við Dani að vera með mann hjá
þeirra sendiráði. Við höfum verið að
leita leiða til að finna ódýra lausn á
þessu,“ segir hann. „Það eru þó tak-
mörk fyrir því hvað við getum leyft
okkur í þessu sambandi, eigum við
að halda virðingu okkar. Framtíðar-
lausnin getur ekki orðið önnur en sú
að sendiherra verði í Vín.“
22% mænuskaðaðra kvörtuðu um
mjög mikla eða gífurlega verki í ís-
lenskri rannsókn á verkjum, fæmi
og lífsgæðum. Önnur íslensk rann-
sókn gefur til kynna að með reglu-
bundnu læknisfræðilegu eftirliti sé
hægt að draga úr fylgikvillum
mænuskaðaðra í hjólastól eftir út-
skrift af sjúkrahúsi. Rannsóknirnar
eru kynntar á vísindaþingi Nor-
rænu mænuskaðasamtakanna, sem
hófst í gær á Hótel Loftleiðum.
Úrtak fyrri rannsóknarinnar eru
mænuskaðaðir á árabilinu 1973 til
1995. Óskað var upplýsinga frá 60
manns og bárust þær frá 52.
Sigrún Knútsdóttir, einn rann-
sakenda, sagði að verkir væru
vandamál hjá 80% úrtaksins. ,Af
úrtakinu kvörtuðu 22% um mjög
mikla eða gífurlega verki. í þeim
hópi töldu 62% verkina tmfla allar
daglegar athafnir," sagði hún.
Samanburður erfiður
Óskar Ragnarsson, læknanemi,
og Guðmundur Geirsson, þvagfæra-
skurðlæknir, rannsökuðu tíðni fylgi-
kvilla hjá 35 mænusködduðum í
hjólastól. „Þótt samanburður við er-
lendar rannsóknir sé dálítið erfiður,
því að úrtök sjúklinga eru aldrei al-
veg sambærileg, teljum við að tíðni
fylgikvilla sé svo há að með reglu-
bundnu læknisfræðilegu eftirliti
megi draga úr henni,“ segir Óskar.
A þinginu kemur fram að tilraun-
ir með notkun fósturvísa við skurð-
aðgerðir vegna mænuskaða gefi
góða raun.
Meðal þeirra sem ávörpuðu gesti
þingsins við setningarathöfnina á
Hótel Loftleiðum í gær var banda-
ríski kvikmyndaleikarinn Christo-
pher Reeve, sem birtist á skjánum
með hjálp nútímatækni. Hann lam-
aðist fyrir neðan háls fyrir rúmum
tveimur áram, er nú virkur í stjórn
samtaka lamaðra í Bandaríkjunum
og hefur unnið ötullega að því að
safna fé til rannsókna og meðferðar
mænuskaða. í máli hans kom m.a.
fram að mænuskaðaðir stæðu á
þröskuldi mikilla framfara. Reeve
lauk ávarpinu á því að segja við-
stöddum að fara nú að drífa sig aft-
ur að vinna, þar sem ærin verkefni
biðu.
■ Mænusköðum fækkað/30-31
Verðbréfaþing
Næst mestu
* viðskipti á
einum degi
VIÐSKIPTI á Verðbréfaþingi námu
alis tæpum 2,4 milljörðum króna í
gær og eru þetta önnur mestu við-
skipti á þinginu frá upphafi. Mest
viðskipti urðu með húsbréf eða fyrir
tæplega 1 milljarð króna, viðskipti
með ríkisvíxla námu um 500 milljón-
um og spariskírteini tæplega 400
milljónum.
Aukin eftirspurn eftir húsbréfum
þrýsti niður ávöxtunarkröfu þeirra
um 4 punkta eða í 5,31%. Voru dæmi
um sölu á 250 milljónum í einu lagi
#j»(íem ekki er algengt á þinginu. Lík-
legt þótti að horfur á aukinni verð-
bólgu hefðu átt þátt í þessari eftir-
spurn, en því er nú spáð að verðbólg-
an geti orðið allt að 6% í september
miðað við heilt ár. Avöxtun spariskír-
teina lækkaði í takti við húsbréfin.
Hlutabréfaviðskipti urðu einnig
nokkuð lífleg og námu heildarvið-
skiptin um 100 milljónum. Þar vógu
þyngst viðskipti með bréf SR-mjöls
að fjárhæð um 40 milljónir. Þingvísi-
tala hlutabréfa hækkaði um 0,9%, en
mest hækkun varð á hlutabréfum
Haraldar Böðvarssonar eða 5%.
Morgunblaðið/Ásdís
KVIKMYNDALEIKARINN góðkunni, Christopher Reeve, sem lamaðist þegar hann féll af hestbaki fyrir rúmum tveimur árum, ávarpaði gesti
mænuskaðaráðstefnunnar í gær. Hann sagði mænuskaðaða standa á þröskuldi mikilia framfara.
Ungfrú Island og níu aðrir keppendur í Ungfrú Evrópu hættu við
Telja aðbúnað-
inn óviðunandi
TÍU keppendur af 43 í fegurðar-
samkeppninni um titilinn Ungfrú
Evrópa, þeirra á meðal sá ís-
lenski, hafa hætt við keppni og
flúið keppnisstaðinn þar sem
þeim finnst aðbúnaður og viður-
væri slæmt á hótelinu sem þeir
dvelja á í úljaðri Kiev í tíkraínu.
Skipuleggjendur keppninnar
segja að hún verði eigi að síður
haldin.
Elín Gestsdóttir, framkvæmda-
stjóri Fegurðarsamkeppni ís-
•o-piands, staðfesti að Harpa Lind
Harðardóttir hefði yfirgefið
tíkraínu og væri væntanleg heim
á morgun, laugardag. Hún sagð-
ist hafa verið í sambandi við
Hörpu, af henni væri allt gott að
frétta og beðið væri nánari upp-
lýsinga frá skipuleggjendum
keppninnar um hvað gerst hefði.
-«Llín sagði að aldrei hefði fallið
blettur á fyrirtækið sem sér um
framkvæmd keppninnar og taldi
eitthvað hafa komið upp sem væri
utan áhrifasviðs þess.
Fyrrverandi orlofsstaður
kommúnistaflokksins
í frétt Reuter-fréttastofunnar
segir að keppendur frá Englandi,
Wales og Irlandi hafi kvartað yfir
því að ekki skyldi skipt um rúm-
föt á hótelherbergjum þeirra í
viku og að brauð sem þeim hefði
verið borið hefði verið skemmt.
Þær hafi einnig óttast um öryggi
sitt og verið dregnar á nætur-
klúbb og þeim þrýst til að dansa
þar við ókunnuga menn.
Stúlkurnar bjuggu á hóteli sem
var orlofsstaður kommúnista-
flokksins fyrrverandi, rétt utan
við borgina. Auk þeirra hafa
Norðurlandastúlkurnar hætt við
keppni og stúlkur frá Þýskalandi
og Sviss. Haft er eftir talsmanni
fyrirtækisins, sem sér um keppn-
ina, í frétt Reuters að búið hafi
verið að samþykkja keppnisstað-
inn af réttum aðilum, rétt væri að
Kiev státaði ekki af fimm stjarna
hótelum enda berðist landið í
bökkum efnahagslega eftir að
hafa fengið sjálfstæði sitt frá Sov-
étríkjunum árið 1991. Þá segir
hann einnig að heimsókn í um-
ræddan næturklúbb hafi verið á
dagskrá stúlknanna og þeim hefði
átt að vera ljóst að þeim bæri að
fara þangað.
Ólafur Laufdal, sem í áraraðir
hefur haft afskipti af fegurðar-
samkeppnum, segir að franskir
skipuleggjendur keppninnar hafi
áratuga reynslu, hafi ávallt sýnt
vönduð vinnubrögð og ekki mátt
vamm sitt vita. Segir hann Evr-
ópukeppnirnar hafa verið haldn-
ar víða og ávallt hafi aðbúnaður
verið óaðfinnanlegur. Stundum
hafi komið upp vandamál en þau
hafi ávallt tekist að leysa. Hann
benti á að hér væri um framandi
land að ræða og matur og aðbún-
aður gæti verið frábrugðinn því
sem stúlkurnar ættu að venjast.
Ljósmynd/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Breski herinn
í rallinu
SEX breskir herjeppar eru í
Kumho alþjóðarallinu sem hefst
kl. 15 í dag við Perluna. Mæta
þeir þriðja árið í röð og nú á
hvítmáluðum Land Rover jepp-
um. Þeh- ljúka breska meistara-
móti hennanna í raUakstri með
því að keppa hér á landi.
■ Alþjóðarall/B4