Morgunblaðið - 11.10.1997, Side 6

Morgunblaðið - 11.10.1997, Side 6
1 6 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GUNNAR Birgisson og Fjölnir Stefánsson, skólastjóri Tónlistar- skóla Kópavogs, takast í hendur eftir undirritun samningsins. Á milli þeirra eru Sigurður Geirdal og Runólfur Þórðarson. Stofnsamningur um Tónlistarhús Kópavogs UNDIRRITAÐUR hefur verið stofnsamningur milli Tónlistar- félags Kópavogs og bæjarstjórnar um byggingu tónlistarhúss í Kópa- vogi. Athöfnin fór fram í Lista- safni Kópavogs, Gerðarsafni, í gær. í húsinu verður salur, tón- stofa, fyrir 300 gesti og aðstaða fyrir Tónlistarskóla Kópavogs. Framkvæmdir eru þegar hafnar og áætlað er að tónstofan verði að fullu frágengin í nóvember á næsta ári, Tónlistarskólinn mun taka til starfa í nýja húsinu haust- ið 1999. Fullbúið kostar tónlistar- Austur- stræti 9 er til leigu TÓMAS Tómasson veitinga- maður er hættur við að setja upp veitingastað í Austurstræti 9 þar sem verslun Egils Jacobs- en var til húsa. Björgvin Ólafsson, einn eig- enda hússins, segir að þegar beiðni um vínveitingaleyfí fyrir staðinn var synjað hafí Tómas dregið sig í hlé. Björgvin segir að enginn leigusamningur hafí verið gerður og til standi að leigja húsið út. Borgaryfirvöld setja sig ekki upp á móti því nú að staðurinn fái vínveitingaleyfi. „Við viljum helst að þama verði rekin verslun en það virð- ist lítill áhugi vera fyrir því. Þess vegna er líklegra að þama verði veitingarekstur,“ sagði Björgvin. húsið 300 milljónir króna. Sérstakt félag hefur verið stofnað um byggingu og rekstur tónlistarhússins. í stofnsamningi segir að hlutverk þess sé m.a. að auðga tónlistarlíf í Kópavogi og skapa ákjósanlega aðstöðu til tón- listarnáms. Bæjarsjóður Kópa- vogs á 62,5% eignarhlut í félag- inu, Tónlistarfélag Kópavogs á 27,5% og stefnt er að 10% eignar- hlut einstaklinga og fyrirtækja. Leitað verður að fijálsum fjár- framlögum á meðan á byggingu stendur. Sérstök sljórn verður yfir tónlistarhúsinu og ræður hún forstöðumann þess og annað starfsfólk og ber ábyrgð á rekstri hússins gagnvart eigendum þess. Menningarmiðstöð í hjarta bæjarins Tónlistarhúsið mun rísa austan Gerðarsafns á milli Hamraborgar og Borgarholtsbrautar. Ætlunin er að síðar verði byggt þar Safna- hús með framtíðaraðstöðu fyrir bókasafn bæjarins og Náttúru- fræðistofa. Þegar fram líða stund- ir munu þessar byggingar mynda menningarmiðstöð í miðbæ Kópa- vogs. Arkitektar hússins eru JL arkitektar, Jakob Líndal og Krist- ján Ásgeirsson. Um hljóðhönnun sjá verkfræðingarnir Stefán Ein- arsson og Steindór Guðmundsson. í tónlistarhúsinu verður fyrsti sér- útbúni tónleikasalur landsins auk 900 fermetra aðstöðu Tónlistar- skóla Kópavogs. Byggingarnefnd leggur á það áherslu að húsið skuli vera einfalt en vandað að allri gerð og meginá- hersla er lögð á gæði hljómburðar í tónstofu og að skapa starfsemi Tónlistarskólans þá aðstöðu sem hæfi merku menningarstarfi. KRISTJÁN KRíSTJANSSON Aftvennu illu BÓKJk MANABARfNS ■2.700.- Verð frá 1. nóvember 3.880,- Ritgerðirum heimspeki Þessi bók er safn ritgerða um fjölbreytt efni: siðferði, stjórnmál, menntun og listir. Efnistök doktors Kristjáns Kristjánssonar höfða til breiðs lesendahóps. Laugavegl 18 • Sfml 515 2500 • Slðumúla 7 • Slml 510 2500 21. þin g LÍV sett í skugga mikils ágreinings um skipulagsmál Reynt verður að selga niður deilur í nefnd ÞING Landssambands ísl. verslunarmanna er haldið á Grand Hótel Reykjavík og er um leið afmælishátíð vegna 40 ára afmæl- is sambandsins. HARÐAR deilur milli Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur og lands- byggðarfélaga verslunarmanna verða eitt megin umræðuefnið á 21. þingi Landssambands ísl. verslunar- manna sem hófst í gær. VR hefur hótað að segja sig úr sambandinu sem hefði þá þýðingu að VR færi jafnframt úr ÁSÍ. Við umræður á þinginu í gær fjallaði Magnús L. Sveinsson ítarlega um ágreininginn sem uppi er og lagði áherslu á að verslunarmenn næðu sáttum og sagði að skapa þyrfti vettvang til að félögin ræddu saman og leystu deilumálin. VR mun því ekki tilkynna úrsögn úr sambandinu á þinginu, að sögn Magnúsar, og er nú reiknað með að sett verði á laggirnar nefnd sem falið verði að leita sátta og koma með tillögur að breyttu skipulagi fyrir 1. október á næsta ári. Vill endurnýja einingu og samheldni Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, for- maður LÍV, vék einnig að deilunum innan LÍV við setningu þingsins og sagðist vonast til að verslunarmenn sneru bökum saman á þinginu og endurnýjuðu þann anda einingar og samheldni sem lengst af hefði ein- kennt verslunarfólk. Búist er við mikilli umræðu og talsverðum deilum um þetta mál þegar umræður fara fram um laga- breytingar og skipulagsmál á þing- inu í dag og á morgun. Verkalýðsforingjar og aðrir gest- ir við setningu þings LÍV í gær hvöttu þingfulltrúa eindregið til samstöðu verslunarmanna. Tveir fyrrverandi formenn landssam- bandsins, Sverrir Hermannsson bankastjóri og Björn Þórhallsson, ávörpuðu þingið og hvöttu til sam- heldni og sátta. Björn var sæmdur gullmerki LÍV fyrir áralöng störf sín í formennsku sambandsins á þinginu í gær. 40 ára afmælishátíð Landssambandið er 40 ára um þessar mundir og bar setningarat- höfn þingsins þess merki í gærmorg- un. í sambandinu eru 25 félög versl- unar- og skrifstofufólks um land allt og eru félagsmenn 18.715 tals- ins, 11.881 kona og 6.834 karlar. LÍV er annað stærsta landssam- bandið innan ASÍ, næst á eftir Verkamannasambandinu. Fyrir hádegi í dag fer fram sér- stök umræða um vinnuumhverfi launafólks og Evrópusamstarfíð og eftir hádegi er á dagskrá umræða um lífeyrismál, þar sem Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, flytur ræðu. Þing- inu lýkur á sunnudag. Umgjörð og innihald Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson Sigurður Hallmarsson og Guðbjörg Thoroddsen í hlutverkum sín- um í uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Hart í bak. LEIKUST Lcikfclag Akureyrar á Rcnnivcrkstæðinu HARTÍ BAK Höfundur: Jökull Jakobsson. Leik- sljóri: Eyvindur Erlendsson. Leik- mynd: Eyvindur Erlendsson og Hall- mundur Kristinsson. Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason. Val tónlistar og leikhljóða: Eyvindur Erlendsson og Gunnar Sigurbjörnsson. Leikarar: Aðalsteinn Bergdal, Agnes Þorleifs- dóttír, Bragi Bragason, Eva Signý Berger, Guðbjörg Thoroddsen, Hall- dór Gylfason, Hákon Waage, Marinó Þorsteinsson, Marta Nordal, Ólafur Sveinsson og Sigurður Hallmarsson. Föstudagur 10. október. LEIKRITIÐ Hart í bak er meistaralega samsett af hliðstæðum og andstæðum, táknum og sam- blandi af stílfærðu raunsæi og botn- lausri rómantík. Verkið er skipuleg- ar upp byggt en seinni verk Jökuls; það gengur því fullkomlega upp sem heild. Vinsældir þess byggjast á blöndu af gamansemi og trega, áhugaverðum persónum og skáld- legum texta. Vel heppnuð uppfærsla á þessu verki byggir á tvennu: að umgjörðin sé við hæfi og að leikurinn sé vand- aður. Hér er ekkert sparað I leik- myndina; hún er allsráðandi. Hér er fullsköpuð húsaþyrping á sjávar- bakka, meira að segja malbikað á milli húsanna. Það er einstaklega gaman að virða fyrir sér skökk og skæld húsin, brimsorfna mölina og snúrustaurinn. Mikið hefur verið lagt upp úr að leikmyndin virki eins djúp og auðið er. Leikmyndin er enda vel nýtt : fyrri hlutanum en eftir hlé verða staðsetningar nokkuð einhæf- ar. Ennfremur er nokkuð þröngt um leikarana þegar inn ( húsið er komið og leikurinn færður út aftur til að fá meira rými. En allt sleppur þetta fyrir horn og í heildina er leikmynd- in stórvirki. Ljósin eru oft sniðuglega útfærð, en bæði er birta ónóg í þeim atriðum sem gerast að degi til og leikurum virðist frekar gert að færa sig inn í kastljós frekar en því sé beint að þeim. Annað sem er athugavert við útlit- ið eru búningar og gervi. Þar ægir saman tísku næsta áratugar eftir ritunartíma verksins, því varla urðu kennarar svo hárprúðir fyrr en í bytjun áttunda áratugarins. Sígau- namúndering spákonunnar og þá sérstaklega svarta hárkollan er líka fráleit, sem og síðpilsið sem hún er í undir pelsinum í lokaatriðinu. Láki og þó sérstaklega Árdís eru svo í seinni hlutanum eins og klippt út úr amerískri bíómynd sem á að ger- ast við upphaf sjöunda áratugarins. Þarna hefði þurft hugmyndaríkan búningahönnuð sem hefði þá annað- hvort verið trúr tíma verksins eða fært í stílinn og gefíð búningunum trúverðuga heildarmynd. Leikurinn er nokkuð jafn; hvergi afleitur en því miður heldur hvergi framúrskarandi. Marta Nordal kemst einna best frá sínu. Hún skapar trausta mynd af Árdísi og er öll á hægu nótunum. Vönduð vinna hjá Mörtu. Láki er afar ungæðislegur og kraftmikill Láki. Hann er nokkuð sannfærandi sem unglingurinn sem búinn er að tapa baráttunni áður en hún er byijuð en á stundum hefði mátt tempra lætin örlítið. Sama er hægt að segja skoppersónumar skó- smiðinn og skransalann. Stígur Þrá- ins Karlssonar er mjög fyndinn og Finnbjöm Hákonar Waage ámátlegur en þeir ganga full langt í kómíkinni, sem dregur úr áhrifamætti persón- anna. Jónatan nær að öðlast samúð áhorfenda í túlkun Sigurðar Hallm- arssonar en hún er í heildina of lit- laus og eintóna. Guðbjörgu Thorodds- en tekst stundum að kynda undir glóðunum hjá Áróru þrátt fyrir bún- inginn en hún nær aldrei fyllilega tökum á henni. Aðalsteinn Bergdal gerir gott úr vandræðalegri persónu Péturs, án þess að ástæður dálætis hans á Láka verði trúverðugar, en svona er þetta nú frá hendi höfund- ar. Aðrir leikarar í minni hlutverkum sköpuðu skemmtilegar myndir, sér- staklega voru Eva Signý Berger og Agnes Þorleifsdóttir gellulegar smá- stelpur. Þessi sýning á Hart í bak stendur fyrir sínu og er verki Jökuls Jakobs- sonar trú, án þess þó að hrífa neitt sérstaklega. Það hvarflar að undir- rituðum að það hefði mátt eyða meira púðri í leikstjórnina að ósekju, þó að vissulega sé leikmyndin mikil- fengleg. Sveinn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.