Morgunblaðið - 11.10.1997, Side 29

Morgunblaðið - 11.10.1997, Side 29
28 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBIAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SAMKEPPNII ÞÁGU NEYTENDA ATAK Félags íslenzkra bifreiðaeigenda til að lækka iðgjöld bifreiðatrygginga á síðasta ári hefur borið árangur og skilað neytendum umtalsverðum hagsbótum, samkvæmt niðurstöðum könnunar Hagfræðistofnunar Háskólans. FÍB-trygging tók til starfa í september síðastliðnum og fékk til samstarfs við sig erlendan tryggingahóp, Ibex Motor Policies. FÍB-trygging bauð verulega lægri iðgjöld en tryggingafélögin hér höfðu áður gert og önnur félög fylgdu fljótlega í kjölfarið. Hagfræðistofnun telur að beinn sparnaður bíleigenda af lækkun iðgjalda sé um 1,1 millj- arður króna á einu ári. Þetta sýnir að með fijálsum viðskiptum og erlendri samkeppni hefur mátt bæta hag neytenda til muna. Trygg- ingafélögin, sem fyrir voru, voru ekki trúuð á þessa starf- semi í upphafi og sögðu ekki hægt að bjóða svo lág ið- gjöld. Þau eru raunar enn sama sinnis og segja að þau séu að tapa á bílatryggingunum eftir að iðgjöldin lækk- uðu. Talsmenn FÍB segja hins vegar, að Ibex Motor-hópur- inn sé enn sem komið er sáttur við starfsemina hér á landi, hvað sem síðar kann að koma í ljós. Fróðlegt verður að sjá hver rekstrarafkoma trygginga- félaganna verður á þessu ári, sem er fyrsta heila árið í rekstri frá því að iðgjöldin voru lækkuð. Svo mikið er víst að sérhver verðlækkun er í þágu neyt- enda, jafnvel þótt hún kunni að vera tímabundin. Það verður líka erfitt fyrir tryggingafélögin að hækka iðgjöld- in á ný jafnhratt og þau voru lækkuð. íslenzkt efnahagslíf hefur liðið fyrir skort á sam- keppni. Á sumum sviðum ríkir virk samkeppni, sem leitt hefur til verulegrar lækkunar vöruverðs á undanförnum árum. Þetta á ekki sízt _við um verzlun með matvörur, fatnað og heimilistæki. Á öðrum sviðum virðist ætla að ganga illa að koma á samkeppni. í skipaflutningum hafa til dæmis komið tímabil, þar sem einstök skipafélög hafa lækkað verð og önnur fylgt á eftir. Nú er hins vegar lítil samkeppni á þeim markaði. Sama má segja um sölu elds- neytis, þar sem gjaldskrá olíufélaganna stenzt nánast upp á eyri og þau hækka og lækka verð öll á sama tíma. Undanfarið hefur orðið ódýrara að ferðast innanlands vegna aukinnar samkeppni í innanlandsflugi. I Morgun- blaðinu í gær má hins vegar lesa að bæði helztu flugfélög- in á innanlandsmarkaði, Islandsflug og Flugfélag íslands, telji sig tapa á innanlandsfluginu og að stutt sé í að far- gjöldin hækki að nýju. Hið nýja rekstrarumhverfi innan- landsflugsins, þar sem sérleyfi eru afnumin, hlýtur þó að skila neytendum lægra verði til frambúðar. Eflaust hefur smæð hins íslenzka markaðar talsvert að segja um það að samkeppni er hér ekki meiri en raun ber vitni. En eftir því sem Island verður í auknum mæli hluti af stærri markaði og losað er um hömlur á starfsemi erlendra fyrirtækja hér á landi batna forsendur fyrir því að erlend samkeppni komi til sögunnar, sem stuðlar að lækkandi verði. Slíkri samkeppni ber að fagna, því að hún er í þágu neytenda. íslenzk fyrirtæki eiga ekki annars kost en að laga sig að þessari þróun. HVER BORGAR? A Iumræðum á Alþingi í fyrradag um veiðileyfagjald sagði Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður m.a.: „Skatt- ur á útgerðarfyrirtæki gæti aldrei verið borgaður af nein- um öðrum en sjómönnum og fiskverkafólki. Það er hrein blekking, ef menn halda, að einhver annar muni borga.“ Látum liggja á milli hluta ágreining um það hvort veiði- leyfagjald sé skattur eða ekki skattur. Staðreyndin er hins vegar sú, að útgerðarfyrirtækin í landinu hafa á undanförnum árum verið að greiða gjald fyrir réttinn til þess að veiða en í stað þess að greiða það gjald í sameigin- legan sjóð hafa þau greitt það til annarra útgerðarfyrir- tækja. Er Einar Oddur Kristjánsson að halda því fram, að sjó- menn og fiskverkafólk hafi greitt kostnað af þessum kvóta- kaupum útgerðarfyrirtækjanna, sem hafa svo orðið til þess að stórauka eignir þeirra? LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 29 ............ ...... MIÐBÆRIIMN Ofbeldið felst í ónæðinu Fjöldi veitingahúsa í miðbæ Reykjavíkur hefur í för með sér mikinn mannsöfnuð þar á nótt- unni um helgar. í umfjöllun Ragnhildar Sverrísdóttur kemur fram að miðað við þenn- an mikla fjölda eru ofbeldisverk á borð við líkamsárásir ekki mörg í miðbænum. Ofbeldið felst fyrst og fremst í því ónæði og skemmdar- verkum sem íbúar svæðisins þurfa að þola. ____Öryggismyndavélar gætu dregið_ þar verulega úr, miðað við reynslu Breta. EKKI er ljóst hvar öryggismyndavélum verður komið fyrir í miðbæ Reykjavíkur, en framkvæmdanefnd um miðborgarmál lagði til að þær yrðu á Dómhúsinu við Lækjartorg, á Hótel Borg og á Aðalstræti 6. VEITINGAHÚSUM í mið- borginni fjölgaði mjög hratt á skömmum tíma og nú er svo komið að á níunda tug vínveitingastaða eru á svæðinu frá Rauðarárstíg að Garða- stræti. Leyfilegur gestafjöldi þessara staða er tíu þúsund manns. Séu allir veitingastaðir í borginni taldir eru þeir um tvö hundruð og þar geta 30 þúsund gestir komið saman, eða tí- undi hlut.i þjóðarinnar. Fjöldi fólks býr innan um veitinga- staðina. Þar sem þeir standa þéttast, í Kvosinni, eru götur og torg full af ölvuðu fólk langt fram eftir nóttu. íbúarnir hafa ekki mestar áhyggjur af ofbeldisverkum, heldur kvarta til lögreglu þar sem ekki er svefnfriður um helgar, eigur þeirra eru skemmdar eða sóðaskapurinn, sem fylgir drukknum mannfjöldanum, gengur fram af þeim. Það er ekki óalgengt að morgunverk íbúanna á laugardög- um og sunnudögum felist í að spúla burt þvag við útidymar, eða fjarlægja saur úr görðum. Viðskiptavinir veitingastaðanna eru misjafnir. í miðbænum er að finna krár, þar sem fíkniefnaneytend- ur og dagdrykkjufólk heldur til. Kvartanir vegna þessara staða eru fyrirferðarmiklar í skjölum lögreglu, enda gera viðskiptavinir af þessum toga Jítinn greinarmun á nóttu og degi. íbúar í fjölbýlishúsi við Pósthús- stræti, sem stendur við hlið Ölkjallar- ans við Skólabrú, sendu borgarráði bréf í síðasta mánuði, þar sem þeir kvörtuðu undan ónæði. Þeir hafa fengið sig fullsadda af innbrotum í stigaganginn, ópum og slagsmálum jafnt að nóttu sem degi og að finna sprautunálar fíkniefnaneytenda í blómabeðum. Þá hafa bílar verið skemmdir og rúður brotnar. íbúar eru ekki þeir einu sem kvarta, því sambýli við veitingastaði gerir forsvarsmönnum fyrirtækja einnig gramt í geði. Eimskipafélag íslands sendi borgarráði bréf í síðasta mánuði og kvartaði undan Hafnarkránni við Hafnarstræti. Borgarráð samþykkti að leita ítarlegra upplýsinga frá lög- reglu um rekstur þessara staða og rekstraraðilum verður gerð grein fyrir málinu. Lögreglan er nú að afla þess- ara upplýsinga. Borgaryfirvöld hafa fyrir nokkru gert sér grein fyrir að eitthvað verði að gera. Hins vegar hefur ekki geng- ið eins vel að koma góðum áformum í framkvæmd. í maí í fyrra sam- þykkti borgarráð að „á næstunni" yrði tímabundið hætt að mæla með útgáfu nýrra vínveitingaleyfa fyrir veitingastaði í miðborginni. í Morgun- blaðinu var haft eftir Guðrúnu Ág- ústsdóttur, forseta borgarstjórnar, að ekki væri hægt að setja á tímabundna stöðvun nema að undangenginni aug- lýsingu. Hún vísaði til fordæmis borg- arstjórnar Kaupmannahafnar, sem greip til þessa ráðs þegar henni fannst komið mikið ójafnvægi milli þjónustu- fyrirtækja í miðborginni. Guðrún benti einnig á, að borgaryfirvöld hefðu stuðlað að fjölgun íbúða í miðborginni og að ekki færi saman íbúðabyggð og fjöldi skemmtistaða. Kristín A. Árnadóttir, aðstoðarkona borgarstjóra, segir að frá og með næstu áramótum ætli borgarráð ekki að mæla með að veitt verði ný leyfi til áfengisveitinga. Ekki ströng skilyrði í nágrannalöndunum, til dæmis í Danmörku, eru sett ströng skilyrði fyrir leyfum til áfengisveitinga. í sum- um bæjum er m.a. gengið hart eftir því að veitingamaður ábyrgist að fólk safnist ekki saman fyrir utan staðinn eftir lokun. Hér á landi eru skilyrði fyrir veitingaleyfi þau, að umsækjand- inn sé fjárráða og að bú hans hafi ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta og leyfi til áfengisveitinga fær hann því aðeins að veitingastaður hans telj- ist „fyrsta flokks að því er snertir húsakynni, veitingar og þjónustu". Þessi skilyrði geta vart talist ströng. Reykjavíkurborg hefur reynt að skilja sauðina frá höfrunum með því að setja skilyrði fyrir jákvæðri umsögn sinni. Veitingamenn eiga að leggja fram vottorð um að þeir hafi staðið skil á opinberum gjöldum. Þessi skilyrði er hins vegar ekki að finna í lögum og líklegt að Reykjavíkurborg geti ekki staðið fast á þessu þegar á reynir. Borgaryfirvöld skoruðu nú í vikunni á dómsmálaráðuneytið að þegar verði lagt fram á Alþingi lagafrumvarp um breytingu á útgáfu veitinga- og vín- veitingaleyfa sem og afgreiðslutíma veitingahúsa. I frumvarpinu verði gert ráð fyrir að ákvarðanir um af- greiðslutíma verði í höndum sveitar- stjórna, enda hefur Reykjavík hug á að hann verði breytilegur. Um leið ítrekaði borgarráð nær tveggja ára samþykkt sína þess efnis að heimildir lögreglustjóra til tímabundinnar eða varanlegrar leyfissviptingar vínveit- ingaleyfa, ef leyfishafi fylgir ekki sett- um reglum, verði skýrar og ótvíræð- ar. Loks áréttar borgarráð þá stefnu að rétt sé að leggja mat á umsækj- anda um veitingaleyfí, m.a. fjárhags- stöðu hans og viðskiptaferil. Þennan laga- og reglugrunn, sem borgaryfirvöld fara fram á, þarf að setja til að koma böndum á þá veit- ingastaði, sem ítrekað brjóta t.d. gegn ákvæðum um aldur og fjölda gesta. Skýrt dæmi um þau veiku úrræði, sem lögreglan hefur, er afgreiðsla á máli veitingastaðarins Tetris í Fischer- sundi. Lögreglan taldi veitingamann- inn ítrekað hafa brotið gegn áfengis- lögum og barnaverndarlögum og neit- aði að endurnýja leyfi hans. Dóms- málaráðuneytið sneri þeirri ákvörðun hins vegar við. Þar var um að kenna að borgarráð hafði verið meðmælt því að leyfið yrði framlengt í sex mán- uði, með þeim skilyrðum að hljóðein- angrun yrði bætt, dyravarsla aukin og reglum um fjölda gesta og aldurs- takmark fylgt, nokkuð sem lögreglan mun hafa verið vantrúuð á að bæri árangur fremur en fyrri daginn. Ráðu- neytið taldi það ekki í samræmi við meðalhófsreglu stjórnsýslulaga að synja um leyfi í stað þess að binda það skilyrðum. Oryggismyndavélar vatói miðbæinn Þótt borgin geti ekki strax farið að framfylgja þeirri stefnu sinni að samþykkja ekki ný vínveitingaleyfi og enn vanti lög sem marka skýra stefnu og hafa að geyma heimildir til aðgerða víki veitingamenn út af beinu brautinni, þá sitja menn ekki auðum höndum. Nú er verið að leggja loka- hönd á samning Reykjavíkurborgar, Pósts og síma, dómsmálaráðuneytis- ins og lögreglustjórans í Reykjavík um uppsetningu og rekstur öryggis- myndavélakerfis í miðbænum. í áfangaskýrsiu framkvæmdanefndar um miðborgarmál, sem kom út fyrir tveimur árum, var lagt til að mynda- vélum yrði komið fyrir á Dómhúsinu við Lækjartorg, á húsinu við Aðal- stræti 6 (Morgunblaðshúsið gamla) og á Hótel Borg. Frá Dómhúsinu yrði hægt að fylgjast með Bankastræti, umhverfí stjórnarráðsins, Lækjartorgi og Austurstræti að Pósthússtræti. Frá Aðalstræti 6 yrði fýlgst með Aðal- stræti, Ingólfstorgi og Austurstræti að Pósthússtræti. Frá Hótel Borg yrði hægt að fylgjast með Austurvelli, Alþingishúsinu, Landssímahúsi og Pósthússtræti að Reykjavíkurhöfn. 67% fækkun innbrota og þjófnaða Framkvæmdanefndin taldi örygg- ismyndavélarnar forgangsmál. Hún vísaði til reynslunnar í Bretlandi, þar sem öryggismyndavélar hafa verið settar upp í fjölmörgum borgum. Af- brotum fækkaði verulega, til dæmis fækkaði innbrotum og þjófnuðum um 67% í borginni Hexham og skemmd- arverkum og líkamsárásum um 39%. I miðborg Newcastle fækkaði glæpum um 20%. Fækkun afbrota hefur hvergi verið undir 18%. Nú fer að líða að því að vélar verði settar upp hér. Hver aðili að samn- ingnum tilnefnir fulltrúa í verkefnis- stjórn og funda þeir í Ráðhúsinu á mánudag. Hugsanlegt er að samning- urinn verði undirritaður við það tæki- færi, en ekki er ljóst hvenær rekstur vélanna gæti hafist. Samkvæmt upplýsingum Símons Sigvaldasonar, deildarstjóra í dóms- málaráðuneytinu, hefur ekki verið tekin ákvörðun um fjölda myndavéla eða staðsetningu þeirra, en stjórnstöð- in verður hjá lögreglunni. Kristín A. Arnadóttir segir að Reykjavíkurborg ætli að leggja þijár milljónir króna til verkefnisins og Póstur og sími hf. láni búnað og heim- ili endurgjaldslaus afnot af ljósleiðara- kerfi. Það framlag sé metið til 2 'h til 3 milljóna króna. „Við viljum prófa myndavélarnar í eitt ár hið minnsta. Þær hafa reynst vel annars staðar og við getum ekki látið þetta óreynt.“ Fjöldi veitingahúsa í Reykjavík með vfnveitingaleyfi 1987-1996 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 Þreföldun á tíu árum Aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík Þurfum að tryggja öryggi allra VÍNVEITINGAHÚS í Reykjavík eru nú ríflega þrisvar sinnum fleiri en árið 1987. Það ár höfðu 52 hús í Reykjavík vínveitingaleyfi, ári síðar voru leyfin 57, árið 1989 voru þau 84, næsta ár 92 og árið 1991 voru þau orðin 103. Enn fjölgaði, því árið 1992 voru 115 veitingahús með vínveitingaleyfi, 132 árið 1993,144 árið 1994,156 árið 1995 og í fyrra voru leyfin 163, eða rúmlega þrisvar sinnum fleiri en árið 1987. Eftirlitsmenn vínveitingahúsa, sem starfa á vegum lögreglustjóra, voru fjórir árið 1979, þegar vín- veitingahús í Reykjavík voru að- eins 14 talsins. Þeir voru enn fjór- ir árið 1987, þegar vínveitingahús voru 52. Ætla mætti að þeim hefði fjölgað töluvert, þar sem vínveit- ingahús eru nú tólf sinnum fleiri en árið 1979, en sannleikurinn er sá að þeir eru enn fjórir. Hlutverk eftirlitsmannanna er að fylgjast með að fyrirsvarsmenn áfengisveitingastaða framfylgi reglum er gilda um reksturinn eins og til dæmis aldur gesta, fjölda þeirra og fleira, svo og að tilskilin leyfi séu í gildi. Auk eftirlitsmann- anna hafa lögreglumenn eftirlit með stöðunum og er það liður í almennri löggæslu. KARL Steinar Valsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að sú borg önnur hljóti að vera vandfundin sem geti hýst tíunda hluta þjóðar við drykkju og skemmtan í einu, auk þess sem afar óvenjulegt sé að flestir staðirnir séu á svo litlu svæði. Því sé ekki hægt að miða við borgir, t.d. í Bandaríkjunum eða Skandinavíu, þar sem miðborgirnar séu ekki örsmáar eins og hér. Um helgar safnast 1-5 þúsund manns saman í miðbænum eftir að skemmtistaðir loka. „Fjöldinn er mis- mikill og fer eftir veðri. Þá er fjöl- mennast um mánaðamót og þegar nýtt tímabil greiðslukorta hefst,“ seg- ir Karl Steinar. „Lögreglan þarf að tryggja öryggi allra, bæði ibúa og gesta. Um 50 lögreglumenn eru á vakt um helgar og þar af eru að minnsta kosti 15 í miðbænum." Karl Steinar segir að það sé um- hugsunarefni hvernig borgin sé kynnt. „Við sölu á ferðum til Reykja- víkur er beinlínis gert út á næturlífið og erlendir fjölmiðlar íjalla sérstak- lega um mannsöfnuð og drykkju í miðbænum. Ég veit ekki hvort íbúar borgarinnar eru almennt ánægðir með þessa ímynd, en lögreglan hefur áhyggjur af þessari þróun.“ Lögreglan var með gönguhópa í miðbænum. „Það orkaði tvímælis, því sumir æstust upp við að sjá lögregl- una. Við hopuðum því, en samt þarf að gæta þess að lögregla sé sýnileg. Nú reynum við að fylgjast vel með og kippa þeim sem eru til vandræða strax úr umferð.“ Karl Steinar segir að öryggis- myndavélar séu góð leið til að auð- velda lögreglu að grípa í taumana. „Ef við fáum vélar getum við bæði fylgt leiðbeiningum stjórnstöðvar og farið strax á staðinn, eða nýtt upptök- ur til að þekkja sökudólga eftir á, takist ekki að ná þeim strax.“ Sá hópur fólks í miðbænum, sem veldur Karli Steinari mestum áhyggj- um, eru 16-19 ára unglingar. „Lög- reglu, íþrótta- og tómstundaráði og Félagsmálastofnun tókst að snúa við þeirri þróun að yngra fólk væri á ferli í miðbænum á nóttunni, með því að flytja það í athvörf og láta foreldra sækja það. Hins vegar leita 16-19 ára unglingar í miðbæinn, því borgaryfir- völd hafa ekki fundið önnur úrræði fyrir þá. Þetta mál verður að skoða í samráði við foreldra. Finnst þeim eðlilegt að unglingar sæki skemmtun sína í götur miðbæjarins?" Karl Steinar segir því fara fjarri að unglingarnir séu þeir einu sem valdi vanda. „Eldra fólk kemur ekki síður við sögu og allt tengist þetta nær undantekningalaust áfengis- neyslu. Það fólk, sem kastar af sér þvagi undir næsta húsvegg og fremur skemmdarverk, er ölvað. Vandamálið liggur m.a. í því, að engin takmörk hafa verið sett við fjölda veitinga- staða. Menn hafa getað farið í fram- kvæmdir og sótt um vínveitingaleyfið eftir á. Borgin hefur ekki staðið við að hafa blandaða byggð í miðbænum. íbúar þar hljóta hins vegar að eiga sama rétt og aðrir íbúar borgarinnar." Karl Steinar segir umhugsunarefni hver sé skynsamlegur afgreiðslutími veitingastaða. „Ef hann er of stuttur flyst drykkjan inn á heimilin. Ef tíminn væri fijáls myndi kannski ekki myndast þessi mikla umferð frá mið- nætti, þegar fólk fer að tínast á stað- ina, og fram á morgun.“ Átök ölvaðra einstaklinga MIÐAÐ við þann mikla mann- fjölda, sem safnast saman í mið- bænum að kvöld- og næturlagi um helgar, teljast t.d. alvarlegar lík- amsárásir ekki margar þar. Á fyrstu níu mánuði ársins var tilkynnt um 28 alvarlegar líkams- árásir á landinu öllu. 21 var úti á landi, en sjö voru í Reykjavík. Þar af voru þrjár í miðborginni. Það sem af er árinu hefur verið tilkynnt um 430 líkamsmeiðingar af ýmsum toga í Reykjavík og urðu um 150 þeirra á miðborgarsvæð- inu. „Þegar þessar tölur eru skoðað- ar verða menn að hafa í huga þann fjölda sem þarna er og ástand fólksins. Flest tiivikanna eru átök milli ölvaðra einstaklinga," segir Karl Steinar Valsson. „Olvuninni í miðbænum fylgir líka virðingar- leysi gagnvart eigum annarra. Umfjöllun um miðbæinn hefur einnig mikil áhrif. Fyrir nokkrum árum var mikið rætt um að hættu- legir, vopnaðir menn væru á ferli í miðbænum. Þetta hafði það í för með sér að margt yngra fólk ákvað að ganga með hníf og hélt því fram að það væri nauðsynlegt til að veij- ast. Slík varnarvopn geta auðveld- lega breyst í árásarvopn. Núna hefur aftur dregið úr þessum vopnaburði." ’T Lögfræðingur embættis lögreglustjóra Menn hljóta að lýsa eftir stefnu borgarinnar IMIÐBÆNUM á að vera blönduð byggð, bæði íbúðir og atvinnu- starfsemi. Veitingastöðum hefur hins vegar fjölgað svo hratt, að menn hljóta að lýsa eftir stefnu borgarinnar í þessum málum. Um mitt síðasta ár ætlaði borgin að hætta að samþykkja ný leyfi, en það gerðist ekki. Núna er rætt um að engin ný leyfi verði samþykkt frá og með næstu áramótum,“ seg- ir Signý Sen, lögfræðingur hjá emb- ætti lögreglustjórans í Reykjavík. Á verksviði Signýjar er m.a. að sjá um útgáfu leyfa fyrir veitinga- staði í borginni. Reglur um veitinga- leyfí, áfengisveitingaieyfi og skemmtanaleyfi eru langt frá því að vera einfaldar og hefur lengi verið rætt um að samræma skilyrði og einfalda afgreiðslu mála. Veit- ingaleyfi sem og leyfí til áfengisveit- inga er bundið einstaklingi sem um það sækir og húsinu þar sem hann selur gistingu og/eða veitingar aðr- ar en áfengi. Leyfín eru óframselj- anleg. í Reykjavík er sá háttur hafður á, að sótt er um veitingaleyfí hjá embætti lögreglustjóra, sem leitar umsagnar eldvarnaeftirlits Reykja- víkurborgar, vinnueftirlits ríkisins og heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Borgarráð er ekki lengur umsagnar- aðili um veitingaleyfí, samkvæmt lögum um reynslusveitarfélög og samþykkt um starfsleyfisveitingar og umsagnir heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um veitinga- og gisti- leyfi. Það er því heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sem er umsagnaraðili um umsóknir um veitingaleyfí. Heilbrigðiseftirlitið leitar eftir umsögn borgarskipulags, sem á að sjá um grenndarkynningu og fleira. Þegar heilbrigðiseftirlit hefur feng- ið umsögn borgarskipulagsins og gefið grænt Ijós, getur embætti lögreglustjóra gefið út leyfi. Lög- reglustjóra er ekki heimilt að veita leyfi nema að fengnum jákvæðum umsögnum. Þau skilyrði, sem gerð eru til ein- staklings sem sækir um veitinga- leyfi, eru að hann sé fjár- ráða og að bú hans hafi ekki verið tekið til gjald- þrotaskipta. Eftir að veitingaleyfi er fengið þarf að sækja um leyfi til áfengisveitinga. Umsókn um áfengisveit- ingaleyfi er send borgarstjóm, sem leitar umsagnar félagsmálaráðs og málið er að því búnu afgreitt í borg- arráði. Þá þarf þriggja manna mats- nefnd dómsmálaráðuneytis að ganga úr skugga um að veitinga- staðurinn teljist „fyrsta flokks að því er snertir húsakynni, veitingar og þjónustu," eins og segir í áfengis- lögum. Matsnefndin getur sett skil- yrði um úrbætur og gefið frest til þeirra, en lögreglustjóri gefur út leyfí engu að síður. Borgin vill að um- sækjendur séu í skilum Reykjavíkurborg hefur viljað herða skilyrði fyrir leyfum til áfengisveitinga og í júlí á síðasta ári samþykkti borgarráð að setja skilyrði fyrir jákvæðri umsögn sinni um útgáfu áfengisveitingaleyfa í Reykjavík. Þau voru að framvegis fylgdi umsóknum upplýsingar um skil umsækjenda og eigenda eða framkvæmdastjóra á opinberum gjöldum, m.a. við Gjaldheimtu og lífeyrissjóði. Signý Sen segir að þessi skilyrði sé ekki að finna í lögum. Embætti^ lögreglustjóra hafi þó fylgt tilmæl- um borgarstjóra og neitað að taka við umsóknum veitingamanna, þar sem þessar upplýsingar vantaði. Einn veitingamaður hafi kært þá niðurstöðu til dómsmálaráðuneytis- ins, sem hafi fellt synjunina úr gildi, eftir að maðurinn lagði fram um- beðnar upplýsingar. „Annar veitingamaður neitaði nýlega að leggja þessar upplýsingar fram með umsókn sinni og vísaði til þess að skilyrðin væri hvergi að finna í lögum. Borgin neitaði að samþykkja umsókn hans og því gaf embætti lögreglustjóra ekki út leyfi. Hann hefur nú kvartað yfír máls^ meðferðinni við Umboðsmann Al- þingis, þar sem málið er enn í vinnslu." Mislangnr veitingatími Opnunartími veitingahúsa er ekki hinn sami og veitingatími. „Megin- reglan samkvæmt lögreglusam- þykkt Reykjavíkur er að veitinga- staðir mega vera opnir frá klukkan 6 að morgni til klukkan 3 að nóttu alla daga ársins, enda sé aðeiny _ seldur matur og óáfengir drykkir," segir Signý. „Áfengisveitingatími er frá klukkan 12 til 23.30 alla daga vikunnar, en þó fram til klukk- an 2 aðfaranótt laugardags, sunnu- dags eða almenns frídags. Til að mega veita áfenga drykki lengur þarf skemmtanaleyfi.“ Skemmtanaleyfi er veitt almenn- um skemmtistöðum og mega þeir þá veita áfengi til kl. 1 að nóttu virka daga og kl. 3 aðfaranótt laugardags, sunnudags og almenns frídags. „Oftast er sótt um skemmtanaleyfí um leið og veit- ingaleyfi og leyfi til áfengisveit- inga,“ segir Signý. „Þó eru dæmi um að fyrst sé opnað veitingahús, þar sem seldur er matur og vín, og síðar sé farið fram á að fá skemmtanaleyfi. Þá þarf til dæmis að meta hvar staðurinn er, því það skiptir miklu hvort opið er til 23.30 eða 1 ef stað- urinn er í íbúðahverfi." Lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir að ganga ekki harðar eftir að vín- veitingastaðir endurnýi leyfi sín á réttum tíma. „Lögreglan fylgist með leyfunum og sendir veitingamönnum bréf, þar sem bent er á að leyfið sé að renna út,“ segir Signý. „Þegar menn leggja inn umsókn um endumýjum fá þeir leyfið framlengt á meðair" umsóknin bíður afgreiðslu. Það er ekki hægt að kenna veitingamönn- um eða lögreglu um það þótt end- urnýjun leyfa tefjist, því margir þurfa að veita umsögn um umsókn- ina. Það er augljóst að við getum ekki lokað veitingahúsunum þegar ekki er við veitingamanninn að sak- ast.“ Refsað fyrir ítrekuð brot Ef veitingamenn bijóta skilyrði leyfís þá byijar embætti lögreglu- stjóra á að veita þeim áminningu. „Ef þeir gerast ítrekað brotlegir, þá er hægt að svipta þá skemmtana- leyfí, sem takmarkar þar með þann tíma sem þeir mega hafa opið. Ann- að úrræði er að banna áfengisveit- ingar, til dæmis eitt kvöld eða fleiri,“ segir Signý Sen. _ Skilyrði sem borgaryfir- völd setja er ekki að finna I lögum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.