Morgunblaðið - 13.09.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997 21
LEIKFÖNG sem Egill smíðaði handa börnum sínum.
blafur/
LÍKAN af Holdsveikraspftalanum í Laugarnesi, sem var gjöf
danskra Oddfellowa og tengdist stofnun reglunar á Islandi.
LISTASMIÐURINN Egill Ólafur Strange hjá nokkrum gripum, sem
hann smíðaði sem afmælisgjafir handa vinum sfnum. Þar á meðal er
afmælisgjöfin hans Öla, en hann starfaði í lögrelunni.
Morgunblaðið/Ásdís
ELSTI gripurinn á sýningunni frá árinu 1938, sem Egill smíðaði
og gaf móður sinni þegar hann var ellefu ára.
Á HANDVERKSS?NINGU
EGILS ÓLAFS STRANGE
Völundur að hagleik
Sagt er um góða smiði og handverksmenn
að þeir séu dverghagir. Sú líking kom upp í
huga Sveins Guðjónssonar þegar hann
—------------------------------7-----
skoðaði handverkssýningu Egils Olafs
Strange, sem nú stendur yfír í Hafnarborg
í Hafnarfirði.
AÐ voru bömin og eiginkon-
an sem tóku það upp hjá sér
að halda þessa sýningu. Það
hefði aldrei hvarflað að mér sjálf-
um,“ segir listasmiðurinn Egill Ólaf-
ur Strange, hógværðin uppmáluð,
þegar við hittum hann að máli í
Sverrissal Hafnarborgar í Hafnar-
firði, þar sem nú stendur yfir sýning
á hinum ýmsu munum sem hann hef-
ur dundað sér við að smíða um æv-
ina, en hann verður sjötugur nú í
september. Og þegar maður litast
um í sýningarsalnum skilur maður
áhuga eiginkonunnar og barnanna,
því hér eru hlutir sem vissulega eru
þess virði að þeir komi fyrir almenn-
ingssjónii-.
Egill hefur fengist við smíðar, út-
skurð og ýmiss konar handverk frá
barnsaldri. Hann fæddist í Reykja-
vík 22. september árið 1927, sonur
Hansínu Þorvaldsdóttur húsmóður
og Victors Strange rennismiðs og á
því kannski ekki langt að sækja
handlagnina og smiðsaugað. Elsta
verkið á sýningunni er frá því að
Egill var ellefu ára, útskorin hilla úr
tré, sem hann gaf móður sinni á sín-
um tíma.
Þegar séð var hversu hagur Egill
Ólafur var við smíðar og útskurð lá
beinast við að senda hann í Handíða-
og myndlistarskólann, þar sem hann
stundaði nám á árunum 1944 til
1945. Síðan lá leiðin í módelsmíða-
nám í Landssmiðjunni, undir hand-
leiðslu Sigurðar Jónssonar mód-
elsmiðs og á árunum 1959 og 1960
stundaði Egill nám í handavinnu-
deild Kennaraskóla íslands. Hann
var síðan kennari við Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði frá 1961 til 1992
og kennari við Námsflokka Hafnar-
fjarðar í 14 ár. Egill kveðst nú hætt-
ur að vinna, nema fyrir sjálfan sig,
og einu sinni í viku leiðbeinir hann í
útskurði í starfi aldraðra í Bólstaðar-
hlíð. „Aldraður kennh- öldruðum.
Það fer vel á því,“ segir hann bros-
andi.
Á sýningunni kennir ýmissa grasa
og þar getur að líta marga fágæta
muni, sannkallaða dvergasmíð.
Þarna eru útskornar gestabækur,
fundarhamar, líkön af ýmsum bygg-
ingum, tannhjól, ljósker og strætis-
vagn, svo eitthvað sé nefnt. Og þarna
getur einnig að líta leikföng, sem
Egill smíðaði handa bömunum sín-
um, að ógleymdu „Horninu hennar
Önnu“, þar sem em ýmsir munir af
heimilinu, sem Egill smíðaði fyrir
eiginkonu sína, Önnu Sigurðardótt-
ur. Þar er í öndvegi útskorinn stóll,
mikil völundarsmíð, eins og reyndar
margir aðrir gripir á sýningunni.
Allir munirnir eru í einkaeign,
meðal annars afmælisgjafir og aðrar
tækifærisgjafir, sem Egill hefur ver-
ið beðinn um að smíða af ýmsu tilefni
á liðnum áram. Af líkönum á sýning-
unni má nefna Vídalínskirkju í
Garðasókn, Holdsveikraspítalann,
sem danskh- Oddfellowar gáfu Is-
lendingum 1898 og er órjúfandi
böndum tengdur stofnun Oddfellow-
reglunnar á íslandi. Þarna er líka
gamli Flensborgarskólinn frá því á
áranum 1877 til 1937 og nýja skáta-
heimilið, Hraunbyrgi, sem nú er í
byggingu.
Egill er ekki mikið fyrir að hæla
sjálfum sér, en þegar gengið er á
hann kveðst hann langt í frá vera
sestur í helgan stein í handverkinu,
þótt hann sé hættur opinberum
störfum fyrir aldurs sakir. Hann
stundar enn smíðar og útskurð og
kennir hvorki elliskjálfta í höndum
né huga. Og þegar skoðaðir era nýj-
ustu gripirnir sem hann hefur smíð-
að má glöggt sjá að hann er enn „völ-
undur að hagleik", eins og sagt var
um smiði Fróða konungs í fornum
ritum.
//X islandia internet
Krókhalsi 6 110 Reykjavík • Sími 750 5000