Morgunblaðið - 26.09.1997, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.09.1997, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Grettir Ferdinand Smáfólk „Handhafi þessa miða tekur á sig alla áhættu sem upp kann að koma í þessum körfuknatt- leik ... “ „Ef fyrirhugaður leik- ur er ekki leikinn samkvæmt þessari dagsetningu getur verið að þessi miði..." Alþýðuvæni meiri- hlutinn í Reykjavík? Frá Hrafnhildi Jónsdóttur: ÉG HEF, sem dyggur neytandi, fylgst dálítið með umfjöllun um mál- efni Strætisvagna Reykjavíkur og finnst þar vera komin framhaldssaga af hestu gerð, þar er allavega ekki lognmollunni fyrir að fara og ýmis- legt virðist vera brallað á þeim bæ! Tilurð þessa bréfs er, að í útvarp- inu þann 18. september sl., hlustaði ég á mjög svo skondinn og vægast sagt einkennilegan málflutning bog- arstjórans í Reykjavík, þar sem hún virtist vera að sverta, og níða niður mannorð þriggja borgarstarfs- manna, þ.e.a.s. sína eigin starfs- menn, (NB fyrrverandi starfsmenn)! Þær voru greinilega þungar sakir þessara fyrrverandi vagnstjóra SVR, og hún tíundaði nauðsyn þess að þeir voru leystir frá störfum tafar- laust. Mér finnst mjög ósmekklegt og niðurlægjandi fyrir borgarstjórann að sýna svona framkomu við þetta ágæta fólk sem hefur, að því best er vitað, þjónað borginni og borg- arbúum í marga áratugi. Það kom greinilega fram í máli Ingibjargar að hún virtist aðeins hafa kynnt sér aðra hlið málsins og talaði heldur kaldranalega um afglöp starfsmannanna. Það kom einnig greinilega fram, og sló mig svolítið, að hún virtist ekki hafa áhuga á að kynna sér málið frá þeirra hlið (þ.e. starfsmannanna)! Að vísu virtist málflutningur Ingibjargar byggður á gögnum, smíðuðum í smiðju forstjóra SVR, Lilju Ólafsdóttur, en hún hefur verið mjög áberandi í fjölmiðlum undanfarið vegna alls kyns örðug- leika í samskiptum við starfsmenn sína, (þ.e. vagnstjóra). Þetta var að vísu nokkuð einlitur málflutningur, sem þarna kom fram en engu að síður mannskemmandi. Hvetjar voru svo sakirnar sem eru taldar svo alvarlegar að sjálfur borg- arstjóri Reykjavíkur finnur sig til- neydda að koma fram fyrir alþjóð í útvarpi og tilkynna þetta? Er það ekki í verkahring forstjóra SVR að fjalla um þessi mál, eða ræður hún kannski ekki við þetta lengur? Aðal- sakir starfsmannanna fyrrverandi virtust vera klósettferðir í vinnutím- anum sem orsökuðu, að sögn borg- arstjóra, einhverra mínútna, for- boðna, seinkun á áætlun! Ja hérna, á mínum vinnustað er ekki gerð at- hugasemd við það að starfsmaður skreppi frá verki, til að sinna kalii náttúrunnar, jafnvel þótt það seinki verkinu um einhveijar mínútur, þar er þetta einfaldlega kallað „sjálf- sagður réttur starfsmanna". Það er með eindæmum hvað þessi „alþýðuvæni" meirihluti er áfjáður í að sýna hver hefur „valdið" og þegar hugað er að því að borgarstjóri er fulltrúi allra flokka meirihlutans hlýtur að ályktast sem svo að þeir séu allir sammála þessum einstaka málaflutningi. í ljósi þess, er það alveg á hreinu að á mínum bæ, í fyrsta skipti í manna minnum, verður ekkert Xað við R-listann í kosningun- um, sem eru alveg á næsta leiti! Hvernig sem ég reyni að rifja upp tíð fyrrverandi meirihluta; þ.e. sjálf- stæðismanna, rekur mig ekki minni til að hafa nokkurntíma heyrt að einum eða neinum hafi verið sagt upp tafarlaust, fyrir þær sakir einar að verða brátt í brók. Ég sé að lokum ekki annað í stöð- unni, í ljósi þessa máls og ýmislegs annars sem upp hefur komið í tíð hins „alþýðuvæna" meirihluta, en að vænsti kosturinn sé Sjálfstæðisflokk- urinn og fær hann, andstætt venju eftir því sem ég best veit, nokkuð mörg atkvæði út á „strætó". HRAFNHILDUR JÓNSDÓTTIR, strætófarþegi, Flétturima 19, Reykjavík. Hvoru er betur treystandi, Arna eða Ingibjörgu? Frá Valgerði Einarsdóttur: FYRIR skömmu var eitt ár liðið frá því að FÍB fór að bjóða verulega lækkun á bílatryggingum. Eins og flestir bíleigendur hafa fundið í pyngjunni, þá lækkuðu ekki bara tryggingarnar hjá þeim sem tryggja hjá FÍB-tryggingu, heldur þorðu inn- lendu tryggingafélögin ekki annað en að lækka iðgjöld sín líka. Það kom fram í DV að iðgjöld bílatrygginga hafa lækkað um einn milljarð króna á ári vegna aðgerða FÍB. Þetta er kjarabót sem svo til allir íslendingar hafa fengið að njóta ef þeir hafa aðgang að bíl á annað borð. Sá sem hefur verið í farar- broddi fyrir þessum áhrifaríku að- gerðum er Árni Sigfússon, formaður FIB. Hann hefur ekki spurt hvort lækkun iðgjaldanna komi illa við gömlu tryggingafélögin. Hann hefur bara sýnt þeim að raunveruleg sam- keppni er besta kjarabót almennings. Nú vill svo til að Árni er einnig for- ystumaður sjálfstæðismanna í minni- hluta í borgarstjóm Reykjavíkur. Af skiljanlegum ástæðum fær minni- hlutinn litlu ráðið um það hvernig farið er með fjármuni Reykvíkinga. Ámi hefur því þurft að beita kröftum sínum á öðrum vettvangi, þ.e. hjá FÍB, til að sýna getu og vilja til að bæta kjör borgaranna. Forvitnilegt er að bera saman hvernig forystumenn listanna í borg- arstjórn standa sig. Á meðan Árni Sigfússon leggur sjálfan sig að veði í slag við voldug tryggingafélög, þá hefur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri svikið flest kosningalof- orð sín. Hún hefur hirt allar kjara- bætur Reykvíkinga með hækkun á sköttum og þjónustugjöldum. Á sama tíma hafa útgjöld borgarinnar vaxið verulega í stað þess að minnka, eins og hún lofaði. Það er ekki oft sem almenningur getur séð með jafn skýrum hætti hvernig stjómmálamenn standa sig. Hvað þessa tvo forystumenn listanna í Reykjavík varðar þá eru það verkin sem hafa talað. Annars vegar er það manneskjan með vöidin til að láta gott af sér leiða, en gerði það ekki. Hins vegar höfum við Árna Sigfús- son sem með FÍB að baki sér hefur náð árangri sem skiptir allan almenn- ing máli. Er nokkur spurning hvoru þeirra er betur treystandi fyrir stjórn borgarinnar? Með bestu kveðju og fyrirfram þökk fyrir birtinguna. VALGERÐUR EINARSDÓTTIR, Laugarnesvegi 40, Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 669 1122. SÍMBRÉF: Ritstjðrn 669 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 669 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 669 1110, skrifstofa 668 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 125 kr. eintakið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.