Morgunblaðið - 13.09.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997 11
AKUREYRI
Helgi Símonarson á Þverá í
Svarfaðardal 102 ára í dag
Saknar enska
fótboltans
HELGI Símon-
arson á Þverá í
Svarfaðardal er
102 ára í dag.
Hann fæddist
13. september
1895 að Gröf í
Svarfaðardal.
Helgi er við
góða heilsu þótt
bæði sjón og
heyrn séu að-
eins farin að
daprast.
Helgi keypti
Þveráárið 1930
og bjó þar með
kýr og kindur,
auk þess sem
hann stundaði
kennslu á Dal-
víkí 19 ár ogá
Árskógsströnd í
1 ár. Helgi er
enn á Þverá en
hann hætti bú-
skap árið 1972.
Þar búa nú félagsbúi Símon
sonur hans og Guðrún Lárus-
dóttir, dótturdóttur hans.
Mikill íþróttaáhugamaður
Guðrún sagði í samtali við
Morgunblaðið að afi sinn ætlaði
að fara á Urðarrétt í dag (í
gær) og á Tungurétt á morgun,
sunnudag, ef veður leyfði. Helgi
hefur aðeins einu sinni þurft að
leggjast inn á sjúkrahús en það
var fyrir fáum árum og dvaldi
hann þar í skamman tíma.
Helgi hefur
verið mikill
íþróttaáhuga-
maður alla tið og
hann fylgist með
öllum íþróttum í
sjónvarpi. Enska
knattspyrnan
hefur verið í
miklu uppáhaldi
hjá honum og
hann hefur hrif-
ist sérstaklega af
liði Liverpool.
Guðrún segir að
það hafi því ver-
ið honum mikil
vonbrigði er
Stöð 2 og Sýn
keyptu sýningar-
réttinn á ensku
knattspyrnunni,
þar sem útsend-
ingar þeirra
stöðva nást ekki
í Svarfaðardal.
Hitti nemendur sína í sumar
Nemendur Heiga í gamla
barnaskólanum á Dalvík fyrir
um 60 árum, sem verða 70 ára
á þessu ári, héldu upp á þau
tímamót í sumar og komu sam-
an í gömlu skólastofunni ásamt
gamla kennaranum sínum.
Helgi giftist Maríu Stefáns-
dóttur hinn 4. júní 1927 en hún
lést 20. nóvember 1963. Þau
eignuðust 6 börn, upp komust
þrjú þeirra en aðeins eitt þeirra
er á Iífi.
Morgunblaðið/Kristján
HELGI Símonarson á
Þverá er hinn hressasti
þrátt fyrir háan aldur.
Morgunblaðið/Knstján
Haustskipið
SKEMMTIFERÐASKIPIÐ En-
chantment of the Seas frá Nor-
egi kom til Akureyrar í gær-
morgun og er þetta jafnframt
síðasta viðkoma skemmtiferða-
skips á þessu sumri. Eyjafjörður
var heldur kuldalegur á að líta
er skipið sigldi inn fjörðinn,
snjór niður fyrir miðjar hlíðar
og hitastigið rétt ofan frost-
marks.
Enchantment of the Seas er
stærsta skemmtiferðaskipið sem
heimsótti Akureyri í sumar, rúm
74 þúsund tonn og 280 metrar
að lengd. Um borð voru á milli
1.800 og 1.900 farþegar og um
800 manna áhöfn. Frá Akureyri
hélt skipið til Reykjavíkur en
þaðan verður haldið áfram vest-
ur um haf, til Halifax í Kanada.
Málþing um barnabækur
13. september 1997 kl. 14.00 í háskólabóka-
safninu á Akureyri, nýju húsnæði á Sólborg.
Fyrirlesarar:
Silja Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur.
Margrét Tryggvadóttir, bókmenntafræðingur,
Kristín Unnsteinsdóttir, skólasafnkennari,
Magnea frá Kleifum, rithöfundur.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
MESSUR
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 á morgun, sunnudaginn
14. september. Sr. Svavar A. Jóns-
son. Barnakór Akureyrarkirkju er
að hefja vetrarstarfið og verða
æfíngar í kapellu kirkjunnar kl.
15.30-16.30 á fimmtudögum.
Stjórnandi er Jón Halldór Finns-
son, börn eldri en 9 ára velkomin.
GLERÁRKIRKJA: Messa verður í
kirkjunni kl. 14 á morgun, sunnu-
dag. Fermd verður Helga Hrönn
Þórðardóttir, Stapasíðu 13c, Akur-
eyri. Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma kl. 20 annað kvöld, allir
velkomnir.
HVÍT ASUNNUKIRKJ AN: Al-
menn samkoma, ræðumaður G.
Theodór Birgisson á morgun,
sunnudag, kl. 14. Krakkakirkja
verður meðan á samkomu stendur
fyrir 6 til 12 ára krakka og barna-
pössun fyrir börn frá eins til fimm
ára.
Samkoma kl. 20.30 á miðvikudag,
samkoma í umsjá ungs fólks kl.
20.30 á föstudag. Bænastundir eru
á mánudags-, miðvikudags-, og
föstudagsmorgun frá klukkan 6-7
og þriðjudag og fímmtudaga kl.
14. Allir velkomnir. Vonarlínan,
sími 462-1210, símsvari allan
sólarhringinn með orð úr ritning-
unni sem gefa huggun og von.
KAÞÓLSKA KRIKJAN, Eyrar-
landsvegi 26: Messa kl. 18 í dag,
laugardag, og á morgun, sunnu-
dag, kl. 11.
ÓLAFSFJARÐARKIRKJA: Messa
kl. 14 á morgun, sunnudag. Síð-
asta messa í kirkjunni fyrir fram-
kvæmdir. Gamla kirkjan kvödd.
Sr. Sigríður Guðmarsdóttir.
Ef þú ert á aldrinum 9-18 ára og vilt komast 1 góðe
félagsskap, skemmta þér með hressum krökkum v
leiki og störf, læra að þjarga þér úti í náttúrunni, f£
1 gönguferðir og útilegur, læra að binda hnúta og
súrra, læra skyndihjálp eða rötun, taka þátt 1
umhverfisverkefnum, kvöldvökum, varðeldum
skátamótum, eða jafnvel taka þátt 1 alþjóðle
skátastarfi?
Er bá skátastarf ekki eitthvað fyrir þig?
Hafðu samband við skátana á þínu
heimasvæði. Flest skátafélög hafa opið h
laugardaginn 13. sept. milli kl. 13 og 16.
W ít
f^éw w
j I p/ / |/yl
ivr
BANDALAG ISLENSKRA SKATA