Morgunblaðið - 11.10.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 27
Fréttaflutning-
ur af Seðla-
A
banka Islands
ENN einu sinni hefur
lífleg umræða farið
fram í fjölmiðlum og í
þjóðfélaginu um mál-
efni Seðlabanka ís-
lands. Síst væri nokkuð
við það að athuga ef
umræðan væri mál-
efnaleg og ef frétta-
menn sem um málin
fjalla sýndu þann metn-
að og þá fagmennsku
sem krefjast verður af
þeim. I ijölmiðlum
hljóma upphrópanir um
flakk bankamanna, að
Seðlabankinn sé helsta
spillingarbæli landsins
og, svo sérstakt dæmi
sé tekið, að fulltrúar
bankans hafi tæpast átt erindi á
ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og Alþjóðabankans í síðasta mán-
uði. Blaðamaður sem um það fjallaði
hlustaði ekki á skýringar á þátttöku
fulltrúa bankans né að Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn greiddi kostnað af
þátttöku formanns bankastjómar.
Enn síður kannaðist hann við að
bankinn hefði sent frá sér frétt um
fundinn. Eitt dagblaðanna birti for-
síðufrétt af því að lögfræðideild
Seðlabankans væri að rannsaka
ferðamál Steingríms Hermannsson-
ar (og vék raunar að hinu sama í
leiðara). Fýrir þeirri frétt var ekki
flugufótur.
Seðlabankinn gegnir
þýðingarmiklu hlutverki
í íslensku efnahagslífí.
Ingimundur Friðriks-
son telur upphlaup fjöl-
miðla gegn Seðlabank-
anum í þriðja sinn í ár
beinlínis varasamt.
Hneykslunin beinist mjög að ut-
anferðum bankastjóra Seðlabankans
án þess að þær séu settar í sam-
hengi við miklar alþjóðlegar skyldur
og skuldbindingar bankans (sjá
grein formanns bankaráðs í Morgun-
blaðinu 8. október sl.). Aldrei er
sýnd viðleitni til þess að meta árang-
ur af starfsemi bankans á alþjóða-
vettvangi. Ejölmargar opinberar
stofnanir sinna mikilvægum alþjóð-
legum erlendum samskiptum með
þeim kostnaði sem því er samfara
en þykir ekki fréttnæmt eða að-
finnsluvert. Er það kannski orðið
þjóðarsport að eltast við Seðlabank-
ann eða er kannski staðreyndin sú
að Seðlabankinnn hefur jafnan látið
upplýsingar greiðlega af hendi þegar
eftir hefur verið leitað og því auð-
velt um að fjalla.
Upphlaup fjölmiðla gegn Seðla-
bankanum í þriðja sinn í ár er beinlín-
is varasamt. Seðlabankinn gegnir
þýðingarmiklu hlutverki í íslensku
efnahagslífí. Hann mótar og fram-
fylgir peningastefnu sem hefur verð-
stöðugleika að markmiði og gætir
þess að stofnanir á fjármagnsmark-
aði fari eftir þeim reglum sem um
starfsemi þeirra gilda, þ.e. að fyllsta
öryggis sé gætt í rekstri þeirra.
Ómaklegar og ómálefnalegar árásir
á stofnunina geta skaðað möguleika
hennar til þess að sinna því hlutverki
sem lög kveða á um að hún skuli
sinna. Auk þess skaða þær stórlega
og að ósekju starfsmenn bankans því
Qölmiðlar og síðan almenningur hafa
tilhneigingu til þess að marka alla
sem þar starfa spillingarmarki. í
Seðlabanka Islands starfa 140 manns
sem hafa starfsheiður að veija. Hann
hafa þeir tæpast getað varið nema
með verkum sínum sem lítill gaumur
er gefínn í opinberri
umræðu. Þetta er fólk
sem vinnur störf sín af
samviskusemi og fag-
mennsku en má sæta
því, ásamt fjölskyldum
sínum, að vera nítt niður
hvar sem það kemur
fyrir það eitt að vera
tengt Seðlabankanum.
Yerk starfsmanna tala
sínu máli og tæpast
verður um það deilt að
bankinn hafí sinnt
margþættu hlutverki
sínu með góðum ár-
angri.
Skilningur virðist al-
mennt ríkja á að Seðla-
bankinn hafí undanfar-
in misseri fylgt peningastefnu sem
tryggt hefur framhald stöðugleika í
verðlagi og efnahagslífí. Umræður
sem sköpuðust síðla sumars um
stefnu bankans í vaxta- og gengis-
málum voru málefnalegar og gagn-
legar jafnt Seðlabankanum sem öðr-
um, enda skýrðu þær ýmsa mik-
ilvæga þætti í mati á ríkjandi efna-
hagsaðstæðum og á forsendum
stefnunnar í peningamálum, a.m.k.
fyrir þeim sem áhuga höfðu. Það
háir hins vegar opinberri umræðu
hve mikillar vanþekkingar gætir á
fjölmiðlunum um hlutverk Seðla-
bankans í íslensku efnahagslífi, eins
og umræða liðinna daga hefur borið
með sér. Athyglisverð er yfirlýsing
ritstjóra dagblaðs í blaði sínu 9.
október sl. að á hagstjórn, peninga-
málum og raunverulegri seðlabanka-
starfsemi hafi „örfáir núlifandi ís-
lendingar vit og enginn á fjölmiðl-
um“! Hvar er metnaðurinn?
Varðandi þá holskeflu vandlæt-
ingar sem nú ríður yfir Seðlabank-
ann er rétt að minna á að allar regl-
ur sem gilda um bankastjóra Seðla-
bankans höfðu verið birtar í svörum
til Alþingis sl. vetur. Engum þurfti
að koma á óvart hverjar þær eru.
Allar upplýsingar um kjör banka-
stjóra Seðlabankans hafa verið uppi
á borðinu. Bankaráð er kosið af Al-
þingi og þar sitja fulltrúar stjórn-
málaflokkanna, Alþýðuflokks, Sjálf-
stæðisflokks, Framsóknarflokks og
Samtaka um kvennalista. Bankaráð
hefur yfirumsjón með starfsemi
bankans og setur reglur m.a. um
bifreiðakostnað og ferðalög banka-
stjóra. Þessar reglur eru settar með
hliðsjón af reglum sem gilda annars
staðar, svo sem um ráðherra og í
öðrum bönkum og opinberum stofn-
unum. Bankaráð Seðlabankans hef-
ur síður en svo höfundarrétt á þeim.
Línur eru lagðar annars staðar en
lítil viðleitni er sýnd til þess að graf-
ast fyrir um þá hluti. Ef eitthvað
er þá hafa reglur sem gilda um starf-
semi Seðlabankans verið strangari
en í öðrum stofnunum.
í Seðlabankanum starfar innri
endurskoðun sem heyrir beint undir
bankaráð. Hún fylgist m.a. með því
að eftir reglum sé farið. Ráðherra-
skipaður löggiltur endurskoðandi
endurskoðar einnig allar hliðar á
starfsemi bankans, þar með talda
háttsemi bankastjóra, og gerir at-
hugasemdir eftir því sem hann telur
ástæðu til. í þriðja lagi endurskoðar
Ríkisendurskoðun starfsemi bank-
ans og ríkisendurskoðandi gerir sín-
ar athugasemdir eftir því sem hann
telur efni til. Nýlega upplýstist opin-
berlega um tiltekna aðfinnslu end-
urskoðenda sem sýnir að innra eftir-
litið er virkt.
Er of djarft að fara fram á sann-
gjarna og málefnalega umfjöllun og
að frammistaða bankastjórnar og
starfsmanna verði metin eins og hún
endurspeglast í verkum bankans?
Höfundur eraðstoðarbanknstjóri
Seðlabanka íslands.
Ingimundur
Friðriksson
Festa sú sem
Davíð Oddsson hefur
sýnt, er að mati
Kristjáns Pálsson,
lofsverð og rétt.
var mér ofboðið þegar fjölmiðlar
túlkuðu það sem sigur fyrir Kín-
veija!! Ég sagði í ræðu á Alþingi
um utanríkismál að þama birtist
kúgun Kínveija í sinni réttu mynd
og væri trúlega fyrsta alvöru skref-
ið í kúgun þeirra á hinum vestræna
heimi.
Sú festa sem Davíð Oddsson
forsætisráðherra hefur sýnt í sam-
skiptum sínum við Kínastjórn síð-
ustu daga, vegna mótmæla þeirra
og hótana vegna heimsóknar
Tævana hingað, er lofsverð. Það
eru fáir aðrir þjóðarleiðtogar í hin-
um vestræna heimi í dag sem hefðu
staðið keikir fyrir framan stórveld-
ið og haldið sínu striki eins og
hann hefur gert. Það er tímabært
að vestrænar þjóðir láti annað ráða
afstöðu sinni en hrein viðskipta-
sjónarmið. Mannúðar- og /relsis-
hugsjónin er ekki dauð á íslandi,
það má Golíat vita.
Höfundur er þingmaður
Reyknesinga.
ÍSLENSKT MÁL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
922 þáttur
GEIR Magnússon skrifar mér „hvort blása mætti af“ loðnuver- þetta ekki lengra að sinni.
athyglisvert bréf alla leið vestan tíð í ár. To blow off er lélegt Þinn einlægur.“
frá Pennsylvaníu í Bandaríkjum götustrákamál og þýðir sitt- ★
Norður-Ameríku. Ég þakka hon- hvað, svo sem að vanrækja Mikill óskaplegur stórsnill-
um virktavel fyrir bréfíð, og birt- skuldbindingar eða þykjast ekki ingur var Einar Ben. Lesi menn
ist það hér með einu innskoti sjá eða heyra einhvern eða eitt- til dæmis fyrsta kaflann af þýð-
og smávegis styttingu: hvað. Tel ég að betra hefði ver- ingu hans á Pétri Gaut. Það
yKæri Gísli. ið að nota orðasambandið að liggur við að mig langi til að
I afdölum í Kentucky eru afskrifa. í grein um heimsókn lesa þetta á frummálinu. Ég er
sagðir búa afkomendur land- skemmtiferðaskips til ísafjarðar viss um að Einar hefur verið
nema frá fyrstu árum landnáms stóð undir mynd af fólki á betri en Ibsen.
hér, sem sökum einangrunar bryggju, að flestir farþegar og ★
tala enska tungu eins og hún margir úr skipshöfninni hefðu Mér hefur um sinn veist sá
hljómaði á dögum Elísabetar „gengið í land“. Ég skildi þetta unaður og munaður að hlýða á
drottningar hinnar fyrstu. sem svo, að fólkið og áhöfnin Gísla Halldórsson lesa söguna
Mér fínnst stundum, þegar ég hefðu tekið pokann sinn og var um Góða dátann Svejk í heims-
les Morgunblaðið, að ég hljóti ekki hissa á því, skipstjórinn styijöldinni. Þessi lestur er svo
að vera uppdagað nátttröll eins hefur tvisvar „strandað skip- fágæt list, að mig skortir hæfi-
og þeir afdalamenn. Mér finnst inu“. Við lestur greinarinnar leika til þess að lýsa honum sem
ég sjá sífellt meira af breyttu kom hinsvegar í ljós að blaða- vert væri. Ég held jafnvel að
máli í blaðinu, bæði það, sem maðurinn ætlaði að segja fólkið lesari gæti blásið lífsanda í texta
skrifað er af blaðamönnum, og hefði skroppið í land. Mér hefur sem væri stórum verri en þýðing
það, sem haft er orðrétt eftir alltaf fundist að ganga í land Karls ísfelds. En hún er kapít-
viðmælendum. Sumt virðist vera af skipi þýddi að taka pokann uli út af fyrir sig. Því miður
erlend áhrif, annað breytt mál- sinn, að fara alfarinn í land. brestur mig tíma og kunnáttu
skyn. Tel ég engan vafa á því Hugsanlegt er þó að blaðamað- til samanburðar við önnur
að sjónvarpið eigi ríkan þátt í urinn hafi viljað taka það fram tungumál, en verk Karls er ótrú-
þessari breytingu, það dregur sérstaklega að viðkomandi legt afrek í sjálfu sér. Orðauðg-
bæði úr lestri og samræðum. hefðu gengið, en hvorki flogið in er til dæmis með ólíkindum,
Hér eru nokkur dæmi máli né synt í land. Með grein um eða snilld hans í vísnaþýðingum.
mínu til stuðnings. Þýddar frétt- þaravinnslu er mynd af manni Hvar annarstaðar væri hægt að
ir úr norrænum málum eru full- að hífa þarapoka um borð í fínna orð eins og tékkneska
ar af lausum greini, svo sem flutningaskip og segir þar að harðjaxlinum eru lögð í munn,
„hin fagra sænska leikkona“, „vatnið streymi úr þaranum". þegar hann segir að hverfið
„hinn ríki danski poppari", og Þarna ætti að segja að sjórinn hafi bókstaflega „ljómað í slags-
svo framvegis. Kryddsíldarþýð- streymi, orðið vatn var aldrei málum“. Ríkisútvarpið á miklar
ingar vaða líka uppi, baggy notað um salt vatn þegar ég var þakkir fyrir að hafa tilreitt okk-
pants þýtt sem pokabuxur, eins ungur, það var annaðhvort sjór ur þetta hnossgæti.
og ég sá nýlega í grein um eða pækill. Engum hefði þá dott- Karl Níelsson ísfeld fæddist
klæðnað skólabarna. ið í hug að segja að vatn hefði á Sandi í Aðaldal 1906, sonur
[Umsjónarmaður: Hér mun komist í lest á skipi í slæmu Áslaugar, systur Guðmundar
vera átt við þær víðu og jússu- veðri né að vatnsrok hefði trufl- Friðjónssonar. Hann varð stúd-
legu síðbuxur sem um hríð hafa að umferð á Skúlagötu. Þessi ent frá M.A. (í „prófessora-
verið í tísku.] villa kemur líklega úr ensku, bekknum") 1932 og var síðan
Hitt finnst mér sýnu verra, sem hefur ekkert orð um sjó í blaðamaður og rithöfundur.
þegar ensk orðatiltæki, stundum merkingunni salt vatn úr hafinu. Hann þýddi ókjör af frægum
illa þýdd, eru notuð í stað gam- Svona má lengi telja. [Hér er verkum heimsbókmenntanna og
als og góðs máls. í nýlegu við- sleppt nokkrum hörðum orðum samdi sjálfur vel og mikið. Karl
tali sagði viðmælandi að hádeg- um sjónvarp.] Að lokum, þá er ísfeld varð ekki gamall, dó 1960.
isverður væri aldrei ókeypis. það auðvitað hugsanlegt að mig ★
Þetta er þýðing á there is no misminni, að málfar hafi ekki Hlymrekur handan kvað:
free lunch, sem þýðir einfald- verið betra í minni æsku. Kaninn Magnúsi Vald. meyjarkossi
lega að æ sjái gjöf til gjalda eða hefur gott máltæki um slíkt var mjð|a3 ; kaldleygjarhossi,
að ekkert fáist án endurgjalds. misminni, því eldri sem maður- og þetta er dapurlegt kvæði,
í fyrirsögn um frétt um lélegar inn verður, þeim mun hraðar því þau drukknuðu bæði
horfur á loðnuveiðum var spurt hljóp hann sem strákur. Hef þar djúpt undir Aldeigjarfossi.
Davíð o g
Golíat
KÍNVERJAR hafa
undanfarið sýnt hin-
um vestræna heimi
klærnar og gefíð ótví-
rætt í skyn að þær
þjóðir sem ekki haga
sér í takt við stefnu
Kínastjórnar og dirf-
ast að hafa eigin
stefnu verði settar út
af sakramentinu. Þær
þjóðir sem ekki sam-
þykkja kúgun og
mannréttindabrot
Kínastjórnar á eigin
fólki sem og þjóðum
sem Tíbetum, mega
vænta hefndarráð-
stafana. Þeir
mann-
réttindahópar { Kína sem dirfast
að mótmæla stjórnarfarinu þar eru
umsvifalaust settir í einangrun-
arbúðir og aftökur fyrir litlar sem
engar sakir eru tíðar.
Þetta er hin grimma ásýnd
kommúnistastjórnarinnar í Kína
sem í krafti stærðar sinnar er að
takast það sem Sovétríkjunum
tókst aldrei, það er að
þagga niður í lýð-
ræðiselskandi þjóðum
sem voru tilbúnar til
að fórna lífinu fyrir
frelsið. Nú er hinn
vestræni viðskipta-
markaður tilbúinn til
að tapa frelsinu fyrir
viðskiptasamninga við
Kínveija og láta sem
vind um eyru þjóta
kveinstafí undirokaðra
fómarlamba Kína-
stjórnar.
íslendingum hefur
Kristján aldrei látið að lúta ut-
Pálsson anaðkomandi valdboði
og ef eitthvað er snúist
öndverðir gegn ofureflinu. Þjóð
sem ber gæfu til þess að hlú að
frelsinu og leyfír því að dafna mun
ávallt verða í sátt við sjálfa sig og
standa upp úr sama hvað á gengur.
Þegar tillaga Dana um fordæm-
ingu á mannréttindabroti Kínveija
var felld á þingi Sameinuðu þjóð-
anna í vetur vegna hótana Kínveija