Morgunblaðið - 11.10.1997, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.10.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 13 AKUREYRI MESSUR AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli í Safnaðar- heimilinu kl. 11 á morgun. Samvera fyrir eldri börn í fundarsal: Munið kirkjubíl- ana. Guðsþjónusta kl. 14 á morgun, sunnudag, séra Birgir Snæbjörnsson. Fund- ur æskulýðsfélagsins kl. 17 sama dag. Biblíulestur í Safnaðarheimili kl. 20.30 á mánudagskvöld, sr. Guð- mundur Guðmundsson hér- aðsprestur leiðir samver- una um efnið „I fótspor meistarans“. Mömmu- morgunn á miðvikudag frá 10 til 12. GLERÁRKIRKJA: Kirkju- skólinn kl. 13 í dag, laugar- dag. Foreldrar hvattir til að mæta með börnum sínum. Guðsþjónusta kl. 14 á morg- un, sunnudag. Fundur æskulýðsfélagins kl. 20, ath. breyttan tíma. Kyrrðar- og bænastund kl. 18.10 á þriðjudag og biblíulestur og bænastund kl. 21 sama dag. Postulasagan lesin. Þátttak- endur fá afhent stuðnings- efni sér að kostnaðarlausu. HVÍTASUNIMUKIRKIAIM: Almenn samkoma, ræðu- maður Jóhann Pálsson, kl. 14 á sunnudag. Krakkakirkja meðan á samkomu stendur og barnapössun fyrir 1-5 ára. Safnaðarfundur á mið- vikudag kl. 20.30. Krakka- klúbbur á föstudag kl. 17.15. Samkoma í umsjá ungs fólks kl. 20.30 sama dag. Bæna- stundir á mánudags-, mið- vikudags,- og föstudags- morgunum kl. 6-7 og á þriðjudögum og fimmtudög- um kl. 14. Vonarlína, 462-1210, símsvari með orð úr ritningunni. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl. 18 í dag, laugar- dag, og kl. 11 á sunnudag í kirkjunni við Eyrarlands- veg 26. KAUPANGSKRKJA: Kvöldguðsþjónusta verður í kirkjunni annaðkvöld sunnu- dagskvöld kl. 21. Séra Gunn- laugur Garðarsson þjónar. KFUM og K: Bænastund kl. 20 á sunnudagskvöld, 12. október, f salnum í Sunnu- hlíð. Fundur yngri deildar KFUM og K kl. 17.30 á mánudag fyrir drengi og stúlkur 8 ára og eldri. Aglowfundur FYRSTI Aglowfundur vetrarins verður næstkomandi mánudags- kvöld, 13. október kl. 20 í félags- miðstöðinni Víðilundi 22 á Akur- eyri. Janice Dennis kennari frá Húsavík talar. Söngatriði og kaffi- hlaðborð, þátttökugjald er 300 krónur. Allar konur hjartanlega velkomnar. Morgunblaðið/Kristján KRISTJAN Snorrason, oddviti Arskógshrepps, var við vinnu á borstaðnum og rafsauð rörin saman sem notuð voru til að fóðra holuna, ásamt Benedikt Ketilbjarnarsyni, starfsmanni Jarðborana. Arskógshreppur Borað eftir heitu vatni BORUN eftir heitu vatni á svo- kölluðum Brimnesborgum í Ar- skógsshreppi hófst sl. laugardag. Starfsmenn Jarðborana hf. nota borinn Ými til verksins og eru þeir komnir niður á um 190 metra dýpi. Um er að ræða borun á könn- unarholu en verði árangur af þeirri vinnu góður getur hún nýst sem virkjunarhola. Kristján Snorrason, oddviti Arskógs- hrepps, sagði ekkert hafa komið á óvart „en við vonumst til að koma niður á vatn á 350-400 metra dýpi.“ Á síðasta ári voru boraðar 12 grunnar holur á svæðinu og einn- ig nokkrar í sumar til að stað- setja þá holu sem verið er að bora. Brimnesborgir eru mitt á milli þéttbýlisstaðanna Hauga- ness og Árskógssands og staður- inn því mjög álitlegur finnist þar vatn. Sveinbjörn Þórisson, borstjóri á Ými, sagði verkið hafa gengið vel og hann gerir ráð fyrir að hlutirnir fari að skýrast um miðja næstu viku, komi ekkert upp á. Á fimmtudag var holan fóðruð með stálrörum og steypu. Bæjarráð Akureyrar og NLFI Rætt um að starf- semi Skjaldarvíkur (flytji í Kjarnalund BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur fal- ið Jakobi Björnssyni bæjarstjóra, Sigurði J. Sigurðssyni bæjarráðs- manni og Valgerði Magnúsdóttur félagsmálastjóra að eiga viðræður við fulltrúa Náttúrulækningafé- lags íslands um hugsanlega leigu á húsnæði félagsins, Kjarnalundi í Kjarnaskógi til að flytja þangað starfsemi dvalarheimilisins Skjald- arvíkur, sem er dvalarheimili fyrir aldraða. Sigurður J. Sigurðsson sagði að þessi hugmynd hefði komið fram fyrir allnokkru og viðræður farið fram, en þeim aldrei verið lokið. Hann lagði þvi til að málið yrði tekið upp að nýju. Viðamiklar endurbætur liggja fyrir á Skjaldarvík Fyrir liggur að gera þarf viða- miklar endurbætur á húsnæði Dvalarheimilisins í Skjaldarvík og eru þær mjög kostnaðarsamar. „Málefni Skjaldarvíkur hvíla á bæjarstjórn, þar eru knýjandi verk- efni sem krefjast úrlausnar, varð- andi viðhald, endurbætur og að- Kvenfélagið Baldursbrá Kynning- arfundur KVENFÉLAGIÐ Baldursbrá heldur skemmti- og kynning- arfund í safnaðarheimili Gler- árkirkju á morgun, sunnudag- inn 12. október kl. 16. Á dagskránni verða erindi og söngur, fyrrverandi for- menn segja frá störfum sínum í félaginu og boðið verður upp á léttar veitingar. Þetta er upplagt tækifæri til að kynn- ast fjölbreyttri starfsemi fé- lagins. Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Uppstilling á framboðslista FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfélag- anna á Akureyri samþykkti á aðal- fundi á fimmtudagskvöld að viðhafa uppstillingu á framboðslista flokks- ins til sveitarstjómarkosninga næsta vor. Kjömefnd hefur verið falið að vinna við uppstillingu listans og þeg- ar því verki er lokið mun hann verða lagður fyrir fund fulltrúaráðsins til staðfestingar. Að sögn Sigurðar J. Sigurðssonar bæjarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins komu þau sjónarmið fram á aðalfundi fulltrúaráðsins að efna bæri til prófkjörs líkt og gert hefur verið mörg undanfarin ár. Yfírgnæfandi meirihluti fundar- manna var þó fylgjandi því að stilla upp lista fyrir næstu kosningar. Margir vildu, að sögn Sigurðar, prófa nýjar leiðir, enda hafí prófkjör gefíst misjafnlega, menn hafí ekki orðið á eitt sáttir eftir þau og á stundum hafí þau valdið deilum. búnað bæði heimilis- og starfs- fólks. Það er óviðunandi að menn komi sér ekki til þess verks að taka afstöðu til þess hvernig leysa á úr þessu. Gangi þetta ekki með Kjarnalund, þarf að finna nýjar leiðir,“ sagði Sigurður. Þróunin væri sú að rýmum fyrir langlegusjúklinga færi fækkandi á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, það stefndi æ meir í að það yrði rannsóknar- og aðgerðarsjúkra- hús. „Hjúkrunarrýmum mun ekki fækka á næstu árum og mér sýn- ist að dvalarrýmum geti ekki fækk- að mikið frá því sem nú er og því þurfa menn að fínna lausn í mál- inu, hvort byggð verði fleiri sam- býli fyrir aldraða eða með hvaða hætti við leysum þetta,“ sagði Sig- urður. Hann sagði að Kjarnalundur hefði verið skoðaður með það i huga hvort hann gæti nýst sem dvalarheimili fyrir aldraða, en þar hefur á síðustu árum verið rekið hótel. Eigendur Hótel Hörpu hafa Kjarnalund nú á leigu og eru með samning til nokkurra næstu ára. Aðalfundur Útvegsmannafélags Norðurlands Þorsteinn Már for- maður ÞORSTEINN Már Baldvinsson, forstjóri Samheija hf. á Akureyri, var kosinn formaður Útvegs- mannafélags Norðurlands á aðal- fundi félagsins í gær. Þorsteinn Már tekur við stöðunni af Magnúsi Magnússyni sem verið hefur formaður sl. tvö ár en hefur látið af starfí sínu hjá Útgerðarfé- lagi Akureyringa hf. Með Þorsteini í stjórn eru; Gísli Svan Einarsson, Sauðárkróki, Bjami Aðalgeirsson, Húsavík, Svavar B. Magnússon, Ólafsfírði, og Oddgeir Isaksson, Grenivík. Varamenn eru Valdimar Braga- son, Dalvík, Jónas Jóhannnson, Þórshöfn, og Sæmundur Friðriks- son, Akureyri. Útvegsmannafélag Norður- lands er stærsta aðildarfélag Landssambands íslenskra útvegs- manna og hefur þar ríflega fjórð- ungsvægi. Þetta er sá ávinningur sem íslensk heimili hafa fengið á einu ári vegna þess að FÍB kom á samkeppni í bílatryggingum. Við það lœkkuðu iðgjöld bílatrygginga um 1,1 milljarð króna á ári og skuldir heimilanna lœkkuðu um 1,2 milljarða króna.* Samtals er sparnaðurinn 2.321.145.283.kr. Þessi ávinningur er til kominn vegna samstöðu 18 þúsund félagsmanna FÍB. En að auki njóta félagsmenn FÍB fjölbreyttrar þjónustu sem er ómetanleg _ð\\d að FIB er fljot að Do«a- hverjum bíleiganda og veitir mikið öryggi. , vöð? ^0' •Skv. álitsgerð Hagfrœðistofnunar Háskóla Islands 7. okt. 1997 FÍB Borgartúni 33 Sími 562-9999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.