Morgunblaðið - 01.10.1997, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristinn
VERIÐ er að vinna að steypuskála við suðurmunna Ilvalíjarðarganganna og er áætlað að því verki verði
lokið síðast í október. Þá verður hafist handa við samskonar steypuskála við norðurmunna ganganna.
Síðasta berghaftið
sprengt á föstudag
Minnkandi líkur á
morgunsj <5n varpi
SAMNINGAVIÐRÆÐUR Ríkis-
útvarpsins og Saga Film um morg-
unsjónvarp runnu út í sandinn í gær
þegar Saga Film lýsti því yfir að
fyrirtækið væri hætt við þátttöku.
Að sögn Sigurðar Valgeirssonar,
dagskrárstjóra sjónvarpsins, er
hugmyndin um morgunsjónvarp
ekki endanlega úr sögunni.
Sigurður sagði að viðræður
RÚV og Saga Film hefðu gengið út
á að sjónvarpið legði til efni en Saga
Film sæi um tæknilegu hliðina og
umbúnað. Báðir aðilar tækju
áhættu en jafnframt myndu báðir
hafa ávinning af því ef vel gengi.
„Við töldum okkur vera komna
allnálægt markinu þegar Saga Film
dró sig út úr þessu. Þeir leggja ekki
í þá áhættu sem þeir telja þessu
samfara," sagði Sigurður.
Hann sagði að nokkur undir-
búningsvinna hefði verið unnin en
ekkert starfsfólk verið ráðið. Hann
myndi á næstunni ásamt fleirum
ræða þá stöðu sem upp væri komin
við framkvæmdastjóra sjónvarpsins
og útvarpsráð, en hugmyndina um
morgunsjónvarp teldi hann ekki
endanlega úr sögunni.
„Það eru bæði til önnur fyrir-
tæki en Saga Film og einnig gætum
við mögulega gert þetta sjálf hér.
Ur þessu verður að vinna í samráði
við hlutaðeigandi aðila,“ sagði Sig-
urður.
Fossvogsskóli
Sjö kennarar segja upp
SJO kennarar við Fossvogsskóla í
Reykjavík sögðu í gær stöðum sín-
um lausum. I tilkynningu frá kenn-
urunum segir að þessa sársauka-
fullu ákvörðun hafi hver og einn
tekið að vandlega íhuguðu máli.
Kennararnir segja ástæður upp-
sagnanna m.a. þær, að starf þeirra
hafi verið forsmáð og einskis metið
til launa. Þeir vinni við einsetinn
grunnskóla og telji með öllu óvið-
unandi að ha.fa ekki fengið ráðn-
ingu i fullt starf. Þá séu þeir með
óviðunandi fjölda nemenda í hverj-
um bekk og telji sig ekki geta sinnt
þeim eins og grunnskólalög segi til
um.
Kennararnir segja, að þeir hafi
haft mikla ánægju af starfi sínu og
sinnt því af alúð og metnaði, en nú
sé þolinmæði þeirra á þrotum og því
stígi þeir þetta skref.
Leitinni líklega hætt
AÐEINS fimm metra vantar
upp á að Hvalfjarðargöngin
nái saman, en síðasta berghaft-
ið verður sprengt við formlega
athöfn á föstudag. f fyrrinótt
var hins vegar sprengt lítið
loftræstigat í gegnum haftið til
að sjá í hvora áttina náttúruleg
loftræsting er, að sögn Jó-
hanns Kröyer, yfirverkfræð-
ings Fossvirkis. Eftir endilöng-
um göngunum verða að
minnsta kosti 32 öflugar loft-
ræstiviftur, með vissu millibili,
sem hreinsa mengun frá bflum
út úr göngunum.
Eftir að búið verður að
sprengja síðasta haftið, verður
m.a. hafist handa við að klára
bergstyrkingar með sprautu-
steypu, en jafnframt verður
byrjað á því að leggja frá-
rennslislagnir og aðrar lagnir,
að sögn Jóhanns. „Þá verður
farið í að ganga frá um 2.000
rúmmetra dæluþró, en frá
henni er öllu vatni sem safnast
fyrir í göngunum dælt upp í
gegnum lóðréttar borholur."
Gert er ráð fyrir að hægt verði
að opna göngin fyrir umferð
síðla sumars 1998.
Hættulegt starf
Að sögn Jóhanns hafa um 80
manns að jafnaði unnið við gerð
Hvalfjarðaganganna, en þegar
mest var í sumar voru starfs-
mennirnir um 100. Af þeim eru
um 50 svokallaðir gangamenn
eða bormenn, sem skipta með
sér vöktum. Starf gangamanna
er íjölbreytt en um leið hættu-
legt, að sögn Jóhanns.
„Starf þeirra felst m.a. í því
að bora könnunarholur í berg-
ið, hlaða þær með dínamíti og
sprengja,“ segir Jóhann.
„Gangamenn keyra síðan grjót-
ið út og sfyrkja bergið með
bergboltum. Að því loknu setja
þeir sprautusteypu í þak og
veggi til frekari styrkingar. Og
ef með þarf þétta þeir bergið
með sementi," segir Jóhann.
Auk þess sjá gangamenn um að
koma fyrir rafmagnsköplum,
spennum og loftræstingu.
„Gangamenn þurfa að geta
gengið í öll þessi störf,“ segir
Jóhann. Hann bætir því við að
starf þeirra sé hættulegt og því
þurfi þeir alltaf að vita hver af
öðrum. Hann segir ennfremur
að samstarf gangamannanna
gangi vel og að mikil sam-
heldni ríki þeirra á milli.
Nokkrir Skandina
var í hópnum
Ekki hafa orðið nein slys á
mönnum við gerð ganganna,
en að sögn Jóhanns unnu
margir gangamannanna áður
við Vestfjarðagöngin. „Sú
reynsla hefur greinilega skilað
sér vel,“ segir hann. Þá segir
Jóhann að í hópnum vinni
nokkrir Skandinavar sem séu
með áratugareynslu í ganga-
gerð í mörgum löndum. Þegar
búið verður að sprengja síðasta
haftið verður hópi gangamann-
anna hins vegar skipt og hluti
hans mun hefja störf við Sultar-
tangavirkjun. Hinn hluti hópsins
heldur áfram að vinna við Hval-
fjarðargöngin og lýkur við þá
vinnu sem þar er eftir.
BORGARRÁÐ Reykjavíkur
frestaði í gær afgreiðslu á tillögu
borgarstjóra um að teknar verði
upp samningaviðræður við fulltrúa
veitingahússins Við Tjömina og
Leikfélags íslands um rekstur Iðnó
með fjölbreyttri menningarstarí'-
semi og veitingasölu.
Ellefu aðilar höfðu sótt um til
borgarinnar að reka Iðnó undir
þessum formerkjum. Eftir að nefnd
sem í sátu Guðrún Jónsdóttir, for-
maður menningarmálanefndar
borgarinnar, Jón Bjömsson, fram-
kvæmdastjóri menningar-, uppeld-
is- og félagsmála hjá borginni, og
Þórarinn Magnússon, formaður
endurbyggingarnefndar Iðnó, hafði
farið yfir umsóknir og rætt við um-
sækjendur taldi hún raunhæft að
semja annað hvort við ofangreinda
aðila eða þá við Listvinafélagið
Fullt hús. Meirihlutí nefndarinnar
mælti með samstarfi Við Tjörnina
og Leikfélags íslands sem fyrsta
kosti.
Lagt var fyrir borgarráð að
ákveðnir skilmálar yrðu settir í við-
ræðum við væntanlega rekstrarað-
ila. í þeim skilmálum segir m.a. að
markmið borgarinnar með endur-
byggingu Iðnó sé að þar verði fram-
vegis lifandi og fjölsótt menningar-
miðstöð með metnaðarfulla og
framsækna menningarstarfsemi
sem taki til sem flestra þátta menn-
ingar, lista og fræða. Allri starfsemi
verði hagað þannig að hæfi sögu
hússins og byggingargerð.
Veitingasala og e.t.v. önnur starf-
LEIT að Michael Leduc, 19 ára
Frakka sem ekkert hefur spurst til
frá 6. september, verður að líkind-
um hætt í dag.
Frakkinn átti rútumiða, sem
hann gat notað til að ferðast um
landið frá 3. til 16. september, en
nýtti aðeins ferðina til Hvolsvallar.
Leitarmenn hafa miðað við að hann
hafi gengið inn Fljótshlíð og ætlað
semi skuli renna fjárhagslegum
stoðum undir menningarstarfsem-
ina þannig að reksturinn komist af
án annars fjárstuðnings borgarinn-
ar en sem felst í því að leggja húsið
til endurgjaldslaust. Framlag veit-
ingarekstrarins nemi a.m.k. sem
svarar til þeirri upphæð sem hann
mundi ella greiða í leigu af hlið-
stæðu húsnæði í miðborginni.
Rekstraraðili miðli aðstöðunni til
þeirra sem stunda hinar ýmsu
greinar menningar, fræða og lista
en leggi hana ekki undir eigin starf-
semi. Rekstraraðilarnir skulu
að vaða Markarfljót til að komast í
Þórsmörk.
Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, sagði að
fólk víða um land teldi sig hafa séð
Michael Leduc, en ekki hefði verið
hægt að staðfesta þær frásagnir. I
dag, miðvikudag, yrði farið enn á ný
yfir öll gögn málsins, en að því
loknu yrði leit líklega hætt.
greiða borginni leigu sem svarar til
fasteignagjalda en greiða sjálfir
rekstrarkostnað og minni háttar
viðhald vegna hússins.
Sérstök samráðsnefnd skal hafa
það hlutverk að fylgjast með því að
starfsemin í húsinu sé í samræmi
við þessi markmið. í nefndinni eiga
að sitja einn fulltrúi borgarinnar,
annar frá Bandalagi íslenskra lista-
manna og sá þriðji frá rekstraraðil-
anum. Vinni rekstraraðili ekki í
samræmi við sett markmið geti
nefndin lagt til að Reykjavíkurborg
rifti samningi aðilanna.
Borgarráð frestaði afgreiðslu tillögu um rekstur Iðnó
Borgarstjóri vill semja við Leik-
félag Islands og Við Tjörnina
i
i
i
i
í
I
f
5
(
í
l
C
Í