Morgunblaðið - 26.09.1997, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997
Of KTA J 8 'A UOflO M
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LÖGREGLUMENN í Reykjavík hlýddu á fyrirlestur bandaríska
lögreglumannsins Gary Steinbergs um glæpagengi.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
GARY Steinberg, rannsóknarlögreglumaður frá Tallahassee, sýn-
ir lögreglumönnum dæmi um handamerki glæpagengja.
Lögreglumaður frá Tallahassee í heimsókn hjá lögreglu í Reykjavík
Ekkí hætta á að glæpa-
gengi nái fótfestu á Islandi
„ÞRÁTT fyrir að einhver dæmi séu
um veggjakrot í Reykjavík, sem
svipar til veggjakrots glæpagengja
í Bandaríkjunum tel ég ekki hættu
á að þróunin verði sú að glæpa-
gengi nái fótfestu hér á landi. Er-
lend glæpagengi munu áreiðanlega
ekki sjá sér hag í að starfa hér
enda er landið fámennt og auðvelt
að þekkja ókunnuga úr. Þá virðist
mér það starf sem lýtur að ungling-
um svo öflugt, að allar tilraunir til
að stofna gengi yrðu kæfðar í fæð-
ingu,“ sagði Gary Steinberg, rann-
sóknarlögreglumaður frá Talla-
hassee í Flórída, í samtali við Morg-
unblaðið. Heimsókn hans hér á
landi er Iiður í skiptiheimsóknum
lögreglumanna á milli Tallahassee
og Reykjavíkur, sem komust á að
tilstuðlan Hilmars Skagfields, aðal-
ræðismanns íslands í Flórída.
Gary Steinberg starfaði í 12 ár
í lögreglunni í Miami í Flórída, en
hefur undanfarin 8 ár starfað í
Tallahassee. Þar vinnur hann við
að safna upplýsingum um glæpa-
gengi og vinna úr þeim. Hann hélt
fyrirlestur um glæpagengi fyrir
reykvíska starfsbræður sína í gær.
í fyrirlestrinum rakti Gary helstu
einkenni glæpagengja í Bandaríkj-
unum og benti á að veggjakrot
væri yfirleitt fyrsta merki um að
glæpagengi væri að ná völdum.
„Hvert gengi hefur eigin merki,
sem það notar til að gefa í skyn
að það stjómi ákveðnu svæði.
Gengið málar einnig oft merki and-
stæðinga sinna á veggi, en þá á
niðrandi hátt, til dæmis með því
að mála þau á hvolfi eða krota
yfir þau. Venjulegt veggjakrot hef-
ur enga þýðingu, en veggjakrot
gengjanna gefur mjög skýr skila-
boð.“
Rúmlega 23 þúsund gengi
Gary sagði að í Bandaríkjunum
væru tæplega 23.400 gengi og að
á síðasta ári hefðu 67% morða ver-
ið rakin til þeirra. „Þetta hlutfall
er áreiðanlega enn hærra því að í
sumum tilvikum hefur ekki tekist
að sanna tengsl við glæpagengi svo
óyggjandi sé. Mesta ógnin nú er
að stóru gengin beijast um yfírráð
á fíkniefnamarkaðnum. Verð á
fíkniefnum lækkar sífellt í stór-
borgum vegna offramboðs og fé-
lagar í gengjunúm sem selja fíkni-
efni eru í lífshættu vegna eilífrar
baráttu um yfirráð. Þess vegna
leita gengin út í smærri bæi, þar
sem lögreglan og almenningur
þekkir ekki vandann af eigin raun
og veit því síður hvernig á að bregð-
ast við.“
Gary sagði að ísland væri áreið-
anlega síðasti staðurinn sem
bandarískt gengi myndi líta til,
ætlaði það að færa út kvíarnar.
„Landið er of einangrað í miðju
Atlantshafinu og allir myndu átta
sig á ef ókunnugir færu að þreifa
fyrir sér hér.“
Samkvæmt skýrslu sem banda-
ríska dómsmálaráðuneytið lét
vinna um gengi eru langflestir fé-
lagar þeirra, eða um 80%, karl-
menn. Meðalaldur félaga er aðeins
15,9 ár og sameiginlegt einkenni
þeirra er m.a. fátækt á heimilum
og erfiðleikar í skóla. „Við vitum
að gengi eru að ná fótfestu þegar
veggjakrot verður áberandi, í kjöl-
farið fylgja auknar árásir í skólum
og í samfélaginu almennt, þá fjölg-
ar tilkynningum um að skotum
hafi verið hleypt af í nágrenninu
því næst kemur fjölgun allra glæpa,
hvaða nafni sem þeir nefnast, og
loks er ástandið orðið svo slæmt
að félagar í gengjunum myrða.“
Gary sagði að margir félagar í
gengjum leituðu í þau til að öðlast
viðurkenningu. „Hjá sumum kemur
gengfi í stað fjölskyldu, aðrir leita
í þau sér til vemdar eða til að taka
þátt í fíkniefnasölunni og fá þannig
peninga. Það sem knýr gengin fyrst
og fremst áfram er fátæktin, eitur-
lyfjanotkun og að félagar þeirra
hafa ekki fengið þjálfun til nokk-
urra verka. Ég spurði 24 ára mann,
sem var dæmdur í ævilangt fang-
elsi fyrir brot sín, af hveiju hann
hefði gerst félagi í gengi og hann
svaraði því til að hann ætlaði sko
ekki að vera í einhveiju láglauna-
starfi. Þegar ég spurði hann hvort
hann hefði þá reynt að mennta sig
eða fá starfsþjálfun til annarra
verka horfði hann forviða á mig
og sagði að slíkt þyrfti hann ekki
að láta bjóða sér. Þetta er viðhorf-
ið sem við eigum við að etja.“
Engin skilaboð í íslensku
veggjakroti
í Tallahassee hafa 18 gengi látið
til sín taka um lengri eða skemmri
tíma og uppfylla 13 þeirra skil-
greiningu laga á gengjum. Ekkert
gengi starfar nú í borginni, en lög-
reglan er sífellt á varðbergi því
nýir hópar reyna sífellt að koma
sér þar fyrir.
Að fyrirlestrinum loknum sagði
Gary Steinberg í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði farið um
Reykjavík ásamt íslenskum lög-
reglumönnum. „Ég sá ekki mikið
veggjakrot. Af því sem ég sá má
ráða að veggjakrotarar hér eru
ekki að senda skilaboð á sama
hátt og gengin. Ég sá aðeins tvö
merki hér sem algeng eru sem
merki gengja úti. Annað er kvísl
eða gaffall og hitt fimm stjörnu
kóróna. Hins vegar voru þessi
merki aðeins á einum stað og lík-
legast að krotarinn hafí bara verið
að herma eftir merkjum sem hann
hefur séð á prenti eða í kvikmynd-
um. Veggjakrotið hér er einungis
einn þáttur í tísku, líkt og hjóla-
bretti og tilheyrandi klæðnaður."
Gary Steinberg benti á að í Talla-
hassee væri reynt að mála yfír allt
veggjakrot innan 24 tíma. „Veggja-
krotarar eru stundum margar
klukkustundir að klára verkið og
ef það er fjarlægt strax er ólíklegt
að þeir leggi í slíka vinnu aftur.
Það má ekki láta það standa því
þá bætist sífellt meira krot við og
yfirbragð borgarinnar gefur til
kynna hnignun. Slíkt yfírbragð
getur hvatt til afbrota."
Gary sagði að hann gæti auðvit-
að ekki útilokað að gengi myndu
einhvern tímann ná fótfestu hér á
landi. „Það er alltaf hætta á að
unglingar hér fari að herma eftir
erlendum gengjum sem eru stund-
um hafin til skýjanna í kvikmynd-
um og tónlist. Hérna vinnur fólk
hins vegar vel saman, lögreglan,
félagsmálayfirvöld, skólar og íbúar.
Þess vegna held ég að hægt verði
að kæfa gengjamyndun í fæðingu."
ísafjörður
Fasteigna-
markaður
lifnar við
ísafirði. Morgunblaðið.
MIKLAR hreyfingar hafa verið á
fasteignamarkaðinum á ísafirði að
undanförnu eftir fremur rólegt
tímabil þar á undan. Mest hreyfing
hefur verið á litlum og miðlungs
stórum fasteignum en líkt og fyrr
hafa stærstu fasteignirnar verið
erfiðastar í sölu. Eftir smásölukipp
í vor kom algjör ládeyða yfir
sumarið en allt virðist benda til
þess að fasteignamarkaðurinn sé
að komast í eðlilegt horf. Mikið
af ungu fólki er í fasteignahugleið-
ingum um þessar mundir og segir
Tryggvi Guðmundsson, lögmaður
og fasteignasali á ísafirði, að það
sé góðs viti eftir mjög neikvæða
umræðu um Vestfirði undanfarna
mánuði.
Góð sala
„Undanfarnar fjórar vikur hefur
verið góð sala á litlum og miðlungs
stórum húseignum eftir þriggja til
fjögurra mánaða ládeyðu. Það kom
smákippur í söluna í vor en síðan
þá hefur verið fremur rólegt yfir
markaðinum. Unga fólkið er mikið
í fasteignahugleiðingum og það er
góðs viti eftir alla þá neikvæðu
umræðu sem verið hefur um Vest-
firði undanfarna mánuði. Mér sýn-
ist sem að þessu oki sé að létta
af fólki og að fasteignasalan sé
að komast í eðlilegt horf,“ sagði
Tryggvi Guðmundsson í samtali
við blaðið.
Tryggvi segir að mikill skortur
sé á millistærðum af fasteignum,
4ra herbergja íbúðum, sérhæðum
og minni raðhúsum en aftur á
móti sé nóg framboð af stærri ein-
býlishúsum. „Það var byggt mikið
af stórum einbýlishúsum á árunum
frá 1970 til 1980 og margir eigend-
ur slíkra fasteigna eru með hugann
við að minnka við sig um þessar
mundir, því er nóg framboð á
stærri eignum. Það sem hamlar
sölu á slíkum eignum er að það
eru ekki margir sem hafa pening-
aráð til slíkra verka um þessar
mundir.“
Markaðsverð
óbreytt
Tryggvi segir að markaðsverð
fasteigna á Isafirði hafi haldist
nokkuð óbreytt undanfarin tvö ár
þó með þeirri undantekningu að
stærstu eignirnar hafi frekar lækk-
að í verði. „Lækkunin er þó ekki
mikil miðað við það sem maður
hefur verið að sjá annars staðar
eins og t.d. í Reykjavík. Þar hefur
orðið stærra stökk niður á við hvað
varðar stærri eignir," sagði
Tryggvi Guðmundsson.
Maðurinn sem dæmdur var fyrir kynferðisafbrot í héraðsdómi Norðurlands
Engar vísbendingar um
áreitni við önnur börn
AÐ SÖGN Einars Inga Magnússon-
ar aðstoðarfélagsmálastjóra Hafn-
arfjarðar, hefur Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar vistað fimm börn á
heimili mannsins sem dæmdur hef-
ur verið í héraðsdómi Norðurlands
fyrir kynferðisafbrot gagnvart
tæplega fimm ára gamalli stúlku.
Þar af voru þrír drengir, tveir ungl-
ingar og einn stálpaður piltur. Eng-
ar vísbendingar hafa komið fram
um að önnur böm hafi orðið fyrir
áreitni. Að sögn Braga Guðbrands-
sonar forstöðumanns Bamavernd-
arstofu er þetta í fyrsta sinn sem
svona mál kemur upp hér á landi
en nýleg rannsókn í Svíþjóð leiddi
í ljós 200 samsvarandi tilvik.
Einar sagði að engar vísbending-
ar hefðu komið fram um að önnur
börn hafi orðið fyrir áreitni á
heimilinu og benti hann á að dóm-
urinn byggði á að um einstaklings-
tilfelli hafi verið að ræða. Sagði
hann að fyrir lægi úttekt Bama-
vemdarstofu á heimilinu og að í
30 ár hafi ýmsar bamaverndar-
nefndir, félagsmálastofnanir og fé-
lagsmálaráð úr mörgum sveitarfé-
lögum leitað til heimilisins með
börn og að honum væri ekki kunn-
ugt um að nokkurt mál í þessa
vem hefði komið upp.
Ekki hæfnisvottorð
Bragi sagði að með stofnun
Bamavemdarstofu hefði lögum ver-
ið breytt í þeim tilgangi að bæta
mat á fósturheimilum og allan und-
irbúningi og var Bamavemdarstofu
falið að annast fósturmál og meta
hæfni tilvonandi fósturforeldra og
undirbúa þau. „Það er því ekki heim-
ilt að taka bam í fóstur nema hafa
fengið hæfnismat frá Barnavernd-
arstofu,“ sagði hann. „í því hæfnis-
mati gemm við kröfur til að fjöl-
skyldumar sæki undirbúningsnám-
skeið hjá okkur. Á þessu er þó und-
antekning. Einstökum barnavernd-
arnefndum er heimilt að vista böm
í fóstur til skamms tíma eða skem-
ur en sex mánuði. Þessi fjölskylda
sem um er að ræða hafði ekki feng-
ið hæfnisvottorð frá Bamavemdar-
stofu en hins vegar hafði nefndin
fyrir norðan og bamavemdamefnd
Hafnarfjarðar gert sínar athuganir
og ekki fundið neitt athugavert."
Fyrsta dæmið
Bragi sagði þetta vera mikið
áfall. „Þetta er fyrsta dæmið sem
vitað er um á íslandi," sagði hann.
„Við vitum að í nágrannalöndunum
hafa mál sem þessi oft komið upp
og nýleg rannsókn í Svíþjóð leiddi
í ljós að um 200 samsvarandi tilvik
hafa uppgötvast þar. Þannig að
þetta er mál sem menn þurfa að
vera vakandi fyrir og við teljum
okkur vera það. Við höfum ákveðið
hjá Barnaverndarstofu að í kjölfar
þessa atviks verði rannsakað hvort
aðrar barnavemdamefndir hafí
vistað böm á þessu tiltekna heim-
ili. Jafnframt að leita eftir upplýs-
ingum hjá þeim hvort ástæða sé
til að rannsaka í þeim tilvikum
hvort börn hafi hugsanlega orðið
fyrir einhverri áreitni. Við höfum
einnig ákveðið að beina þeim spurn-
ingum til nefndanna hvort þeim sé
kunnugt um einhver slík tilvik þar
sem þetta hafi komið fyrir áður. í
framhaldi af því munum við taka
ákvörðun um hvort ástæða sé til
frekari aðgerða."
>
*
:
l
I
í
I
i
:
I
Ui