Morgunblaðið - 01.10.1997, Side 40
' 40 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Afmæli ungra
barna
Fimmtudaginn 25. sept. sl. var á rás 1 í
þættinum Samfélaginu í nærmynd rætt um
mikið sykurát í barnaafmælum. Kristín
Gestsdóttir tekur undir það og gefur okkur
uppskriftir af „minna sætu“ meðlæti.
I FYRRNEFNDUM þætti var
minnst á skreytingu á hinni
ómissandi afmælistertu sem oft
væri með miklu kremi og hlaðin
sælgæti. Hvernig er það, er það
ekki helst sælgætið sem börnin
vilja? Þau skilja oft eftir stóran
hluta af kökunni. Ég mæli með
að kökurnar séu skreyttar með
ávöxtum og að þær séu hafðar
þynnri. Flestum börnum fínnst
ávextir góðir og ekki er minna
skraut í þeim en sælgætinu. And-
lit má búa til úr ávöxtum, kívi-
sneið er tilvalan í stóreygðan
karl og nokkur stór jarðarber í
munninn eru ekki síðri, hárið
getur verið úr appelsínu- eða
mandarínusneiðum,
eða krullur úr bláum
eða rauðum vínbeij-
um. Látið bömin
hjálpa til, þau hafa
hugmyndaflugið.
Hér er boðið upp á
frekar þunna súkk-
ulaðiköku sem bök-
uð er í skúffunni
úr bakaraofnin-
um, hún síðan
skorin í frekar
litla bita og
þunnt lag af
kremi sett ofan
á og ekkert inn
í. A hvem bita
eru settir fal-
legir lystugir
ávextir. Látið
börnin raða
ávöxtunum ofan
á, sjaldan skortir
þau listræna
hæfíleika.
Súkkulaðikaka
150 g smjörvi eða smjörlíki
jarðarbeijum og steina úr vínbeij-
um. Afhýðið kívi og mandarínu,
skerið laufin í tvennt og kívisneiðar
í fernt. Raðið á víxl á kökuferning-
ana.
Sætir og ósætir
snúðar
16 dl hveiti
1 'A msk. þurrger
1 tsk. salt
100 g smjörlíki
1 dl matarolía
1 peli fíngurvolgt vatn
3egg
1 'A bolli sykur
'A tsk. salt
1 dl kakó
1 tsk. matarsódi
'A tsk. lyftiduft
1 tsk. vanilludropar
5 dl hveiti
2 'A dl mjólk
Allt hrært saman, bökunarpappír
settur á skúffuna úr eldavélinni og
deiginu smurt á. Bakað við 190°C,
en í blástursofni við 180°C í 12-15
mínútur. Kakan síðan kæld.
Kremið og
ávextirnir
3 dl flórsykur (já, það er mikið)
___________1 msk. kakó__________
___________1 dl smjörvi_________
‘A tsk. vanilludropar
__________1 eggjarauða__________
jarðarber
blá vínber
græn vínber
1 mandarína
1 kíví
1. Hrærið allt sem á að fara í
kremið saman og smyijið á kökuna,
skerið í ferkantaða frekar litla bita.
2. Skerið jarðarber og vínber í
tvennt langsum, fjarlægið lauf á
1. Setjið þurrefni í skál, bræðið
smjörlíki, kælið örlítið og blandað
saman við vatnið og matarolíuna.
Setjið út í og hrærið vel saman í
hrærivél. Leggið stykki yfir skálina
og látið lyfta sér í um 2 klst.
2. Setjið deigið á hveitistráð borð,
skiptið í tvennt. Fletjið hvort út í
ferkantaðan bút um 60x40 sm.
Inn í sætu snúðana,
um 20 stk.
30 g smjör eða smjörvi + 'A dl
matarolía
‘A dl kanilsykur
Inn í ósætu snúðana,
um 20 stk.
50 g ijómaostur + 'A dl matarolía
+1 msk. sinnep
200 g skinka í smábitum
fersk smátt klippt steinselja
1. Skiptið deiginu í tvennt og
fletjið hvom bút út svo að hann
verði nokkurn veginn ferkantaður,
60x40 sm.
2. Smyijið smjörinu eða ijðma-
ostinum og tilheyrandi á hvom
deigbút og vefjið saman langsum.
Skerið hvora rúllu í um 20 snúða.
Raðið þeim á bökunarpappír. Leggið
stykki yfir og látið lyfta sér í 30-40
mínútur.
3. Hitið bakaraofn í 210°C, blást-
ursofn í 190°C, setjið f miðjan ofn-
inn og bakið í 15 mínútur eða leng-
ur.
I DAG
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir fyrir
góðan golfþátt
„KYLFINGAR allra
landa“ hér á landi hljóta
að þakka Sjónvarpinu og
Búnaðarbankanum fyrir
að gefa þeim og öðrum
sjónvarpsáhorfendum
kost á að vera um helgina
á mestu golfhátíð ársins,
sjálfri Ryder Cup golf-
keppninni suður á Spáni.
Hjá Bergmann, sem
stjórnaði útsendingunni,
gekk allt upp. Fjöldi
fólks, sem ekki þekkir
golf nema af afspurn,
veit ég að naut útsend-
ingarinnar og þess að
kynnast golfínu allvel.
Eldri kylfingur.
Bréf til Siggu
í óskilum
ER MEÐ bréf í óskilum.
Bréfið er stílað á Siggu,
Miklubraut, Reykjavík,
en húsnúmer sést ekki.
Bréfið er frá Beverly,
Calle 3, F-3, Toa Linda,
Toa Alta, Puerto Rico.
Ef einhver kannast við
þetta er hann beðinn að
hafa samband í síma
569-1318 til kl. 16.
Langholts-
skóli ’52
NEMENDUR í Lang-
holtsskóla ’52 ætla að
hittast um næstu helgi.
Þeir sem vildu vera með
tilkynni þátttöku strax
hjá Vilhjálmi Reyni í
síma 551-6716, Finn-
boga í síma 561-6225 og
Þorgerði í síma
553-1561.
Tapað/fundið
Svunta af
barnavagni
í óskilum
SVUNTA af bamavagni,
dökkblá, fannst í ná-
grenni Breiðagerðis-
skóla. Uppl. í síma
553-5035.
Blá USA taska
týndist
BLÁ USA taska með
teppi, vekjaraklukku og
skyrtu týndist í miðbæ
Reykjavíkur laugardag-
inn 20. september. Þeir
sem hafa orðið varir við
töskuna hringi í síma
564-2554.
Persneskur köttur
týndur
BRÚNN persneskur
köttur fór að heiman frá
Grundargerði 26 að
kvöldi 28. september si.
Hans er óskaplega sárt
saknað. Ef einhver hefur
orðið hans var, vinsam-
lega hringið í síma
896-5894.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson.
ÞESSAR duglegu stelpur héldu tombólu til styrktar
sundlaugarbyggingu í Vík í Mýrdal og söfnuðu þær
kr. 6.000. F.v. Helena Smáradóttir, Þorgerður Hlín
Gísladóttir, Margrét Lilja Sigurgeirsdóttir, Sigrún
Bjarnadóttir, fyrir framan Björk Smáradóttir, Ing-
veldur Anna Sigurgeirsdóttir.
SKÁK
Umsjón Margcir
Pctursson
GARY Kasparov teflir nú á
Fontys mótinu í Tilburg í
Hollandi ásamt ellefu stór-
meisturum af yngri kyn-
slóðinni. Þetta endatafl kom
upp í fyrstu umferð móts-
ins. Heimamaðurinn Loek
Van Wely (2.655) var með
hvítt, en Kasparov (2.820)
hafði svart og átti leik: 47.
- b4! 48. axb4 - a3 49.
d5 - Kf4 50. Bg6
- cxd5 51. Rxd5+
- kg5 og hvítur
gafst upp, því svart-
ur nær að vekja upp
nýja drottningu.
Staðan á mótinu
eftir þijár umferðir:
1. Kasparov 3 v., 2.
Kramnik, 2 ‘A v.,
3.-5. Leko, Ung-
veijalandi, Adams,
Englandi, og Svidl-
er, Rússlandi, 2 v.,
6.-7. Júdit Polgar
og Shirov, Spáni,
1 ‘A v., 8.-10. Oní-
sjúk, Úkraínu, Piket og Van
Wely, Hollandi, 1 v., 11.
Lautier, Frakklandi, 'A v.,
12. Tal Shaked, Bandaríkj-
unum, 0 v.
HVÍTUR leikur og vinnur.
Með morgunkaffinu
ÞÚ VERÐUR að hætta
að lesa smáauglýsingar
um það sem fæst gefins,
Sigrún mín.
ÞEIR eru enn forneskju-
legri en við héldum. Leið-
togi þeirra er MAÐUR.
HANN segir að KR-ingar
séu í rosalegri sókn núna.
ÁSTÆÐAN fyrir því að
ég sótti þig ekki í vinnuna
er einfaldlega sú að þú
fórst á bilnum í vinnuna
í morgun.
JÚ TAKK, mér liður tals-
vert betur en áður, þótt
minnið sé ennþá svolítið
lélegt.
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJA fannst bráð-
skemmtileg umfjöllun í
sunnudagsblaði Morgunblaðsins
núna um helgina um „Sigurhjartað"
sem „slær í Vestmannaeyjum". Eins
og fyrirsögn greinarinnar gefur til
kynna, er greinin lýsing á Vest-
mannaeyjum, stemmningunni í
bænum, eftir að ÍBV tiyggði sér
íslandsmeistaratitilinn, söguleg
upprifjun á árangri liðsins, frásögn
af því hversu jákvæð áhrif hinn
góði árangur liðsins hefur á bæjar-
lífið og raunar atvinnulífið einnig.
Það er án efa mikið til í orðum
Bjama Jóhannssonar, sem sagði
eftir sigurinn á Keflavík: „Án þess
að ég sé að gera lítið úr öðrum
held ég að svona staðir séu með
miklu meiri sál en þéttbýlustu svæð-
in. Hver hefur sinn stíl og hér ein-
kennist líf fólks af dugnaði og mik-
illi vinnu.“ Staðreyndin virðist vera
sú, að þegar liðum á landsbyggð-
inni tekst að ná góðum árangri á
landsvísu, þá virðast heimamenn á
hveijum stað taka þátt í baráttunni
og uppskeruhátíðum af lífi og sál.
Það sýndu Borgnesingar í fyrra,
þegar Skalla-Grími tókst að vinna
sæti í efstu deildinni. Sömu sögu
er að segja af Ólafsfirðingum, sem
hafa stutt sitt lið, Leiftur, með ráð-
um og dáð. í gegnum tíðina hefur
stuðningur Skagamanna við IA í
knattspyrnu verið annálaður og
mönnum er enn í fersku minni
hvernig Selfyssingar studdu við
bakið á sínum mönnum í handbolt-
anum, þegar lið þeirra var að hasla
sér völl á meðal þeirra bestu.
xxx
ÁKVÆTT viðhorf forystu-
manna atvinnulífsins í Vest-
mannaeyjum til ÍBV kemur félaginu
örugglega til góða. Það var fróðlegt
að lesa það sem Sighvatur Bjarna-
son framkvæmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum
sagði í samtali við Morgunblaðið í
áðurnefndri grein: „I fyrst lagi skil-
ar árangur í íþróttum betra og já-
kvæðara andrúmslofti á vinnustað
sem aftur skilar sér í betri afköst-
um ... 1 öðru lagi sýnir reynslan að
þar sem er öflugt íþróttastarf er
minna um vandamál hjá börnum
og unglingum og því er gott fyrir
starfsfólk okkar að vita af öflugu
íþróttastarfi á svæðinu. Auk þess
er mikilvægt fyrir Eyjarnar að við
séum framarlega í íþróttum sem
öðru og því styðjum við við bakið
á íþróttunum eins og við getum.
Þetta er eins og í atvinnulífinu.
Þegar ég kom aftur til Eyja fyrir
fimm árum stóð atvinnulífið á
brauðfótum og íþróttalífið gekk illa.
Eiginlega hafði fólk ekkert jákvætt
til að tala um en nú hefur orðið
mikil breyting til batnaðar.“