Morgunblaðið - 13.09.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.09.1997, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Italskt skemmti- ferðaskip við Miðbakka SKEMMTIFERÐASKIPIÐ Silver Cloud kom til Reykjavíkur á fostudag með 260 farþega. Silver Cloud er í eigu ítalsks fyrirtækis og hefur ekki verið siglt til ís- lands áður að sögn Franciscos Parro skipsvarðar, sem leiddi blaðamann og ljósmyndara um vistarverur skipsins. Siðdegis í gær var ferðinni sfðan heitið til Corner Brook. Pláss er fyrir 296 farþega um borð og segir Parro að um 80% gestanna séu Bandaríkjamenn og meðalaldur 65 ár. Ekki er fyrir hvern sem er að kaupa sér sigl- ingu með silfurskýi Italanna, 14 daga sigling frá Edinborg til Montreal kostar til dæmis frá 630 þúsundum upp í 710 þúsund krón- ur í ódýrustu vistarverum og milli 1.200 og 1.300 þúsund sé gist í konunglegu svítunum. Fáir farþegar voru um borð þegar skipið var skoðað enda var þeim gefínn kostur á að ganga um höfuðborgina, synda i Bláa lón- inu, skoða Gullfoss og Geysi, Þingvelli og fara á jökul. Ferðin hefst í Leith, hafnar- hverfi Edinborgar, og haldið sem leið liggur til Kirkwall, Þórshafn- ar, Heimaeyjar, Reykjavíkur, Corner Brook, Québec og endað í Montreal í Kanada. Verslun, spilavfti, hlaupabraut, leik- og kvikmyndahús Um borð í skipinu eru tveir matsalir, þrfr barir, verslun með fötum, snyrtivörum og skartgrip- um, spilavfti, leik- og kvikmynda- hús, sundiaug, lfkamsræktarstöð, hlaupabraut, sauna-pottar, nudd- og snyrtistofa. Parro segir að gestir ráði hjá hverjum þeir sitja við borðhaldið í aðal veitingasalnum í stað þess að skaffa þeim sömu borðfélagana alla ferðina, sem gera á fólki auð- veldara að blanda geði við sem flesta meðan á siglingunni stend- ur. Drykkjarföng á börum og í veitingasölum skipsins eru líka innifalin í verði að hans sögn til þess að einfalda bókhald í skips- haldinu og veita farþegum tæki- færi til þess að bjóða samferða- fólki sínu upp á hressingu án þess að þurfa að hafa áhyggjur af kostnaði. Á skipinu er bókasafn þar sem hægt er að fá lánaðar bækur á fjölda tungumála, myndbönd og fá aðgang að tölvu. Hvert herbergi er búið sjónvarpi og myndbands- tæki og einnig geta sæfarendur stytt sér stundir í leikhúsinu og spilað bingó, lært dans, matreiðslu og hlustað á fyrirlestra um áfangastaðina sem þeir eiga eftir að heimsækja, bæði um landfræði- lega staðhætti og menningu. 205 í áhöfn Breitt var yfir útisundlaugina þegar Silver Cloud lá við Mið- bakka á föstudag og enginn sjáan- legur á barnum við Iaugarbakk- ann, enda norðvestankaldi og hitastigið lágt. Parro sagði unnið að viðhaldi á lauginni og þar í kring við slíkar aðstæður því skipið er á stöðugri siglingu. Silver Cloud var smíðað árið 1994, skráð á Bahama-eyjum og ítalfu. í áhöfn eru 205 manns og yfirmenn eru allir ítalskir. Skipið vegur tæp 17 tonn, er 157 metrar á lengd og 22 metrar á breidd. Aðstaða er fyrir farþega á sex þil- förum og hámarkshraði skipsins er rúmir 20 hnútar. króna afslátt á BJC-4550 A3 litableksprautuprentara! „ Tilboðsverð: Canon BJC-45§j) A3 lita-bleksprautu. Ljósmyndagæði 2ja hylkja kerfi ireiuarj.. 720 dpi upplausn 4.5 bls/mín I dag færð þú V- veibiuil heimilanna Rett vltó kr. ‘19.900 Fuafeni 5 - Simi 533 2323 tolvukjor@itn.it FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís Glæsiskip ÍTALSKA skemmtiferðaskipið Silver Cloud lá við Miðbakka í rúman sólarhring. Nokkrir gestir af 260 fundust í kaffiterí- unni. Hinir voru í skoðunarferð. Um borð er ieikhús þar sem skemmtiatriði eru flutt, kvik- myndir sýndar, haldnir fyrir- lestrar, kennd matreiðsla, dans og spilað bingó og auk þess eru þrír barir í skipinu og drykkj- arföng eru án aukagjalds fyrir farþega. Listræn tíðindi á Litla sviðinu Morgunblaðið/Þorkell ÁRNI Pétur og Þórhallur léku af innlifun og einlægni og var sam- leikur þeirra mjög góður. LEIKLIST Leikfélag Reykjavfkur ÁSTARSAGA3 eftir Kristfnu Ómarsdóttur. Leik- sfjóri: Auður Bjarnadóttir. Leikar- ar: Árni Pétur Guðjónsson, Þor- steinn Gunnarsson og Þórhallur Gunnarsson. Leikmynd og búning- ar: Þórunn Jónsdóttir. Lýsing: Lár- us Björnsson. Leikhljóð: Ólafur Örn Thoroddsen. Tónlistarval og ráðgjöf: Hákon Leifsson. Litla svið Borgarleikhússins, föstudagur 12. september KRISTÍN Ómarsdóttir er ein af fáum íslenskum rithöfundum sem hefur haslað sér völl innan allra þriggja höfðuðgreina bókmennt- anna: sem sagnahöfundur, ljóð- skáld og leikritahöfundur. Hún er jafnframt meðal eftirtektarverð- ustu höfunda af yngri kynslóð og hefur sterka sérstöðu hvað varðar yrkisefni og efnistök. Fyrsta leik- verk Kristínar, Draumar á hvolfi, var verðlaunaður einþáttungur sem frumsýndur var í Þjóðleikhús- inu fyrir tíu árum. Ástarsaga 3 er fjórða leikverk hennar sem tekið er til sýninga. Á þessum tíu árum hefur Kristín vaxið mjög sem höfundur og er Ástarsaga 3 tvímælalaust með því besta sem hún hefur skrifað. Texti þessa verks er vandaður, feikilega ljóðrænn og fallegur á köflum; margræður og sterkur. Sýningin, sem er frumraun leikstjórans, Auð- ar Bjamadóttur, á þessu sviði, er öll unnin í anda textans, þannig að útkoman er ljóðræn heild sem un- un er að horfa á og njóta. Reynsla Auðar af því að vinna með hið Ijóð- ræna form dansins hefur vafalaust átt mikinn þátt í að skapa þá fal- legu heild sem sýningin öll ber vitni. Sviðsmynd Þórunnar Jóns- dóttur er einnig í þessum anda og búningar hennar ríma vel við bæði ljóðrænu og húmor textans. Þór- unn hannar búningana þannig að þeir hafa táknræna skírskotun, en aldrei þó þannig að táknin beri per- sónumar ofurliði. Hljóðvinnsla Ólafs Arnar Thoroddsen er einnig mjög vönduð og sannfærandi, og tónlist vel valin hjá Hákoni Leifssyni. Lýsingu annaðist Láms Bjömsson og átti hún stóran hlut í hinni ljóðrænu heildarmynd. Ljóðræna, fáránleiki (absúr- dismi) og húmor hafa löngum sett sterkan svip sinn á verk Kristinar Ómarsdóttur, en þetta verk er að mörgu leyti „raunsæjara" en fyrri leikverk Kristínar, hvað varðar uppbyggingu samtala og sögu- þráðs. Ljóðrænan og húmorinn era á sínum stað, en hið absúrda hefur vikið nokkuð. Að því leyti er þetta verk „aðgengilegra" en fyrri leik- verk hennar. Ástin er það grannstef sem verkið er unnið út frá og samspil ástar og vináttu, ástar og ofbeldis, ástar og dauða, ástar og veruleika eru meðal þeirra efna sem eru í forgranni verksins. Textinn býður hins vegar upp á ótal hugrenninga- tengsl og þ.a.l. ótal túlkunarmögu- ieika. Leikhúsið sjálft er í stóru hlutverki (enda persónurnar leik- arar) og leikið er með samspil leiks og raunveraleika og mörkin þama á milli era langt frá því alltaf ljós. í uppbyggingu er verkið nokkuð flókið en mjög fagmannlega saman sett: Tveir ungir menn, leikarar, eru að leika í leikriti um tvo unga menn, homma, og mörkin milli „veruleikans" og „leiksins" eru oft á tíðum óljós. I þessum tvöföldu hlutverkum eru þeir Ámi Pétur Guðjónsson og Þórhallur Gunnars- son. Einnig mætir til leiksins „sögumaður", leikinn af Þorsteini Gunnarssyni, sem bregður sér í mismunandi gervi og hefur sín áhrif á framvinduna. Leikararnir þrír eiga allir mikið hrós skilið fyrir sína vinnu. Þor- steinn Gunnarsson var frábær í öll- um sínum gervum og fór hann kostulega með „klisjurnar" sem hann oft á tíðum túlkaði. Einnig fór hann vel með „viðkvæmari" hluta sinnar rullu þar sem ljóðrænustu hlutar textans voru lagðir honum í munn. Árni Pétur og Þórhallur léku af innlifun og einlægni og var samleikur þeima mjög góður. Þeim tókst að skapa ólíkar persónugerð- ir og vora sannfærandi bæði í hlut- verkum leikaranna og persónanna sem „leikararnir léku“. Þótt verkið fjalli fyrst og fremst um ástarsamband karla, tekst Kristínu gæfusamlega að stýra fram hjá öllum hommaklisjunum, eða öllu heldur leikur hún sér að klisjunum, gerir þær sýnilegar og hlægilegar (í gegnum hlutverk sögumannsins). Verkið hefur líka ótvírætt „sammannlega" skírskot- un og geta allir, hvers kyns sem þeir era, samsamað sig þeim til- finningum og átökum sem það lýsir. Þessi sýning er með athyglis- verðustu sýningum sem undirrituð hefur séð í langan tíma. í heild er hún listrænt afrek, öllum aðstand- endum til mikils sóma. Ástarsaga 3 er leikverk sem telst til tíðinda í sögu íslenskrar leikritunar, bæði hvað varðar efni og stíl, og ég hvet alla sem unna góðum texta og lif- andi leikhúsi að láta sýninguna ekki fram hjá sér fara. Soffía Auður Birgisdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.