Morgunblaðið - 11.10.1997, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997
Jóhann einn
með fullt hús
vinninga
6. 0-0 - Re7 7. Rh4 - Db6 8.
SKAK
Grand Ilótel
Reykjavík, 8.-22.
októbcr:
VISA NORDIC GRAND
PRIX, ÚRSLIT:
Jóhann Hjartarson er eini kepp-
andinn sem náði að vinna tvær
fyrstu skákimar. Norðurlanda-
meistarinn Curt Hansen vann
mikilvægan sigur á Hannesi Hlíf-
ari Stefánssyni.
ÞAÐ stefnir í harða baráttu
þeirra Jóhanns og Danans um
Norðurlandameist-
aratitilinn, en þeir
eru langstigahæstir
keppenda á mótinu.
Þeir tefla ekki inn-
byrðis fyrr en
níundu umferð og þá
hefur Hansen hvítt.
Það var barist vel
í annarri umferðinni
á fimmtudaginn.
Margar skákir dróg-
ust á langinn, en þó
lauk aðeins tveimur
með sigri en fímm
urðu jafntefli. Fær-
eyingurinn John-
Arni Nielsen beit í
skjaldarrendur
gegn Jóhanni og
virtist lengi eiga
jafntefli í hendi sér. En reynsla
Jóhanns reyndist þung á metun-
um, Færeyingurinn veikti stöðu
sína að óþörfu og Jóhanni tókst
að nýta sér biskupaparið til sig-
urs í endatafli.
Sú skák sem mesta athygli
vakti var viðureign Hannesar og
Curts Hansen. Hannes hafði
hvítt, en fékk ekkert út úr byrj-
uninni og Daninn fékk ívið þægi-
Iegri stöðu. í tímaþröng reyndi
Hannes að koma á hann snöggu
lagi, en Norðurlandameistarinn
varðist fimlega og komst út í
hagstætt endatafl sem hann
vann fljótt og örugglega.
Þeir Þröstur og Hector tefldu
snarpa skák þar sem Svíinn sókn-
djarfi fómaði skiptamun og tveim-
ur peðum fyrir hættuleg færi, en
niðurstaðan varð þráskák.
Við skulum líta á sigurskák
Jóhanns úr fyrstu umferð:
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Einar Gausel, Noregi
Caro-Kann vörn
1. e4 - c6 2. d4 - d5 3. e5 -
Bf5 4. Rf3 - e6 5. Be2 - Rd7
c4 - Bxbl 9. Hxbl - dxc4 10.
Bxc4 - Hd8 11. Dg4 - h5 12.
De4 - Rxe5I?
Skemmtilegur leikur sem vinn-
ur peð, en sá galli er á gjöf Njarð-
ar að svartur lendir með hrók á
villigötum og er langt á eftir í liðs-
skipan. Nú upphefjast miklar
sviptingar:
13. dxe5 - Hd4 14. De2 -
Hxh4 15. Be3 - Dc7 16. Hbdl
- Rd5 Til greina kom 16. -
Dxe5 því svartur verst eftir 17.
Hd8+ - Kxd8 18. Bb6+ - axb6
19. Dxe5 - Hxc4 20. Db8+ -
Kd7. En eftir 17. f4 hefur hvítur
hættuleg færi fyrir peðin.
17. Bxd5 - exd5
18. f4 - g5 19. e6!
- f6?!
Betra var 19. -
fxe6 þótt svarta
staðan sé vissulega
hættuleg eftir t.d.
20. Bxa7 - Hh6 21.
g3 - Hg4 22. fxga,
en svartur á þá 22.
- Hxg5 23. Be3 -
Hxg3+! 24. Khl -
Hxe3 og fær bætur
fyrir skiptamun-
inn.
STÖÐUMYND
20. Dc2!
Með tvöfaldri hót-
un: 21. Dg6+ og 21. Hxd5. Svart-
ur er kominn í mikil vandræði og
var að auki naumur á tíma.
20. - Dh7 21. Da4! - Bd6 22.
Hxd5 - Bxf4 23. Bxf4 - Hxf4
24. Hxf4 - gxf4 25. Hdl! -
De7 26. Dxf4 - 0-0 27. Df5 -
Dh7 28. Dxh7+ - Kxh7 29.
Hd7+ - Kg6 30. Hxb7 - He8
31. e7 - a5 32. Kf2 - Kf7 33.
Kf3 - Hxe7 34. Hxe7+ -
Kxe7 35. h4 - f5 36. Kf4 -
Kf6 37. a4 - c5 38. b3 - Ke6
og gaf, því eftir 39. Kg4 vinnur
hvítur peðsendataflið auðveld-
lega.
Þrír jafnir I Tilburg
Gary Kasparov missti landa
sína Vladímir Kramnik og Peter
Svidler upp að hlið sér í síðustu
umferð á Fontys mótinu í Tilburg.
Kasparov gerði jafntefli í 20
leikjum gegn Frakkanum Joel
Lautier, en Kramnik vann
sannfærandi sigur á heima-
manninum Loek Van Wely.
Svidler sigraði Onísjúk frá
Úkraínu í baráttuskák. Öðrum
skákum í síðustu umferð lauk með
jafntefli svo lokastaðan varð þessi:
I. -3. Svidler, Kasparov og Kramnik,
allir Rússlandi 8 v. af 11 mögulegum.
4.-5. Adams, Englandi og Leko, Ung-
veijalandi 7 v.
6. Júdit Polgar, Ungveijalandi 6 v.
7. Shirov, Spáni 5 v.
8. -9. Lautier, Frakklandi og Van
Wely, Hollandi 4Vi v.
10. Onísjúk, Úkraínu 4 v.
II. Piket, Hollandi 27. v.
12. Tal Shaked, Bandaríkjunum 1 'A v.
Margeir Pétursson
Daði Öm Jónsson
Jóhann
Hjartarson
VISA BIKARMÚTIÐ Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 VINN. RÖO:
1 J. A Nielsen, Fær. 2 310 S 0 0 0 14.
2 Jóhann Hiartarson 2.605 1 ■ 1 2 1.
3 T. Hillarp-Persson, Sv. 2.445 0 'h 'h 10.-13
4 R. Akesson, Svíþj. 2.520 0 'h 'h 10.-13
5 J. Tisdall, Noregi 2.480 'h 'h 1 6.-9.
6 J. Hector, Svíþjóð 2.470 1 'h 154 2.-5.
7 L. Schandorff, Danm. 2.505 hi 'h 1 6.-9.
8 Curt Hansen, Danm. 2.600 'h 1 1 'h 2.-5.
9 Hekji Ass Grétarsson 2.475 0 'h 'h 10.-13
10 Þiöstur Þórhallsson 2.510 'h 'h 1 6.-9.
11 H. Westerinen, Finnl. 2.410 1 'h 1 'h 2.-5.
12 R. Diurhuus, Noreqi 2.525 1 'h Vh 2.-5.
13 E. Gausel, Noregi 2.540 0 'h 'h 10.-13
14 Hannes Hlífar Stefáns. 2.545 1 0 1 6.-9.
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Svört sólgleraugu
týndust
SVÖRT sólgieraugu með
silfurlituðum doppum á
hliðarspöngum týndust í
síðustu viku. Glerin eru
sjóngler og gagnast því
fæstum. Finnandi vinsam-
legast hringið í Kristínu í
síma 562 1161.
Marglitt barnateppi
týndist
MARGLITT, heklað
bamateppi, týndist í lok
september, sennilega í
Kringlunni eða Hnoðm-
holti. Þeir sem hafa séð
teppið hafí samband í síma
552 0176.
Dýrahald
Þakklæti fyrir
góða þjónustu
MIG langar að koma á
framfæri þakklæti til
Svörtu pönnunnar. Við ger-
um það stundum hjónin að
koma þar við og fá okkur
steiktan físk til að hafa með
heim. Ifyrir nokkrum dög-
um fengum við okkur físk
eins og oft áður en þegar
við komum heim vantaði
hrásalatið. Við hringdum og
létum vita og voram við
beðin afsökunar á þessum
mistökum og var okkur boð-
ið i staðinn að næst þegar
við kæmum fengjum við
fría máltíð. Þetta kalla ég
góða þjónustu.
Þ.M.
Til athugunar
fyrir eldri
borgara
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi: „Atkvæða-
greiðsla á Alþingi. Nei hóp-
urinn virðist vera vinstri
menn. Eða þeir flokkar sem
skipa R-listann í Reykjavík.
Það er viðtal við Áma Sig-
fússon og Ingibjörgu Sólr-
únu í Mannlífí í maí ’94.
Þar er spurt: Á að hætta
niðurgreiðslu til aldraðra?
Og bæði segja nei. En nú
er búið að fella þessa að-
stoð alveg niður en hækka
alla þjónustu um 100%.
Fyrir utan álögur á íbúðir
sem má ekki kalla skatta.
Það hlýtur að vera augljóst
hvem á að kjósa.“
Matthildur Olafsdóttir.
Tapað/fundið
Boss-gallabuxur
týndust
BLÁAR Boss-gallabuxur,
týndust í sundlaug Vestur-
bæjar 2. október. Þeirra
er sárt saknað. í buxunum
er lyklakippa og tölvudýr.
Þeir sem hafa séð buxurn-
ar hringi í síma 562 1171.
Perla er týnd
PERLA, kolsvört sex mán-
aða læða með hvítan blett
á hálsi, týndist frá Lækjar-
hjalla 22, Kópavogi, sl.
þriðjudag. Hún var með
bláa ól og merkt. Hafí ein-
hver orðið ferða hennar
var er hann beðinn að
hringja í síma 564 4717
eða 551 9030.
Týndur köttur
SVARTUR fressköttur með
hvíta týru í rófu tapaðist frá
Fagrahjalla 10 í Kópavogi
þriðjudaginn 10. september.
Hann er geltur og eyma-
merktur. Hafi einhver oiðið
ferða hans var er hann beð-
inn að hafa samband í síma
554 4401 eða hafa sam-
band við kattholt.
Læður óska eftir
heimili
TVÆR læður, svartar,
önnur með hvíta bringu,
þriggja og hálfs mánaðar
og kassavanar og vel upp
aldar, óska eftir heimili.
Uppl. í síma 554 2552.
SPURT ER . . .
IVaraforseti Tævans kom hing-
að í þessari viku og mótmæltu
yfirvöld í Kína harkalega. Þau líta
á Tævan sem uppreisnarhérað í
Kína. Sendiherra Kínverska alþýðu-
lýðveldisins krafðist þess meira að
segja að íslendingar vísuðu varafor-
setanum úr landi. Varaforsetinn
sést hér á mynd. Hvað heitir hann?
2Ný íslensk kvikmynd var
frumsýnd í vikunni og heitir
hún „Perlur og svín“. Þetta er
gamanmynd og fjallar um „íslenska
drauminn“, sem mun snúast um
skjótfenginn gróða og langt frí í
heitum löndum. Leikstjóri myndar-
innar gerði einnig „Sódómu Reykja-
vík“. Hvað heitir hann?
3Bandaríkjamaður, sem á ræt-
ur að rekja til Rússlands og
Ítalíu, var ráðinn aðalhljómsveitar-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands
frá og með 1. september á næsta
ári. Hann er vinur Kristjáns Jó-
hannssonar, hefur oft komið hingað
til lands og nokkrum sinnum stjóm-
að Sinfóníunni. Hvað heitir maður-
inn?
4Maður einn var staðinn að
verki við innbrot í kaffistofu
í Hafnarfirði aðfaranótt miðviku-
dags. Maðurinn mátti vart mæla
og var grunaður um að vera undir
áhrifum fíkniefna. Ástæðan fyrir
erfiðleikum hans með mál var hins
vegar ekki víman, heldur hafði hann
sopið af brúsa einum með þeim
afleiðingum að munnur hans límdist
saman. Hvað var á brúsanum?
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra fer um helgina til Dan-
merkur og mun þar ræða við for-
sætisráðherra Danmerkur. Hvað
heitir starfsbróðir Davíðs í Dana-
veldi?
Hvað merkir orðtakið að grípa
fram fyrir hendurnar á ein-
hveijum?
Hver orti?
Dýrmæt eru lýðsins Ijóð,
landsins von þau styrkja.
Alltaf græðir þessi þjóð,
þegar skáldin yrkja.
8Greint var frá því á fimmtudag
að ítalskt leikskáld hefði hlotið
bókmenntaverðlaun Nóbels í ár.
Skáldið kvaðst furðu lostið þegar
tíðindin bárust um ákvörðun
sænsku akademíunnar. Maður þessi
skrifaði meðal annars leikritin
„Þjófar, lík og falar konur“ og
„Stjórnleysingi ferst af slysförum".
Hvað heitir hann?
9Hann hefur verið kjörinn
íþróttamaður ársins og lék
fyrsta leik sinn með A-landsliði ís-
Iands í knattspyrnu vorið 1979.
Landsliðsferillinn nær því yfir 18
ár, sem er met, en í dag tekur hann
fram skóna síðasta sinni fyrir lands-
liðið eftir að hafa leikið 72 lands-
leiki. Maður þessi er nú 36 ára og
leikur með Örebro. Hvað heitir
hann?
•uasuqorpnf) jpujy
*6 *°d[ ‘8 ‘uoBRiifipauaa JBuig •£
•BJdAqma piAsqjaA 9 uui iíSubJS ‘uinfjOAquia
jb uipiu B5JBX '9 •uassnuisBa diuiC^ jnBj
•g ‘dpjis pnpfiup ipjBq uubjj; ’tf *iuboobs
oo;a x 'uossBuof JBqsp • jj ’UBq^ uaiq ■ 1
Yíkverji skrifar...
NÝI spumingaþátturinn í Ríkis-
sjónvarpinu, Þetta helzt, fór
vel af stað að mati Víkverja. Form-
ið á þættinum er nýtt í íslenzku
sjónvarpi og í stað þess að þátttak-
endur séu ofureinbeittir og graf-
alvarlegir í tímahraki er andrúms-
loftið afslappað og beinlínis ætlazt
til að fólk geri að gamni sínu. Það
tókst líka ágætlega. Þátturinn er
reyndar blygðunarlaus stæling á
vinsælum spurningaþætti sem
sýndur hefur verið á sjónvarpsstöð-
inni BBC 2 í Bretlandi, Have I Got
News For You, en Víkveiji sér ekk-
ert að því að staðfæra góða hug-
mynd með þessum hætti.
xxx
*
IBREZKA þættinum, þar sem
Angus Deayton er stjórnandi
og háðfuglarnir Paul Merton og Ian
Hislop liðstjórar, er húmorinn
stundum hárbeittur og deilt á allt
milli himins og jarðar á milli þess
sem spurningum er svarað. Vík-
veiji er ekki viss um að menn
kæmust upp með jafnbeinskeytta
fyndni í íslenzku sjónvarpi. Fróð-
legt verður hins vegar að sjá hvort
íslenzki þátturinn verður jafnvin-
sæll og brezka fyrirmyndin, en
gamlir þættir eru nú endursýndir
á BBC 2 á þriðjudagskvöldum und-
ir nafninu Have I Got Old News
For You.
xxx
VÍKVERJI sótti fyrir nokkrum
árum fund Alþjóðahvalveiði-
ráðsins í Glasgow og fór m.a. á
útifund þar sem hvalveiðum var
mótmælt. Þar var aðalræðumaður-
inn ungur þingmaður Verkamanna-
flokksins, Tony Banks að nafni.
Hanri vandaði ekki hvalveiðiríkjun-
um íslandi, Noregi og Japan kveðj-
umar. „Ef þetta fólk vill éta óvenju-
lega rétti ætti það frekar að éta
hvert annað en hvalina," sagði
Banks við mikinn fögnuð fundar-
gesta.
Nokkrum árum síðar sá Víkvetji
Banks og heyrði í umræðuþætti í
brezka sjónvarpinu, þar sem hval-
veiðar íslendinga voru til umræðu.
Þingmaðurinn lét svo um mælt, eins
og ekkert væri eðlilegra, að nær
væri að skjóta hvalveiðimennina en
hvalina.
xxx
ETTA rifjaðist upp fyrir Vík-
veija þegar hann heyrði í
síðustu viku fréttir af vandræðum
núverandi íþróttaráðherra Breta.
Ráðherrann reyndist vera fyrr-
nefndur Tony Banks, sem hefur
greinilega enn munninn fyrir neð-
an nefið og hefur látið falla ýmis
glannaleg ummæli um jafnt sam-
flokksmenn sína og pólitíska and-
stæðinga. Hann líkti m.a. William
Hague, formannl Ihaldsflokksins,
við fóstur en formaðurinn þykir
hafa nokkuð barnslegt andlit.