Morgunblaðið - 01.10.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997 15
LANDIÐ
ÓLAFUR Hilmar Sverrisson, bæjarstjóri, Ólafur Sverrisson, atvinnuráðgjafi Vesturlands , Emil
Karlsson og Kristinn J. Albertsson frá Iðntæknistofnun.
Möguleikar lítilla fyrirtækja
til nýsköpunar kynntir
Stykkishólmi - Atvinnuráðgjöf
Vesturlands, Iðntæknistofnun og
Stykkishólmsbær stóðu fyrir kynn-
ingu á stuðningsaðgerðum fyrir lít-
il og meðalstór fyrirtæki í Stykkis-
hólmi miðvikudaginn 17. septem-
ber. Á fundinn komu þeir Emil
Karlsson og Kristinn J. Albertsson
frá Iðntæknistofnun.
Emil kynnti starf Iðntæknistofn-
unar og á hvern hátt hún getur
aðstoðað iðnfyritæki og einstakl-
inga varðandi þróun og rannsóknir.
Þá útskýrði hann verkefnið Kynn-
ingarmiðstöð Evrópurannsókna og
fór yfir fjórðu rammaáætlun ESB
um styrki til atvinnusköpunar.
Kristinn kynnti átak til atvinnu-
sköpunar og Evrópumiðstöð á sviði
litilla og meðalstórra fyrirtækja.
Það kom fram að í Evrópu eru það
lítil og meðalstór fyrirtæki sem
skapa mestu aukningu í vinnuafli.
Hjá stórfyrirtækjum hefur orðið
stöðvun og jafnvel samdráttur í
vinnuaflsþörf. Því er lögð áhersla á
að ijölga minni fyrirtækjum og
bjóða þeim aðstoð til að styrkja og
efla sína starfsemi. í gegnum fjórðu
rammaáætlun ESB er þessum hópi
fyrirtækja gert auðveldara að
markaðssetja sína starfsemi og ná
samstarfi við fyrirtæki og stofnanir
í ýmsum löndum Evrópu.
Hvatt til aukins
alþjóðasamstarfs
Markmiðið með átaki til atvinnu-
sköpunar er m.a. að samræma
verkefni til að hvetja og styðja við
lítil og meðalstór fyrirtæki svo og
einstaklinga á sviði atvinnu- og
nýsköpunar. Þá er hvatt til aukins
alþjóðasamstarfs fyrirtækja og út-
rásar þeirra á erlenda markaði. A
vegum ESB hefur verið komið á
fyrirtækjastefnumótum sem taka
til fjölmargra greina atvinnulífsins.
Eru slík stefnumót haldin á hveiju
ári í ýmsum löndum og fjölgar
þátttakendum frá íslandi sem
sækja stefnumótin til að koma
sinni framleiðslu á framfæri og ná
í þekkingu.
Milli 30 og 40 manns sóttu fund-
inn og voru það einstaklingar sem
hafa áhuga á nýsköpun og eins
fulltrúar iðnfyrirtækja á Snæfells-
ensi. Fundurinn var gagnlegur.
Hann opnaði betur augu manna
fyrir því hve auðveldara er að fá
aðstoð við að koma hugmyndum í
framkvæmd og eins hve fjarlægðir
hafa minnkað í þessu efni og auð-
veldara er að hafa samskipti og
skiptast á upplýsingum.
Heitt vatn komið
að Skátafelli
Grund - Hitaveita
Skorradals ehf. er að
ljúka við áætlaða
dreifiveitu í Skorrad-
al og nú i vikunni var
vatni hleypt á leiðsl-
una inn í Þófagil.
Það ríkti mikil
ánægja við skátaskál-
ann Skátafell þegar
yfir 80 stiga heitt vatn
tók að streyma úr
leiðslunni við dælusk-
úrinn hjá skátaskálan-
um. Þegar búið verð-
ur að tengja dæluna
er ekkert sem stendur
í vegi fyrir því að
skátaskálinn og þeir
sumarbústaðaeigend-
ur í Þófagili sem vilja
fá heitt vatn í hús sín,
fái þá ósk uppfyllta,
þvi heita vatnið verð-
ur þá allsstaðar komið
að lóðarmörkum.
Við hitaveituvæð-
ingu skátaskálans
verður algjör bylting
á nýtingu skálans og
nágrennis. Nú verður
skálinn með stofuhita
allan ársins hring, svo það verður
jafn notalegt að gista þar á vetr-
um sem sumrum. Tjaldsvæðin
austur af skálanum verða bæði
með heitu og köldu vatni, einnig
er komið rafmagn á tjaldsvæðið,
því rafstrengur var lagður í
skurðinn sem gerður var fyrir
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
ÞAÐ ríkti mikil ánægja við skátaskálann
Skátafell þegar yfir 80 stiga heitt vatn
tók að streyma úr leiðslunni við dæluskúr-
inn hjá skátaskálanum.
hitaveitulögnina.
Það er fyllsta ástæða til að
óska Skátafélagi Akraness til
hamingju með þetta glæsilega
útivistarsvæði sitt og að öllum
öðrum ólöstuðum á Jón Leifsson
drýgstan þátt í því uppbygging-
arstarfi.
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
GUÐJÓN Petersen þakkaði Helgu Elísdóttur, ekkju Krist-
jóns, fyrir gjöfina um leið og hún afhjúpaði minnisvarðann.
Afhentu skrúðgarð
til eignar og umsjár
Hellissandi - Erfingjar Kristjóns
Jónssonar, sjómanns á Gilsbakka
á Hellissandi, afhentu nýlega
bæjarstjórn Snæfellsbæjar skrúð-
garðinn Tröð til eignar og umsjár.
Kristjón hóf ræktun í garðinum
árið 1950. Þá höfðu fáir trú á
að honum tækist að koma þar
upp skrúðgarði. Aðstæður til tijá-
ræktar á Hellissandi hafa alltaf
verið taldar erfiðar. Umhverfis
Tröðina er steingarður sem talinn
er vera hlaðinn af blindum manni
í upphafi aldarinnar, Árna
Magnússyni. Árni var Borgfirð-
ingur að uppruna en fluttist hing-
að vestur sem verslunarstjóri
Proppeverslunar fyrir síðustu
aldamót.
Við þetta tækifæri var afhjúp-
aður minnisvarði um Kristjón
Jónsson en hann hefði orðið 100
ára, 2. janúar sl. Helga Elísdótt-
ir, ekkja Kristjóns, afhjúpaði
minnisvarðann um leið og hún
afhenti garðinn. Bæjarstjórn
bauð til kaffisamsætis í Félags-
heimilinu Röst af þessu tilefni
sem Kvenfélag Hellissands bar
fram. Þar minntist Grétar Krist-
jónsson föður síns og þessa
merkilega framtaks hans. Kirkju-
kór Ingjaldshólskirkju söng undir
stjórn Kay Wiggs Lúðvíksson,
bæði í Tröðinni og í Félagsheimil-
inu Röst. Guðjón Petersen bæjar-
stjóri þakkaði síðan erfingjum
Kristjóns heitins Jónssonar gjöf-
ina.
Landslagsarkitekt
skipuleggur garðinn
Ætlun bæjarfélagsins er að
koma þarna upp almennings-
garði. Hefur Pétur Jónsson lands-
lagsarkitekt verið fenginn til að
skipuleggja garðinn og munu tii-
lögur hans liggja fyrir næsta vor.
Þá er ætlunin að halda þar áfram
gróðursetningu, koma þangað
vatnslögn og koma upp aðstöðu
fyrir almenning að tylla sér niður
og njóta garðsins.
Skrúðgarðurinn er í hrauninu
ofan byggðarinnar, austan við
Sjómannagarðinn og íþróttavel-
lina og er ekki sýnilegur frá Út-
nesvegi. Mörgum finnst hann
vera eins og vin í hijóstrugu landi.
En þannig eru þær raunar marg-
ar þessar vinjar í hrauninu sem
engum eru sýnilegar nema úr lofti
og þegar gengið er út í það.
VtvihdalumaióL
Ganhí Kcáahma Á
í4f
Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar leikur fyrír dansi.
föstudaginn 17. og
laugardaginn 18. október.
KiftuuA, eA Uitut óJjGAxfa+il&ýL
SeAa ÆKgk
PéÍudiJ^u^UfíAAJOit #
íjjtzuláu sSs**
ídhouH
Öiolettua
o#o#
Stejjá+i QíUgAo+i,
tuulUAÍeíhcuU
Hinir landskunnu, síkátu og frábæru skagfírsku söngvarar:
opnaö kl. 19:00 fyrir matargestt.
Skemmtun hefst kl 20:00.
Vert: Kr. 4.500 matur og skemmtun
Kr. 1.800 á skemmtun og dansleik.
Kr. 1.000 á dansleik.
HOm jAUAND
Síml 568-7111-Fax 568-5018.
Miðasala opin daglega kl. 13-17.
O^TSEÐIU
Koníakslöguð sjávarréttasúpa.
Sinnepshjúpabur lambavöðvi
meö smjörsteiktum jaröeplum,
grænmeti og skógarsveppasósu.
Heimalagabur konfektís meö
Mozartsúkkulaötsósu.
... (/famZeíjmii.ilteiitntli.tUi(\iir hnulsin.s - /tc.v/u ,\/tc/ttni(i/siHt//(triui' tuj .s/iciiiindlct/uslu/o/hi<\