Morgunblaðið - 01.10.1997, Side 1

Morgunblaðið - 01.10.1997, Side 1
72 SIÐUR B/C/D/E STOFNAÐ 1913 222. TBL. 85. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Blair lýsir markmiðum stjórnar sinnar á flokksþingi breska Verkamannaflokksins Boðar „fyrir- myndarríki“ næstu aldar Brighton. Reuter. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, kvaðst í gær vonast til þess að stjórnar sinnar yrði niinnst sem einnar af róttækustu ríkis- stjórnunum í sögu landsins og hvatti Breta til að taka höndum saman og gera Bretland að „fyrir- myndarríki 21. aldarinnar“. Blair lét þessi orð falla í ræðu á fyrsta þingi Verkamannaflokksins sem stjórnarflokks frá árinu 1978. Forsætisráðherrann sagði að mikl- ar kröfur væru gerðar til stjómar- innar eftir stórsigur flokksins í þingkosningunum 1. maí. Hún þyrfti að vera „stjórn háleitra hug- sjóna og erfiðra ákvarðana... Ekki aðeins betri en stjórn íhalds- manna heldur ein af merkustu og róttækustu umbótastjórnum í sögu okkar.“ Velferðarkerfíð stokkað upp Blair sagði að stokka bæri upp breska velferðarkerfíð en það væri aðeins eitt af mörgum erfiðum við- fangsefnum sem Bretar þyrftu að takast á við til að búa efnahaginn undir nýja öld. Hann kvaðst vilja byggja upp þjóðfélag samkenndar FRANSKA stjórnin ákvað í gær að takmarka umferð einkabfla í París í fyrsta siim eftir að niturdíoxíðs- mengunin í borginni fór yfir hættu- mörk. Stofnun, sem fylgist með loftmcnguniuni í París, sagði að mengunin hefði náð „þriðja stigi“, eða hæsta stigi mælikvarðans sem hún notar. Þriðja stigs loftmengun þýðir að almenningssamgöngur verða að vera ókeypis og yfirvöld- um ber skylda til að takmarka um- ferðina. og samúðar en bætti við að nýja velferðarríkið þyrfti að hvetja fólk til að afla sér lífsviðurværis og vera ekki háð opinberum styrkjum. Forsætisráðherrann kvaðst full- viss um að Bretar myndu ekki ótt- ast breytingarnar ef stjórnin sýndi þjóðinni fram á að þær væru nauð- synlegar. „Eg segi nú við bresku þjóðina: hlekkir meðalmennskunn- ar hafa brotnað, þreytan er að baki og við getum nú skarað fram úr á ný. Við getum byggt upp þetta fyr- irmyndarland 21. aldarinnar, orðið leiðarljós heimsins.“ Áhersla lögð á menntamál Blair sagði að stjórnin hygðist leggja ríka áherslu á umbætur í menntamálum og sagði að með samvinnu stjórnarinnar og einka- fyrirtækja yrði öllum skólum landsins séð fyrir tölvum ekki síðar en árið 2002. Hann kvaðst einnig ætla að auka framlög ríkisins til viðgerða á skólum í niðurníðslu og sagði að námsmönnum í fram- haldsskólum landsins myndi fjölga um hálfa milljón á næstu fimm ár- um. Stjórnin ákvað að banna notkun einkabfla með skráningarnúmer sem enda á sléttri tölu. Bannið gild- ir í dag og umferðin á götum borg- arinnar á að einskorðast við bfla með oddatölu, lögreglu-, slökkvi- liðs-, sjúkra- og leigubfla, auk raf- knúinna bifreiða og lítilia bfla með að minnsta kosti tvo farþega. Lognmolla h fur verið í París síðustu daga og stuðlað að mikilli niengun í miðborginni, eins og sjá má á myndinni. Reuter Umferð bíla takmörkuð í París Reuter RÁÐHERRAR í stjórn breska Verkamannaflokksins klappa fyrir Tony Blair forsætisráðherra á flokksþinginu í gær. Hann kvaðst þar stefna að því að Bretland yrði „fyrirmyndarríki 21. aldarinnar“. Reynt að leysa deiluna um byggðir gyðinga ísraelsstjórn segir stefnu sína óbreytta Jerúsalem. Reuter. BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðheiTa ísraels, sagði í gær að ísraelar hefðu ekki fallið frá áform- um sínum um að stækka byggðir gyðinga á Vesturbakkanum þótt þeir hefðu samþykkt að ræða „hlé“ á framkvæmdunum þegar friðar- viðræður við Palestínumenn hefjast eftir hálfan mánuð. „Við höfum samþykkt að ræða hugmyndina um hlé og höfum auð- vitað okkar eigin skoðun á málinu eins og Palestínumenn,“ sagði Net- anyahu við fréttamenn í Jerú- salem. „Ailir vita af framkvæmdum okkar í landnemabyggðunum, sem við ætlum að stækka, og ég hyggst ekki breyta stefnu okkar.“ Israelskir og palestínskir emb- ættismenn samþykktu á mánudag að hefja á ný friðamðræður, sem höfðu legið niðri í hálft ár vegna deilna um stækkun gyðingabyggð- anna og sprengjutilræða herskárra múslima. „ísraelar þm-fa að lýsa því tæpitungulaust yfir að þeir ætli að falla algjörlega frá áformum sínum um stækkun byggðanna," sagði Hassan Asfour, samningamaður Palestínumanna í friðarviðræðun- um. Stríð undirbúið? Amiram Levine, yfirmaður Isra- elshers i norðurhluta landsins, sagði í gær að Sýrlendingar væru að búa sig undir hugsanlegt stríð við Israel en kvaðst vona að þeir væra einnig að undirbúa friðarvið- ræður. Amnon Shahak, æðsti yfirmaður hersins, sagði hins vegar á fundi með utanríkis- og varnarmála- nefnd þingsins að ekkert benti til þess að Sýrlendingar hygðust gera árásir á ísrael. ísraelar yrðu þó að vera við öllu búnir. Noregur Minnka þarf þorskveiðar Ósló. Morgunblaðið. STÆRÐ þorskstofnsins í Barents- hafi hefur verið ofmetin síðustu 15 árin og því þarf að minnka veiðarn- ar niður í 700.000-750.000 tonn á næsta ári, að sögn Odds Nakkens, sem stjórnar rannsóknum norsku hafrannsóknastofnunarinnar. Nakken sagði að draga þyrfti úr veiðum á öllum fisktegundum, að ufsanum undanskildum. „Minnka þarf allar aðrar veiðar í Barentshafi og Norðursjó þegar kvótar næsta árs verða ákveðnir." Þorskkvótinn í ár er um 900.000 tonn og hefur aldrei verið jafn mik- ill. Nakken sagði l,jóst að stofninn þyldi ekki svo miklar veiðar. Var bílstjóri Díönu ofdrykkjumaður? London. Reuter. NÝ RANNSÓKN bendir til þess að Henri Paul, ökumaðurinn í síðustu bílferð Díönu prinsessu, hafi lengi verið ofdrykkjumaður, að sögn heimildarmanna í frönsku lögreglunni í gær. Áður hafði komið fram að í blóði bílstjórans var þrefalt meira áfengismagn en leyfilegt er þegar bílslysið varð. Ennfrem- ur fundust merki um tvö lyf, þunglyndislyfið prozac og ti- apridal, sem algengt er að notað sé í Frakklandi til að draga úr árásargimi og skjálfta of- drykkjumanna. Breska úrklippufyrirtækið Durrants Press Cuttings sagði í gær að dauði Díönu hefði fengið meiri umfjöllun í breskum fjöl- miðlum en nokkur annar atburð- ur á öldinni. 35% allrar umfjöllunai' stærstu dagblaðanna hefðu verið helguð fréttum af bílslysinu og atburð- um tengdum því. Umfjöllunin um stærstu atburði síðari heims- styrjaldar, svo sem undanhald breskra hermanna frá Dunkirk og uppgjöf þýskra nasista, var mun minni, eða um 26-27% af efni blaðanna á þeim tíma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.