Morgunblaðið - 13.09.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.09.1997, Blaðsíða 40
' 40 LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR Á MORGUN Guðspjall dagsins: Sonur ekkjunnar í Nain. (Lúk. 7.) ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guð- mundsson, Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Organleikari Bjarni Jónatansson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs- þjónusta kl. 10.15. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Árni Arinbjarnarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Hörður Áskelsson. Sr. Karl Sigurbjörnsson. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Jóna Kristín Bjarnadóttir og Jó- hanna Thorsteinsson syngja tví- söng. Organisti Pavel Manasek. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11. Sr. Gylfi Jónsson messar. Valgerður Guðrún Guðnadóttir syngur ein- söng. Kaffisopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Sögustund fyrir börnin. Félagar úr Kór Laugarneskirkju syngja. Organisti Gunnar Gunnars- son. Kvöldmessa kl. 20.30. Kór Laugarneskirkju ásamt einsöngv- urum syngur. Djasskvartett leikur frá kl. 20 undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Jón Dalbú Hró- bjartsson. NESKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Halldór Reynisson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Viera Manasek. Prestur sr. Hildur Sigurðardóttir. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðs- þjónustga kl. 14. Barnastarf á sama tíma. Veitingar eftir messu. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Útvarpsguðsþjónusta. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfs- son. Jasstónverk koma í staðinn fyrir hefðbundinn orgelleik og kór- söng. Tónlistarflutningur er í hönd- um Egils Ólafssonar og tríó Björns Thoroddsens. Allir hjartanlega vel- komnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Samkoma ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Kjartan Sigurjónsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð- mundur Karl Ágústsson. Organisti Lenka Mátéová. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti Hörður Braga- son. Vigfús Þór Árnason. HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Alt- arisganga. Sr. Hjörtur Hjartarson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Kristjáni Einari Þorvarð- arsyni. Kór Hjallakirkju syngur. Organisti Oddný Jóna Þorsteins- dóttir. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. „Frumbyggjamessa". Allir eru hjartanlega velkomnir. En sérstaklega er vænst þátttöku frumbyggja Kópavogs og þeirra sem lengi hafa búið í bænum. Samvera í félagsheimili Kópavogs eftir messu. Þar munu ömmurnar .syngja og kaffi verður selt vægu verði. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Irma Sjöfn Oskarsdóttir predikar. Organisti Ólafur W. Finnsson. Sóknarprestur. Fríkirkjan í Reykjavík FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Pavel Smid. Cecil Haraldsson. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Á morgun kl. 17 almenn fagnaðar- samkoma fyrir kristniboðana Benedikt Jasonarson og Margréti Hróbjartsdóttur. Kjartan Jónsson talar. Barna- og unglingasamverur. HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelf- ía: Almenn samkoma kl. 16.30. (Ath. breyttan samkomutíma). Ræðumaður Dögg Harðardóttir. Allir hjartanlega velkomnir. KLETTURINN: Krakkakirkja kl. 11. Samkoma kl. 20. Allir velkomnir. MESSÍAS-FRI'KIRKJA: Rauðarár- stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl. 20. Altarisganga öll sunnudags- kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn Ragnarsson. KAÞÓLSKA KIRKJAN: KRISTSKIRKJA, Landakoti: Mess- ur sunnudaga kl. 10.30, 14 og 20 (á ensku). Laugardaga og virka daga messur kl. 8 og 18. MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8: Messa sunnudag kl. 11. Messa laugardag og virka daga kl. 18.30. GARÐABÆR, Holtsbúð 87: Messa sunnudag kl. 10 á þýsku. Laugar- dag og virka daga messa kl. 7.15. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa sunnudag kl. 10.30. Messa virka daga og laugardaga kl. 18. KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði: Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa laugardaga og virka daga kl. 8. BARBÖRUKAPELLA, Keflavik: Messa sunnudag kl. 14. STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7: Messa sunnudag kl. 10. Messa laugardag og virka daga kl. 18.30. ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al- menn samkoma kl. 11. Ræðumað- ur Ásmundur Magnússon. Fyrir- bænaþjónusta/bænaklútar. Allir hjartanlega velkomnir. FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM- ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17. HJÁLPRÆÐISHERINN: Bæna- stund sunnudag kl. 19.30. Hjálp- ræðissamkoma kl. 20. Karina og Erik Petersen stjórna og tala. VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kór kirkjunnar leiðir almenn- an safnaðarsöng. Organisti Jóhann Baldvinsson. Guðrún Þórarins- dóttir leikur á víólu. Hans Markús Árnason. BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Börn borin til skírnar. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Kórstjóri John Speight. Organisti Þorvaldur Björnsson. Hans Markús Árnason. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Arnfríður Guðmundsdóttir. Sigurður Helgi Guðmundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11.00. í upphafi ferm- ingarstarfs. Sr. Þórhildur Ólafs og sr.Gunnþór Ingason þjóna fyrir alt- ari. Sr. Þórhallur Heimisson pred- ikar. Vænst er þátttöku fermingar- barna og foreldra þeirra. Kirkjubækur afhentar í kaffi í safn- aðarheimilinu eftir stundina. Tón- listarguðsþjónusta kl. 18.00. Prest- ur: sr. Þórhildur Ólafs. FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna- samkoma kl. 11. Kynningarguðs- þjónusta og fundur með ferming- arbörnum og foreldrum kl. 14. Örn Arnarson og hljómsveit leiða söng. Einar Jónsson. STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl. 14. Sóknarprestur. HOLTSPRESTAKALL í Önundar- firði: Guðsþjónusta kl. 14. Barn borið til skírnar. Organisti Brynjólf- ur Árnason, Vöðlum. Sr. Gunnar Björnsson. HVALSNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Börn borin til skírnar. Fyrirbænir. Organisti Ester Ólafs- dóttir. Hjörtur Magni Jóhannsson. ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Væntanleg fermingarbörn og foreldrar þeirra eru hvött til að koma og fermingarstörfin verða kynnt í lok guðsþjónustu. Organ- isti Ester Ólafsdóttir. Hjörtur Magni Jóhannsson. GARÐVANGUR: Dvalarheimili aldraðra í Garði. Helgistund kl. 15.30. Kirkjukór Hvalsneskirkju syngur. Hjörtur Magni Jóhanns- son. ÍPAG VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Heimaumönnun barna FYRIR hönd mikils fjölda ungra kvenna og bama fer ég þess eindregið á leit við ráðamenn að ung kona sem vill frekar vera heima hjá barni sínu eða börnum en við vinnu utan heimilis, geti sótt um og fengið lán, hliðstætt lán- um sem námsmenn fá og með svipuðum endur- greiðslukjörum. Ég hafna hugmynd- inni um að feður gangi inn í fæðingarorlof móð- ur þannig að hún víki af heimili. Vita menn að lík- ami konu er eitt til tvö ár að ná sér eftir barns- burð. Rannveig Tryggvadóttir. Tapað/fundið Pro-style hjól týndist SVART Pro-style 3000 fjallahjól hvarf um dag- inn frá heimili mínu Sel- vogsgrunni 12. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hjólið geta hringt í Jóa í síma 568-2453. Fundarlaunum heitið. Hlaupahjól týndist HLAUPAHJÓL, svart með röndum, hvarf frá Brúnastekk 4, Breiðholti, aðfaranótt 31. ágúst. Hjólsins er sárt saknað. Þeir sem hafa orðið varir við hjólið vinsamlega hringi í síma 557-4157. Myndavél týndist PANASONIC mini- myndavél týndist í Kaldalóni við Isafjarðar- djúp 20. júlí. Þeir sem hafa orðið varir við myndavélina hafí sam- band í síma 554-1937. Leðurlyklaveski týndist DÖKKBRÚNT leður- lyklaveski tapaðist sl. mánudag í vesturbæn- um. Skilvís fínnandi vin- samlega hringi í síma 551-2929. Dýrahald Tómasína er týnd ÞESSI kisa týndist úr Skipasundi 20. ágúst en sást síðast í Vogahverfí. Hún er steingrá með hvítan blett í andliti, hvít- ar loppur og hvíta bringu. Hún var með bleika ól og merkt Tóm- asína. Hennar er sárt saknað og því bið ég fólk sem býr í grenndinni að líta í kringum sig. Finnandi hringi í síma 557-6367. Kettlingur fæst gefins SVÖRT og hvít, 6 mán- aða læða, fæst gefins. Uppl. í síma 567-0824 eftir kl. 17. Sandra er týnd! SANDRA er 3ja ára læða sem hvarf frá Hjarðart- úni 12 í Ólafsvík 3. sept- ember, þar sem hún var í pössun. Hún er gráb- röndótt og hvít. Hún var með appelsínugula ól og eymamerkt R6161. Þeir sem hafa orðið varir við hana hafí samband í síma 567-6569. Kettlingar fást gefins TVÆR 2ja mánaða kassavanar læður vantar gott heimili. Uppl. í síma 557-2106. BRIDS Umsjön Guómundur Páll Arnarson „MÍN uppáhaldsspil eru þau þar sem ég get lokkað and- stæðingana til að veita mér aðstoð," segir Zia Mahmood í grein í ítalska bridsblaðinu og dregur fram skemmtilega endurminningu: Austur gefur; NS á hættu. Norður ♦ G874 Y ÁG985 ♦ 94 ♦ 62 Suður ♦ ÁK932 f D104 ♦ KIO ♦ K103 Spilið kom upp í rú- bertubrids og eftir pass austurs og spaðaopnun suð- urs, varð Zia sagnhafi í fjór- um spöðum. Útspil vesturs var smár tígull upp á ás austurs, sem spilaði meiri tígli. Gefum nú Zia orðið: „Ég tók ÁK í spaða, báð- ir með, og austur kom með D10. Góð byrjun. Hættan er auðvitað sú að gefa slag á hjarta og tvo á lauf í við- bót við tígulásinn. Ef ég get fríað hjörtun til að henda laufum, er þetta í lagi, og vestur má alveg fá á hjarta- kónginn, því hann gerir ekkert illt af sér í laufinu. 4 Ég spila því hjartadrottn- " ingu og tek með ásnum, sem er smá öryggisráðstöf- un ef austur skyldi eiga kónginn blankan. Svo spila ég lághjarta frá blindum. Austur hugsar aðeins og lætur svo lágt og ég fæ slaginn á tíuna. Eg er um það bil að spila meira (. hjarta, en stansa þó til að fara yfír stöðuna. Austur er búinn að sýna tígulás, ( spaðadrottningu og hjarta- kóng. Því getur hann ekki átt laufásinn, fyrst hann opnaði ekki. Og spilið er dæmt til að tapast ef ég spila hjarta. En hvað annað get ég gert? Allt í einu sé ég lausnina: Ég spila laufkóng. Vestur tekur á ásinn og svo drottn- ( inguna og í hana set ég < tíuna! Vestur virðist ekkert . botna í skiptingunni í láglit- * unum, hugsar aðeins og spilar tígli. Trompað í borði, hjartanu hent heima, hjarta trompað og blindur stend- ur: Norður ♦ G874 f ÁG985 Vestur ♦ 94 ♦ 62 Austur ♦ 65 ♦ DIO V 73 llllll ▼ K62 ♦ D8763 ♦ ÁG52 ♦ ÁDG9 ♦ 8754 Suður ♦ ÁK932 f D104 ♦ KIO ♦ K103 I 60. Hel - (12 61. Hdl - Kd3 62. f4 - f6 63. fxg5 — fxg5 64. Kf2 — Bb3 og hvítur gafst upp. Teflt er frá kl. 17 á virk- um dögum og kl. 14 um helgar. Frí er á mótinu mánudaginn 15. september, en þvf lýkur laugardaginn 20. september. isianas. Keppni þar stendur nú yfír í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Rúnar Sig- urpálsson (2.275) var með hvítt, en Sævar Bjarnason hafði svart og átti leik. Hvít- ur lék síðast 57. Bg2-fl og ógnaði hvíta hróknum á d3. 58. - Kd4! 59. SKÁK Umsjön Margeir Pétursson ÞETTA endatafl kom upp í landsliðsflokki á Skákþingi I i Bxd3 — exd3 SVARTUR leikur og vinnur Víkverji skrifar... AÐ er ótrúlegt hversu misjöfn þjónusta og viðmót starfs- manna getur verið milli fyrirtækja og jafnvel milli einstakra útibúa sama fyrirtækis. Víkverji er til að mynda ekki einn um að hafa haft orð á þvf hversu lipur og þægileg þjónusta Pósts og síma í útibúi fyr- irtækisins í Kringlunni er. Starfsmenn líta greinilega á það sem hlutverk sitt að koma til móts við þarfir viðskiptavinanna og eru sífellt boðnir og búnir til að veita ráðgjöf og aðstoð. Á hinn bóginn hefur Víkvetji ávallt lent í hinum mestu hremm- ingum er hann hefur orðið að eiga samskipti við tollpóststöðina í Ar- múla. Það starfslið er orðið hefur á vegi Víkvetja virðist líta á það sem hlutverk sitt að gera þeim er leita þurfa á náðir þessarar stofnun- ar lífíð leitt ef þess er einhver kost- ur. Enginn vilji virðist vera til að sýna liðlegheit og greiða úr vanda fólks og viðmót er starsfmanna í besta falli önugt og í versta falli hreinlega dónalegt. Víkverji hefur heyrt ljótar sögur úr mörgum áttum af samskiptum fólks við tollpóst- stofuna og á það jafnt við um ein- staklinga sem starfsmenn fyrir- tækja í t.d. innflutningi. Vinkona Víkveija lenti meira að segja í því um daginn að starfskona póststof- unnar skellti á hana er hún leitaði upplýsinga um hvar ákveðið toll- skjal væri statt í kerfinu. xxx EINHVERJAR aðgerðir verða að fylgja lokun austurenda Hafnarstrætis, eigi þessi gamla gata ekki að veslast endanlega upp og deyja. Vesturhluti götunnar er orðinn eins og steinsteypugjá, þar sem gömul hús hafa ýmist verið svipt sérkennum sínum og breytt í gráar bankastofnanir, eða þá rifin og gráar bankastofnanir byggðar í staðinn. Vesturendinn er í niður- níðslu og langt síðan nokkuð hefur verið gert fyrir þau merkilegu, gömlu hús, sem þar standa. Lokun götunnar býður þeirri hættu heim að Hafnarstræti verði subbuleg botngata, þar sem enginn vill koma. En með því að fegra umhverfið, gera upp gömul hús, steinleggja upp á nýtt og breyta austurendan- um í áhugaverða göngugötu með verzlunum og kaffihúsum (ekki fleiri 500 manna bjórkjallara, takk!) mætti aftur gera Hafnarstræti að lifandi hluta miðbæjarins. XXX * IFRÉTT í Morgunblaðinu í gær kemur fram að skrúfublöð flug- vélar tveggja erlendra flugkappa hafi skemmzt á Reykjavíkurflug- velli „vegna þess að vélin fór ofan í holu sem þar er í malbikinu." Er þetta viðunandi ástand á flugvellin- um, sem er miðstöð innanlandsflugs á íslandi? Flugmenn segja Reykja- víkurflugvöll hreinlega orðinn hættulegan vegna viðhaldsleysis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.