Morgunblaðið - 13.09.1997, Side 14
14 LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BÍLAR
ML 230 fyrir
Evrópumarkað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LAND Rover Freelander er nýr valkostur fyrir kaupendur Qórhjóladrifsbfla.
Freelander jepp-
lingur frumsýndur
Tveir nýir fjórhjóladrifsbílar Land Rover og
Mercedes-Benz voru kynntir á bílasýningunni
í Frankfurt. Guðjdn Guðmundsson blaðamaður
og Árni Sæberg ljósmyndari segja frá sýningunni
í máli og myndum.
MERCEDES-BENZ smíðar
nýjan M-jeppa sinn í Ala-
bama í Bandaríkjunum og
þar hefur hann þegar verið kynntur
með 3,2 lítra, V6 vél og heitir þá ML
320. A sýningunni í Frankfurt, sem
var Evrópufrumsýning jeppans, var
hann einnig sýndur í gerðinni ML
230 í fyrsta sinn. Sú útfærsla er sér-
staklega hönnuð fyrir Evrópumark-
að. Vélin er fjögurra strokka, 2,3
lítra, 150 hestafla og togið er 220 Nm
við 3.800 snúninga á mínútu.
Sala á M-jeppanum hefst í Kanada
og Bandaríkjunum innan fáeinna
vikna en í Evrópu vorið 1998. Þetta er
lúxusjeppi með nýju lagi. í bílunum
sem sýndir eru í Frankfurt er allur
búnaðui- sem boðið er upp á í M-lín-
unni. Sæti leðurklædd og viðarklæðn-
ing í millistokki, mælaborði og hurð-
arhöldum. Stýrið er úr viði. Framsæt-
in eru rafstillanleg og bílamir með
loftkælingu og rafstýrðu drifvali.
Flestir sem muna eftir fyrstu
frumgerðum bílsins sakna e.t.v. þess
róttæka útlits sem þar var kynnt því
í endaniegri gerð er jeppinn mun
hefðbundnari í lögun. Hann er
nokkru styttri en E-stallbakurinn en
hægt er að leika sér töluvert með
rýmið í M-jeppanum. Aftursætum
má renna fram eða aftur á sleðum og
hægt er að fella fram aftursæti.
V eggripsstýringarkerfi
Staðalbúnaður er flmm gíra hand-
skipting og nær bíllinn 178 km há-
markshraða. Uppgefin eyðsla er um
12,8 lítrar á hverja 100 km. Annar
staðalbúnaður í ML 230 er líknar-
belgur í stýri og fyrir farþega í fram-
sæti og hliðarbelgir í framhurðum,
rafdrifnar rúður að framan og aftan,
ABS-hemlalæsivörn og fleira.
Mercedes-Benz hefur nýlega hannað
V6 vél í ML 320 bflinn. Hún er 218
hestöfl og togið 310 Nm við 3.000
snúninga á mínútu.
Ein af tækninýjungunum í M-jepp-
anum er veggripsstýringarkerfið 4
ETS sem vinnur án mismuna-
drifslæsingar. Kerfið virkar þannig
að örtölva fylgist með veggi’ipi hjól-
anna og eykur hemlaálag á þau hjól
bflsins sem snúast hraðar en önnur
eins og gerist t.d. í hálku. Búnaður-
inn kemur í stað mismunadrifslæs-
ingar og fyrir vikið er bfllinn talsvert
léttari en ella. Einnig er hægt að fá í
bflinn svonefnt ESP-kerfi (Electronic
Stability Program). Því er ætlað að
draga úr afli frá vélinni þegar hjól
fara að spóla.
M-jeppinn er byggður á grind og
er með sjálfstæðri fjöðrun að framan
og aftan. Grunnverð á ML 230 í
Þýskalandi er 60.950 þýsk mörk, eða
rúmar 2,4 milljónir ÍSK.
MIKIL viðhöfn var við af-
hjúpun nýs Land Rover
Freelander í sal 3 á bflasýn-
ingunni í Frankfurt. Tvær lúðra-
sveitir í einkennislitum Englands og
Þýskalands gengu inn sýningar-
svæðið og runnu saman í eina hljóm-
sveit framan við tvo Land Rover
Freelander bfla sem voru huldir með
segli. I næsta rými við Land Rover
er móðuriyrirtækið BMW og kynnir
sögu Mini bílanna en nýr bíll gerður
af hönnuðum BMW var sýndur á
lokuðum fundi fyrir sýninguna.
Land Rover Freelander getur
vart kallast jeppi, margir myndu
frekar notast við orðið jepplingur.
Þetta er lítill bíll, ekki með milli-
kassa og þar af leiðandi ekki með
lágu drifí heldur sítengdu aldrifí,
svipuðum drifbúnaði og í Toyota
RAV4 og Honda CR-V.
3ja og fimm dyra bflar
A sýningunni var Freelander
sýndur með vélum frá Rover, 1,8
lítra bensínvél, 120 hestafla, og 2ja
lítra forþjöppudísilvél, 97 hestafla.
Hann verður síðar boðinn með 2,5
lítra V6 vél. Sjálfstæð gormafjöðrun
er á fram- og afturhjólum.
Bíllinn verður boðinn í tveimur
útfærslum, þ.e. fímm dyra og
þriggja dyra. Fimm dyra bíllinn er
nokkuð hefðbundinn í útliti en
þriggja dyra bíllinn er sérstakur að
þvi leyti að blæja er yfir þeim hluta
þaksins sem er yfír aftursætunum.
Það er því hægt að opna helming
þaksins.
Freelander kemur á markað í
Evrópu í byrjun næsta árs. Búist er
við að verðið verði talsvert undir
verði á Land Rover Discovery.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
MARGIR vildu sefjast upp í nýjan ML 230 jeppa Mercedes-Benz.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SSANGYONG fékk ekki að hafa Chairman á sinum bási
eftir að sýningin var opnuð fyrir almenningi.
SsangYong
sýnir
Chairman
eðalvagn
SANGYONG bflaframleiðandinn
frá Suður-Kóreu sýndi nýjan
lúxusbfl sinn, Chairman, á
blaðamannadögunum á Frankfurtar-
sýningunni. Samkvæmt samkomu-
lagi milli Mercedes-Benz og
SsangYong smíðar síðarnefnda fyrir-
tækið yfirbyggingu og innréttingar í
nýja bilinn en Mercedes-Benz vélina,
3,2 lítra, V6 220 hestafla, drifbúnað
og hemlabúnað. Samkomulagið felur
einnig í sér að SsangYong er óheimilt
að setja bflinn á markað annars stað-
ar en í Asíu fyrst um sinn.
Mitt á milli E- og S-línu
Chairman er með tækni úr E-bfl
Mercedes-Benz, þ.á m. fimm gíra
sjálfskiptingu og ABD veggripskerfi.
Yfírbyggingin er með útliti S-bflsins
þótt stærð Chairman sé mitt á milli
E- og S-línu Mercedes-Benz.
Chairman er greinilega ætlaður
þeim sem vilja láta aðra um akstur-
inn. Þegar afturhurðir eru opnaðar
rennur setan í aftursætunum sjálf-
virkt í öftustu stöðu svo hægara sé
að setjast inn í bflinn og fara út úr
honum. Hægt að laga stillingu sætis-
ins eftir þörfum með rafstýrðum
búnaði. í miuju aftursætinu er
stjómborð fyrir geislaspilara og
innstunga fyrir heymartæki. Líkn-
arbelgur er í stýri og fyrir farþega í
framsæti og tveir hliðarbelgir í hurð-
um. Bfllinn er með leiðsögukerfí fyr-
ir Þýskaland, Japan og Suður-
Kóreu.
SsangYong Chairman kemur á
markað í Kóreu í október og reiknar
fyrirtækið með að selja 20-30 þúsund
bíla á módelárinu í heimalandinu.
Leirbílar
NYR smábfll Mercedes-Benz, A-línan, hefur verið í þróun og hönnun
í þrjú ár. Hugmynd að bílnum var sýnd á Frankfurtarsýningunni
fyrir tveimur árum og síðan hafa komið fram nokkrar aðrar út-
færslur. I sal Mercedes-Benz var þróun bflsins sýnd í litlum leirmód-
elum, allt frá fyrstu hugmynd að endanlegri gerð bflsins. A-bíllinn
kemur á markað í næsta mánuði í Þýskalandi en líklega ekki fyrr en
á næsta ári hér á landi.
ggm-s
Hugbúnaður og lausnir frá:
- Oracle Corp.
- Hewlett-Packard
- Damgaard Data
- Remedy Corp.
- Versatilíty Inc.
- Legato Sy
* Intranet ehf.
Styrktaiaftili ríft»tofnunn«r
OPIN KERFIHF
ÐEWH
TEYMI
Botgorlúni 34. 105 t*yija*rk
Stmi 561 8Í3)
8*himi S62 8131