Morgunblaðið - 11.10.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 37
MINNINGAR
HA UKUR
HREGGVIÐSSON
+Haukur Hregg-
viðsson fæddist
á Vopnafirði 9. maí
1948. Hann lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur í Fossvogi
fimmtudaginn 2.
október síðastlið-
inn. Foreldrar
hans eru Hreggvið-
ur Ágústsson, f.
16.5. 1916, d. 31.1.
1951, og Guðrún
B. Emilsdóttir, f.
23.10. 1928, sljúp-
faðir hans er Sig-
urjón Friðriksson,
f. 29.8. 1928, bóndi í Ytri-Hlíð,
en þau Guðrún gengu í hjóna-
band 2.3. 1952 og ólst Haukur
upp þjá þeim.
Eftirlifandi systkini Hauks
eru börn Guðrúnar og Sigur-
jóns: Friðrik, Emil, Hörður,
Þórný og Erla. Einnig synir
Hreggviðs: Ágúst, Hólmgeir
og Þorsteinn.
Haukur var tvíkvæntur,
fyrri kona hans var Stefania
Þorgrímsdóttir, skilin 1990.
Þeirra börn eru: Ása, gift Hall-
dóri A. Guðmundssyni, Sigur-
jón Starri, sambýliskona hans
Elísabet Lind Ricther, Guðrún
og Hreggviður Vopni. Barna-
barn Hauks, óskírð Hreggviðs-
dóttir, f. 15.5. 1997.
Eftirlifandi eiginkona
Hauks er Cathy Ann Joseph-
son, þau gengu í hjónaband
12.8. 1995 og bjuggu í Ytri-
Hlíð.
Haukur lauk námi í vélviriy-
un frá Iðnskóla Suðurnesja
árið 1975 og starfaði við þá
iðn.
Útför Hauks fer fram frá
Vopnafjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Jarðsett verður á Hofi.
að dauðinn er ekki
slæmur, að hann er
hluti af lífinu. Ég hef
upplifað hringrás lífs-
ins sem hefst er við
fæðumst í þennan
heim. Það finnst okkur
eðlilegt. Nú skil ég að
dauðinn er hinn hlutinn
og að hann er líka eðli-
legur.
Hins vegar er sárt
að þú sért farinn. Ýms-
ar minningar leita á
hugann og sú sem er
mér kærust er minn-
ingin um litlu stelpuna sem læddist
á dimmum nóttum upp í til pabba
og sofnaði í hlýjunni og örygginu
sem faðmur hans veitti. Þetta gafst
þú mér.
Að lokum kveð ég þig með þess-
um orðum: í dag skein sólin inn
um gluggann, sendi hlýjan geisla,
birtu, á andlit þitt og ég sá það í
nýju ljósi, sólarljósi.
Þín dóttir,
Ása.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Nú er hann dáinn.
Haukur föðurbróðir okkar lést á
Sjúkrahú'si Reykjavíkur 2. október
síðastliðinn. Hann kvaddi á hljóðlát-
an hátt, en minningin um Hauk
frænda verður alltaf efst í huga
okkar. Hann Haukur frændi var
ótrúlega stórbrotinn og mikill per-
sónuleiki. Hann var sífellt hlæjandi
og átti auðvelt með að sjá spaugi-
legu hliðarnar á málunum. Þegar
öll fjölskyldan kom saman var
Haukur alltaf hrókur alls fagnaðar
og ljóst er að það verður aldrei
hægt að fylla upp það tómarúm sem
myndaðist við fráfall hans. Haukur
frændi var aldrei langt undan þegar
eitthvað bjátaði á eða þegar okkur
vantaði ráðleggingar. Vegna þess
hversu yndislegur og ógleymanleg-
ur elsku frændi okkar var, og þó
að hann sé horfinn af þeirri jörð
sem við göngum á í dag mun hann
aldrei hverfa úr hjarta okkar.
Þótt ég sé látinn harmið mig ekki með
tárum. Hugsið ekki um dauðann með
harmi og ótta. Ég er svo nærri að
hvert eitt ykkar tár snertir mig og
kvelur þó látinn mig haldið. En þegar
þið hlæið og syngið með glöðum hug sál
mín lyftist upp í mót til ljóssins.
(Höf. ókunnupr.)
Við biðjum góðan guð að vísa
frænda leiðina til ástvina sinna hin-
um megin.
Elsku Cathy, amma, afi, Ása,
Siggi, Gunna og Hreggi, megi góð-
ur guð styrkja ykkur í baráttunni
við sorgina. Blessuð sé minning
Hauks frænda.
Guðrún Dís, Sigursteinn,
Steingrímur Páll og Sig-
urjón Hreiðar.
Pabbi minn.
í dag mun ég fylgja þér áleiðis
í þína hinstu ferð og langar því að
skrifa þér þessar línur.
Nú er að baki erfiður tími veik-
inda þinna og þjáninga og eftir sitj-
um við og veltum fyrir okkur til-
gangi lífsins. Af hveiju þú fékkst
ekki lengri tíma hér í þessu lífi?
Eða er ef til vill ekkert fengið með
því? Ber lífið kannski tilganginn í
sjálfu sér, án tillits til tíma eða
árafjölda.
Ég hef, pabbi minn, allaf frá því
að ég var lítil verið svo hrædd við
dauðann; að hann væri svo hræði-
legur og ekkert verra gæti gerst
en að einhver mér kær eða þá að
ég sjálf dæi.
Nú hefur þú sýnt mér og kennt
Skilafrest-
ur minn-
ingar-
greina
Eigi minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í
miðvikudags-, fimmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dög-
um fyrir birtingardag. Berist
grein eftir að skilafrestur er
útrunninn eða eftir að útför
hefur farið fram, er ekki unnt
að lofa ákveðnum birtingar-
degi.
E U ROC AR D/M AESTRO
korthafar!
Vegna breytinga í tölvukerfi má búast við
truflunum við notkun debet- og
kreditkorta milli klukkan 8.00 og 12.00,
sunnudaginn 12. október.
Sjálfsafgreiðslutæki svo sem hraðbankar
og bensínsjálfsalar verða lokuð meðan á
þessari breytingu stendur.
Við vonum að viðskiptavinir okkar sýni
skilning og þolinmæði.
EUROPAY
í s l a n d
KREDITKORT HF.
ÁRMÚLI 28-30 • 108 REYKJAVÍK
Sími: 550 1500 • Fax: 550 1515