Morgunblaðið - 26.09.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997 45
FRÉTTIR
Fjalla- og
ævintýra-
myndir í
Háskólabíói
SKÁTABÚÐIN stendur fyrir Banff
fjallakvikmyndahátíð dagana 30.
september til 1. október. Sýndar
eru um 20 þeirra mynda sem hlutu
verðlaun á síðustu Banff fjallakvik-
myndahátíð en hátíðin er haldin í
nóvember á hverju ári. Viðfangs-
efni myndanna er fjallmennska og
spennuíþróttir eins og straumkaj-
aksiglingar, háfjalla- og klettaklif-
ur og margt fleira.
Banff fjallakvikmyndahátíðin er
alþjóðleg kvikmyndahátíð, haidin í
Banff í Kanada á hveiju ári, og á
síðasta ári kepptu samtals 143
myndir frá 21 þjóðlandi til verð-
launa. Bestu myndirnar eru svo
sýndar um allan heim að verð-
launaafhendingu lokinni. Þetta er
í fyrsta sinn sem hátíðin hefur við-
komu hér á landi fyrir milligöngu
Skátabúðarinnar. Tilefni er að
Skátabúðin er 50 ára á þessu ári.
Á afmælisárinu hefur verið brydd-
að upp á ýmsum nýjungum í rekstri
Skátabúðarinnar og er Banff fjalla-
kvikmyndahátíðin hápunktur af-
mælisársins, segir í fréttatilkynn-
ingu.
I tengslum við hátíðina munu
nokkur fyrirtæki í ferða- og útivist-
argeiranum kynna starfsemi sína
í anddyri Háskólabíós. Auk þess
verða Everest-fararnir með sýn-
ingu á búnaði sínum og Hjálp-
arsveit skáta í Reykjavík kynnir
starfsemi sína og tekur við um-
sóknum í nýliðahóp sveitarinnar.
Þess má geta að Skátabúðin er í
eigu Hjálparsveitar skáta í Reykja-
vík og allur hagnaður af rekstri
hennar fer í uppbyggingu á starf-
semi HSSR.
Sýningar hefjast kl. 21 nk.
þriðjudags- og miðvikudagskvöld.
Forsala aðgöngumiða er í Skáta-
búðinni og verðið er 800 kr.
Stækkun Kringlunnar
Síðasta sýn-
ingarhelgi
í TILEFNI af 10 ára afmæli
Kringlunnar var sett upp sýning á
teikningum og módeli af tengi-
byggingu sem áformað er að
byggja milli norður- og suðurhúss
Kringlunnar. Á sýningunni eru
útskýrðar þær framkvæmdir sem
fyrirhugaðar eru við Kringluna á
næstunni. Bæði er um að ræða
byggingu tengibyggingar á milli
Kringlunnar 4-6 og Kringlunnar
8-12 og stækkun Kringiunnar til
norðurs að Miklubraut.
„Um áttatíu þúsund viðskipta-
vinir heimsækja Kringluna viku-
lega og hefur verið stöðug aukning
í aðsókn Kringlunnar frá því hún
var opnuð í ágúst 1987. Frá opnun
hefur verið eftirspurn eftir verslun-
arhúsnæði í Kringlunni. I nóvem-
ber á síðasta ári yfirtók Kringlan
rekstur á Borgarkringlunni sem
nú er nefnt suðurhús. Yfirtaka á
þessu húsnæði var fyrsta skrefið
í þróun Kringlunnar. Við samrun-
ann varð fjölbreytni í verslun enn
meiri og hlutur afþreyingar var
aukinn mikið og nú er m.a. þriggja
sala kvikmyndahús í Kringlunni.
Með tilkomu tengibyggingar verð-
ur ljölbreytnin aukin enn frekar
og þá verða norður- og suðurhús
sameinuð undir eitt þak,“ segir í
fréttatilkynningu.
8-villt á
Gjánni
HUÓMSVEITIN 8-villt leikur
föstudagskvöld á Gjánni, Selfossi.
Á laugardagskvöldið leikur
hljómsveitin svo á uppskeruhátíð á
Ólafsfírði.
Morgunblaðið/Sig. Fannar
EIGENDUR TRS, f.v. Július M. Pálsson, Páll Gestsson og
Gunnar Þorsteinsson.
Fagform og TRS
í nýtt húsnæði
Selfossi. Morgunblaðið.
MARGT var um manninn þeg-
ar Fagform, auglýsinga- og
skiltagerð, og TRS, Tölvu- og
rafeindaþjónusta Suðurlands,
héldu veislu nýlega í tilefni af
flutningi fyrirtækjanna í nýtt
húsnæði.
Húsnæðið er 400 fm að stærð
og skipta fyrirtækin plássinu
bróðurlega á milli sín, 200 fm
hvort. Húsnæðið er í eigu Fag-
forms ehf., sem hefur verið
starfandi á Selfossi í rúm tvö
ár.
Hausthátíð
í Breiðholts-
skóla
HAUSTHÁTÍÐ verður haldin í
Breiðholtsskóla laugardaginn 27.
september og segir í fréttatilkynn-
ingu að þar sem skólastarfið sé
hafið sé rétt að gera sér glaðan
dag og vekja alla til vitundar um
það sem því fylgir þ.e.a.s börn á
gangi eða hjólandi.
Hátíðin hefst kl 13:00 með
skrúðgöngu frá Breiðholtsskóla
um hverfið og er meiningin að
vekja alla í hverfinu og endar
skrúðgangan síðan aftur við skól-
ann. Margt verður gert til skemmt-
unar. Lögreglan verður á staðnum,
veltibíll sýnir gildi bílbeltanna,
sjúkrabíll mætir á svæðið og verð-
ur þar lögð áhersla á hvað þarf
að varast við hjólreiðar og ítrekuð
notkun hjálma, Skátafélagið Eina
stjórnar leikjum, körfuboltakeppni,
andlitsmálun, leiktæki frá ÍTR og
einnig verða seldar pylsur og gos
til styrktar foreldrafélaginu.
Alþjóðleg
ráðstefna um
ferðaþjónustu
ALÞJÓÐLEG ráðstefna um mark-
aðssetningu sjálfbærrar ferðaþjón-
ustu í dreifbýli verður haldin föstu-
daginn 26. september í Borgartúni
6. Ráðstefnan fer fram á ensku
og eru fyrirlesarar sérfræðingar
frá ýmsum löndum Evrópu.
Flutt verða erindin: Mikilvægi
sjálfbærrar ferðaþjónustu, Að fjár-
magna markaðssetninguna, Pól-
land - Stefnumótun, Hlutverk rík-
isins í markaðssetningu, Spánn -
reynsla söluaðila, Unveijaland -
markaðssamstarf á breiðum
grundvelli, Stefnumótun - dæmi
frá Eystrasaltslöndunum, Gæði
ferðaþjónustu í dreifbýli - kröfur
og eftirlit, Tölvuvæðing sölu- og
upplýsingaleiða og Bókunarkerfi
og upplýsingar á Veraldarvefnum.
Námskeið um
foreldrahlut-
verkið
FJÖLSKYLDURÁÐGJÖFIN Sam-
vist mun á næstunni halda nám-
skeið fyrir foreldra í Mosfellsbæ
og Reykjavíkurborg um hið mikil-
væga en vandasama hlutverk að
vera foreldri í nútímasamfélagi.
Hvert námskeið stendur yfir í 6
skipti, 2 klst. í senn, einu sinni í
viku að kvöldi til. Flutt verða stutt
færðileg erindi en síðan gefst fólki
kostur á umræðum og verkefna-
vinnu í hópum.
Fyrirhuguð viðfangsefni á nám-
skeiðinu eru: Þróun fjölskyldu á
Islandi á þessari öld, sjálfstraust
foreldra, stjúptengsl, tjáskipti,
mikilvægi föðurhlutverksins og
samantekt og mat.
Námskeiðið er opið öllum for-
eldrum í Mosfellsbæ og Reykjavík-
urborg. Þátttaka miðast við 20
manns á hvert námskeið. Þátttöku-
gjald er 3.000 kr. Ráðgert er að
hefja fyrsta námskeiðið fimmtu-
daginn 9. október nk. kl. 20.
Sagnaganga í
fótspor geng-
inna kynslóða
BYGGÐASAFN Hafnarfjarðar í
samvinnu við Upplýsingamiðstöð
ferðamanna stendur fyrir sagna-
göngu um Hafnaríjörð laugardag-
inn 27. september. Farið verður á
stað frá Smiðjunni Strandgötu 50,
klukkan 10 árdegis. Gengið verður
um slóðir þess fólks sem byggði
Hafnarfjörð á fyrstu áratugum
aldarinnar, og verður leiðsögumað-
ur Kristján Bersi Ólafsson en hann
mun ijalla um hús, staði, menn og
málefni.
I sumar hefur Byggðasafnið
staðið fyrir sýningunni; Undir
Hamrinum, Af lífi hafnfirskrar al-
þýðu. Sýning sem sett var upp til
heiðurs gengnum kynslóðum
Hafnfirðinga sem hér bjuggu við
erfiðar aðstæður á fyrri hluta ald-
arinnar. Nú fer hver að verða síð-
astur að sjá sýninguna því nú um
helgina eru síðustu sýningardagar
hennar, segir í fréttatilkynningu.
Gangan er ókeypis og fá göngu-
menn frítt inn á safnið.
LEIÐRÉTT
Ekki prófastur
RANGHERMT var i upplýsingum
sem fylgdu viðtali við sr. Jón
Bjarman á bls. 8 á miðvikudag að
eiginkona hans, Jóhanna K. Páls-
dóttir, væri prófastur. Faðir hennar
hafði þetta starfsheiti en hún er
aðalféhirðir Búnaðarbankans og
yfirmaður afgreiðslu aðalbanka
Búnaðarbankans. Auk þess var á
sama stað Laufás ranglega sagður
í Skagafirði. Sá forni kirkjustaður
er í Þingeyjarsýslu.
Kvöldmessa
með léttri
sveiflu í
Hafnarfirði
KVÖLDMESSA með léttri sveiflu
fer fram í Hafnaríjarðarkirkju
sunnudaginn 28. september og hefst
hún kl. 20.30.
Þorvaldur Halldórsson söngvari,
sem þekktur er fyrir söng fjörlegra
dægurlaga en hefur hin síðari ár
snúið sér að söng á trúarsamkomum
og í kirkjum, stýrir söngnum og
hefur með sér sveit vel þekktra hljóð-
færaleikara. Sigurður Flosason leik-
ur á saxafón, Tómas R. Einarsson
á bassa, Kjartan Guðnason á tromm-
ur og Gunnar Gunnarsson á píanó.
Auk þess að leika í messunni munu
þeir leika iétt lög 15-20 mínútur
áður en hún byijar.
„Með því að fitja upp á breytingum
í helgihaldi og opna kirkjuna fyrir
takti og sveiflu er verið að koma til
móts við óskir fjölda fólks, sem þráir
að heyra fagnaðarerindið í ferskum
búningi, sem hrífur og gleður, segir
í frétt frá prestum Hafnaríjarðar-
kirkju. Eftir kvöldmessuna er safnað-
arheimilið Strandberg opið. Fyrr um
daginn fer fram árdegisguðsþjónusta
í kirkjunni sem hefst kl. 11 og er
sunnudagaskóli þá jafnframt í safn-
aðarheimilinu og einnig í Hvaleyr-
arskóla og Setbergsskóla.
Haustmessa
Kvenna-
kirkjunnar
KVENNAKIRKJAN heldur messu í
Neskirkju sunnudaginn 28. sept-
ember kl. 20.30. Þema messunnar
er litbrigði haustsins.
Séra Solveig Lára Guðmundsdótt- -
ir, formaður jafnréttisnefndar kirkj-
unnar, prédikar og segir frá nýrri
jafnréttisáætlun kirkjunnar. Jó-
hanna Þórhallsdóttir syngur einsöng
og kynnir lög af nýrri plötu sinni.
Kór Kvennakirkjunnar leiðir al-
mennan söng við undirleik Aðalheið-
ar Þorsteinsdóttur.
Kaffí á eftir í safnaðarheimilinu.
LEIÐRÉTTING
VEGNA mistaka við vinnslu blaðsins þetta kann að hafa valdið viðskipta-
birtust röng vikutilboð undir nafni vinum verslunarinnar. Hér á eftir
10-11 verslananna í gær. Beðist er koma tilboðin hjá 10-11 verslunun-
velvirðingar á þeim óþægindum sem um.
10-11 búðirnar QILDIR TIL 1. OKTÓBER VM nú kr. Verö áður kr. Tilbv. á mœiie.
Svínakótilettur 798 1089 798 kg
Brauðskinka 698 1141 698 kg
Örbylgjupopp 98 178 98 st.
Pepsi 2 Itr 125 155 62,50 Itr
Toro lambagrýta 118 148 118 St,
Bacon 598 991 598 kg
Nóa kropp 118 158 118 St.j
Jafningja-
fræðsla foreldra
SAMFOK býður bekkjarfulltrúum í
6.-10. bekk til fundar í Rúgbrauðs-
gerðinni, Borgartúni 6, kl. 10-12
laugardaginn 27. september. Á þess-
um fundi, sem ber yfirskriftina For-
eldrastarf er forvarnastarf, verður
kynnt verkefnið Fyrirmyndarfor-
eldrar en það er hugsað sem jafn-
ingjafræðsla meðal foreldra.
Samstarf foreldra á bekkjarvísu
fer vaxandi og mörg dæmi eru um
góðan árangur af því að stilla saman
strengina í ýmsum málum, t.d. varð-
andi útivist, afmæli og vasapeninga,
segir í fréttatilkynningu.
PU,
HJALPAR
MEÐ
HVERJUM
BITA
Mvllan leggur
af nv
kr. at nverju
Heimilisbrauði
til hjálparstarfs.
MYLLAN
HiÁLPARSTOFNUN
KIRKJUNNAR
Ss-
Ítaísíqir undirfatnaður með aíþjóðlega
íágceða viðurícenningu
\Jajolet
20% tynningararfsíáttur í Lyjju
föstud. 26. sept., (auyard. 27. se.pt.
frá kl. 13-18. Sérfræðingur á staðnum.
Dörnu-, herra- og
)) Samafatnaður.
bgs^ 96% Sómud4%> (ykra
FÆST í APÓTEKUM OG BETRI
VERSLUNUM UM LAND ALLT.
•Pvagteíka- og£rcnningarSw(ur
AXIOM’
LYFJA
Láfimúía 5.
LýV Seiídversíun
siini 588 6111 Ta^5541Z38.
Hjami, ístensRt súpermódet