Morgunblaðið - 13.09.1997, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997 39 -
t
I
I
3
i
I
I
i
J
1
J
J
I
J
I
!
i
4
4
4
4
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Vetrarstarf
Laugarneskirkju
Frá Jóni Dalbú Hróbjartssyni:
VETRARSTARF Laugarnes-
kirkju er nú að heijast. Fjöl-
breytt starf verður fyrir alla
aldurshópa eins og undanfarin
ár og væntum við góðrar þátt-
töku strax frá upphafi starfsins.
Helgihald
Guðsþjónustur verða á
sunnudögum kl. 11.00. Á sama
tíma verður barnastarf með
svipuðu sniði og verið hefur,
þ.e. að allir koma fyrst saman
í kirkjunni, en meðan á prédikun
stendur fá börnin fræðslu við sitt
hæfi í safnaðarheimili kirkjunnar.
Verður börnunum skipt niður eftir
aldri. Þetta hefðbundna barnastarf
hefst sunnudaginn 21. sept. En
þangað til verður boðið upp á sögu-
stund fyrir börnin sem vilja koma
með foreldrum sínum til kirkju.
Kvöldmessur verða einu sinni í
mánuði, að jafnaði annan sunnudag
hvers mánaðar kl. 20.30. Frá kl.
20.00 er leikin Ijúf tónlist af djass-
kvartett undir stjórn organistans
Gunnars Gunnarssonar. Form mess-
unnar er einfalt, sungin ný tónlist
við messuliðina. Kór kirkjunnar syng-
ur ásamt einsöngvurum. Eftir mess-
una er boðið upp á kaffisopa í safnað-
arheimilinu. Fyrsta kvöldmessan
verður nk. sunnudag 14. sept.
Einu sinni í mánuði verða einnig
síðdegisguðsþjónustur kl. 14.00. I
þessar guðsþjónustur er eldri borg-
urum sérstaklega boðið. Kaffiveit-
ingar eru í safnaðarheimilinu strax
að aflokinni messu. Þeir sem þurfa
að fá aðstoð til að komast til og frá
kirkju geta hringt í kirkjuna sama
morguninn.
Á fimmtudögum verða kyrrðar-
stundir í hádeginu kl. 12.00. Leikin
er tónlist til 12.10 en þá er ritning-
arlestur, sálmasöngur, altarisganga
og fyrirbænastund. Eftir stundina í
kirkjunni er í boði léttur hádegis-
verður í safnaðarsalnum á vægu
verði. Lengd stundarinnar er miðuð
við að fólk komist til vinnu kl. 13.00.
Lofgjörðar- og bænastundir verða
á þriðjudagskvöldum kl. 21.00 í
umsjá Þorvalds Halldórssonar.
Barna- og unglingastarf
Eins og fyrr segir verður barna-
starf á sunnudögum samtímis guðs-
þjónustunni kl. 11.00. En auk þess
verður starf fyrir 10—12 ára börn á
fimmtudögum kl. 17.00. Fyrsti fund-
urinn verður 18. sept. Þá verður
starfrækt æskulýðsfélag á miðviku-
dagskvöldum. Húsið mun opna kl.
19.30 og verður boðið upp á fjöl-
breytta starfsemi. Fyrsti fundur
æskulýðsfélagsins verður miðviku-
daginn 17. sept. Hjördís Kristins-
dóttir, æskulýðsfulltrúi Laugarnes-
kirkju, mun stýra barna- og ungl-
ingastarfinu.
Fermingarfræðslan hefst með
innritun þriðjudaginn 23. september
kl. 15-16.
Mæðramorgnar
Á föstudagsmorgnum kl. 10—12
eru samverustundir fyrir mæður og
börn þeirra. Þetta starf hefur nú
verið í mörg ár og fest rækilega í
sessi. Á samverustundunum er oft
fræðsla um ýmis efni er snerta barna-
uppeldi, fjölskyldu og daglegt líf. Þá
er alltaf stutt helgistund í kirkjunni.
Starf fyrir eldri borgara
Annan hvern fimmtudag í vetur
verða samverustundir fyrir eldri
borgara í safnaðarsal Laugarnes-
kirkju. Fyrsta samveran verður
fimmtudaginn 18. sept. kl. 14.00—
16.00. Valgerður Gísladóttir, fram-
kvæmdastjóri Ellimálaráðs Reykja-
víkurprófastsdæma, verður gestur
fundarins, en sóknarpresturinn mun
hafa hugvekju. Auk þessara sam-
verustunda verða guðsþjónustur að
jafnaði einu sinni í mánuði á sunnu-
dögum kl. 14.00, en eldri borgurum
verður sérstaklega boðið til þessa
helgihalds. Þeir sem þurfa akstur til
og frá kirkju geta hringt í kirkjuna
sama daginn og pantað akstur.
Tónlistarstarf
í Laugarneskirkju hefur löngum
verið fjölbreytt tónlistarlíf. í vetur
verða starfræktir tveir kórar.
Drengjakór, undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar, hefur æfingar tvisvar
í viku á mánudögum og miðvikudög-
um. Einnig er starfrækt eldri deild
í drengjakórnum. Kórinn mun syngja
við messur að jafnaði einu sinni í
mánuði en auk þess heldur kórinn
tónleika og fer í tónleikaferðir. Kór
Laugarneskirkju hefur hafið vetrar-
starfið sitt og hefur æfingar á þriðju-
dagskvöldum. Kórinn tekur virkan
þátt í guðsþjónustunum og heldur
sjálfstæða tónleika. Kórstjóri og
organisti kirkjunnar er Gunnar
Gunnarsson.
Kvenfélag Laugarnessóknar
Kvenfélag kirkjunnar hefur sitt
hefðbundna starf með félagsfundi
mánudaginn 6. október. Starfið
verður með svipuðu sniði og verið
hefur í mörg ár og eru konur í hverf-
inu hvattar til að kynna sér starf
félagsins. Formaður félagsins er
Hjördís Georgsdóttir.
Fræðslustarf
í vetur verður boðið upp á fræðslu
með ýmsu móti, í hópum, fyrir for-
eldra fermingarbarna o.fl. Sóknirnar
þijár sem liggja að Laugardalnum,
þ.e. Laugarnes-, Ás- og Langholts-
sóknir munu hafa með sér samstarf
um ýmsa hluti og verður það aug-
lýst hverju sinni. Einnig viljum við
benda á starfsemi sem er í þessum
kirkjum eins og t.d. Biblíulestra sem
verða í Áskirkju alla fimmtudaga frá
9. október fram að jólaföstu. Sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson annast
þessa fræðslu og eru allir velkomn-
ir, þótt þeir tilheyri öðrum sóknum.
Það er von mín að sem flestir leggi
leið sína til kirkju á komandi vetri
og njóti þess samfélags sem þar er
að finna.
JÓN DALBÚ HRÓBJARTSSON,
sóknarprestur.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Grettir
Smáfólk
I THINK IUE HAVE A PROBLEM.. rvT m PAP 5M5 WECAN'TAFFORP0 TO FEED 8 THREE P065.. |
| C 'j
(?) í
SSlJlfc*
OF C0UR5E, ONE
OF YOUR PR0THER5
EAT5 MORE THAN
ALL OF WU..
L -■/} V*> 4
m JÁéý \
£v ■« t
<e? v
8-22
>»IVÍ<í!V;A, V 1 1. *i.
Ég held að
ég eigi í
vanda...
Pabbi minn segir
að við höfum
ekki efni á þrem-
ur hundum ...
Auðvitað, einn ykkar bræðranna
étur meira en þið allir til samans.
Hver okkar?
J